Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2003, Side 11
11
ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2003
I>V Fréttir
DV-MYND SIGURÐUR JOKULL
raska því jafnvægi sem þar hefur
myndast. En þeir eru nú á annarri
skoðun þar.
Vegamál verða líka á dagskrá -
og menn munu auðvitað tala um allt
sem þeim dettur í hug og reyna að
fmna höggstað • á ríkisstjóminni
hvar sem þeir geta. Þó eitt mál sé af-
greitt kemur Ernnað í staðinn. Síðan
fer það eftir áhuga og undirtektum
tjölmiðla hvað úr einstökum málum
verður," segir Halldór.
Bréfið umdeilda
Halldór segir sjaldgæft að ágrein-
ingur komi upp um störf þingsins.
Þó geti skapast deilur um þingsköp
Alþingis og að hans mati þurfi að
bæta úr því og skýra þingsköpin.
Þá nefnir hann umdeilt bréf sem
forsætisnefnd Alþingis sendi Hæsta-
rétti í öryrkjamálinu svonefnda:
„Við stöndum frammi fyrir þvi
oft á tíðum að ýmsir halda því fram
hér á Alþingi að lög sem verið er að
samþykkja séu stjómarskrárbrot án
þess kannski að meina það fullkom-
lega og án þess að menn úti í þjóðfé-
laginu láti á það reyna því að þeir
trúa því ekki heldur. Á hinn bóginn
getur komið upp staða þar sem
nauðsynlegt er að fá úr því skorið
hver sé til dæmis afstaða Hæstarétt-
ar gagnvart stjórnarskránni, því
það er mjög flókið fyrir okkur að
breyta stjórnarskránni ef við teljum
að hún sé óglögg. I sambandi við
þetta Hæstaréttarmál var sagt að
lögin sem samþykkt voru brytu í
bága við stjómarskrána, en það er
ekki að sjá að sækjendur þess máls
séu neitt ákafir í að ljúka málinu.
Þannig virðist það vera skilningur
að Alþingi hafi gætt sín og haldið
sig innan þess ramma sem stjómar-
skráin og Hæstiréttur setja.“
-ÓTG
Samherji hf. kaupir hlut í 3. stærsta fyrirtæki heims í laxeldi:
Aðgangur að þekkingu
í fiskeldi mikilvægur
- segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja
Framtíö í fiskeldi
Á vegum Samherja hefur fiskeldi veriö í vexti hjá íslandslaxi í Grindavík og
Silfurstjörnunni í Öxarfiröi og í samvinnu viö Síldarvinnsluna hf. i Neskaup-
staö er unniö aö því aö byggja upp sjókvíaeldi Sæsilfurs í Mjóafirði.
Samið hefur
verið um kaup
Samherja hf. á
eignarhlut í
norska sjávarút-
vegs- og fiskeld-
isfyrirtækinu
Fjord Seafood
ASA í
Brönnöysund í
Noregi, sem er
þriðja stærsta
fyrirtæki heims í laxeldi, fram-
leiddi 87 þúsund tonn af laxi í
fyrra. Velta fyrirtækisins í ár er
talin verða um 46 milljarðar ísl.
króna.
Samherji hf. kaupir um 2,6%
hlut á genginu 2,5 fyrir um 320
milljónir íslenskra króna. Jafn-
framt hefur Samherji gert víðtæk-
an samstarfssamning við Fjord
Seafood sem m.a. tekur til sam-
starfs félaganna i fiskeldi og sölu
sjávarafurða.
Starfsmenn Fiord Seafood úti um
allan heim eru á fjórða þúsund.
Fyrirtækið annast alla þætti fisk-
eldis, allt frá klaki hrogna til dreif-
ingar og markaðssetningar fullunn-
inna afurða.
Vöxtur í fiskeldi Samherja
Á vegum Samherja hefur fiskeldi
verið í vexti hjá íslandslaxi í
Grindavík og Silfurstjömunni i Öx-
arfirði og í samvinnu við Síldar-
vinnsluna hf. í Neskaupstað er
unnið að því að byggja upp sjókvía-
eldi Sæsilfurs i Mjóafirði.
Starfsemi Samherja í fiskeldi
tekur til alls ferilsins - klaks, seiða-
framleiðslu, matfiskeldis, slátrun-
ar, pökkunar og markaðssetningar
afurðanna.
Á árinu 2002 nam heildarfram-
leiðsla eldisstöðva Samherja og
tengdra fyrirtækja um 3.300 tonn-
um af laxi og bleikju. Þá voru fram-
leidd um 2 milljónir seiða.
Gangi áætlanir eftir má gera ráð
fyrir að eldisframleiðsla Samherja
tvöfaldist í ár miðað við árið 2002.
Slátrun á eldislaxi úr sjókvíum
Sæsilfurs í Mjóafirði hófst undir
lok síðasta árs og er vöxtur fisksins
í sjó í samræmi við væntingar.
Aðgangur að þekkingu
Þorsteinn Már Baldvinsson, for-
stjóri Samherja hf., segir að Fjord
Seafood sé eitt af öflugustu fyrir-
tækjum heims í fiskeldi og mikil-
vægt sé fyrir Samherja að hafa að-
gang að þeirri þekkingu sem það
hafi yfir að ráða á þessu sviði.
„Ég hef oft látið þá skoðun í ljós
að ég telji að fiskeldi, hvort sem er
laxeldi eða þorskeldi, gegni lykil-
hlutverki í þróun sjávarútvegs í
framtíðinni. Samherji hefur lagt
aukna áherslu á fiskeldið á undan-
förnum misserum og í þeirri upp-
byggingu er mikilvægt fyrir okkur
að geta skipst á upplýsingum við
Fjord Seafood sem býr yfir yfir-
gripsmikilli þekkingu og reynslu í
fiskeldi og hefur jafnframt öflugt
sölu- og dreifingarkerfi fyrir sjáv-
arafurðir. Ég tel að samningurinn
við Fjord Seafood sé okkur mikill
styrkur í uppbyggingu fiskeldis hér
á landi og vinnslu og markaðssetn-
ingu á ferskum lax- og botnfiskaf-
urðum. Sömuleiðis er þessi samn-
ingur við eitt af stærstu laxeldisfyr-
irtækjum heims okkur mikilvægur
vegna mikillar aukningar Sam-
herja í framleiðslu fiskimjöls og
lýsis sem er meira en helmingur
hráefnis í fiskafóður," segir Þor-
steinn Már Baldvinsson.
Styrkur fyrir bæði fyrirtæki
Paul Birger Torgnes, forstjóri
Fjord Seafood, fagnar samningnum
um kaup Samherja á hlut í Fjord
Seafood og segir hann áhugaverð-
an. „Samningurinn er grunnur að
samstarfi tveggja öflugra sjávarút-
vegs- og fiskeldisfyrirtækja sem er
þeim báðum mikilvægt. Samning-
urinn tryggir Fjord Seafood aðgang
að hráefni og afurðum sem við get-
um nýtt inn í okkar framleiðslu-,
sölu- og dreifikerfi. Þetta styrkir
það langtímamarkmið Fjord
Seafood að vera leiðandi í heimin-
um í fiskeldi og markaðssetningu
sjávarafurða. Ég tel að aukið sam-
starf fyrirtækja í sjávarútvegi
dragi úr sveiflum i hráefnisverði
og stuðli að auknum stööugleika í
greininni," segir Torgnes. -hiá
Þorsteinn Már
Baldvinsson.
rtí! £7—
• - [ J||||| |
| Wpi; |
\ >
Vel boölöl
Þingflokkur Samfylkingarinnar bauö forsætisráöherraefni sitt, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, velkomna til leiks í þing-
flokksherberginu í Alþingishúsinu í gær. Augljóst er aö Ingibjörg kunni vel viö sig í þeirra hópi og þótti þeir veita vel.
Sumum kann aö þykja táknrænt aö formaöur flokksins, Össur Skarphéöinsson, situr ekki viö boröiö. Fjarvera hans er
þó ekki til marks um aö hann sé horfmn úr sviösljósinu heldur þurfti hann þarna þvert á móti aö bregöa sér frá í viö-
tal viö sjónvarpsfréttamenn!