Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2002, Side 7
MIÐVJKUDAGUR 4. DESEMBER 2002
7
I
Fréttir
í
I
Nú kr. 147.
Afmælispakkatilboð á
AEG eldunartækjum:
Múrbrjóturinn afhentur
Páll Skúlason rektor HÍ afhenti í gær múrbjót fatlaðra til þeirra sem „þykja
hafa skarað fram úr í að ryðja fötluðum nýjar brautir íu jafnréttisátt. “ Á
myndinni með Páli eru Jóhann Ágúst Sigurðsson, prófessor við HÍ, Dóra
Bjarnason, dósent við KHÍ, Magnús Þorsteinsson frá Svæðisskrifsstofu
fatlaðra á Vesturlandi og Rannveig Traustadóttir, dósent við HÍ.
Höfuðborgarsvæðið:
Atvinnuleysi
eykst hraðar hjá
konum
Atvinnuleysi er aö aukast jafnt og
þétt á höfuðborgarsvæðinu og stefnir
í að það verði helmingi meira en á
sama tíma í fyrra. Tveir hópar skera
sig úr. Annars vegar eru konur á
aldrinum 34 til 44 ára og hins vegar
ungir karlmenn á aldrinum 25 til 34
ára. I flestum tilfellum eru karlmenn-
imir ekki fagmenntaðir en hjá kon-
unum er hluti ófagmenntaðra ekki
eins áberandi.
Ingunn Þorsteinsdóttir, hagfræð-
ingur hjá Alþýðusambandi íslands,
segir að ekki séu neinar vísbendingar
um að þessari þróun verði snúið við
á næstunni. Nýleg könnun, sem
Seðlabankinn og fjármálaráðuneytið
létu gera meðal 400 stærstu fyrirtækj-
anna, bendi til þess að mesta fækkun
á vinnumarkaðnum sé um garð
gengin en samt berist fréttir af mikl-
um uppsögnum. Miðstjóm ASÍ kemur
saman miðvikudaginn 11. desember
og þá verður væntanlega samþykkt
0 OKMSSON
Harður slagur BYKO og Húsasmiðjunnar um lóðir á Selfossi:
Húsasmiðjan vill fákeppni á
markaðinum á Suðurlandi
- segja BYKO-menn - forstjóri Húsasmiðjunnar hafnar ummælunum
AEG Lavamat þvottaýél
1400 snúninga tölvustýrð
þvottavél
AEG Lavatherm barkalaus
þurrkari með rakaskynjara
ítarlegar notenda-
handbækur á íslensku fylgja
þvottavélinni og þurrkaranum
Verðáðurkr. 183.360.-
Afmælisafsláttur 20%
„Við höfum undanfarin ár fylgst
með markaðnum á Selfossi og tók-
um þá ákvörðun nú fyrir skömmu
að reisa byggingavöruverslun þar
og fara í samkeppni við Húsasmiðj-
una á svæðinu. Við erum nú þegar
búnir að festa eina lóð, Eyraveg 36,
og erum að okkar mati komnir með
bindandi kaupsamning að lóðinni
við Eyraveg 34. Við gengum að
gagntilboði frá lóðareigendum síð-
astliðinn laugardag. Síðastliðinn
sunnudag fréttum við síðan að lóð-
areigendur hefðu þá um helgina selt
lóðina aftur, á hærra verði, og nú til
fyrirtækis í eigu Húsasmiðjunnar.
Það er okkar skilningur að með því
aö samþykkja gagntilboð lóðareig-
enda sé kominn á bindandi samn-
ingur á milli aðila,“ sagði Bjarni
Jónsson, umsjónarmaður fasteigna
hjá BYKO, við DV. Hann sagði að
greinilegt væri að Húsasmiðjan
neytti allra bragða við að hamla því
að aðrir aðilar kæmu með sam-
keppni á svæðið. Greinilegt væri að
þeir vildu hafa fákeppni á markaðn-
um á Suðurlandi.
„Fyrirtæki í eigu Húsasmiðjunn-
ar hefur nú þegar keypt þrjár lóðir
við Eyraveginn, þ.e. aðra hverja lóð
af þeim sem eftir eru, einungis til
þess að útiloka það að við getum
keypt tvær samliggjandi lóðir við
Eyraveg og reist þar byggingarvöru-
verslun á Selfossi. Mikið er á sig
lagt,“ sagði Bjami. Verslun BYKO
og byggingavörudeild munu koma
til með að veita um 15 manns vinnu.
„Við munum leita réttar okkar
varðandi þessa lóð fyrir dómstólum
og ætlum með því að fá staðfest að
með undirritun kauptilboðsins hafi
verið kominn á bindandi samning-
ur,“ sagði Bjarni Jónsson.
Erum ekki að bregða fæti
fyrir keppinautinn
„Það er af og frá að við séum að
kaupa lóðir á Selfossi í þeim til-
gangi að koma i veg fyrir að keppi-
nautur okkar geti byggt upp sinn
rekstur á Selfossi. Enda var það
ekki Húsasmiðjan sem keypti lóö-
imar heldur Miðdalur ehf. sem er
eignaumsýslufyrirtæki í Reykjavík.
Markmið Miðdals með lóðakaupun-
um er að byggja og leigja út verslun-
arhúsnæði við Eyaveginn sem er
ein besta verslunargata bæjarins,“
sagði Ámi Hauksson, forstjóri
Húsasmiðjunnar, viö DV. Hann seg-
ir að lóðirnar sem um ræðir hafi
verið lengi á söluskrá og að ekki
hafi komið fram raunverulegur
áhugi annarra á kaupum á þeim
fyrr en undir það síðasta. Reyndar
hefði BYKO verið að skoða kaup á
lóðunum fyrir nokkru en hætt viö.
„Það er af og frá að við séum að
reyna að bregða fæti fyrir keppi-
naut okkar í sinni uppbyggingu.
Enda veit ég ekki hvemig við ætt-
um að geta staðiö í vegi fyrir því að
stórfyrirtæki byggi upp starfsemi
sina á stað eins og Selfossi," sagði
Ámi Hauksson, forstjóri Húsasmiðj-
unnar. -NH
AEG veggofn B 4100-l-w. • Fjölvirkur blástursofn með klukku •
AEG keramik helluborð 6000 K-WN • AEG vifta DS 220 D-w
Verð
139.163.- Afmælisafsláttur 28%
Nú kr. 99.900.-
LÉTTGREIÐSLURIÞRJÁ MÁNUÐI
HJÁ BRÆÐRUNUM ORMSSON
Afmælisafsláftur
til miðvikudags 4. des
^rktun um atvinnuástandið. -GG
Liaaitfi