Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2003, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2003, Side 6
22 MÁNUDAGUR 6. JANÚAR 2003 DV Sport Hart barist á Sauðárkróki í gær: Sætur sigur Snæfellinga - unnu Tindastól, 7&-73, í Síkinu Breioabiik-Haukar 96-132 10-0, 17-6, 21-16, 26-25 (31-30), 30-32, 43-40 (50-47), 53-47, 59-51, 64-68, 70-73 (74-76), 79-84, 85-84, 92-93, 96-99, 96-102. Stig Breiöabliks: Kenny Tate 24, Friörik Hreinsson 21, Pálmi Sigurgeirsson 18, Mirko Virijevic 10, Jón Amar Ingvarsson 7, ísak Einarsson 6, Bragi Magnússon 5, Loftur Einarsson 5. Stig Hauka: Stevie Johnson 36, Sævar Haraldsson 17, Marel Guölaugsson 14, Halldór Kristmannsson 13, Predrag Bojovic 12, Þóröur Gunnþórsson 4, Ingvar Guðjónsson 4. Dómarar (1-10): Björgvin Rúnars- son og Georg And- ersen, (8). Gœöi leiks (1-10): 6. Áhorfendur: 150. Maöur leiksins: Stevie Johnson, Haukum Fráköst: Breiðablik 27 (8 í sðkn, 19 í vörn, Tate 8), Haukar 21 (9 í sðkn, 12 í vöm Johnson 8). Stoðsendingar: Breiöablik 17 (Jón Amar 7, Pálmi 5), Haukar 18 (Johnson 8). Stolnir boltar: Breiöablik 6 (Isak 3), Haukar 5 (Johnson 2). Tapaóir boltar: Breiðablik 6, Haukar 8. Varin skot: Breiðablik 2 (Isak, Mirko), Haukar 1 (Johnson) 3ja stlga: Breiðablik 17/9, Haukar 25/9. Vlti: Breiðablik 13/9, Haukar 26/15. „Það var mjög sætur sigur, að innbyrða hann á lokamínútunni. Þetta var strögl allan tímann. Við er- um búnir að lenda í nokkrum svona leikjum í vetur. Þetta hafa verið jafn- ir leikir hjá okkur og það er seigla í liðinu. Strákamir berjast mjög vel og eiga skilið að vinna leiki eins og við spiluðum í kvöld. Þetta er ungt lið og við eigum framtíðina fyrir okkur“, sagði Bárður Eyþórsson, sig- urreifur þjálfari Snæfells, eftir sigur Hólmara á Tindastólsmönnum, 76-73, á Sauðárkróki í gærkvöld. Aldrei mikill munur Þetta var hörkuspennandi leikur, mikið barist og svolitlar sveiflur en aldrei mikill munur á liðunum. Gest- irnir byrjuðu betur og Tindastóll var að elta fyrsta leikhlutann en eftir hann munaði aðeins þremur stigum á liðunum, 18-15 fyrir Snæfell. Stólar daufir framan af Tindastólsmenn, sem verið höfðu fremur daufir framan af, náðu sér á strik í öðrum leikhlutanum, komust fljótlega yfir, mest níu stig, 33-24, en Hólmarar börðust áfram og tókst að breyta stöðunni í 35-34 og þegar blás- ið var til leikhlés voru heimamenn fimm stigum yfir, 42-37. Tindastólsmenn komu svo mun ákveðnari til seinni hálfleiks og náðu fjótlega tíu stiga forskoti, 53-43, en Hólmarar voru ekki á því að gef- ast upp og tókst á skömmum tíma að vinna muninn upp og komast yfir, 53-54. Aftur náði Tindastóll að svara, 60-54, en gestirnir seigluðust áfram, tókst að jafna með þriggja stiga körfu frá Hlyni, 69-69 og Hlynur kom síðan sínum mönnum yfir 71-72. Æðisleg barátta Baráttan síðustu tvær mínúturnar var svo æðisleg, Helgi skoraði úr tveimur vítaskotum fyrir Hólmara og Jón Ólafur hirti tvö fráköst, þar með var sigurinn innbyrtur og Tindastólsmönnum tókst ekki að slá gestina út af laginu. Haukamaöurinn Marel Guölaugsson brýst hér fram hjá Pálma Frey Sigur- geirssyni i Breiöabliki i leik liöanna í Smáranum í gærkvöld. Marel og félag- ar hans i Haukum höföu betur eftir haröa baráttu enda náöu lykilmenn eins og Pálmi og Kenny Tate sér ekki strik á Breiöabliki. DV-mynd Teitur Hlynur bestur Það vantaði herslumuninn i leik liðsins að þessu sinni. Hjá Snæfelli var Hlynur Bærings- son besti maðurinn. Auk stiganna 17 tók hann 7 fráköst í leiknum. Helgi Guðmundsson, Jón Ólafur Jónsson og Clifton Bush voru líka góðir. Kristinn náði sér ekki á strik Hjá Tindastóli var Axel Kárason besti maðurinn. Einar Öm Aðal- steinsson var sterkur og þeir Cook og Helgi drjúgir. t heildinni skilaði Tindastólsliðið ekki því sem það á að geta gert. Það er eins og vanti aðeins upp á barátt- una og einbeitinguna. Einnig vantar mikið þegar maður eins og Kristinn Friðriksson kemst ekki í gang i leik sem þessum. -ÞÁ TindastóII-Snæfell 73-76 0-2, 4-8, 7-8, 9-13, 12-13, 15-15 (15-18) 18-18, 20-24, 33-24, 35-34, 40-34 (42-37), 53^43, 53-54, 60-54, 63-61, 69-64, 69-69, 71-72, (73-76). Stig Tindastóls: Clifton Cook 17, Axel Kárason 12, Einar Örn Aöalsteinsson 12, Michail Andropov 11, Óli Barðdal 6, Sigurður Sigurösson 5, Helgi Rafn Viggósson 4, Gunnar Andrésson 3, Kristinn Friðriksson 3. Stig Snœfells: Hlynur Bæringsson 17, Clifton Bush 14, Lýöur Vignisson 13, Jón Ólafur Jónsson 11, Helgi Guðmundsson 9, Andrés Heiöarsson 7, Atli Sigurþórsson 3, Daöi Sigurþórsson 1, Sigurbjöm Þóröarson 1. Dómarar (1-10): Kristinn Óskars- son og Einar Þ. Skarphéðinss. (7). Gœói leiks (1-10): 7. Áhorfendur: 150. Maður leiksins Hlynur Ðæringsson, Snæfelli Fráköst: Tindastóll 42, (12 sókn, 30 vöm, Andropov 11), Snæfell 42, (13 sókn, 29 vöm Bush 14). Stoósendingar: Tindastóll 17 (Cook 4), Snæfell 20 (Bush 6, Helgi 6). Stolnir boltar: Tindastóll 8 (Óli Barðdal 4) Snæfell 8 (Hlynur 3). Tapaóir boltar: Tindastóll 10, Snæfell 14. Varin skot: Tindastóll 1 (Andropov), Snæfell 2 (Bush 2). 3ja stiga: Tindastóll 28/7, Snæfell 24/11. Víti: Tindastóll 20/13, Snæfell 26/15. Haukar lögöu Breiöablik í Smáranum í Intersportdeildinni í gærkvöld: I fararbroddi - Stevie Johnson leiddi Haukamenn til sigurs með enn einum stórleiknum lÍMlií iMltlli’ Haukar með Stevie Johnson í farar- broddi sigruðu Breiðablik í Smáran- um í gærkvöld með 102 stigum gegn 96 stigum heimamanna. Eins og svo oft í vetur var það Johnson sem var allt í öllu. Hann var ekki bara grimmur í stigaskoruninni heldur mataði samherja sína með frá- bærum sendingum. Blikum ætlar að reynast erfitt að vinna jafha leiki og þetta er þriðji leikurinn sem tapast hjá liðinu í lokin en hinir tveir voru gegn Grindavík og Njarðvík. Heimamenn byrjuðu leikinn af miklum krafti og voru búnir að hlaða byssurnm' fyrir leikinn. Allt fór ofan í itll -lÉljHBÍÍÍr*™*™ ’ og eftir tæpar tvær mínútur var stað- an orðin 10-0 fyrir Blika. Reynir Kristjánsson, þjálfari Hauka, minnti sína menn á að leikur- inn væri byrjaður og Sævar Haralds- son tók Reyni á orðinu og kom Hauk- um inn í leikinn eftir að hafa tekið af skarið nokkrar sóknir í röð. Leikurinn jafnaðist fljótlega og leiddu Blikar með einu stigi eftir fyrsta leikhluta, 31-30, og sóknarleik- ur var í fyrirrúmi hjá báöum liðum. Meira var um vamir í öðrum leik- hluta og unnu Blikar hann, 19-17, og fóru því með þriggja stiga forskot til búningsherbergjanna, 50-47. Kenny Tate og Pálmi Sigurgeirsson voru í | miklum villuvandræðum í seinni hálfleik og voru báðir komnir með fjórar villur í þriðja leikhluta. Blikar misstu niður átta stiga forskot og voru Haukar tveimur stigum yfir eft- ir þriðja leikhluta. Blikar reyndu fyrir sér í svæðis- vörn en skiptu síðan aftur í maður á mann vöm í lokin. Halldór kláraöi leikinn Nú upphófust spennandi lokamín- útur en það var Halldór Kristmanns- son sem tryggði Haukum sigur með tveimur stórum 3ja stiga körfum þeg- ar skammt var eftir af leiknum, en alls gerði Haildór þrjár í fjórða og síð- asta leikhluta. Hjá heimamönnum átti Friðrik Hreinsson góðan leik. Pálmi og Tate hafa spilað betur og Mirko Virijevic var langt frá sinu besta. Barátta Lofts Einarssonar á eftir að styrkja Blika það sem eftir lifir tíma- bilsins en dugði ekki í gær. Þá er ísak Einarsson að komast betur inn í leik liðsins og gamli refurinn, Bragi Magn- ússon, spilaði fyrsta leik sinn fyrir Breiðablik og stóð sig vel og átti fina innkomu af bekknum. Hjá Haukum klikkaði Johnson ekki frekar en fyrri daginn. Halldór kláraði leikinn í lokin og Sævar var upphafið af öllu saman. -Ben

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.