Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2002, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2002, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2002 DV Fréttir 11 , DV-MYND GVA Islensk flugsaga er vörðuð fjölmörgum slysum Samkvæmt samantekt Rannsóknarnefndar flugslysa hefur flugið tekið stóran toll og 392 hafa farist í slysum á íslenskum loftförum frá upphafi. 69 flugslys á íslenskum loftförum frá upphafi: 392 einstaklingar hafa farist - fjögur slys með 12 eða fleiri látnum Flugslysið í Skerjafirði 7. ágúst 2000 er Cessna flugvél ísleifs Ottesen, TF-GTI, fórst með fjórum innanborðs var 69. dauðaslysið á ís- lenskum loftförum frá upphafi flugs á íslandi. í nýrri ársskýrslu Rann- sóknarnefndar flugslysa kemur fram að í þessum sextíu og níu slys- um hafa farist 392 einstaklingar. Fyrsta fómarlamb í flugslysi vélar sem skráð var hérlendis var barn sem hljóp fyrir Avro flugvélina H- 2545 í flugtaksbruni í Vatnsmýrinni í Reykjavík 27. júní áriö 1920. Langflestir létust í einu slysi er leiguflugvél Loftleiða, Douglas DC-8- 63 TF-FLA, fórst í lokaaðflugi að flug- vellinum í Colombo á Sri-Lanka 15. nóvember 1978. Með vélinni fórust 183. Annað mannskæðasta flugslysið varð er Douglas C-47A vélin TF-ISI fórst í áætlunarflugi frá ReyKjavík til Akureyrar 29. maí 1947. Þá fórust 25 manns er vélin flaug á Hestfjall í Héð- insfirði austan Siglufjarðar i sjónflugi inn Eyjafjörð. Þriðja mannskceðasta flugslysið var er Douglas-vélin TF-ISG fórst með 20 manns í áætlunarflugi frá Vestmanna- eyjum til Reykjavíkur 31. janúar 1951. Var vélin þá í aðflugi um radíóvita á Álftanesi til Reykjavíkurflgvallar er hún flaug í sjóinn út af Flekkuvík á Vatnsleysuströnd. Fjórða mannskæðasta flugslysið þar sem tiu eða fleiri fórust var er Vickers-V-759 vélin TF-ISU fórst með 12 mönnum við Fomebuflugvöll í Ósló 14. apríl 1963. Steyptist vélin til jarðar á lokastefnu í aðflugi. í einu tilviki hafa 8 farist í sama slysinu, í einu tilviki fórust 7, í þrem tilvikum fórust 5 og í tólf tilvikum fór- ust fjórir í sama slysinu. Þá hafa 3 farist í fimm tilvikum, í tólf tilvikum hafa 2 farist og í þrjátíu og einu tilviki lést einn maður. -HKr. Smiðjuvegi 32 - 34, s: 544 5000, Kópavogi • Fitjabraut 12, s: 421 1399, Njarðvík • Austurvegi 58, s: 482 2722, Selfossi Græni demanturinn Umhverfisvæn harðkornadekk - hafa gott veggrip \ hálku og bleytu - eru hljóðlát og skaðlaus umhverfinu - valda 14 sinnum minna vegsliti en nagladekk Harðkornadekk fyrir öryggið, veginn, lungun og eyrun B09002 gæðastaðlar: CmVRmi ...með GSM áskrift hjá Íslandssíma. ----------------------\ 9.900 kr. Nokia 3310 á 9.900 kr. - með 12 mánaða áskrift. Ekkert stofngjald ZAfjíFkr. J 18.900 kr. Nokia 3510 á 18.900 kr. - með 12 mánaða áskrift. Ekkert stofngjald 2r40íTkr. 14.900 kr. Nokia 3410 á 14.900 kr. - með 12 mánaða áskrift. Ekkert stofngjald 2-40€Tkr. Hringdu í 800 1111, komdu í verslun okkar í Kringlunni eða líttu á islandssimi.is. Með Íslandssíma hringir þú frítt í fjögur númer innan kerfis og á þjónustusvæði okkar. Íslandssími

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.