Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2003, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2003, Page 27
FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2003 27 M agasm „Þaö er mjög gaman aö koma í Herdísarvík á þessum tíma árs,“ segir Páll Slgurösson prófessor. Magasín-mynd E.ÓI. Heill- andi er Herdís- arvík „Það er mjög gaman að koma í Herdísarvík á þessum tíma árs. AI- mennt er þessi staður líka ákaflega heillandi, því landið þama breytir alveg um svip eftir veðráttu,“ segir Páll Sigurðsson lagaprófessor. Á sunnudag verður hann leiðsögu- maður í ferð á vegum Ferðafélags íslands í Herdísarvík í Selvogi. Mun Páll, sem hefur stjómaö þessum ferðum undanfarin ár, leiða fólk um staðinn og segja sögu hans en þó að- allega frá lífi Einars skálds Bene- dikssonar og Hlínar Johnson sam- býliskonu hans en þau bjuggu í vík- inni síðustu æviár skáldsins. Lagt verður af stað kl. 11 frá BSÍ og kom- ið í bæinn aftur síðdegis. „Við fbrum Krísuvíkurleiðina í Selvoginn, það er suður með Kleif- arvatni. í Herdísarvík fórum við meðal annars inn í húsið þar sem þau Einar og Hlín bjuggu en það og jörðin em í eigu Háskóla íslands. Við drekkum kaffi í stofunni en raunar hefur stundum verið svo margt í þessari ferð að allur hópur- ixm hefur illa komist fyrir í þessu litla húsi,“ segir Páll. Bæði jörðin Herdísarvík og byggingar þar eru í eigu Háskóla íslands. Hann bætir þvi við að gaman sé að fara niður í fjöruna við Herdísar- vík þegar svarrandi brimið leikur við fjörusteina - og sjá átök reg- inaflanna með þeim hætti. „Eftir að sauðfjárbeit á þessum slóðum lagð- ist af er einnig gaman að sjá hvað allur skógargróður þama í hraun- inu hefur mjög tekið við sér. Mörg- um þykir einnig áhugavert aö skoða margar fornar minjar sem em á þessum slóðum, svo sem tóftir ver- búða frá þeim tíma þegar útræði var þama.“ -sbs Tónlistin í hlustunum: Messa lesin af nótum Bækurnar á náttborðinu: Björg og Nafnlausir vegir Er aö hlusta á Hátíöarsinfóníuna eftir Carles Ives, segir Jón Stefánsson. „Undanfarið hef ég mikið verið að hlusta á tónlist svona með óeiginlegum hætti, það er að lesa nótur. Nú er ég að undirbúa fimmtíu ára afmæli Kórs Langholtskirkju en þess verður minnst með ýmsu móti, meðal annars með messu sem Hildigunnur Rún- arsdóttir semur fyrir okkur og verður flutt á fóstudaginn langa í vor. Nú þegar hef ég fengið tvo kafla messunnar í hendur og þetta lofar mjög góðu,“ segir Jón Stefánsson, kórstjóri í Langholtskirkju. „Einnig hef ég verið að hlusta á Hátíðarsinfóníuna eftir banda- ríska tónskáldiö Carles Ives. Á sinfóníutónleikum i næstu viku munum við syngja þann kafla hennar sem er um þakkargjörðardag- inn. Sú tónlist sem ég hlusta á tengist annars að mestu leyti vinnu minni. Er þá í mörg horn að líta, en ég hef með höndum yfirumsjón með öllum tónlistarflutningi hér í kirkjunni þar sem eru starfandi sjö kórar.“ „Vegna atburða í stjómmálum gafst mér lítill tími til lestrar um hátíðamar. Af bókum sem komu út fyrir þessi jól er ég þó búin að lesa Nafnlausa vegi eftir Einar Má Guðmundsson. Til þess að byggja mig upp andlega fyrir þá bók var ég búin aö lesa fyrri bæk- ur í þessari röð, það er Fótspor á himnum og Draumar á jörðu. Ég er því orðin nátengd fjölskyldunni sem þama segir frá,“ segir Björk Vilhelmsdóttir borgarfulltrúi. „Ég var fram eftir eina nóttina nú í vikunni að lesa sögu Bjarg- ar Þorláksson eftir Sigi'íöi Dúnu Kristmundsdóttur og sú saga greip mig. Vegna þess hve fáar bækur ég fékk um jólin hef ég síð- an verið að grípa úr bókaskápnum ýmislegt sem ég á þar ólesið. Þar get ég nefnt bækur eftir þá Þórarin Eldjám, Bjöm Th. Björns- son og Böðvar Guðmundsson - það er sögulegar skáldsögur - en siíkum bókum er ég alltaf hrifin af.“ Hrlfin af sögulegum skáldsögum, segir Björk Vilhelmsdóttir. Kennsla hefst í FIA skólanum 18. janúar kl. 9.00 Verö meö námsgögnum: 99.000 kr. Kennsla fer fram dagana: 18. og 19 . janúar 8. og 9. febrúar 22. og 23. febrúar 1. og 2. mars Vinsamlegast greiöiö staöfestingargjaldið 50.000 kr. um leið og innritun á sér stað. Leggiö inn á reikning 515-14-605933 undir PPI-FIA, nafni og heimilsfangi, annars telst skráning ekki gild. "FÍA skólinn hefurgert mérþað kleift ad vinna við þaö sem mér finnst skemmtilegt og um leið þéna vel. Skólinn hefur opnað fyrir mér nýja vidd iþjálfun og var bœdi skemmtilegur og árangursrikur. Ég hvet alla sem hafa áhuga á þjálfun ad fara iþennan skóla, lika þá sem vilja bara œfa sjálfir. Svo skaðar ekki að Jónina Ben iþróttafrœðingur er frábœr bóklegur kennari." Ásta Sigrún Gylfadóttir FIA þjálfari Planet Reykjavík Skráning í síma 577 5555 SMÁAUG- LVSIN5AR Á NETINU! éœlks' ^ ► www.d v. i •c

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.