Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2003, Side 23
23
ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2003
DV Tilvera
•Listir
MLandslagsmálverk
Á Caffé Kúlture í Alþjóðahúsinu stendur
nú yfir sýning Péturs Péturssonar þar
sem hann sýnir 12 landslagsmálverk
sem eru öll máluö meö akríllitum á
striga. Sýningunni lýkur næsta sunnudag.
Myndin hér aö ofan nefnist Vatnaöldur.
■Bedduverftlaunin afhent
Kl. 18 veröa Beddu-verölaunin afhent í
Mír á vegum Bíó Reykjavíkur. Hér veröa
kvikmyndageröarmenn heiöraöir en heiö-
ursgestir eru systkinin Hrönn og Árnl
sem einnig veröa kynnar. Fyrir utan aö
veita verölaun fyrir bestu myndir veröa
einnig veitt verðlaun fyrir verstu myndina.
Sjá nánar á www.bioreykjavik.com
■Tré í Hafnarborg
Sýningin Tré er í fullum gangi T
Hafnarborg, menningar- og listastofnun
Hafnarfjaröar. Þaö er bandaríska lista-
konan Joan Backes sem er meö þessa
sýningu þar sem hún beitir ýmsum
miölum til aö koma til skila vangaveltum
sínum um tré og skóga og því sjónræna
viöhorfi sem þar kviknar. Meö öllum
verkunum á sýningunni leitast hún viö aö
endurvekja minningar okkar um tré og
skóglendi og kynda þannig undir
ímyndunarafl áhorfandans.
•Uppákomur.
■Lióðstafur Jéns úr Vör
Kl. 20 veröur verölaunaafhending meö
dagskrá í Salnum, Kópavogi, Tónlistar-
húsi Kópavogs. Greint verður frá
niöurstööum úr Ijóöasamkeppni á vegum
Lista- og meinningarráðs Kópavogs
„Ljóöstafur Jóns úr vör". Upplestur,
tónlistarflutningur og léttar veitingar.
Aögangur ókeypis meðan húsrúm leyfir.
•Bíó
■Frönsk kvikmvndahátíð
Frönsk kvikmyndahátíö heldur áfram T Há-
skólabíói T dag. Alls veröa sýndar átta
franskar myndir meö enskum texta á há-
tíðinnni sem stendurtil 27.janúar. Mynd-
ir dagsins í dag eru: Gott starf, Allt um
ástina og Ró yfir borginni.
■Kvennafundur
Kvenfélagiö Fjallkonurnar standa fyrir
sameiginlegum fundi meö Kvenfélagi
Breiöholts- og Seljasóknar í safnaöar-
heimlli Fella- og Hólaklrkju kl. 20. Allar
konur velkomnar.
Krossgata
Lárétt: 1 góðgæti,
4 stunguspaöa, 7 rusl,
8 heystæði, 10 stertur,
12 lirygning, 13 mann,
14 galdur, 15 bekkur,
16 hár, 18 trés,
21 truflun, 22 gleði,
23 beitu.
Lóðrétt: 1 hrúga,
2 kærleikur, 3 dimma,
4 jafntefli, 5 fljótið,
6 hnöttur, 9 taldi,
11 óleik, 16 brofleg,
17 upphaf, 19 lækkun,
20 eyði.
Lausn neðst á síöunni.
Umsjón: Sævar Bjarnason
Hvítur á leik!
Þeir Loek van Wely og Vishy An-
and fóru mikinn um helgina og hafa
tekið forystu þegar mótið er hálfnað í
Sjávarvíkinni í Hollandi. Judit hefur
reyndar ekki enn tapað skák en
henni tókst ekki heldur að vinna
skák um helgina. Shirov tapaði illa
fyrir Krasenkow á laugardaginn en í
þessari skák bretti hann svo sannar-
lega upp ermamar og vann eftir æv-
intýralegar peðsfómir. Þetta viröist
vera einfalt en sú er ekki raunin -
snilidartaflmennska þótt e.t.v. megi
fmna að henni í tölvum. En gleymum
ekki mannlega þættinum!
Hvítt: Alexei Shirov (2723)
Svart: Evgení Bareev (2729)
Frönsk vöm.
Wijk aan Zee (7), 19.01. 2003
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Rf6 4. e5
Rfd7 5. f4 c5 6. Rf3 Rc6 7. Be3 cxd4
8. Rxd4 Bc5 9. Dd2 Bxd4 10. Bxd4
Rxd4 11. Dxd4 Db6 12. Dd2 Dxb2 13.
Hbl Da3 14. Rb5 Dxa2 15. Rd6+ KfB
16. Hdl Db2 17. Be2 Db6 18. c4 d4
19. Bf3 a5 20. 0-0 d3+ 21. Khl Dd4
22. Rb5 Dc5 23. Dxd3 g6 24. Rd6 Rb6
25. Hbl Kg7 26. Hb5 Dc7 27. Dd4
Rd7 (Stöðumyndin) 28. f5 gxf5 29.
Rxf5+ exf5 30. e6+ Re5 31. Hxe5 fB
32. Hxf5 HfB 33. Bd5 De7 34. Hh5
Kh8 35. Be4 Bxe6 36. Hxh7+ Dxh7
37. Bxh7 Kxh7 38. De4+ 1-0
1.-2. Van Wely (2668) og Anand
(2753), 5 v. 3.-4. Polgar (2700) og
Shirov (2723), 4,5 v. 5. Grischuk
(2712) 4 v. 6.-8. Ivanchuk (2699),
Kramnik (2807) og Topalov (2743)
3,5 v. 9.-11. Karpov (2688), Radjabov
(2624) og Bareev (2729). 3 v.12,-13.
Krasenkow (2633) og Ponomariov
(2734), 2,5 v. 14. Timman (2594), 1,5
TOS oz ‘SfS 61 ‘}0.i ii ‘sjas 91
‘5HIJ3 II ‘liajB 6 ‘IQS 9 ‘BUB S ‘BQEJSHEd {7 TuAs83n5(S £ ‘}SB Z ‘SQT I :}}QTQQT
•iuSb £g ‘I}æ5i zz ‘iQæuo iz ‘S5jSB 81 ‘AÚ)S 91
‘)as si ‘Qias H ‘28as £i To3 zi ‘i3b) oi ‘n)BS 8 ‘uBJ5js i ‘S}Ed i ‘sbj5i i :))ajpi
Dagfari
Yfir lækinn
Nú má búast við að hálf þjóð-
in liggi í íslendingabók, nýja
vefnum þar sem maður getur
komist að því hvernig ættirnar
liðast aftur í aldanna rás og
hvernig og hve náið maður er
skyldur hinum og þessum. Leit
yfir öxlina á samstarfsmanni
sem fengið hafði forskot á sæl-
una og sá þar á augabragði
hvernig kolleginn var skyldur
nánustu samstarfsmönnum á
ritstjórn og nokkrum stór-
mennum. Ættir okkar lágu
saman í 8. lið og Kári sjálfur
var skyldur viðkomandi í 10.
lið. Engar stórfréttir þar. En
smelli maður á nöfn forfeðra,
sín megin vel að merkja, má fá
nánari upplýsingar um viðkom-
andi. Vefur þessi er skemmti-
legur og býsna sniðugur við
fyrstu kynni. Og ég sé ekki
annað en að það mat eigi eftir
að styrkjast við nánari kynni.
En einn galli fylgir þó gjöf
Njarðar og þar ráða svokölluð
persónuverndarsjónarmið ferð-
inni, sjónarmið sem aðstand-
endur vefsins fá víst ekki við
ráðið. Allar grúskferðir á vefn-
um eiga mig að heimahöfn. Allt
sýsl miðast við mig sem skráð-
an notanda íslendingabókar.
Ég get ekki komist að skyld-
leika einstaklinga sem eru mér
óskyldir, get ekki sett mig í
spor vinnufélagans þegar ég
grúska. Ekki með hjálp vefsins.
Til þess þarf ég að grúska í
rykföllnum ættfræðibókum.
Rekja mig aftur á eigin spýtur,
leita í viskubrunn ættfræðings
blaðsins eða kaupa þjónustu
ættfræðinga. Þrátt fyrir per-
sónuverndarsjónarmið get ég
sosum komist að þessu en verð
að fara yfir lækinn að sækja
vatnið. Takmarkanir á leit í
tölvutækri íslendingabók eru
háðar tæknilegum persónu-
verndarhindrunum, hindrunum <
sem má yfirstíga sé þolinmæði
fyrir hendi. Og ég sem hélt að
tölvutækninni væri ætlað að
auðvelda lífið í dagsins önn.
Haukur L.
Hauksson
blaöamaöur
Myndasögur