Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2003, Qupperneq 38

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2003, Qupperneq 38
42 Helgarblað 33 V LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 2003 Er DV með á nótunum ? - rýnt í Menningarverðlaun blaðsins í tónlist síðustu 24 ár Eftir Jónas Sen Þorgerður Ingólfsdóttir lilaut Menningarverðlaunin þegar þau voru fyrst veitt árið 1978. Ilún tekur hér við verðlaununum úr hendi Guðinundar Emilssonar. Frá afhendingu Menningarverðlauna DV árið 2002. Freinstur situr Hörður Áskelsson en hann er einn þriggja tónlistarmanna sem fengið hafa verðlaunin tvisvar. Eitt sinn er Menningarverð- laun DV voru veitt sagði þáver- andi menningarritsjóri blaðsins, Aðalsteinn Ingólfsson, að verð- launin væru „eðlilegt framhald á þeirri listgagnrýni eöa list- kynningu sem dagblöð hafa eða ættu að hafa. í hverri viku eru listviðburðir vegnir og metnir. Og einu sinni á ári er viö hæfi að gera allsherjarúttekt." Þessa árlegu „allsheijarút- tekt“ DV er verið að gera um þessar mundir og verða verð- launin veitt í tuttugusta og fimmta sinn á næstunni. Verð- launin hafa tvímælalaust fest sig í sessi sem ein þau mikil- vægustu er listamaður getur fengið hérlendis og eru mikil hvatning, eins og Hörður Ás- kelsson, kórstjóri og orgelleik- ari, orðaði það þegar hann tók við verðlaununum í tónlist í fyrra. Það eru formenn verðlauna- nefndanna sem afhenda verð- launin og má segja að ræðurnar sem þeir halda við það tækifæri hljóti að teljast jákvæðasta list- gagnrýni DV ár hvert. Sá sem fær verðlaunin er toppurinn, hann er persónugervingur þess merkilegasta og besta sem átti sér stað á árinu. Það er því ekk- ert skrýtið að ræður nefndarfor- mannanna hljómi stundum eins og minningargreinar. í verðlaunanefndunum eru, auk formannsins, tveir aðilar. Þannig var það ekki í upphafi þvi þá var haldin hálfgerð þjóð- aratkvæðagreiðsla um verð- launaveitinguna og mátti klippa atkvæðaseðlana út úr blaðinu með góðum fyrirvara. Þegar verðlaunin voru afhent í fyrsta sinn árið 1979 voru nokkur brögð að því að menn gæfu sjálf- um sér atkvæði og voru þeir seðlar að sjálfsögðu dæmdir ógildir. í það heila virtist al- menningur þó hafa tekið verö- launin alvarlega og listafólk sem blaðið ræddi við var yfirleitt já- kvætt. Atli Heimir Sveinsson tónskáld sagði t.d. að þetta væri „þarft framtak, ef það vekur athygli á einhverju góðu“ og sagðist vona að verðlaunin gleddu bæði lista- menn og listunnendur. Guðný Guðmundsdóttir fiðlu- leikari var ekki aiveg eins viss, því þótt athygli almenn- ings á listum væri vissulega af hinu góða fyndist henni „leiðinlegt að vera að draga fólk í dilka og uppheíja einn á kostnað annars". Henni hefur vonandi ekki fundist leiðinlegt þegar hún hlaut sjálf Menningarverðlaun DV tólf árum síðar. Einfrumungurinn grætur Eins og allir vita er gagnrýni langt frá því að vera óskeikul og kemur það berlega fram í frægri bók tónlist- arfræðingsins Nicolas Slonimsky, Lexicon of Musical In- vective. Þar eru útdrættir úr vondum ritdómum sam- tímamanna helstu tónskálda frá dögum Beethovens og er bókin skyldulesning allra gagnrýnenda en einkum þeirra sem taka sig of hátíðlega. Svo dæmi séu tekin þá sagði einn sérfræðingurinn að tónlist Antons von Webern væri eins og grátur einfrumungs en annar skrif- aði að fiðlukonsert Schoenbergs væri álíka óskiljanleg- ur og fyrirlestur um fjórðu víddina sem fluttur væri á kínversku. Sá þriðji sagði að hamagangurinn í hljóm- sveitarverki eftir Richard Strauss væri eins og morð- atriði í kínversku leikhúsi og á svipuðum nótmn var eft- irfarandi dómur: „Listin er löng og lífiö stutt: það á sér- staklega viö um Brahms-sinfóníu." Til eru óteljandi svona dómar sem sagan hefur dæmt ranga og má spyrja hvort Menningarverðlaun DV séu eitthvað betri. Hafa menn hitt naglann á höfuðið og veitt því listafólki viðurkenningu sem síðan hefur haldið áfram að auðga lista- og menningarlíf þjóðarinnar? Eða hefur blaöinu yfirsést eitthvað sem HEFÐI átt að verð- launa? Fékk jafnvel einhver flottan verðlaunagrip sem hann átti alls ekki skilið að fá? Þorgerður Ingólfsdóttir Fyrsti menningarverðlaunahafi blaðsins í tónlist var Þorgeröur Ingólfsdóttir og fékk hún viðurkenninguna fyrir „framlag túlkandi listamanns" og fyrir að vera „eft- irtektarveröur kórstjóri". Enginn efast í dag um að verð- launin hafi átt rétt á sér, Þorgerður hefúr staðið framar- lega í tónlistarlífi þjóðarinnar allt frá því að hún hóf að stjóma Kór Menntaskólans við Hamrahlíð og hefur kór- inn frumflutt mörg íslensk tónverk. Einhverjir mögnuð- ustu tónleikar aldamótaársins voru þegar Raddir Evr- ópu hljómuðu í Hallgrímskirkju, enda var Þorgerður til- nefnd til menningarverðlauna blaðsins fyrir það. Aðrir kórstjórar hafa hins vegar ekki riðiö feitum hesti frá „allsherjarúttekt" blaðsins, því þótt Hörður Áskelsson hafi fengið verðlaunin tvisvar hefur enginn annar feng- ið þau fyrir utan Þorgerði. Má spyrja af hverju Jón Stef- ánsson, orgelleikari og kórstjóri Langholtskirkju, hafi aldrei verið verðlaunaður; hann hefur óneitanlega stað- ið fyrir mörgum af helstu tónlistarviðburðum undanfar- inna ára. Reyndar var Jón tilnefndur árið 1999 fyrir upp- færslu á Matteusarpassíu Bachs en það er ekki það sama og að fá verðlaunin. Hafa fengið verðlaunin tvisvar Þrír einstaklingar hafa fengið Menningarverðlaun DV tvisvar. Þetta eru Hörður Áskelsson eins og áður sagði, einnig Helga Ingólfsdóttir, semballeikari og skipuleggj- andi Skálholtshátíðarinnar, og Jón Ásgeirsson, tónskáld og gagnrýnandi. Jón var í fyrra sinnið verðlaunaður fyr- ir tónlist sína við ballettinn Blindisleik áriö 1981 en í seinna skiptið fyrir óperuna Galdra-Loft árið 1997. Enga furðu vekur að Jón sé svona vinsæll hjá menningarverð- launanefndunum því tónmál hans er óvenju aðgengilegt. Hann hefur „sökkt sér í þjóðararfinn og þróað persónu- legan og þjóðlegan stíl“, svo vitnað sé í rökstuðning for- manns dómnefndarinnar þegar Jón hlaut verölaunin í seinna skiptið. Hins vegar er einkennilegt aö hvorki Atli Heimir Sveinsson né Þorkell Sigurbjömsson, báðir mik- ilhæfir tónsmiðir, hefur verið verðlaunaður af DV. Að vísu komst Atli nálægt því þegar Guðmundur Jónsson söngvari var sæmdur verðlaununum fyrir hlutverk sitt i ópera Atla, Silkitrommunni, og sjálfur var Atli tilnefnd- ur fyrir hið mikla tónverk sitt Tímann og vatnið þegar það var fmmflutt á Listahátíð 1994. Það er samt ekki nóg og því er ekki hægt að segja að Atli hafi haft mikla ástæðu til að gleðjast yfir verð- laununum þótt hann hafi verið vongóður í upphafi eins og fram kom í byrjun þessarar greinar. Önnur tónskáld sem hlotið hafa Menningarverðlaun DV era Jón Nordal (1984), Hafliði HaUgríms- son (1986) og Haukur Tómasson (1998) og hafa þeir allir verið áber- andi í íslensku tónlistarlifi undan- farin ár. Verðlaunaðir liópar Skipuleggjendur hafa fengið sinn skerf og er ekkert að því; hvar væru tónlistarmenn án um- boðsmanna og annarra drifkrafta? Helga Ingólfsdóttir hefur verið verðlaunuð fyrir elstu og merk- ustu sumartónlistarhátíð landsins í Skálholtskirkju, eins og fyrr var greint frá, og Hilmar Þórðarson og Rikarður H. Friðriksson fyrir raf- og tölvutónlistarhátiðina Art2000. Rut Magnússon fékk líka verðlaunin fyrir að skipuleggja starf Sinfóníuhljómsveitar æsk- unnar með „óbilandi trú, útsjón- arsemi, skipulagsgáfu, dugnaði og smávegis af því sem við köllum í daglegu tali frekju", eins og það var orðað í rökstuðningi verð- launanefndarinnar. Þess má geta að Paul Zukovsky, þáverandi stjórnandi Sinfóníu- hljómsveitar æskunnar, fékk Menningarverðlaun DV ári á eftir Rut, enda vann hann frábært starf eins og kunnugt er. Hins vegar fór allt i háaloft nokkrum árum síðar er ekki var fallist á óraunhæfar kröfur hans á ýmsum sviðum og eftir það hefúr lítið til hans spurst úr tónlistarlífinu hér- lendis. Talandi um hljómsveitir þá má undarlegt telja að hornsteinn ís- lensks tónlistarlífs, sjálf Sinfóníu- hljómsveit Islands, hafi ekki feng- ið Menningarverðlaun DV fyrr en árið 1999. Kannski er ástæðan sú að Sinfónían er svo stór hluti af menningarlífi þjóðarinnar að verðlaunanefndirnar tóku hrein- lega ekki eftir henni, rétt eins og menn sjá stundum ekki skóginn fyrir trjánum. En þess ber að geta að tveir aðalstjórnendur Sinfóníunnar, Osmo Vánska og Petri Sakari hafa báðir fengið verðlaunin. Aðrir tónlistarhópar sem hafa hlotið náð fyrir augum nefndcmna era Kammersveit Reykjavíkur, Caput-hópur- inn og Blásarakvintett Reykjavíkur, aUt saman verðugt tónlistarfólk, þótt afhendingarnar hafi verið misvel rök- studdar. Hæpið verður að teljast að menn séu verðlaun- aðir bara fyrir að eiga tíu ára afmæli og að hafa leiðrétt eina vitlausa nótu í handriti Carls Nielsen, en út á það gekk rökstuðningur nefndarinnar sem veitti Blásara- kvintettinum verðlaunin. Sem betur fer er kvintettinn frábær tónlistarhópur sem haldið hefur Ijöldann allan af vönduðum tónleikum í mörg ár, þó vissulega hafi hann ekki verið eins áberandi og Caput-hópurinn og Kammer- sveit Reykjavikur, en menningarframlag beggja er auð- vitað ómetanlegt. Mismunandi tónlistargeirar í heild má segja að Menningarverðlaun DV í tónlist hafi yfirleitt hitt í mark; margir hinna „heppnu" hafa alltént haldið áfram að standa sig prýðilega á konsert- pallinum eða öðrum sviðum tónlistarlífsins. Nokkrir einstaklingar hafa þó ekki verið verðlaunaðir sem að mati undirritaðs hefðu átt að fá þau. Fyrir utan áður- nefndan Jón Stefánsson er þar fremstur í flokki Gerrit Schuil píanóleikari sem hefur ríkulega auðgað tónlistar- lifið hér sem meðleikari og skipuleggjandi. Einnig er sérkennilegt að íslenska óperan hafi aldrei fengið verð- laun því hún hefur verið fyrirferðarmikil í menningar- lífinu um árabil. Að lokum má gagnrýna blaðið fyrir að hafa einbeitt sér að of þröngum hópi tónlistarmanna; af hverju hefur kvikmyndatónlist, djass eða önnur dægurtónlist aldrei verið verðlaunuð? I þessum geirum hafa líka verið að gerast merkilegir hlutir sem era ekkert síður hluti af menningunni. Það verður að segjast að eftir því sem mismunandi tónlistarstefnur renna meira saman, eins og veriö hefur áberandi undanfarin ár, verður þetta af- skiptaleysi æ erfiöara. Óneitanlega er spennandi að vita hvort þetta mun breytast á næstunni...
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.