Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2003, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2003, Blaðsíða 15
MÁNUDAGUR 6. JANÚAR 2003 31 DV Sport Upprisa Úlfanna George Ndah, framherji Úlfanna, fagnar hér sigurmarki sínu gegn Newcastle í gær. Markiö skoraöi hann eftir glæsilegan undirbúning írans Marks Kennedys. Ndah átti frábæran leik t liöi Úlfanna og stríddi varnarmönnum Newcastle látlaust. Reuters Bestu ummæli helgarinnar Hetjan - gamla stórliðið Wolves minnti á sig gegn Newcastle eftir magra uppskeru undanfarin ár Wolves kom mjög á óvart í gær og sló úrvalsdeildarliðið Newcastle út úr enska bikarnum með þvi að bera sig- ur úr býtum, 3-2, í hreint út sagt frá- bærum leik á Moulinex-leikvangin- um. Wolves, sem er gamalt stórveldi, hefúr verið ansi lengi fyrir utan efstu deildina í Englandi og því má segja að þessi sigur hafi verið uppreisn æru fyrir félagið. Leikurinn var gifurlega hraður, lít- ið um vamir og mörg færi litu dags- ins ljós. Veikleiki Newcastle-vamar- innar kom berlega í ljós hvað eftir annað og sagði Alan Shearer, fyrirliði liðsins, að hann væri orðinn ansi þreyttur á hörmulegum vamarleik þess. Leikmenn Wolves spiluðu frábær- 'lega í leiknum og vom vel að sigrin- um komnir. Paul Ince, fyrirliði liðsins, sagði að sigurinn hefði verið fyllOega verð- skuldaður. „Leikurinn var ótrúlega spenn- andi. Við vorum kannski heppnir á köflum en við lögðum svo mikið í leikinn að við verðskulduðum sigur- inn,“ sagði Ince. Dave Jones, knattspymustjóri Wolves, sagðist vona að liðið myndi spila af sama krafti í næstu leikjum í deildinni en liðið hefur ekki staðið undir væntingum. frammistöðu Rennies. „Tæknilega séð var þetta sennilega vítaspyma en það var hörmulegt að úrslit í bikarleik skyldu ráðast af þessu atviki, jafnvel þótt við næðum okkur aldrei á strik,“ sagði Keegan. „Ég tala aldrei um Uriah Rennie nema til þess að segja að ég er ekki hrifinn af honum sem dómara, hef aldrei verið hrifinn af honum og mun aldrei verða hrifmn af honum. Mað- urinn býr til sín eigin lög og þú ættir frekar að tala við umboðsmann hans og reyna að fá viðtal við Rennie sjálf- an,“ sagði Keegan eftir leikinn. Mikilvægur sigur Gerard Houllier, knattspymustjóri Liverpool, var sáttur eftir leikinn. „Þetta var mikilvægur sigur hjá okkur og ég er stoltur af hugarfari leikmanna minna. Liverpool hefúr mikla sigurhefð og hefur unnið marga titla í gegnum árin og því er þetta mikilvægur dagur fyrir félagið. Við gerðum áætlun fyrir leikinn og gáfum leikmönnum Manchester City ekki mörg tækifæri. Við sýndum mikla einingu og mikinn styrk," sagði Houllier eftir leikinn. Saha til baka Franski framherjinn Louis Saha spilaði fyrsta leik sinn fyrir Fulham síðan í september og endurkoma hans gerði gæfumuninn þegar Fulham vann öruggan sigur á Birmingham, 3-1, í ensku bikarkeppninni í gær. Saha skoraði eitt marka Fulham en Christian Damiano, aðstoðarstjóri Fulham, sagði að endurkoma hans hefði gert gæfumuninn. „Við höfum saknað hans. Liðið hef- ur spilað vel að undanförnu en mörk- in hafa látið á sér standa. Þau komu í dag og Saha átti stóran þátt í því,“ sagði Damiano eftir leikinn. -ósk Framherjinn ungi, Jermain Defoe, sem leikur með West Ham, er hetja helgarinnar. Hann skoraði tvö mörk fyrir liðið þegar það bar sigurorð af Nottingham Forest, 3-2, á heimavelli sínum, Upton Park, í enska bikamum á laugardaginn. Með þessum tveimur mörkum tryggði Defoe, sem hefúr ekki skorað mikið í vetur, ekki aðeins West Ham sæti í fjóröu umferð heldur bjargaði hann lfka knattspymustjóra liösins, Glenn Roeder, frá því að vera rekinn. -ósk Kamerúnski midjumaðurinn Marc-Vivien Foe, sem leikur meö Manchester City, er skúrkur helg- arinnar. Hann færði leikmönnum Liverpool vítaspymu á silfurfati með því að baða út öllum öngum í tilraun sinni til að komast fyrir fyrirgjöf Vladimirs Smicers. Danny Murphy skoraði sigur- markið úr vítaspymunni og bik- ardraumur lærisveina Kevins Keegans eru því á enda að þessu sinni. Foe getur þó sagt að dómur Rennie hafi verið harkalegur og spuming hvort boltinn hafi farið í höndina á honum eöa höndin í boltann en vitaspyrnan var dæmd og tap staðreynd.______-ósk Kemur mér ekki á óvart ' „Þetta var frábært en frammistaða minna manna kemur mér ekkert á óvart því að ég veit hvað þeir geta. Þegar þeir leika af fullum krafti geta þeir staðið í öllum liðum en þeir þurfa hins vegar að leggja sig jafn mikið fram í leikjunum í 1. deildinni og í dag,“ sagði Jones eftir leikinn. Liverpool tókst loks að komast á sigurbraut eftir heldur magurt gengi að undanfómu þegar liðið bar sigur- orð af Manchester City, 1-0, á Maine Road í þriðju umferð ensku bikar- keppninnar í gær. Leikmenn Liverpool léku vel í leiknum og verðskulduðu sigurinn þrátt fyrir að þeir skcpuðu sér ekki mörg færi. Danny Murphy skoraði sigurmarkið fyrir Liverpool úr víta- spyrnu í byrjun síðari hálfleiks en vítaspymudómurinn var að margra mati hæpinn. Boltinn fór í hendi Kamerúnans Marcs-Viviens Foes og gamla spurningin um hönd í bolta eða bolta í hönd kom upp. Uriah Rennie, dómari leiksins, var hins veg- ar ekki í vafa og dæmdi vítaspyrnu sem Murphy skoraði úr af öryggi og tryggði Liverpool sætan og mikilvægan sigur á Manchester City. Býr til sín eigin lög Kevin Keegan, knattspyrnustjóri Manchester City, gaf lítið fyrir ... skúrkurinn „Ég er bara ánœgöur með aö þessi leikur var í sjónvarpinu þannig aö allir gátu séö hvaö viö erum meö frábœrt liö. Ég hika ekki þegar ég segi aö þetta er besti leikur liösins síöan ég tók við stjórninni hér.“ Gordon Strachan, knattspyrnustjóra Southampton, verður sjaldan orða vant. Hann var sérdeilis ánægður með leik manna sinna gegn Tottenham í bikamum á laugardaginn en þar vann liðið öruggan sigur, 4-0. Þetta var annar sigur liðsins á Tottenham á fjórum dögum og er það til marks um framfarirnar sem liðið hefur tekið á þessu tímabili. -ósk Nigel Jemson, Shrewsbury Town Nigel Jemson Fæddur: 10. ágúst 1969. Heimaland: England. Hæð/þyngd: 178 cm/77 kg. Leikstaða: Framherji. Fyrri lið: 12 önnur lið í Bretlandi. Deildarleikir/mörk: 336/105. Landsleikir/mörk: Engir. Hrós: „Það er á engan hallað þegar ég segi að Jemson hafi átt stærstan hlut í sigrinum. Hann sýndi hversu öflugur hann er og reynsla hans nýttist okkur vel.“ Kevin Ratcliffe, stjóri Shrewsbury, um Nigel Jemson. -ósk Framherjinn Nigel Jemson hefur farið víða. Hann hóf ferilinn hjá Preston en það var síðan hinn frægi knattspyrnustjóri Nottingham For- est, Brian Clough, sem keypti hann fyrir 150 þúsund pund í mars 1988. Honum var spáð frægð og frama og spilaði meðal annars með U-21 árs landsliði Englendinga. Jemson er frægastur fyrir að hafa skorað sigurmarkið fyrir Notting- ham Forest í úrslitaleik enska deildabikarsins árið 1990 en síðan þá hafa hlutimir verið heldur á nið- urleiö hjá kappanum. Hann hefur þvælst á milli liða og er Shrewsbury þrettánda liðið sem hann spilar með á ferlinum. Hann kom til Shrewsbury árið 2000 og hefur átt góðu gengi að fagna hjá liðinu sem hefur barist við botn þriðju deUdarinnar ensku undanfarin ár. Hann var gerður að fyrirliða liðs- ins í haust en hann hefur verið markahæsti maður liðsins undan- farin tvö ár. Með þessum tveimur mörkum má segja að frægðarsól Jemson frá því fyrir tæpum þrettán árum hafi risið á nýjan leik og ljóst að næstu andstæðingar Shrewsbury í fjórðu umferð bikarkeppninnar þurfa að gefa honum góðan gaum ef ekki á illa að fara. Undir það geta leikmenn Everton kvittað. -ósk Þrír leikir fóru fram í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar í gær: Uppreisn æru w

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.