Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2003, Síða 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2003
DV
Fréttir
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmir öðru
sinni í sama málinu:
Fékk hálfa millj-
ón króna fyrir
misheppnaða
brjóstaaðgerð
Jórunn Anna Sigurðardóttir fékk
í gær dæmdar 500 þúsund króna
bætur vegna mistaka sem urðu við
brjóstaminnkunaraðgerð sem hún
gekkst undir á Landspítalanum fyr-
ir hartnær tólf árum. Hún krafðist
22 mUljóna króna i miskabætur.
Bæturnar eru milljón krónum
lægri en Jórunni voru dæmdar í
Héraðsdómi árið 2000. Hún áfrýjaði
þeim dómi til Hæstaréttar sem
ógilti dóminn og málið var sent aft-
ur heim í hérað.
Málavextir eru þeir helstir að i
kjölfar brjóstaminnkunaraðgerðar
árið 1991 fékk konan drep í stóran
hluta geirvörtu. Gera þurfti margar
lýtaaðgerðir í kjölfarið. Dómurinn
feUst á að brjóst konunnar hafi ver-
iö gerð minni en tæknilegar og
heilsufarsástæður gáfu tilefni til.
í niðurstöðu Héraðsdóms er því
hafnað að Jórunni hafi ekki verið
kynnt sú áhætta sem kynni að stafa
af aðgerðinni og eftirliti eftir að-
gerðina hafl verið ábótavant. Dóm-
urinn mótmælir hins vegar ekki að
afleiðingar skurðaðgerðarinnar á
heilsu Jórunnar hafi verið miklar
og langavarandi. Fjölmargar skurð-
aðgerðir og önnur meðferð hafi fylgt
í kjölfarið. Héraðsdómur kemst að
þeirri niðurstöðu að Landspítalinn
beri ekki skaðabótaábyrgð gagnvart
örorku Jórunnar sem varð vegna
dreps eftir aðgerðina. Á hinn bóg-
inn telur dómurinn að stefndi beri
ábyrgð á að Jórunn þurfti að gang-
ast undir aðgerð til að leiðrétta legu
geirvörtu á öðru brjósti og húð hafi
verið tekin á röngum stað til
ígræðslu í aðgerð. Því sé rétt að
greiða Jórunni Önnu Sigurðardótt-
ur miskabætur að fjárhæð 500 þús-
und krónur.
Páll Þorsteinsson héraðsdómari
kvað upp dóminn en meðdómendur
voru læknamir Stefán Einar Matth-
íasson og Þorvaldur Jónsson. Ró-
bert Árni Hreiðarsson héraðsdóms-
lögmaður flutti mál Jórunnar. Mál-
inu verður áfrýjað til Hæstaréttar.
-aþ
HeltjirfaUð~"
Læknar gera líka mistök, þeir
viöurkenna þau bara ekki
DV í júlí 2000
Jórunn Anna Siguröardóttir sagöi átakaniega sögu sínu í Helgarblaöi DV sum-
ariö 2000.
ijílVil/ÍuJJ
UAVÍK AKUREYRI
Sólarfag í kvöld 16.38 16.07
Sólarupprás á morgun 10.38 10.39
Siódegisflóð 20.46 12.54
Árdegisflóó á morgun 09.04 01.19
Kaldast inn til landsins
Norðan 8-17 m/s. Skýjað með
köflum og él um norðanvert landið.
Yfirleitt léttskýjað sunnan til en
þykknar upp þar T nótt. Frost 3 til 14
stig, kaldast inn til landsins.
Hlýnar undir kvöld
NA 10-13 vestan-, noröan- og
austanlands og él en austan 8-13
og snjókoma sunnanlands. Frost 3
til 14 stig en hlýnar undir kvöld.
Fimmtudagur Föstudagur Laugardagur
Þingflokkur VG:
Þjóðaratkvæði um virkjun
Vinstrihreyfingin - grænt fram-
boð mun leggja fram ó Alþingi
þingsályktunartiUögu um að efnt
verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um
Kárahnjúkavirkjun. Atkvæða-
greiðslan fari fram samhliða alþing-
iskosningunum 10. maí og ekki
verði hafist handa um framkvæmd-
ir fyrr en - og ef - meirihluti kjós-
enda samþykkir þær.
Þingflokkurinn kynnti í gær
áherslur sínar í upphafi þings, sem
kemur saman i dag eftir hlé. Að ósk
hans verður í dag utandagskrárum-
ræða um mótvægisaðgerðir í efna-
hags- og atvinnumálum vegna
áformaðra stóriðjuframkvæmda á
Austurlandi, og verður Davfð Odds-
son forsætisráðherra fyrir svörum.
Þá er væntanleg þingsályktunar-
tillaga frá flokknum þess efnis að
rikisstjórnin beiti sér gegn áform-
um um innrás í írak og að ísland
standi utan við hvers kyns hemað-
araðgerðir gegn landinu.
-ÓTG
Loksins þegar fraus:
Þjóðvegir eins og svell yfir að líta
„Mér finnst víða ekki nógu vel
hálkuvarið, til dæmis í kringum
Vik. Þeir hjá Vegagerðinni eiga
hrós skilið fyrir hvemig þeir hugsa
um brekkurnar kringum Vík en
þegar komið er upp á fjallið þá er
maður bara á renniglæru alveg
þangaö til kemur að næstu brekku,“
sagði Reynir Arnórsson, vélstjóri og
flutningabílstjóri í afleysingum,
þegar fréttamaður hitti hann í pásu
frá akstrinum um helgina. „Auðvit-
aö era óhöppin ekki Vegagerðinni
að kenna heldur því að ökumenn
fara of hratt og fara ekki eftir merk-
ingum. Hins vegar gæti Vegagerðin
hjálpað til að fækka slysum en
vissulega kostar það peninga,“ sagði
Reynir.
Fyrstu alvörukuldar vetrarins
eru loksins komnir þegar komið líð-
ur að þorranum. „Mér finnst að
Vegagerðin þurfl að hálkuverja all-
ar hættulegar beygjur og aðkeyrslur
að öllum brúm. Það er mjög kröpp
beygja rétt austan við Pétursey og
þá eru menn búnir að aka á auðri
jörð frá Hveragerði í þessa beygju,
sem er hál og stórhættuleg," sagði
Reynir. Hann varar við veginum
yfir Eldhraun, vestan Kirkjubæjar-
klausturs, þar sem vegurinn sé eitt
svell yfir að líta.
Reynir segist vera mjög ánægður
með vegina i umdæmi Hornafjarö-
ar, þar sem vel sé séð um allar
DV-MYND StGURÐUR K. HJÁLMARSSON
Salta og sanda betur
Reynir Arnórsson bendir á hættur þjóöveganna þegar frýs. Hann vill aö Vega-
geröinni veröi gert kleift aö sandbera og salta eins og þörf er á.
brekkur og beygjur. í Hamarsfirði
era vegir hrikalegir, beygjur upp og
niður og út á hlið, en allt saltað, og
ekki sist er vel frá öllu gengið í Al-
mannaskarði. Reynir bætir við að
félagar sínir með langa reynslu segi
að vegir í Mýrdal hafi lagast mjög á
síðari árum en gjaman megi gera
enn betur.
Gylfi Júlíusson, umdæmisstjóri
Vegagerðarinnar í Vík, sagði í gær
að mikil hálka hefði verið á Mýr-
dalssandi um helgina. „Við hálku-
verjum ekki langleiðirnar, aðeins
sérstaklega hættulega staði, og
reynum eftir megni að hafa ekki
hjólför á klæðningunni. Ég fór svo-
lítið um um helgina og það var allt
á þokkalega góðu róli fyrir þá sem
keyra skynsamlega," sagði Gylfi.
„Þetta er fyrsti snjórinn og fyrsta
hálkan í vetur og þá hefst þes'si um-
ræða,“ sagði Gylfi. Hann sagði að
hálkan á Hellisheiðinni um helgina
hefði einnig verið mikil.
Bíll fauk og valt eystra á fóstu-
daginn - bílaleigubíll á sumardekkj-
um. í bílnum voru útlendingar sem
meiddust ekki. Bíllinn var ekkert
skemmdur og honum var snúið við
og ekið áfram. „Maður fær sting í
hjartað þegar svona gerist og spyr
sig alltaf hvort maður hafi ekki
staöið sig nógu vel,“ sagði Gylfi.
-JBP
HHi 4* Hiti 0° Hiti 0“
til 3° til 5° til 5°
Vindur; Vindur: Vindur
8-13™/* 6—10 m/s 3_gm/s
t -»
A 8-13 m/s, en Fremur hæg Breytileg eöa
10-15 vlö suölæg átt, vesttæg ótt, 3-8
noröurstrondina s'*dda 608 skúrir ni/s. Skúrir eöa
.. v,öa um land>an 08 allra syöst. Orkomulitiö slydduél um mestallt iand,
El noröan til en noröanlands. síst þó
slydda sunnan Vægt frost i TOröaustan til.
og austan tll. noröan tll en Hltl 0 tll 5 stig.
Hægt hlýnandi annars 0
veöur. til 5 stiga hrti.
SEpTtiWívÁ :
m/s
Logn 0-0,2
Andvari 0,3-1,5
Kul 1,6-3,3
Gola 3,4-5,4
Stinningsgola 5,5-7,9
Kaldi 8,0-10,7
Stinningskaldi 10,8-13,8
Allhvasst 13,9-17,1
Hvassviðri 17,2-20,7
Stormur 20,8-24,4
Rok 24,5-28,4
Ofsavefiur 28,5-32,6
Fárvifiri >= 32,7
Voöriö kl. gj
AKUREYRI snjókoma -8
BERGSSTAÐIR hálfskýjað -10
BOLUNGARVÍK snjóél -5
EGILSSTAÐIR sWjjað -7
KEFLAVÍK léttskýjaö -8
KIRKJUBÆJARKL. léttskýjað -9
RAUFARHOFN alskýjaö -6
REYKJAVÍK léttskýjað -9
STÓRHÖFÐI léttskýjaö -1
BERGEN rigning 5
HELSINKI þoka 1
KAUPMANN AHOFN rígning 2
OSLO rigning 3
STOKKHÓLMUR 3
ÞÓRSHÖFN slydduél 2
ÞRÁNDHEIMUR snjókoma -4
ALGARVE 13
AMSTERDAM léttskýjaö 7
BARCELONA
BERLÍN
CHICAGO skýjaö -9
DUBLIN rigning 5
HALIFAX skafrenningur -9
HAMBORG rigning 6
FRANKFURT rigning 7
JAN MAYEN snjóél -10
LONDON skýjað 8
LÚXEMBORG rigning 5
MALLORCA súld 14
MONTREAL heiöskírt -19
NARSSARSSUAQ heiöskírt -1
NEW YORK léttskýjað -7
ORLANDO léttskýjað 8
PARÍS skýjað 7
VÍN þokumóöa -4
WASHINGTON alskýjað 4
WINNIPEG skýjað -22