Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2003, Side 2
2
LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 2003
DV
Fréttir
27 ára karlmaður, sem fékkst framseldur frá Hollandi, úrskurðaður í hald áfram:
Kominn heim og svarar
til saka í fjölda fíknimála
- grunaður um aðild í 5 kílóa amfetamínmáli og ýmsu fleira
Vill rannsókn
Ögmundur Jón-
asson, þingmaður
VG, krefst þess að
náið verði farið
ofan I útboðsgögn
ítalska verktakafyr-
irtækisins Impreg-
ilo í ljósi fregna um
meinta spillingu
fyrirtækisins á erlendum vettvangi.
Bylgjan greindi frá.
27 ára karlmaður var í gær úr-
skurðaður í áframhaldandi gæslu-
varðhald en hann var framseldur
til íslands frá Hollandi í byrjun
janúar. Maðurinn á yfir höfði sér
saksóknir í þremur allstórum
fíkniefnamálum, þar af einu þar
sem hann er grunaður um að hafa
staðið að innflutningi á 5 kílóum
af amfetamíni sem lögreglan lagði
hald á í upphafí síðasta árs.
í síðustu viku kom fyrir Héraðs-
dóm Reykjavíkur Þjóðverji sem
handtekinn var með eitt og hálft
kíló af kókaíni í lok okbóber. Þeg-
ar saksóknari fór yfir hvað dómn-
um bæri m.a. að hafa í huga þegar
refsing yfir honum yrði ákveðin
minntist hann á mál sem snerist
um innflutning á 630 grömmum af
kókaini frá Mexíkó. Þar var ís-
lenskur höfuðpaur einmitt dæmd-
ur í 3 ára fangelsi en tveir sam-
verkamenn í 2 ára fangelsi. Það er
einmitt í þessu máli, sem er frá ár-
inu 1998, sem framangreindur ís-
lendingur, sem framseldur var frá
Hollandi, á nú eftir að svara til
saka, en hann hefur dvalið erlend-
is um árabil og ekki náðst til hans.
Hann er grunaður um að hafa ver-
ið einn af fjórmenningunum í
Mexíkómálinu og því er ekki ólík-
legt að ákæra verði gefin út á
hendur honum.
í þriðja lagi eru ýmis mál sem
grunur leikur á að maðurinn hafi
átt þátt í og á hann einnig eftir að
svara til saka í þeim. Þar er m.a.
um að ræða vörslur á 170 grömm-
um af kókaíni í eitt skiptið, 130
grömmum af kókaíni við annað
tækifæri, vörslur á 144 kannabis-
plöntum við það þriðja og í fjórða
lagi er hann grunaður um að hafa
selt á bilinu 500 til 1.500 grömm af
hassi.
Það var því á ýmsum forsendum
sem lögreglan hefur nú fengið
manninn framseldan frá Hollandi
og siðan úrskurðaðan í gæsluvarð-
hald. -Ótt
Ganga illa
Samningaviðræður ESB og
EFTA-rikjanna vegna stækkunar
evrópska efnahagssvæðisins hófust
að nýju í Brussel í morgun og lauk
fyrsta fundinum i þessari lotu rétt
fyrir hádegið. ESB krefst áfram
margfaldrar hækkunar á framlagi
EFTA-ríkjanna í þróunarsjóð sam-
bandsins en EFTA-ríkin hafa hafn-
að þeim kröfum. RÚV greindi frá.
Hlýraseiði
Hagþenkir:
Orðaheimur hlut-
skarpastur
Jón Hilmar Jónsson málfræðingur
hlaut viðurkenningu Hagþenkis í gær
fyrir sína miklu bók, Orðaheim, sem
kom út hjá JPV útgáfu í haust sem
leið. Viðurkenningin er veitt fyrir
framúrskarandi fræðilegt efni og er í
formi viðurkenningarskjals og kr.
500.000.
í rökstuðningi með viðurkenning-
unni segir að ekki sé algengt að fá í
hendurnar orðabók sem er í senn
afar gagnleg og mjög frumleg en slík
bók er Orðaheimur, íslensk hugtaka-
bók, unnin frá grunni út frá þeim sér-
íslensku notkunarkröfum sem henni
var ætlað að uppfylla.
Orðaheimur er aðgengileg og auð-
veld í notkun og þarafleiðandi mikill
fengur öllum, ungum og öldnum, sem
vilja temja sér íjölbreyttara orðafar
og tjáningu í rituöu og mæltu máli.
„Svona bók getur átt þátt i því að
gera notendur virka gagnvart mögu-
leikum tungunnar," sagði Jón Hilmar
í viðtali við DV 23. október sl. „Ég
vildi gjarnan sjá að menn hefðu hana
sem næst sér i dagsins önn. Því þó að
okkur finnist kannski að við eigum
að kunna þetta allt þá er það ekki
þannig og við eigum ekki að skamm-
ast okkar fyrir að fletta upp orðum og
orðasamböndiun." -SA
Oröaheimur er mikill fengur ungum sem öldnum
Jón Hilmar Jónsson tekur viö viðurkenningu úr hendi Sverris Jakobssonar, formanns Hagþenkis.
DV-MYND E.ÓL.
Iceland Express selur norrænni ferðaskrifstofu 2.700 flugsæti:
Fyrirfram greiddir miðar
verða ekki endurgreiddir
- hægt er að framselja þá og breyta tímasetningum
Lágfargjaldafélagið Iceland Ex-
press hefur gengið frá samningum
viö norræna ferðaskrifstofu um
sölu á 30 flugsætum á milli Kaup-
mannahafnar og íslands í hverri
ferð félagsins í þrjá mánuði í sum-
ar. Það þýðir fyrirfram sölu á 2.700
sætum hjá Iceland Express. Við
þetta bætast 14 þúsund fyrirfram
seld sæti fyrstu söluvikuna hér-
lendis auk þess sem síðan hefur
verið stöðugur og jafn straumur
áhugasamra flugfarþega, að sögn
Ólafs Haukssonar, talsmanns fé-
lagsins. Samkvæmt þessu er búið
að selja fyrirfram greidda miða fyr-
ir um 200 til 300 milljónir króna.
Fyrsta flugið með vélum breska
flugfélagsins Astraeus verður til
Kaupmannahafnar aö morgni 27.
febrúar. Um 40 þúsund sæti standa
til boða hjá félaginu á verði sem er
undir 20 þús. kr. báðar leiðir með
flugvallarsköttum.
Miðar ekki endurgreiddir
Nokkrir lesendur DV hafa látið í
ljós áhyggjur vegna fyrirfram
greiddra miða og hvort þeir veröi
endurgreiddir ef hætt er við flug af
einhverjum ástæðum. Ólafur
Hauksson segir að sömu reglur gildi
Rugvél Astraeus
Breska flugfélagiö Astraeus mun ann-
ast farþegafiutningana fyrir lceland Ex-
þress.
hjá þeim og öðrum lággjaldafélögum
og um stærstan hluta fargjalda hjá
öðrum félögum.
„Ef búið er að kaupa miða þá er
hann ekki endurgreiddur. Hins veg-
ar er hægt að kaupa forfallatrygg-
ingu og það er hægt að skipta um
nafn á miðanum ef fólk hættir við
að fara og vill framselja hann. Eins
er hægt að breyta tímasetningum á
fluginu en þá þarf að greiða 750 kr.
breytingagjald á hvorri leið.“
Ólafur segir að ástæða þessa sé sú
að þegar fólk kaupi sæti á hagstæð-
ustu kjörum sé það sæti ekki lengur
laust fyrir einhvern annan en á
móti komi framsalsrétturinn.
- Hvað ef flugfélagið getur ekki
staðið við sinn hlut og farþegar
verða strandaglópar erlendis?
„í áætlunarflugi eru engar slíkar
tryggingar í gangi, heldur einungis
í skipulögðu leiguflugi. Hér er um
áætlunarflug að ræða og slíkar
tryggingar myndu þýða að farmiðar
kostuðu óheyrilega mikið. Það er
vegna þess að þá yrðu flugfélög að
vera með stóran hluta af ársveltu
sinni bundinn í slíkum tryggingum.
Áætlunarflugfélög þurfa hins vegar
að setja tryggingar varðandi rekstr-
aröryggi flugvélanna.“
- Nú heyrist að Ryanair hafi
áhuga á að fljúga hingað til lands.
Hefur það einhver áhrif á ykkar
áætlanir?
„Nei, við erum pollrólegir yfir
því. Við höfum bjargfasta trú á þvi
að því ódýrara sem veröur að fljúga
hingað, þeim mun meiri verði ferða-
mannastraumurinn. Það er hið
besta mál fyrir íslenska ferðaþjón-
ustu.“ -HKr.
Fyrstu hlýraseiðin eru farin að
klekjast út hjá Hlýra ehf. í Neskaup-
stað. Mbl. greindi frá.
Kynþokkafyllstur
Kynþokkafyllsti
karl landsins er
Guðjón Valur Sig-
urðsson handbolta-
kappi samkvæmt
kosningu á Rás 2 í
dag, á fyrsta degi
þorra. í öðru sæti
var Logi Bergmann
Eiðsson sjónvarpsmaður.
Endurgreiðir ekki
Innheimtustofnun sveitarfélaga
neitar að endurgreiða manni með-
lagsgreiðslur hans þótt sannað sé að
hann sé ekki faðir bams sem hann
hefur greitt með. Umboðsmaður Al-
þingis vill að Innheimtustofnun
endurskoði afstöðu sína. RÚV
greindi frá.
Mikil leit
Björgunarsveitir Slysavarnafé-
íagsins Landsbjargar hyggjast
standa fyrir umfangsmikilli leit að
sjómanni, sem saknað hefur verið
frá því á mánudag, á Seyðisfirði um
helgina. Gert er ráð fyrir að 70
manns muni taka þátt í leitinni, 22
kafarar og 30-40 manns sem leita
munu í fjörum. Mbl. greindi frá.
Vaxtalækkun
Seðlabankinn segir að ef marka
megi viöhorfskannanir af ýmsu tagi
séu litlar líkur á umtalsverðum
efnahagsbata næstu mánuði. Grein-
ingadeild Búnaðarbankans telur lík-
legt, i ljósi umfjöllunar Seðlabank-
ans í Hagvísum janúarmánaðar í
gær, að stýrivextir verði lækkaðir
um 0,3-0,5 prósentustig í febrúar.
Mikið af loðnu
Síldarvinnslan hefur tekið á móti
mestum loðnuafla á loðnuvertíð-
inni, eða riflega 20 þúsund tonnum.
Vélar uppfærðar
Aðsókn að ís-
lendingabók, ætt-
fræðigrunni ís-
lenskrar erföagrein-
ingar og Friðriks
Skúlasonar ehf.,
hefur verið mjög
mikil. Er unnið að
því að uppfæra vél-
búnaðinn þannig að hann ráði við
fleiri notendur á sama tíma. Mbl.
greindi frá.
Vilja færri afbrot
Lögreglan í Hafnarfirði stefnir að
því að á árinu 2003 fækki innbrot-
um, þjófnuðum og skemmdarverk-
um, miðað við fyrra ár, en þessum
brotum hefur verið að fjölga á liðn-
um árum. Mbl. greindi frá.
Þunglyndisrannsókn
Hópur 14 ára nemenda í Garða-
skóla í Garðabæ tekur þátt í for-
varnanámskeiði sem er hluti af
rannsóknarverkefninu Hugur og
heilsa og hefst á næstu vikum.
Markmiðið er að fmna árangurs-
ríka aðferð til að koma í veg fyrir
þunglyndi síðar á lífsleiðinni. -hlh