Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2003, Qupperneq 19
MÁNUDAGUR 6. JANÚAR 2003
35
I>V
Sport
—
Litiö inn hjá hjónunum Elsu
og Pjetri á Sólvangi
0 • ..
Örstutt er frö SólvBngt og n!6r- "> 'iórúboröiö við
Eyrarbakka. Par voru hrossin tnkm tíi kostanns.
F.v. Sigríður á Orradottur. Elsa á Þorradóttur.
vinnumaöurinn Snorri Valsson á Speli og Pjetur
á Dofra frá Pverá. DV-mynd GVA
Ræktun í fyrirrúmi
- áhersla lögð á mikla breidd í söluhrossunum
i stuttu máli
Fjör færist í leikinn
Hestamenn eru nú sem óðast að taka
inn hross sín en margir voru seinni
heldur en venjulega vegna frábærrar
tíðar. Nú undir áramót mátti hins
vegar sjá flutningabfla og
hestakerrur á ferð og flugi um
hverfm á höfuðborgarsvæöinu. Það
fer því væntanlega að færast fjör í
leikinn á næstu dögum og vikum.
Ýmis hestamannafélög hafa haft það
fyrir siö að boða til sameiginlegs
útreiðartúrs á gamlársdag. Þetta
gerði m.a. Sörli í Hafnarfirði. Var
þátttaka mjög góð og riðiö um
reiðvegi í hrauninu í glimrandi góðu
veðri. Ákjósanleg aðferð hestafólks til
að kveðja gamla árið.
Fyrstu mótin
Drög að mótaskrá hestamannafélaga
LH fyrir nýhafið ár, 2003, liggja nú
fyrir. Strax í febrúar ríöa þrjú félög á
vaöið. Hestamannafélagið Fákur
hefur skráö vetrarleika í Viðidal 15.
febrúar. Þá hefúr Hörður skráð
Árshátíðarmót á Varmárbökkum 22.
febrúar. Loks hefur Léttir á Akureyri
skráð töltkeppni í sínum heimabæ.
Hún verður einnig haldin 22. febrúar.
í mars byrjar svo ballið fyrir alvöru.
Þar má nefha hið mikla framtak,
Æskan og hesturinn, sem haldið
veröur í reiðhöllinni í Víðidal 9.
þessa mánaðar. -JSS
Netfang DV: jss@dv.is
Á Sólvangi við Eyrarbakka er
rekinn mikill myndarbúskapur. Þar
eru 30 hross á húsi, 30 kindur við
jötu og myndarlegur hópur ramm-
íslenskra hænsna. Þama er ekki að-
eins unnið að ræktun hrossa heldur
einnig að kynbótum á fé og hænum.
Miklar breytingar
Það eru hjónin Elsa Magnúsdóttir
og Pjetur N. Pjetursson sem búa á
Sólvangi, ásamt dótturinni Sigríði.
Þar hafa þau búið sl. eitt og hálft ár.
Áður voru þau ekta malarböm,
bjuggu í Kópavogi og stunduðu sína
hestamennsku, tamningar og
keppnismennsku í Hafiiarfirði. En
það fór með þau eins og svo marga
fleiri, sem eru með hross, að sveitin
kallaði og þau létu slag standa,
seldu allt sitt og fluttu austur. Þau
hófust þegar handa við að byggja
upp og lagfæra útihúsin. Stórt fjós,
sem var á staðnum, var gert nánast
fokhelt og síöan breytt í 32 hesta
hús.
Gamla hlaðan er orðin að rúm-
góðri reiðskemmu með vikumndir-
lagi í gólfi. Verið er að byggja stím-
fyrir 12-15 folöld í fjárhúsinu og
hænsin eru í „svítu“ í kjallara
gamla íbúðarhússins á staðnum.
Hugmyndin er að taka folöld í fóðr-
un fyrir aðra, auk þess sem fjöl-
skyldan er með nokkur eigin tryppi
í uppeldi.
Tamningar og ræktun
Elsa og Pjetur eiga hóp af hrossum
á stalli, auk þess sem þau taka í
tamningu og þjálfun. Elsa segir að
hrossasala hafi gengið rólega á síð-
asta ári en vonast, eins og aðrir selj-
endur, til þess að hún glæðist á nýju
ári. Þau hjón segjast kappkosta að
hafa sem mesta breidd í hrossum
sem þau ætla sér að selja, þ.e. allt irá
rólegum og þýðgengum hestum upp í
keppnishross.
Vissulega kennir ýmissa grasa
þegar gengið er um hesthúsið með
þeim. Þar em til að mynda fjórir
stóðhestar, tveir ættaðir frá Haf-
steinsstöðum í Skagafirði, Andri og
Spölur. Þeir em báðir undan Huga
frá Hafsteinsstöðum. Spölur er sér-
lega prúður og mikið fextur, blesótt-
ur, jarpvindóttur, 1. verðlauna hest-
ur.
Andri er ljósmoldóttur sem hefur
meðal annars unnið sér til frægðar
að sitja fyrir á ljósmyndum með
Marínu Möndu. Hinn þriðji er Gald-
ur undan Baldri frá Bakka.
Afmælisgjöfin
Af tamningahrossum, sem standa
nú við stall á Sólvangi, má t.d. nefna
jarpa hryssu undan Orra, gullfal-
lega, sem svíkur ekki þegar hún er
komin undir hnakk.
Þá var þar hryssa undan Þorra og
hestur undan Emma frá Sperðli, svo
dæmi séu nefnd. Hrossin komu víða
að, m.a. frá Höfn í Homafirði,
Reykjavík og svo af Suðurlandinu.
Tryppi í uppvexti eiga hjónin
undan Mjölni frá Sandhólaferju,
Sveini - Hervari, Pilti frá Sperðli,
Kveik frá Miðsitju og Reyk frá Hof-
túnum. Hryssum sínum héldu þau
undir Pilt, Suðra frá Holtsmúla og
svo eigin stóðhesta, þá Spöl og
Andra.
Elsa setti svo upp svolítinn hátíð-
arsvip þegar hún opnaði eina stíuna
og teymdi út rauðan, myndarlegan
Þau voru makindaleg í eldhúsinu á Sólvangi, Elsa og Pjetur, meö heimilisköttinn á milli sfn. DV-mynd GVA
uiíhJgH
lúpia nupyijió <msv eolliJJ máa ibíJ epubiifiiiua Hönsinlóe tjnnsdil
Myndarlegur foli undan Væng frá Auösholtshjáleigu og hryssu frá
Dýrfinnustööum var afmælisgjöf Pjeturs til Elsu. DV-mynd GVA
fola. „Pjetur gaf mér þennan í af-
mælisgjöf,“ sagði hún stolt,
Folinn fallegi er undan Væng
Orrasyni frá Auðsholtshjáleigu og
hryssu frá Dýrfinnustöðum í Skaga-
firði. Ekki amaleg afmælisgjöf þaö.
Þaö er allt hægt
Þegar Elsa og Pjetur keyptu Sól-
vang var þar talsvert fyrir af hross-
um sem fylgdu með í kaupunum.
Þau grisjuðu hópinn duglega en
héldu nokkrum hrossum eftir. Þar á
meðal var hryssa ein sem var ótam-
in en hafði verið eitthvað í folalds-
eignum, Fríða frá Sólvangi. Þar sem
til var ungviði undan Fríöu ákváðu
þær mæðgur, Elsa og Sigríður að
ráðast í að temja hana til að athuga
hvaða hæfileika hún hefði að
geyma. Þær tóku hryssuna inn og
-mmö aited mv óitii tj Gfiihlieti i; u;
byrjuðu að eiga við hana. Þarf ekki
aö orðlengja að Fríða tók tamning-
unni vel, var hin ljúfasta, þjál og
þýðgeng. Þær mæðgur fýsti nú að
vita hvað hún væri gömul því þeim
fannst fýsilegt að rækta meira und-
an henni. Þeim brá í brún þegar
hryssan var aldursgreind því hún
reyndist vera fjórtán vetra! „Þama
sést að það er allt hægt, ef upplagið ^
í hrossunum er gott,“ sagði Elsa
Magnúsdótttir.
Þau hjónin sögðust leggja áherslu
á að láta þau hross fara sem ekki
væru efnileg. „Það er jafndýrt að
fóðra truntumar og góðu hrossin,"
sagði Pjetur.
„Við höfum það að leiðarljósi í
búskapnum,“ sagði Pjetur N.
Pjetursson i samtali við DV. -JSS