Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2002, Side 12
28
29
“1“
MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 2002 MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 2002
Sport___________________________________________________________________________________________________pv pv________________________________________________________________________________________________________________Sport
KA/Þór-Víkingur 16-21
0-1, 2-2, 2-8, 3-11, 6-12, (6-14), 9-14, 10-15,
12-18, 14-21, 16-21.
KA\Þór:
Mörk/viti (skot/viti): Inga Dís Siguröardótt-
ir 8/5 (19/7), Ásdís Sigurðardóttir 2 (10),
Sandra Jóhannesdóttir 2 (3), Elsa Birgis-
dóttir 1 (3), Martha Hermannsdóttir 1 (5/1),
Eyrún Gígja Káradóttir 1 (5), Guörún Helga
Tryggvadóttir 1 (3), Katrín Vilhjálmsdóttir
(2).
Mörk úr hraóaupphlaupum: 2 (Martha,
Eyrún).
Vitanýting: Skoraö úr 5 af 8.
Fiskud víti: Ásdís 4, Martha 3, Inga Dís.
Varin skot/víti (skot á sig): Sigurbjörg
Hjartardóttir 11/1 (32/6, hélt 2, 34%).
Brottvísanir: 10 mínútur.
Dómarar (1-10):
Bjami Viggósson
og Þorlákur
Kjartansson (6).
GϚi leiks
(1-10): 6.
Áhorfendur: 30
Ðest á
Guðrún Hólmgeirsdóttir, Víkingi
Víkineur:
Mörk/víti (skot/víti): Guörún Drífa Hólm-
geirsdóttir 8/1 (14/1), Geröur Beta Jóhanns-
dóttir 6/3 (8/3), Margrét Egilsdóttir 2 (3),
Helga Bima Brynjólfsdóttir 1/1 (3/2), Ásta
Agnarsdóttir 1 (1), Anna Kristín Ámadótt-
ir 1 (1), Guðmunda Ósk Kristjánsdóttir 1 (3),
Helga Guömundsdóttir 1 (2).
Mörk úr hraöaupphlaupum: 5 (Guörún 5).
Vítanýting: Skoraö úr 5 af 6.
Fiskuó víti: Ásta 2, Anna Kristín 2, Guö-
munda Ósk, Guörún Drífa.
Varin skot/viti (skot á sig): Helga Torfadótt-
ir 15/3 (29/8, hélt 8, 52%), Erla Sigurþórsdótt-
ir 0 (2, 0%).
Brottvísanir: 12 mínútur.
Essodeild E«yenna
í handbolta
Staöan:
ÍBV 13 12
Haukar 14 10
Stjaman 14 9
Víkingur 14 7
Valur 14 8
Grótta/KR 14 7
FH 13 5
KA/Þór 14 2
1 0 373-266 25
1 3 377-306 21
3 2 313-265 21
3 4 292-260 17
1 5 295-297 17
1 6 284-287 15
2 6 303-287 12
0 12 289-329 4
Fylkir/ÍR 14 2 0 12 256-360 4
Fram 14 1 0 13 267-392 2
Næstu leikir:
KA/Þór-Fram .........mið. 18. des.
Stjarnan-FH................sun. 5. jan.
Fylkir/ÍR-Haukar .....sun. 5. jan.
ÍBV-Valur.............sun. 5. jan.
Víkingur-Grótta/KR .. . sun. 5. jan.
Markahæstar:
Hanna G. Stefansd., Haukum .. 119/36
Jóna Margrét Ragnarsd., Stjöm. 110/54
Alla Gokorian, ÍBV ...............98/35
Inga Dís Sigurðardóttir, KA/Þór 94/48
Dröfn Sæmundsdóttir, FH ..........76/20
Harpa Dögg Vffilsdóttir, FH .... 76/33
Þórdís Brynjólfsd., Grótta/KR .. 69/35
Harpa Melsted, Haukum .............68/1
Anna Yakova, ÍBV...................68/3
Hekla Daðadóttir, Fylki/ÍR .... 65/22
Drífa Skúladóttir, Val............63/27
Guðrún Drifa Hólmgeirsd., Vík. . 60/4
Ásdis Sigurðardóttir, KA/Þór........59
Ingibjörg Jónsdóttir, ÍBV.........57/2
Sylvia Strass, ÍBV ................56/3
Helga Bima Brypjólfsd., Víkingi 54/25
Flest varin skot:
Berglind Iris Hansdóttir, Val. 228/13
Jelena Jovanovic, Stjömunni 211/16
Vigdís Siguröardóttir, ÍBV .. 211/10
Lukrecija Bokan, Haukum .. 208/11
Guðrún Bjartmarz, Fram .. . 205/11
Helga Torfadóttir, Víkingi . . . 190/9
Sigurbjörg Hjartard., KA/Þór . 167/6
Jolanta Slapikiene, FH ........161/12
Ema Maria Eiriksd., Fylki/ÍR .. 153/2
Bland í poka
Gústaf Bjarnason skoraði fimm mörk fyr-
ir lið sitt, Minden, í þýsku 1. deildinni í
handknattleik þegar liðið bar sigurorö af
Wilhelmshavener, liði Gylfa Gylfasonar,
24-21, á laugardaginn. Gyifi komst ekki á
blað í leiknum.
Siguróur Bjarnason og Róbert Sighvats-
son skoruðu fjögur mörk hvor fyrri Wetzl-
ar sem vann Hamburg, 26-25, i þýsku 1.
deiidinni í handknattleik.
Bandariski hnefaleikakappinn Floyd
Mayweather endurheimti WBC-titilinn í
léttvigt þegar hann vann sigur á Mexíkó-
anum Jose Luis Castiilo á stigum í bardaga
þeirra í Las Vegas. Mayweather hefur því
unnið alla 29 bardaga sina sem atvinnu-
maður, þar af 20 með rothöggi.
Franski sundkappinn Franck Esposito
setti í gær heimsmet í 200 metra flugsundi
þegar hann synti á 1:50,73 minútu á sund-
móti í Frakklandi. Hann bætti þar með
met Þjóðverjans Thomas Rupprath um
næstum hálfa sekúndu.
Leik Torino og Atalanta í ítölsku 1. deild-
inni í knattspymu var frestað í gær þar
sem læknir Atalanta, Walter Polini, fannst
látinn á hótelherbergi sínu, tveimur tím-
um áður en leikurinn átti að hefjast.
Italska knattspymusambandið ákvað að
fresta leiknum og hefur hann ekki verið
settur á að nýju.
Marokkóska liðið Wydad Casablanca
varð í gær fyrsta liðið frá Marokkó til að
vinna Afrikukeppni bikarhafa í knatt-
spymu. Wydad Casablanca vann fyrri leik-
inn gegn Asante Kotoko frá Gana, 1-0, en
tapaði seinni leiknum, 2-1. Casablanca
vann því á mörkum skoruðum á útivelli.
ítalska skióakonan Karen Putzer bar
sigur úr býtum í risasvigi í Lake Louise í
Kanada í gær. Putzer varð á undan Mart-
inu Ertl frá Þýskalandi sem hafnaði í öðru
sæti eftir spennandi keppni. -ósk
Grótta/KR-Álaborg 23-20
7 töp KA/Þórs í röð
Páll Pórólfsson fer hér inn úr horninu og skorar eitt fjögurra marka sinna en
Páll nýtti öll 4 skotin sín. DV-mynd Hari
- skóp góðan 23-20 sigur Gróttu/KR á Álaborg sem hefði átt að vera stærri
Liðsmenn Gróttu/KR mættu gríðar-
lega vel stemmdir til leiksins gegn
Álaborg í áskorendakeppni Evrópu
sem fram fór á Seltjarnarnesi á laug-
ardaginn en þetta var fyrri leikur lið-
anna í 16 liða úrslitum keppninnar.
Heimamenn gáfu tóninn strax í
byrjun leiksins er þeir spiluðu gríðar-
lega sterka og „agressífa" vörn sem
Dönunum gekk illa að ráöa við. Þegar
staðan var 2-2 tóku heimamenn öll
völd á vellinum, lokuðu vörninni,
náðu hraðaupphlaupum og skoruðu
fyrir vikið 6 mörk í röð og breyttu
stöðunni í 8-2 þegar 15 mínútur voru
liðnar af leiknum. Þeim mun héldu
þeir allt til loka fyrri hálfleiksins.
Dainis vaknar
Alexandrs Petersons var allt í öllu í
sóknarleik Gróttu/KR í fyrri hálfleik
og Danirnir brugðu á það ráð að taka
hann úr umferð strax í upphafi síðari
hálfleiks en sú staða hefur oft sett
sóknarleik Gróttu/KR í uppnám. Sú
varð ekki raunin að þessu sinni því
Dainis Rusko, sem var vart með með-
vitund í fyrri hálfleik, tók við keflinu
af landa sínum og raðaði inn mörkum
á Danina. Þegar 12 mínútur voru liðn-
ar af síðari hálfleik hafði Grótta/KR
náð 8 marka forystu, 18-10, og fátt sem
benti til annars en stórsigurs hjá
þeim.
Dómararnir taka völdin
Þá duttu Danirnir í girirrn og skor-
uöu 4 mörk í röð. Þegar tíu mínútur
voru eftir af.leiknum tók dómaraparið
frá Lúxemborg öll völd á vellinum.
Hver furðudómurinn rak annan hjá
þeim og leikmenn Gróttu/KR fengu aö
fjúka út af í 2 mínútur fyrir lítil brot.
Tók þó steininn úr er þeir ráku leik-
mann Gróttu/KR út af fyrir ólöglega
skiptingu en sjónvarpsmyndir sýndu
að skiptingin var fullkomlega lögleg.
Fyrir vikið náðu Danirnir að minnka
muninn í 2 mörk, 20-18. Lokamínút-
urnar voru æsispennandi og þegar
hálf mínúta lifði leiks kom Rusko
heimamönnum í tjögurra marka for-
ystu, 23-19, en Mads Kiib náði að
skora mikilvægt mark fyrir gestina á
lokasekúndum leiksins og niðurstað-
an þvi þriggja marka sigur hjá
Gróttu/KR.
Vörnin vann leikinn
Þaö var fyrst og fremst frábær vam-
arleikur sem tryggði Gróttu/KR þenn-
an sigur. Þar fóru fremstir í flokki
Páll Þórólfsson, Magnús Agnar Magn-
ússon, Alexandrs Petersons og Gísli
Kristjánsson en þeir voru allir gríðar-
lega grimmir og gáfu aldrei tommu
eftir. Fyrir aftan vörnina stóð síðan
Hlynur Morthens vaktina með mikl-
um ágætum eins og venjulega. Peter-
sons bar sóknarleikinn uppi í fyrri
hálfleik en Rusko í þeim síðari. Páll
Þórólfsson átti einnig fina spretti og
var sárt fyrir Gróttu/KR er hann var
útilokaður frá leiknum er 9 mínútur
vom eftir.
Slakir Danir
Danimir voru að öllum likindum
ekki að spila sinn besta leik á ferlin-
um en vörn Gróttu/KR sló þá algjör-
lega út af laginu og þeir létu mótlætið
fara í skapið á sér. Hornamaðurinn
Back var skástur þeirra í leiknum en
lítið fór fyrir skyttunni Lund sem
skoraði ekki mark í 4 tilraunum.
Spurningarmerki verður síðan að
setja við íþróttamennsku þeirra því er
blaðamaður hélt heim á leið af leikn-
um voru þrír leikmanna liðsins í and-
dyri íþróttahúss Seltjarnames, enn í
búningum sínum, að reykja „íþrótta-
blys“. Ekki góðar fyrirmyndir það.
Ágætir möguleikar
Frammistaða Gróttu/KR í þessum
leik hlýtur að gefa þeim sjálfstraust
fyrir seinni leikinn því með álíka
vöm og baráttu úti í Álaborg geta þeir
vel varið þetta þriggja marka forskot.
Þó verður að hafa í huga að lið Ála-
borgar er gríðarlega erfitt heim að
sækja og þeir voru örugglega nokkuð
frá sínu besta í þessum leik.
-HBG
Það gekk ekki vel hjá KA/Þór þeg-
ar þær mættu Víkingsstúlkum á
laugardaginn. Þetta var fyrsti heima-
leikur KA/Þórs síðan í byrjun októ-
ber og svo var heimaleikur hjá Þór í
deildarkeppninni á sama tíma
þannig að það voru ekki margir
áhorfendur á leiknum og er þetta
ekki í fyrsta skipti í vetur sem þessi
staða kemur.
Víkingsstúlkur sóttu tvö stig norð-
ur með 16-21 sigri og hafa náð 10 af
síðustu tólf stigum í boði.
KA/Þórsliðið varð hins vegar aö
sætta sig við sjöunda tap sitt í röð.
Jafnt var á tölum í 2-2 eftir rétt
sex mínútna leik. Næstu fimmtán
mínútur voru erfiðar fyrir KA/Þór
en þá náðu þær aðeins að skora eitt
mark gegn níu mörkum Víkinga og
náðu Víkingar með góðri spila-
mennsku og góðri vöm að tryggja sér
sigurinn í leiknum.
Víkingsstelpur gáfu aðeins eftir
þegar leið á fyrri hálfleik og náðu
heimamenn að minnka muninn nið-
ur í sex mörk. Byrjun seinni hálf-
leiks snerist um markvörslu.
Aðeins eitt mark var skorað fyrstu
fimmtán mínútumar og voru þaö
heimastúlkur í KA/Þór. Þær hefðu
getað minnkað muninn enn frekar
en ekkert virtist ganga upp hjá báð-
um liðum nema þá markvarslan.
Víkingsstelpur voru hins vegar
ekkert á því að gefast upp og héldu
sex marka forystu. Ásdís Sigurðar-
dóttir var ekki svipur hjá sjón en
hún skoraði aðeins tvö mörk í leikn-
um.
Hjá KA/Þór var Inga Dís óhrædd
við að skjóta ásamt Ásdísi en án
mikils árangurs. Þetta var hreinlega
ekki þeirra dagur.
Hjá Víkingum var Guðrún Hólm-
geirsdóttir best með átta mörk og
einnig stóð Helga Torfadóttir sig vel í
markinu með 15 skot varin. Vik-
ingsliðiö er búið að spila fimm af síð-
ustu sex leikjum á útivelli en hefúr
samt náð í tíu stig í þeim. -JJ
Var algjör
skandall
- sagði Ágúst Jóhannsson, þjálfari Gróttu/KR
Það var þungt hljóðið í Ágústi Jó-
hannssyni eftir leikinn gegn Álaborg
og var verulega af honum dregið enda
búinn að standa í miklu stappi við
dómara og eftirlitsmann leiksins
ásamt því að stýra liði sínu í leiknum.
Vendipunkturinn
„Þetta var algjör dómaraskandall
og það toppaði allt þegar þeir ráku
mann út af hjá okkur fyrir ólöglega
skiptingu sem var algjört rugl. Þá vor-
um við fimm mörkum yfir en þegar
við vorum orðnir tveimur færri fyrir
litlar sakir gengu Danirnir á lagið og
ég vil meina að það hafi verið vendi-
punkturinn í leiknum,“ sagði Ágúst
en hann var ekki eingöngu ósáttur við
frammistöðu dómaraparsins heldur
einnig eftirlitsmannsins sem kom frá
Spáni.
„Það var ekki hægt að tala við
manninn því hann talaði ekkert nema
spænsku og það segir sig sjálft að það
er erfitt að koma kvörtunum á fram-
færi við slikar aðstæður því ekki tala
ég reiprennandi spænsku," sagði
Ágúst, en það var oft skemmtilegt að
fylgjast með því sem gekk á i kringum
dómaraborðið og sá spænski fékk oft-
ast lítið ráðið við forráðamenn lið-
anna sem fóru mikinn enda mikið í
húfi.
„Ég er aftur á móti mjög ánægöur
með sigurinn því við stefndum aö
sigri svo það væri eitthvað að verja í
seinni leiknum um næstu helgi. En
miðaö við það hvemig leikurinn þró-
aðist er ég hundfúll með að hafa ekki
meira forskot. Vörnin var ótrúleg og
strákarnir gáfu sig alla í verkefnið og
uppskáru eins og þeir sáðu,“ sagði
Ágúst
Hæfilega bjartsýnn
Hverja telur hann vera möguleika
liðsins í seinni leiknum úti í Álaborg?
„Ef við náum upp álíka stemningu
úti munum við koma til með að velgja
þeim undir uggum og ég er hæfilega
bjartsýnn fyrir leikinn. Við ættum
einnig að fá ágætan stuðning því ég
hef heyrt af því að fjölmargir íslend-
ingar sem eru búsettir í Danmörku
ætli að leggja leið sína á leikinn og
það kemur vonandi tO með að hjálpa
okkur eitthvað."
-HBG
Dainis Rusko var besti maöur Gróttu/KR í 23-20 sigri á danska liöinu Álaborg HSH-APS. Rusko skoraöi níu mörk í leiknum en óvfst er hvort þriggja marka sigur
kemur til meö aö duga liðinu í seinni leiknum í Danmörku um næstu helgi. DV-mynd Hari
Álaborg:
Mörk/viti (skot/viti): Christian Back 6
(8), Mads Kiib 4 (8), Havard Tvedten 4/1
(5/2), Bo Pedersen 2 (2), Sören Larsen 2 (4),
Trond Eriksen 1 (2), Jesper Koch 1 (5),
Borge Lund (4/1).
Mörk úr hraðaupphlaupum: 5 (Tvedten
2, Kiib 1, Larsen 1, Back 1).
Vitanýting: Skorað úr 1 af 3.
Fiskuó viti: Koch 1, Lund 1, Eriksen 1.
Varin skot: Jan Hyldgaard 5, Lars
Dissing 4.
Brottvisanir: 10 mínútur.
0-1, 2-2, 8-2, 9-5, 10-7, (13-7), 13-8, 15-9,
18-10, 19-15,20-18,23-20.
Grótta/KR:
Mörk/viti (skot/viti): Dainis Rusko 9/3
(11/4), Alexandrs Petersons 6 (9), Páll
Þórólfsson 4 (4), Magnús Agnar
Magnússon 2 (3), Kristján G. Þorsteinsson
1 (2), Alfreð Finnsson 1 (2), Davíð Ólafsson
(1), Gísli Kristjánsson (1).
Mörk úr hraóaupphlaupum: 6 (Páll 3,
Petersons 2, Rusko 1).
Vitanýting: Skorað úr 3 af 4.
Fiskuó viti: Gisli 1, Petersons 1, Magnús 1,
Ingimar 1.
Varin skot/viti (skot á sig): Hlynur
Morthens 14/2 (34/3, 41%).
Brottvisanir: 16 mínútur (PáU útilokaður
eftir 3x2 mín.).
Maöur leiksins:
Dainis Rusko, Gróttu/KR
Dómarar (1-10):
Arthur Bertendes
og Leon Donven,
Lúxemborg (3).
Gϗi leiks
(1-10): 7.
Áhorfendur: 300.
Fyrri leikur í áskorendakeppni Evrópu i handbolta fór fram um helgina:
Frábær varnarleikur
8 marka
Það bíður erfitt verkefni hjá Hauk-
um í seinni leik sínum gegn spænska
liðinu Ademar Leon í Evrópukeppni
bikarhafa eftir átta marka tap í fyrri
leiknum úti á Spáni í gær. Ademar
Leon vann leikinn 29-21 og komu víst
makedónskir dómarar leiksins nokk-
uð við sögu í leiknum. Ademar hafði
yfir 16-12 í hálfleik en um miðjan
seinni hálfleik stóð 22-17 en fimm
marka munur hefði ekki verið slæm
úrslit fyrir Haukana.
Viggó Sigurðsson var ekki ánægð-
ur með dómgæslu umræddra
makedónskra dómara.
„Átta mörk eru mikið í Evrópu-
keppninni. Þetta var erfiður leikur og
við vorum að spila við mjög gott lið
en dómgæslan var algjör skandall.
Við fengum á okkur 10 víti í leiknum
en fengum aðeins eitt sjálfir. í 5 skipti
var búið að fría mann inni á línu en
þá voru þeir búnir að dæma fríkast.
Spiluðum vel
Við spiluðum þennan leik mjög vel
en það var rosalegur hraði í honum.
Við áttum von á því að þeir spiluðu
6:0 vörn en þeir spiluðu 3:2:1 og það
var ofboðsleg keyrsla í leiknum. Þeir
keyra hraðaupphlaupin stíft og lika
þegar við skoruðum og við höfðum
því frekar litla skiptimöguleika auk
þess að við fengum engin hraðaupp-
hlaupsmörk likt og þeir,“ sagði Viggó
í samtali við DV-Sport eftir leik og
bætti svo við.
„Við vorum mjög óheppnir. í lok
leiksins erum við í mjög góðu hraða-
upphlaupi en missum boltann.
Heppnin var algjörlega þeirra megin
og dómgæslan var alveg síðasta sort
en samt vorum við sjálfum okkur
verstir. Við létum verja frá okkur í
einum fimm dauðafærum í seinni
hálfleik og á síðustu mínútum fáum
við á okkur tvö hraðaupphlaups-
mörk,“ sagði Viggó sem var mjög
ánægður með frammistöðu Litháans
Robertas Pauzoulis.
Ánægður meö Robertas
„Robertas spilaði frábærlega vel.
Hann hélt okkur alveg á floti á
tímabili í leiknum. Birkir Ivar kom í
markið í seinni hálfleik og varði þá
mjög vel en það var of mikið brottfall
hjá okkur. Þorkell og Ásgeir náðu sér
ekki á strik og það voru bara þrír
leikmenn, Aron, Robertas og Sham-
kuts sem báru okkur uppi sóknar-
lega. Vörnina stóðum við hins vegar
mjög vel enda fáum við á okkur flest
þessi mörk úr hraðaupphlaupum eða
vítum og þeir skoruðu að ég held aö-
eins sjö mörk utan af velli í leikn-
um,“ sagði Viggó.
Mörk Hauka: Robertas Pauzoulis 9, Ar-
on Kristjánsson 5, Aliaksandr Shamkuts 4,
Ásgeir Öm Hallgrímsson 2, Jón Karl
Bjömsson 1/1.
Mörk Ademar: Juanín 7, Raúl Enterrí-
os 6, Petar Metlicic 4, Julio Munoz 3,
Christian Kjelling 3, Denis Krivochlikov 3,
Manúel Colón 2, Héctor Castresana 1,
Kaper Hvidt 1.
„Við ætlum að fara í seinni leikinn
með því hugarfari að vinna leikinn.
Það verður fyrst og fremst takmarkið
úr þessu en síðan verður bara að
koma í ljós hvemig leikurinn þróast.
Við erum samt ekki búnir að gefast
upp og ætlum að reyna það sem við
getum en þetta verður mjög erfitt,"
sagði Viggó Sigurðsson um seinni
leikinn sem fram fer á Ásvöllum á
laugardaginn kemur. -ÓÓJ
Robertas Pauzoulis átti mjög góöan
leik meö Haukum á Spáni og
skoraöi alls níu mörk í leiknum.
ÁFRAM ÍSLAND
SllS
rf
eftir Jóri Kristján Sigurðsson
Hver man ekki eftir
þrumuskotum Óla Stef.
á EM f Svfþjöð,
gegnumbrotum Patta,
snilldarmarkvörslu
Gumma Hrafnkels. og
leynivopninu,
Sigfúsi Sigurðssyni?
Hér er þessi keppni
rifjuð upp og
stjömumar teknar tali.
Fjöldi tjósmynda
prýðir bókina.
Áfram ísland -
bók sem hittir í mark!
BÓKAÚTGÁFAN HÓLAR
„ "L'í T L*""
F»aðan er hægt að fara inn á
Þar eru jólakveðjur söm hægt er að senda vinum o^ ættingjum.
Á Akiircýri erum við að sjálfsögðu með smáauglýsingaþjónustii
Kdiipvaiujvsl i æi i I og síminn þar er -'i Ci’2 5000.
+