Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2003, Síða 4
4
FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2003
M
agasm
Blótað í kirkjuturninum
Páfagaukur einn hefur tekið sér bólfestu í kirkjuturni í
smábæ í Englandi og veldur mörgum ama.
Páfagaukurinn hefur búið sér stað milli kirkjuklukkn-
anna og lætur gesti og gangandi hafa þaö óþvegið. Gaukur-
inn kann nefnilega að tala og er ekki vel viö mannaferðir.
Hefur hann blótað fólki í tima og ótíma og hafa kirkjuyfir-
völd af þessu nokkrar áhyggjur. Líklegt er talið að flar-
lægja verði fuglinn en áhyggjur kirkjuyfirvalda í bænum
beinast einkum að jarðarfórum enda margt skemmtilegra á
sorgarstundu en hafa yfir sér blótandi páfagauk.
Hláturinn varð aó gráti
Stór hópur kvenna í Ástralíu sem lengi hefur lagt stund
á hlátur varð fyrir heldur óskemmtilegri reynslu á dögun-
um.
Hópurinn hugðist þá halda hátíð hlátursins í almennings-
garði einum en var vísað út úr honum þegar eftirlitsmenn
garðsins mættu á staðinn. Töldu þeir að hópurinn heföi
truflandi áhrif á gesti og ekki væri heppilegt aö hafa hóp af
hlæjandi konum í námunda við villt dýralífiö í garðinum.
Sjónarvottar sögðust reyndar hafa tekið eftir því að mörg
dýranna hefðu tekið til fótanna um leið og konumar byrj-
uðu að hlæja.
Hómark óheppninnar?
Peter Hunter, Englendingur sem fyrir nokkrum vikum
lagði upp í ferð í kringum jörðina, getur varla talist hepp-
inn maður.
Eftir 10 vikna ferðalag hafði hann þegar lent í fjórum
meiri háttar óhöppum. Fyrst kviknaði í ferju sem hann var
farþegi í, þá almenningsvagni og loks járnbrautarlest. Hunt-
er slapp alltaf naumlega með skrekkinn en heppnastur var
hann þegar sprakk á farartæki sem hann ók í Suður-Afríku.
Valt það og skoppaði eina 40 metra og var Hunter fluttur á
sjúkrahús þar sem saumuð voru 16 spor í andlitið. Hann
áformar að ljúka heimsreisunni í maí.
í Helgarblaði DV á laugardag-
inn er ítarlegt viðtal viö Jó-
hannes Georgsson, stofnanda
ísland Express, sem hyggst
hefja áætlunarflug frá íslandi í
febrúar og bylta þannig úr sessi
áralangri einokun Flugleiða.
Einnig verður rætt við Guð-
mund Jónsson gítarleikara sem
hefur starfað meö Sálinni hans
Jóns míns um árabil og er einn
höfunda söngleiks sem frum-
sýndur verður i Borgar-leikhús-
inu á laugardag og byggir á
tveimur plötum Sálarinnar.
Guðmundur ólst upp á Skaga-
strönd og spilaði með á þorra-
blótum Hallbirni Hjartarsyni
áður en hann hélt suður á vit
frægöar og frama í poppheim-
um.
Helgarblaðið ræðir við Fríðu
Rún Þórðardóttur, næringar-
fræðing um megrun og heil-
brigt líferni sem ætla má að sé
stórt viðfangsefni þjóðarinnar á
þessum árstíma.
í blaðinu er einnig fjallað um
listina við að halda skemmtileg-
ar veislur þar sem gestir njóta
sin og gleðin er við völd. Einnig
er sagt frá 13. ágúst 1908 sem er
merkur dagur í íslenskri fjall-
göngusögu en þann dag var
gengið á Herðubreið í fyrsta
skipti.
Blaðið ræðir við Ágúst
Ágústsson sem hugsanlega
veröur einn yngsti þingmaður
íslands eftir kosningar að vori
og fjallar um Rex Harrison,
leikara og gleöimann, sem naut
mikillar frægðar á sínum
blómatíma.
Svipmynd af sviðinu. I söngleik Sálarinnar, sem nú verður sýndur í Borgarleikhúsinu, er flallað um ástina og hlutl í hinni mannlegu tilveru og Ijós og
skugga sem væntanlega allir þekkja. Magasírwnyndir E.ÓI.
HJ0LAB0RÐ
FHCOm
ME0 SKUFFUM
Ástarsaga frá
óljósum tíma
„Þetta er ævintýri sem gerist í
óljósri framtíð eða fortíð og er dular-
full ástarsaga. Tími verksins í raun
óljós. Hér segir frá átökum ljóss og
skugga í mannlegri tilveru og hér
segir frá tilfinningum sem við þekkj-
um öll,“ segir Karl Ágúst Úlfsson. Á
laugardagskvöld verður í Borgarleik-
húsi frumsýndur söngleikurinn Sól
og máni eftir Karl Ágúst og hljóm-
sveitina Sálina hans Jóns míns.
Leikstjóri er Hilmar Jónsson.
í söngleiknum segir frá Sól sem er
í djúpri sorg og brosir ekki. Ófeigur
faðir hennar þykist vita að hann eigi
sök á þessari óhamingju og dreymir
um bros dóttur sinnar. Móðir Sólar
hefur ruglað saman reytum við trú-
arleiðtogann Lýð, sem vill frelsa Sól
með lækningamætti Lögmálsins. Við
sögu kemur síðan m.a. engill sem
missir vængina í átökum erkiengla.
Er þá margt ósagt um verkið.
Níu leikarar og sex dansarar taka
þátt í söngleiknum - auk Sálarinnar
sem flytur tónlistina með fulltingi
Jóns Ólafssonar. Leikarar eru Arn-
björg Hlíf Valsdóttir, Bergur Þór Ing-
ólfsson, Björn Ingi Hilmarsson, Ell-
ert A. Ingimundarson, Guðmundur
Ölafsson, Jóhanna Vigdís Arnardótt-
ir, Katla Margrét Þorgeirsdóttir,
Sveinn Þór Geirsson og Valur Freyr
Einarsson.
Allflest lögin í söngleiknum eru af
Sálarplötunum Annar máni og Log-
andi ljós. „Maður finnur auðvitað að
lögin eru samin með söngleik i
huga,“ segir Karl Ágúst. Hann kom
að málinu þegar Sálarsveinar höfðu
samið grunninn að söngleiknum.
Sitt hafi svo verið að þróa verkið
áfram tO fullmótaðs verks. Hafi sú
vinna öll verið einkar ánægjuleg,
sem væntanlega skili sér svo til leik-
húsgesta ef að líkum lætur. -sbs
Stefán syngur. Lögin í söngieiknum
er flest að finna á Sálarplötum
síðustu ára.
»icoM-Plastbakkar
fyrir öll verkfæri
LícSCjUlli
Ármúli 17, lOB Reykfavik
Síml: 533 1334 fax: 55B 0499
Öruggur staður fyrir
FACOM verkfærin,
og allt á
sínum stað!
..þafl sem
fagmaflurinn
notar!
Sálarsöngleikur í Borgarleikhúsinu: