Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2003, Blaðsíða 28
28
H&lgarblcicf 33 V LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 2003
Spilafíknin stórvandamál
%í.m
Jr) h
Það vakti mikla athygli um daginn er Eiður Smári
Guðjohnsen gekk fram fyrir skjöldu og játaði spilafíkn
sína. í kjölfarið hefur farið fram mikil umræða um
spilafikn knattspymumanna í Englandi sem og annars
staðar og er ljóst að vandamálið er stærra en nokkurn
grunaði. Michael Owen hefur meðal annars legið undir þó
nokkru ámæli vegna meintra veðmála sinna með enska
landsliðinu og svo játaði Ruud Van Nistelrooy að leik-
menn Man. Utd veðjuðu sín í milli þannig að vandamálið
virðist víðfeðmara en margan hafði grunað.
Gamla brýnið TonyAdams segir að spilafíkn sé að
verða helsta vandamál ungra knattspyrnumanna i dag og
hafi tekið við keílinu af drykkjunni sem hefur fellt marg-
an knattspymumanninn og þar á meðal Adams.
Eiður Smári og Enrique de Lucas fagna hér marki Jimmy Floyd Hasselbaink. Sá hollenski hefur verið dugleg-
ur í spilavítunum og spilað fyrir háar fjárhæðir. Reuter
Fíltnin hefur áhiif á frammistöðuna
Breska götublaðið News of the World, sem á það reynd-
ar til að fara frjálslega með staðreyndir, birti athyglis-
verða grein í síðustu viku um spilafikn knattspymu-
manna og samkvæmt heimildum þeirra er vandamálið
orðið alvarlegt og margir knattspyrnumenn hafa farið illa
út úr ferðum sinum í spilavítin.
Til að mynda er Eiður Smári aðeins hálfdrættingur á
við félaga sinn Jimmy Floyd Hasselbaink sem á að hafa
veðjað nálægt einum og hálfum milljarði í spilavítum und-
anfarin tvö ár, samkvæmt heimildum blaðsins, en þrátt
fyrir að hafa spilað fyrir slíkan pening hefur hann tapað
tiltölulega litlu.
Einnig kemur fram í greininni að Eiður Smári hafi ekki
verið eini íslendingurinn í spilavitunum heldur hafi hann
sést þar með Arnari Gunnlaugssyni og Hermanni Hreið-
arssyni. Það sem kannski er athyglisverðast við greinina
er að sjá má samhengi milli þess að leikmenn hafi tapað
miklum peningum við spilaborðin og spilað illa í kjölfar-
ið. Þannig að fíknin hefur greinileg áhrif á frammistöðu
þeirra á vellinum.
Hasselbaink stórtækur
Eins og áður segir þá er það Hollendingurinn Jimmy
Floyd Hasselbaink sem er stórtækastur við spilaborðið en
hann hefur lengi verið reglulegut gestur í Connoisseur-
spilavítinu í vesturhluta Lundúna.
Samkvæmt heimildum blaðsins þá kom Hasselbaink
þangað í fyrsta sinn 13. janúar 2001 og hann hefur að jafn-
aði spilað fyrir 80-130 þúsund krónur á hverju kvöldi.
Hans stærstu kvöld komu þó í september og október í
fyrra þegar hann veðjaði fyrir 56 milljónir króna og þegar
upp var staðið átti hann rúmar 2 milljónir eftir.
Þegar Hasselbaink var settur á bekkinn fyrir leik Chel-
sea og Newcastle, sem Chelsea vann 3-0, fór hann um
kvöldið i spilavítið til að fá útrás og tapaði 2 og hálfri
milljón króna. Lukkan gekk þó í lið með honum fimm dög-
um seinna eftir að Chelsea hafði gert jafntefli við Viking
Stavanger i Evrópukeppni félagsliða en sama kvöld rakaði
hann inn tæpum 8 milljónum króna.
23. september var hann síðan að leika illa gegn Fulham
og bauluðu stuðningsmenn Chelsea á hann eftir leikinn.
Stefnan var tekin í spilavítið um kvöldið og þá tapaði
hann rúmum 9 milljónum á einu kvöldi.
Hann lét það þó ekki stöðva sig því aðeins tveim dögum
síðar var hann mættur á ný í spilavítið og að þessu sinni
tapaði hann tæpum 16 milljónum á einu kvöldi.
Það er óhætt að segja að Hasselbaink hafi verið óstöðv-
andi þessar vikurnar því 4. október tapaði hann siðan
rúmum 5 milljónum og tveim dögum seinna, kvöldið fyrir
leik gegn Liverpool á Anfield, mætti hann í spilavítið
klukkan hálftvö um nóttina og tapaði 6 og hálfri milljón
áður en hann fór með félögum sínum til Liverpool. Það er
skemmst frá því að segja að Hasselbaink gat ekkert í
leiknum og var skipt út af. Má því vel draga þær ályktan-
ir að kvöldið í spilavítinu hafi haft áhrif á frammistöðu
hans á vellinum þennan daginn.
Það verður líka að greina frá því að hann hefur einnig
grætt fúlgur íjár sum kvöldin í spilavítinu og til að mynda
hefur hann haldið heim á leið með rúmar 10 milljónir að
minnsta kosti tvisvar sinnum.
Þrátt fyrir öll þessi stóru kvöld hjá honum segir blaðið
að heildartap hans sé ekki nema rúmar 22 milljónir sem
verður að teljast vel sloppið miðað við þær fjárhæðir sem
hann er búinn að rúlla i gegnum spilavítin.
Hann hefur nú iðulega ekki verið einn við þessa iðju
sína og helstu spilafélagar hans hafa verið Winston Bog-
arde og Mario Stanic en þeir hafa þó verið að spila fyrir
minni fjárhæðir.
Dyer sloppið vel
Enski landsliðsmaðurinn Kieron Dyer, leikmaður
Newcastle, hefur haft gaman af spilavítunum en hann
byrjaði að stunda þau skömmu eftir að hann var seldur
frá Ipswich til Newcastle en eftir þá sölu var hann kom-
inn með allt önnur laun en hjá Ipswich.
Hann veðjaði reyndar engu í sinni fyrstu ferð í spilavíti
í Newcastle en síðan hefur hann látið sjá sig að minnsta
kosti 44 sinnum og hefur hann veðjað fyrir samtals 24
milljónir króna en er víst aðeins í 500 þúsund króna skuld
sem kallast ekki mikið hjá mönnum sem eru með milljón-
ir í vikulaun.
Grönkjær griinmur
Leikmenn Chelsea virðast eyða miklum tíma við þessa
iðju því Daninn Jesper Grönkjær hefur verið fastagestur
á sama spilavíti og Hasselbaink. Hann hefur rúllað tæpum
15 milljónum í gegnum spilavítið. Hann hefur verið að
eyða allt frá 13 þúsund upp í rúma milljón á kvöldi.
Stærsta tap hans við spilaborðið var upp á rúmar 700 þús-
und krónur og hann er samtals í rúmum 2 milljónum í
mínus.
Það er ekki mikið talað um eyðslu Eiðs Smára i grein-
inni enda hafði verið vel greint frá því áður að hann hefði
tapað 52 milljónum við spilaborðin. Þó er minnst á að
meöal gesta hans í spilavítinu hafi verið félagi hans hjá
Chelsea, Frank Lampard, og íslendingarnir Arnar Gunn-
laugsson og Hermann Hreiðarsson en þeir leika báðir á
Bretiandseyjum.
Danski landsliðsmaðurinn Jesper Grönkjær er einn margra leikinanna Chelsea sein stunda spilavítin og hann
hefur farið með rúma milljón á einu kvöldi. Reuter
Stórt vandíuiiál
Ef mið er tekið af þessari grein þá er ljóst að vandamál-
ið er stórt og verst er þegar spilamennskan í spilavítunum
er farin að hafa áhrif á frammistöðu leikmannanna á vell-
inum.
TonyAdams, fyrrum fyrirliði Arsenal, hefur talað
tæpitungulaust um vandamálið en hann hefur unnið mik-
ið að forvarnarstörfum eftir að hann lagði flöskuna og
skóna á hilluna.
„Fleiri og fleiri leikmenn eru að kaupa sér hesta og með
þvi koma veömálin. Ég var á leik fyrir nokkru síðan og
leikmaður var tekinn af velli og það var sagt að hann
•hefði verið meiddur en hann leit ekki út fyrir það. Ég geri
ráð fyrir að hann hafi átt slæman dag á veðhlaupabraut-
inni. Menn skulu alveg gera sér grein fyrir því að þessi
fikn er jafn hættuleg og hver önnur,“ sagði Adams sem á
sínum tíma þurfti að sitja í steininum fyrir að hafa ekið
undir áhrifum áfengis.
Hér hefur aðeins verið rætt um fáa sem virðast eiga við
þetta vandamál að stríða en vitað er að menn eins og Paul
Gascoigne og Keith Gillespie, leikmaður Blackburn, hafa
einnig átt við sama vandamál að etja og vafalaust margir
fleiri.
-HBG