Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2003, Síða 17
17
ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2003
PV________________________________________________________________ Útlönd
Norðmenn felmtri slegnir eftir fjölskylduharmleik í Sveio:
Faðir myrti eiginkonu
sína og tvær dætur
- og framdi síðan sjálfsvíg. Nágrannar skilningsvana.
Almenningur í Noregi er felmtri
sleginn eftir að heil fjölskylda
fannst látin á heimili sínu í Sveio í
Noregi í gær. Aðstæður á vettvangi
benda til þess að fjölskyldufaðirinn,
funmtugur sjómaður, hafi myrt eig-
inkonu sína og tvær dætur, 18 og 12
ára, og að því loknu framið sjálfsvíg
með riffli. Ekki er vitað hvenær
þessi harmleíkur átti sér stað en
menn hallast að því að það hafl ver-
ið um helgina.
Elsta dóttir hjónanna, 21 árs göm-
ul, hafði flutt að heiman í október
og það virðist hafa orðið henni til
lífs. Lögregla er engu nær um
ástæður verknaðarins og segir
menn standa skilningsvaná frammi
fyrir þessum ósköpum. Nánari upp-
lýsingar um tildrög morðanna er
ekki að fá sem stendur.
Það var í gær, mánudag, sem
grunsemdir fóru að vakna um að
ekki væri allt með felldu hjá fjöl-
skyldunni. Yngsta dóttirin, sem er
fjölfótiuð og í hjólastól, mætti ekki í
skólann í gærmorgun. Þótti það
sæta furðu því hún var alltaf mætt
tímanlega og foreldrarnir taldir
reglufólk. Hringt var heim til henn-
ar en þar svaraði enginn. Þegar leið
á daginn fóru kennarar að ókyrrast
og haft var samband við elstu dótt-
urina. Fór svo að kunningjafólk fór
að heimili fjölskyldunnar, rauðmál-
uðu einbýlishúsi. Þar svaraði eng-
inn. Komst maður inn um opinn
glugga á húsinu og þá blasti hræði-
leg sýn við. Heil fjölskylda lá í valn-
um eftir harmleik sem enginn skil-
ur. Líkin voru ekki öU í sama her-
bergi hússins en lögregla hefur ver-
ið viðrannsóknir á vettvangi frá því
í gær.
Fjölskyldufaðrinn, Oddvard
Stölen, hafði verið til sjós í mörg ár,
síðast skipstjóri á fraktskipi sem
hafði verið lagt vegna verkefna-
skorts. Hann hafði kvartað yfir
heilsubresti, einkum bakverkjum,
en þótti annars áreiöanlegur og geð-
prúður maður. Vinnuveitandinn gaf
ifú,:
Húsið þar sem harmleikurinn átti sér stað
Þarna bjó fimmtugur sjómaöur ásamt eiginkonu og tveimur dætrum, annarri fjölfatlaöri í hjólastól. Hann myrti þær
allar og framdi síöan sjálfsvíg meö riffli á eftir. Menn eru skilningsvana gagnvart þessum ósköpum en
fjölskyludfööurnum er lýst sem geöprúöum manni og afar hjálplegum nágranna.
honum sín bestu meðmæli í samtali
við norska fjölmiðla í gær. Ná-
grannar fjölskyldunnar lýsa henni
sem ósköp venjulegri. Fjölskyldu-
faðirinn þótti afar viðfeUdinn mað-
ur, iðinn við vinnu bæði inni og úti
og sérlega hjálpsamur nágranni.
HeimUismóðurinni er lýst sem
hæglátri en viðfelldinni konu sem
þótti þægUeg í umgengni. Hún átti
húsið sem fjölskyldan bjó í. Hún
hafði orðið fyrir áfalli fyrir
nokkrum árum þegar faðir hennar
og bróðir drukknuðu eftir að ís á
firðinum nærri heimUi þeirra gaf
sig. Þótti hún bera harm sinn vel.
En harmleikurinn í Sveio var
ekki eina fréttin sem kom við tU-
finningar Norðmanna í gær. Sam-
býlisfólk fannst látið í húsi í Bodö i
gær en svo virðist sem maðurinn
hafi banað konunni og síðan sjálf-
um sér.
Þannig létust sex manns í Noregi
um helgina. Hafa 11 verið myrtir
það sem af er þessu ári. Þá hafa
tveir framið sjálfsvíg eftir að hafa
myrt sína nánustu.
Prófessor við háskólann i Agder,
sem rannsakað hefur morðmál í
mörg ár, segir að koma megi í veg
fyrir svona harmleiki með því ein-
faldlega að fjarlægja vopn af heimU-
um manna og auka aðstoð við fjöl-
skyldur sem eiga í tUvistarkreppu.
Hann segir að fjórðungur aUra
morða í Noregi séu morð á sambýl-
isfólki. Ósköp hefðbundin deUumál
eða erfiðleikar á heimUum geti fljót-
lega þróast á versta veg, sérstaklega
ef vopn eru á heimUinu.
-Verdens Gang/hlh
Hernaðaruppbyggingin við Persaflóa í fullum gangi:
Bretar ákveða að fjölga
verulega í herliði sínu
Bandarísk stjórnvöld hafa
ákveðið að senda nærri 37 þúsund
hermenn tU Persaflóasvæðsins tU
viðbótar við þá 150 þúsund sem
þegar hafa verið sendir þangað
eða eru í viðbragðsstöðu vegna.
hugsanlegra hernaðaraðgerða
gegn írökum.
Þessi ákvörðun var tekin í gær
eftir að bresk stjórnvöld höfðu tU-
kynnt að þau myndu auka
verulega liðsafla sinn á svæðinu.
Fyrirhugað er að senda þangað
aUt að 31 þúsund breska hermenn
sem er mun meira en gert var ráð
fyrir í upphafi, en þegar eru
komnir á Persaflóasvæðið um 8
þúsund sérþjáifaðir breskir
landgönguliðar.
Þá tUkynnti Geoff Hoon, varnar-
málaráðherra Bretlands, i gær að
ráðgert væri að senda um 150 her-
flutningabifreiðar og 120
skriðdreka tU Kúveit fyrir miðjan
febrúar þó svo að enn hefði ekkert
verið ákveðið um þátttöku í
Flugmóöurskipiö Ark Royal, flaggskip breska flotans
Bretar hafa ákveöiö aö senda allt aö 31 þúsund hermenn á Persaflóasvæöiö til
undirbúnings fyrir hugsanlegar aögeröir gegn írökum. Hér á myndinni sjáum viö
flugmóöurskipiö Ark Royal, flaggskip breska flotans, halda úr höfn í Portsmouth í
síöustu viku á leiö til Persaflóa.
beinum aðgerðum ef af þeim yrði.
Þetta þykir renna frekari
stoðum undir það að Bandarikja-
menn séu nú að búa sig undir
landhernað í írak og um leið að
beita íraka auknum þrýstingi
meðan vopnaeftirlitsmenn SÞ eru
enn að stöfum, eða þar til Hans
Blix, yfirmaöur vopnaeftirlitsins,
kynnir lokaskýrslu sína í
Öryggisráðinu þann 27, janúar.
Colin PoweU, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, varaði öryggisráð
SÞ við því í gær að sýna írökum
undanlátssemi og sagði að ráðið
yrði að vera viðbúið því að taka
erfiðar ákvarðanir þegar þar að
kæmi.
„Við megum ekki hvika frá
skyldum okkar og ábyrgð gagnvart
öryggi í heiminum þegar kemur að
því að taka ákvörðim um fram-
haldið í næstu viku. Við verðum að
axla ábyrgðina og taka óhræddir
ákvarðanir um nauðsynlegar að-
gerðir,“ sagði PoweU.
www.evro.is
Sp.Touring 8oo sdi
árgerð 2003 1.460.000
/•
f LYMX' Ranger Mountain
árgerð 2003 1.390.000
YtLYMJr Rave 800
árgerö 2002 1.345.000
tilboð 1.245.000
&ÆYM*r ENDURO 700 RER
árgerð 2002 1.245.000
tilboð 1.145.000
&ÆYMT SAFARI400
árgerð 2002 890.000
tilboð 790.000
Notaðir vélsleóar
hjá EVRÓ Skeifunni
Lynx Rave 2001 ek: uookm
Listaverð: 980þús, tilboð 880þús
Lynx Touring 1998 ek: 3600km
Listaverð: 550þús, tilboð 450þús
S.Doo 1998 Mach Z ek: 5600km
Listaverð: 580þús, tilboð 510þús
S.Doo 1997 Mach Z ek: 3600km
Listaverð: 490þús, tilboð 410þús
S.Doo 1994 Summit ek: 5000km
Listaverð: 310þús, tilboð 250þús
S.Doo 1995 MachZ ek: 5000km
Listaverð: 350þús, tilboð 300þús
Lynx Racing 2001 ek: I500km
Listaverð: 895þús, tilboð 795þús
Lynx Racing 2000 ek: isookm
Listaverð: 730þús, tilboð 660þús
Lynx Touring 2001 ek. lOOOkm
Listaverð: 910þús, tilboð 840þús
Tökum
tjaldvagna/fellihýsi
uppí vélsleða á lager!
mikið úrval
Sleðafatnaður
Vélsleðahjálmar
Hanskar
Vélsleðaskór
Rekstrarvara
og margt fleira.
Skeifunni- S. 533-1414