Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2003, Page 13
13
ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2003
DV Fréttir
Góð verkfæri
á fínu verði
DV-MYND ÖRN ÞÓRARINSSON
Vamargaröur efldur
Efni keyrt í styrkingu í Ólafsfjarðarhöfn á dögunum. Áhlaup eins oggerði í
fyrra hefði getað valdið enn meiri skemmdum á garöinum.
Skemmdir á hafnargarði í Ólafsfirði frá í fyrra lagfærðar nú:
Notuðu góðviðrið
til hafnarbóta
„Þaö er að sjálfsögöu einsdæmi
að hér sé hægt aö vinna viö lagfær-
ingar á höfninni í janúar. Þetta var
ekki mikið verk en þaö haföi dregist
af ýmsum ástæðum. Það þurfti að
keyra efni á þremur vörubílum í
þrjá daga og slétta úr með jarðýtu.
Við vorum með þessu að laga
skemmdir sem urðu í fyrravetur í
einu mesta brimi sem hér hefur
komið í 3(M0 ár,“ sagði Ólafur Sæ-
mundsson, hafnarvörður í Ólafs-
flrði, aðspurður um framkvæmdir
sem þar stóðu yflr á dögunum.
Það var styrking innan við grjót-
garð í svokaUaðri vesturhöfn sem
skolaði út í fyrra og var verið að
lagfæra nú á dögunum. Ólafur sagöi
að menn hefðu verið uggandi um að
ef annað eins brim kæmi aftur gæti
það farið að skemma sjálfan grjót-
garðinn. Því hefði góða veörið nú í
janúar verið notað til að ljúka þessu
verki.
Þetta er þó ekki eina framkvæmd-
in við höfnina því dýpkunarskipið
Perla er nýfarið frá Ölafsflrði eftir
að hafa dælt um 29 þúsund
rúmmetrum af efni upp úr höfninni.
Nú er um sjö metra dýpi í austur-
höfninni þar sem stóru skipin koma
inn og landa afla sínum. Óskar seg-
ir að yflrleitt sé dælt á fjögurra ára
fresti upp úr höfninni en í þetta
skipti voru fimm ár síðan siðast var
dýpkað. Þetta verk gekk vel enda
hefur veðráttan leikið við fólk á
þessum slóðum undanfarið, allt til
16. janúar þegar snerist til norðan-
áttar. -ÖÞ
Fjarðabyggð:
Auknar fjárfest-
ingar í vatns- og
hitaveitu
Bæjarsljórn Fjarðabyggðar sam-
þykkti á fundi nýverið að gera ráð
fyrir 178 milljóna króna heildarút-
gjaldaaukningu hjá aðalsjóði Fjarða-
byggðar og stofnunum og verður
þeim mætt með lántökum. Liggur út-
gjaldaaukning að mestu leyti í fjár-
festingum í vatnsveitu og hitaveitu.
Álagningarstuðlar gjalda fyrir næst-
komandi ár gera m.a. ráð fyrir hækk-
un fráveitugjalds úr 0,15% í 0,20% og
viss hluti þjónustugjalda verður
hækkaður um 10% frá 1. janúar 2003.
Samþykkt var að afla tilboða í
smíði lausrar kennslustofu sem stað-
setja á við leikskólann Sólvelh og ver-
ið er að ganga frá verksamningi við
lægstbjóðanda í uppfyllingu bygging-
arsvæðis inn við leikskólann Dalborg
á Eskifirði en stefht er að þvi að verk-
ið hefjist sem fyrst. Undimefndir
hafa unnið með tillögur að fjárhagsá-
ætlun ársins 2003 undanfarinn mán-
uð en bæjarstjórn afgreiddi þær frá
sér á fundi sínum 21. nóvember 2002.
Til stóð að afgreiða fjárhagsáætlun
með síðari umræðu í bæjarstjóm
30.12. en bæjarráð samþykkti að
fresta afgreiðslunni. Menningarnefnd
hefur farið yfir málefni safna í
Fjarðabyggð undanfarinn mánuð og
ýmsa þætti í menningarstarfi því sem
unniö hefur verið á árinu 2002.
M.a. vora fóra fram 19 menningar-
viðburðir í Kirkju og Menningarmið-
stöðinni á Eskifirði. -GG
Gagnrýna samræmd
stúdentspróf
Ungir jafnaðarmenn gagnrýna þá
ákvörðun menntamálaráðherra að
halda eigi samræmd stúdentspróf í
framhaldsskólum landsins, í ís-
lensku í janúar árið 2004, en í ís-
lensku, ensku og stærðfræði frá og
með janúar 2005.
í ályktun sem þeir hafa sent frá
sér segja þeir gagnrýnivert að fram-
haldsskólanemar, sem ganga eigi til
prófs, hafi fæstir fregnað af ákvörð-
uninni, fáeinir hafi að heyrt hana út
undan sér undanfama daga. Ungir
jafhaöarmenn skora á alla þá sem
láta sér annt um skólamál að mót-
mæla af einurð upptöku sam-
ræmdra stúdentsprófa. -aþ
LÁGMÚLA 8 • SÍMI 530 2800
VISA-EUR0
LÉTTGREIÐSLUR í ÞRJÁ MÁNUÐI
HJÁ BRÆÐRUNUM ORMSSON
UMBOÐSMENN UM
LAND ALLT
AEG 0 ORMSSON ÆiasCopco
RAFHLÖÐU
B0RVÉL
12 volt*2 rafhlöður
•13 mm patróna
kr. 32.900.-
kr. 24.900-
STINGS0G
Atlas-Copco BSPE100 • 600 w
BR0THAMAR
Atlas-Copco PFH20 • 560 w
kr. 28.900.- kr. 34.900.-
AEGB0RVEL
570 watt • 13 mm patróna
AEG B0RVEL
Rafhlöðuborvél • 12 volt • 1 rafhlaða
kr. 21.900.-
HITABLÁSARI
Atlas-Copco •Hitablásari • 2000 w
kr. 6.990.-
kr. 9.900.-
kr. 9.900.-
HJÓLSÖG
Atlas-Copco K55 • 1500w
/
kr. 24.900.-
JUÐARI
Atlas-Copco VSSE20 • 260 w