Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2002, Page 28
28
MIÐVTKUDAGUR 4. DESEMBER 2002
Sport
Þjoöverjinn Dirk NoWitzki hef-
ur farið fyrir frábæru liöi
Dallas Mavericks i vetur
ásamt félögum sínum Michael
Finley og Steve Nash, Reuters
í Wmfc ! wA\\,y
■.SSH m \ j i
Dallas Mavericks hefur byrjað tímabilið í NBA-deildinni frábærlega:
Heilög þrenning
- hinir frábæru Finley, Nash og Nowitzki bera leik liðsins uppi
Liö Dallas Mavericks hefur byrjað
tímabilið í NBA-deildinni af ógnar-
krafti og enn meiri krafti heldur en
nokkur bjóst við af þeim.
Liðið vann fyrstu fjórtán leiki sína
í deildinni en strandaði á sterku liði
Indiana Pacers á útivelli 28. nóvem-
ber. Þá vantaði liðið aðeins einn leik
til að jafna met Washington Capitols
og Houston Rockets yfir flesta sigur-
leiki í röð í byrjun tímabils í sögu
deildarinnar.
Síðan þá hefur liðið unnið tvo
leiki og er með langbesta árangurinn
í deildinni, sextán sigra og eitt tap,
eftir sautján leiki.
Þrír ábyrgir
Þaö er ekki á nokkurn liðsmann
hallað þó að þrir menn séu sérstak-
lega gerðir ábyrgir fyrir frábæru
gengi liðsins. Kanadíski leikstjórn-
andinn Steve Nash, bandaríski skot-
bakvörðurinn Michael Finley og
þýski framherjinn Dirk Nowitzki
hafa verið hjartað og sálin í leik liðs-
ins, nokkuð sem kom berlega í Ijós
þegar leikmenn NBA-deildarinnar í
nóvembermánuði voru valdir. Nash,
Finley og Nowitzki voru allir valdir
leikmenn nóvembermánaðar í vest-
urdeildinni, enda taldi dómnefndin
að ekki væri hægt að gera upp á
milli þremenninganna.
Nash, Finley og Nowitzki hafa
leitt liðið í stigaskorun í öllum leikj-
um liðsins á þessu tímabili. Nash
hefur leitt liðið í stoðsendingum í
öllum leikjunum á timabilinu.
Nowitzki er stigahæstur í liðinu og
hefur tekið flest fráköst af öllum
leikmönnum Dallas og Michael
Finley skoraði 42 stig gegn Detroit
Pistons 27. nóvember en hann hefur
aldrei skorað fleiri stig í einum leik
á ferlinum. Saman hafa þeir félagar
skoraði 61,3 stig, tekið 20,4 fráköst,
gefið 13,6 stoðsendingar og stolið 4,17
boltum að meðaltali i sautján leikj-
um liðsins í vetur sem er ansi stór
partur af framlagi Dallas.
Einhverjum leikur eflaust hugur á
að vita hverjir þessir leikmenn eru
og hvaðan þeir koma.
Mikill karakter
Það voru ekki margir sem höfðu
trú á Steve Nash þegar hann kom
inn í NBA-deildina sumarið 1996.
Hann var lítill og mjór leikstjórn-
andi sem fékk það hlutverk að vera
varamaður fyrir gömlu kempuna
Kevin Johnson. Hann náði sér ekki á
strik og var skipt til Dailas Maver-
icks fyrir tímabilið 1998-1999 fyrir
nokkra meðaljóna sem náðu sér
aldrei á strik með Phoenix og eru
flestir horfnir úr deildinni. Ekkert
gekk hjá Nash í Dallas í byrjun og
hann var mikið meiddur. Hann var
einn óvinsælasti leikmaður liðsins
og sagði sjálfur í viðtali fyrir
skömmu að það hefði verið mjög sér-
stök tilfinning að hlusta á átján þús-
und áhorfendur baula á sig. Nash er
þó þekktur fyrir allt annað en að gef-
ast upp og tímabilið 2000-2001 fóru
hlutimir loksins að ganga hjá hon-
um. Hann þykir vera gífurlega dug-
legur og samviskusamur og Mark
Cuban, litríkur eigandi Dallas, sagði
í viðtali á dögunum að liðið væri
löngu orðið meistari ef allir leik-
menn liðsins væru eins miklir
karakterar og Nash. Hann þykir
vera ein besta þriggja stiga skytta
deildarinnar og er af flestum talinn
vera þriðji besti leikstjórnandi NBA-
deildarinnar á eftir Jason Kidd og
Gary Payton.
Ótrúlegir hæfileikar
Það varð strax ljóst að þegar
Phoenix Suns valdi Michael Finley
númer 21 í nýliðavalinu árið 1995
væri liðið að fá ótrúlega hæfileika-
ríkan leikmann. Hann hefur veriö
mjög stöðugur í leik sínum síðan
hann byijaði að spila í deildinni og
það skipti hann litlu máli þegar hon-
um var skipt til Dallas Mavericks í
lok ársins 1996. Þá fékk hann reynd-
ar stærra hlutverk og hann hefur
verið með liðinu í risi þess frá botni
deildarinnar til toppsins. Hann nýt-
ur gífurlegrar virðingar meðal sam-
herja sinna og Nowitzki og Nash,
engir aukvisar sem þeir eru, halda
þvi statt og stöðugt fram að Dallas sé
„liðið hans Finleys". Hann þykir
aldrei hafa spilað betur en einmitt
nú og staðfesti það með stórkostleg-
um leik gegn Detroit á dögunum þar
sem hann skoraði 42 stig í glæsileg-
um sigri. Finley er í frábæru formi
og hefur nær undantekningalaust
verið meðal þeirra leikmanna sem
spila flestar mínútur á tímabilinu.
Þýska þruman
Þjóðverjinn Dirk Nowitzki er
sennilega sá leikmaður sem komið
hefur hvað mest á óvart í NBA-deild-
inni á undanfórnum árum. Sérfræð-
ingar bjuggust ekki við miklu af
honum þegar Dallas fékk hann í
skiptum frá Milwaukee árið 1998.
Hann byrjaöi rólega fyrsta árið en
síðan þá hefur leiðin legið hratt upp
á við og hann hefur skipað sér á
bekk með allra bestu leikmönnum
deildarinnar. Hann var valinn besti
leikmaður heimsmeistaramótsins í
sumar, sem fram fór i Bandaríkjun-
um, þar sem hann leiddi þýska
landsliðið í þriðja sætið og var val-
inn leikmaður vikunnar í vestur-
deildinni vikuna 4.-10. nóvember
síðastliðinn.
Nowitzki er mjög hávaxinn, 2,13
metrar en hreyfir sig eins og mun
minni maður og því getur verið
martröð fyrir andstæðingana að
dekka hann.
„Hann hefur forskot á aðra leik-
menn og það er örugglega skelfilegt
að dekka hann. Hann er fljótari en
stóru mennirnir og stærri en fljótu
mennirnir og því er erfitt að eiga við
hann. Ég er glaður yfir þvi að hann
er samherji minn,“ sagði Steve Nash
um Nowitzki en þessir þremenning-
ar, „hin heilaga þrenning", ætla sér
að skrá nafn sitt á spjöld NBA-
sögunnar næsta vor með
meistaratitli. -ósk
Stórleikir í 16-iiða úrslitum
bikarkeppni KKÍ og Doritos
Það verða stórleikir í 16-liða úrslitum bikarkeppni KKl & DORITOS
því að Keflavík mætir Haukum og Njarðvík fær Grindavík í heimsókn
en dregið var í gær. í kvennaflokki hefja bikarmeistarar KR titilvöm-
ina i Hveragerði auk þess sem grannarnir Keflavík og Njarðvík mætast.
Hjá konunum mætast einnig Keflavík b og Hekla, Laugdælir taka á
móti Breiðabliki, KFÍ fær Tindastól í heimsókn og ÍR mætir Haukum í
Seljaskóla. ÍS og Grindavík sitja hjá i þessari umferð en leikimir í 16-liða
úrslitum hjá konunum fara fram 18. desember.
Hjá körlunum mætast einnig Reynir Hnífsdal og ÍR, ÍS tekur á móti
Ármanni/Þrótti, Tindastóll fær Hött í heimsókn, KR b sækir Val heim,
Reynir Sandgerði fer til Hveragerðis og mætir Hamri og Snæfell fær Þór
í Þorlákshöfn í heimsókn í Stykkishólm. Leikimir hjá körlunum verða
spilaðir 14.-16. desember. -ósk
Tölfræði Dallas-
þrenningarinnar
í vetur
Michael Finley
Stig ........20,9
Fráköst .....6,8
Stoösendingar 3,0
Stolnir boltar 1,41
Tapaðir boltar 2,5
Varin skot ... 0,2
Skotnýting 42,7%
Vítanýting 87,3%
Þriggja stiga nýting.........40,0%
Mínútur .......................39,4
Finley er í nítjánda sæti yfir stiga-
hæstu leikmenn deildarinnar og í sjö-
unda sæti yfir þá sem eru með bestu
nýtinguna i þriggja stiga skotum í
vetur.
Dirk Nowitzki
Stig........21,7
Fráköst.....11,0
Stoðsendingar . 2,8
Stolnir boltar 1,29
Tapaðir boltar 1,9
Varin skot ... 0,9
Skotnýting . 44,6%
Vitanýting . 85,2%
Þriggja stiga nýting.........35,4%
Mínútur ......................38,6
Nowitzki er í þrettánda sæti yfir
stigahæstu leikmenn deildarinnar og
í sjöunda sæti yflr þá leikmenn sem
hafa tekið flest fráköst í NBA-
deildinni í vetur.
Steve Nash
Stig .......18,7
Fráköst .....2,6
Stoðsendingar 7,8
Stolnir boltar 1,47
Tapaðir boltar 3,0
Varin skot ... 0,0
Skotnýting 49,1%
Vítanýting . 89,9%
Þriggja stiga nýting........41,5%
Mínútur ......................33,2
Nash er níunda sæti yfir þá leik-
menn sem hafa gefið flestar stoðsend-
ingar í deildinni í vetur og hann er
einnig í níunda sæti yfir þá leikmenn
sem hafa hitt best úr vítaskotum sin-
um í vetur. -ósk
i
NBA-DEILDIN
Úrslit í nótt:
Washington-Milwaukee .. 103-78
Jordan 25 (7 frák., 4 stoðs.), Russell 16
(6 frák.), Thomas 14 (7 frák.) -
Thomas 17 (8 frák.), Redd 13, Haislip
12
New Jersey-Atlanta........87-72
Jefferson 22 (14 frák.), Martin 18,
Rogers 12 (7 frák.) - Glover 16, Terry
12 (5 frák., 7 stoðs.), Abdur-Rahim 11
(9 frák.)
Chicago-New Orleans .... 90-115
Rose 19, Williams 15 (5 stoðs.),
Marshall 14 (8 frák.) - Wesley 25 (5
stoðs.), Mashbum 21 (6 frák., 7 stoðs.),
Magloire 18 (10 frák.)
Houston-San Antonio......89-75
Ming 27 (18 frák.), Francis 18 (6 frák.,
6 stoðs.), Norris 16 (5 stoðs.) - Duncan
25 (12 frák.), Willis 12 (6 frák.), Bowen
12
Sacramento-Minnesota .... 98-86
Jackson 24, Webber 22 (11 frák., 7
stoðs.), Jackson 13 (6 stoðs.) - Hudson
19 (8 stoðs.), Gamett 18 (16 frák., 9
stoðs.), Gin 11
LA Lakers-Memphis........101-91
S. O'Neal 28 (9 frák.), Bryant 24 (10
frák., 11 stoðs.), Fox 14 - Wright 17 (8
frák.), Person 13, Battier 11, Gooden
11, Gasol 11 (9 frák.)
Golden State-Denver .... 110-89
Jamison 34 (7 frák.), Murphy 16 (9
frák.), Arenas 12 - Harvey 16 (5 frák.),
Howard 14 (9 frák.), Hilario 11