Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2003, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2003, Blaðsíða 44
48 Helqarhlað H>V LAUGARDAGU R 23. JANÚAR 2003 Vil en frekar hanna Krýsuvíkursamtökin sjá loks til sólar eftir fimm erfið ár og svartnætti sem jaðraði við qjaldþrot. DV heimsótti Krgsuvík og talaði við Lovísu Christiansen, arkitekt og leið- sögumann, sem hefur helgað lífsitt endur- reisninni íKrýsuvík undanfarin ár. Þegar maður ekur sem leið liggur út úr Hafnarfirði og beygir eftir kúnstarinnar reglum suður að Kleifarvatni áleið- is til Krýsuvíkur er fljótlega eins og maður sé kominn í ann- an heim. Þar ræður hryssingsleg íslensk náttúra ríkjum og fátt sést sem minnir á búsetu manna um leið og höfuðborgin er komin í hvarf. Rétt sunnan við Kleifarvatn stendur risa- stór skólabygging einmana á hæð rétt eins og hún hafl fallið af himnum ofan. Fyrir neðan veginn standa byggingar með tumum sem líka sýnast hafa líkamnast úr annarri vídd. Þetta eru hvort tveggja minnisvarðar um stórhug mannanna. Útihúsin eru risafjós sem eitt sinn átti að hýsa mjólkurkýr og skyldu þær sjá öllum íbúum Hafnarfjarðar fyrir mjólk. Skól- inn var reistur á sjöunda áratugnum fyrir það sem stjórnvöld kölluðu þá „nemendur með sérstök vandamál". Báðar til- raunimar mistókust í þeim skilningi að skólinn gegndi aldrei hlutverki sínu frekar en flósið og grotnaði niður strax að byggingu lokinni. Árið 1986 var haldinn stofnfundur samtaka sem kölluðu sig Krýsuvíkursamtökin og höfðu það að markmiði að fá skólahúsið gamla til afhota til þess að koma á fót meðferðar- heimili fyrir unglinga sem lent höfðu í klóm fíkniefna. Sam- tökin komust á legg og 1989 kom fyrsti vistmaðurinn til dval- ar í Krýsuvík. Grfðarlegt uppbyggingarstarf þurfti að vinna þvi húsið stóra hafði fengið að grotna óáreitt niður og verið notað sem gripahús; meðal annars vom hýst svin þar um tíma. Að baki þeirri uppbyggingu liggja andvökunætur, mannár í sjálfboða- vinnu og ómæld íslensk bjartsýni. Lovísa Christiansen er framkvæmdastjóri Krýsuvíkursamtakanna sem nú sjá til sólar eftir fimrn erfið ár. * Ragnar Ingi Aðalsteinsson, organisti Krýsu- víkursamtakanna, situr við orgelið í kapellunni í Krýsuvík. DV-myndir Sigurður Jökull Samtökin sukku til botns Krýsuvíkursamtökin eiga þannig langa og merka sögu sem verður ekki rakin hér frekar, umfram það að árið 1997 riðuðu samtökin á barmi gjaldþrots, starfsemin í Krýsuvík hékk á bláþræði og var við það að leggjast algjörlega niður. Þá var skipt um áhöfn á skútunni og kona að nafhi Lovísa Christi- ansen tók við stjómtaumunum. Síðan hefur verið unnið hægt og hljótt en ákveðið að uppbyggingu, fjáröflun og uppgjöri skulda. Þetta uppbyggingarstarf fékk ákveðna viðurkenningu í haust þegar fjárveiting Alþingis til starfseminnar í Krýsu- vík var aukin nokkuð. Á þessum uppbyggingartíma hefur hins vegar farið lítið fyrir starfmu opinberlega og margir hafa eflaust haldið að Krýsuvíkursamtökin væm liðin undir lok en svo er alls ekki. DV heimsótti Krýsuvík og kraftaverkakonuna Lovísu Christiansen sem sýndi okkur staðinn ásamt þjóðsagnaper- sónunni Ragnari Inga Aðalsteinssyni sem lengi hefur verið viðriðinn stjóm Krýsuvíkursamtakanna. Þau gengu með okkur um langa ganga skólahússins gamla þar sem ekkert er nýtt því grasrótarsamtök eins og þessi reiða sig mikið á góð- vilja aðstandenda sem gefa til hússins flest sem þarf. Þetta lít- ur í fljótu bragði út eins og stærsta einkasafn af gömlum sófa- settum sem ég hef séð því allir hlutir þama eiga sér sögu. Það er sama hvaðan gott kemur og það sést best á því að í þessu athvarfi úrvinda fíkla er að fmna gólfteppi frá Hótel Sögu i homi sem gengur undir nafhinu Mimisbar. Við skoðum herbergi, setustofur, skólastofur, kvenna- dyngjur, tölvustofur, myndlistarherbergi, líkamsræktarstof- ur, tónlistarherbergi, bókasafn og matsal. í rauninni minnir margt hér á mjög stórt sveitaheimili og sést á mörgu að þótt húsrúm sé nægt í Krýsuvík er meiri áhersla lögð á að þar sé nægt hjartarúm. Ó, faðir, gjör mig lítið ljós Öll herbergi vistmanna hafa útsýni til suðurs þar sem ekk- ert sést nema ósnortið land, himinn og haf og hækkandi sól. Ef grannt er skoðað sést glitta í stafninn á gömlu kirkjunni í Krýsuvík úti í grámanum. Það er lfka guðshús í kjallara skólahússins þar sem menn geta ákallað Drottin í lítilli kapellu. Þar er rafmagnsorgel fomt af þeirri gerð sem eitt sinn var vinsæl á íslenskum heimilum áhugatónlistarmanna. Ragnar Ingi, sem gegnir embætti organista, sest við hljóðfær- ið og spilar fyrir okkur: Ó, faðir, gjör mig lítið Ijós. Það er í stfl við starfið sem þama fer fram og er sannarlega lítið ljós í myrkum heimi þeirra sem hafa brennt allar brýr að baki sér. Við setjumst niður með Lovísu Christiansen sem margir þekkja sem innanhússarkitekt en hún hefur rekið teiknistofu með manni sínum Óla G.H. Þórðarsyni í áratugi. Enn fleiri þekkja hana sem eina af driffjöðmm Útivistar þar sem hún hefur verið formaður, setið í stjóm og síðast en ekki síst ver- ið fararstjóri í fleiri gönguferðum en tölu verður á komið og þekkir íslenska náttúra betur en margir aðrir. Lovísa tekur við Við hófum samtal okkar á þvi að tala um endurreisnina í Krýsuvík. „Þetta fór nánast á hausinn," segir Lovísa. „Upphaflega var ætlunin að koma hér upp meðferð fyrir unglinga. Það stóðst á endum að þegar við vorum tilbúin tóku Tindar til starfa og þá tók Krýsuvík í auknum mæli við fullorðnum fíklum sem hvergi áttu höfði sínu að að halla. Þessi tími stóð frá 1989 til 1995. Þá var staðurinn alveg orð- inn að beinagrind og 1997 vom héma þrír vistmenn og ráð- gjafar í sjálfboðavinnu til þess að hér væri haldið uppi ein- hverri meðferð." Lovísa kom fyrst í Krýsuvík sem innanhússarkitekt og f sjálfboðavinnu 1993 og þekkti því starfið vel en það var í lok árs 1997 sem hún var beðin að taka að sér starf framkvæmda- stjóra. Hún tók að sér starfið til bráðabirgða gegn því að mega gera það sem hún vildi. Lovísa er framkvæmdastjóri en dagskrárstjóri er Sigurlína Davíðsdóttir og saman stýra þær Krýsuvík af einurð og hörku en Þorgeir Ólason er forstöðu- maöur og ráðgjafi. „Við gerðum fimm ára plan sem hefúr algerlega staðist bæði meðferðar- og peningalega. Hér era nú 15-16 vistmenn en rými fyrir 24. Þrir ráðgjafar em í fullu starfi auk forstöðu- manns, fjögurra annarra og þriggja f hlutastarfi, þar á meðal er læknir heimilisins. Nú er farið að sjást yfir hjallann en þetta er búið að vera skelfilega erfitt. Eitt af því sem lögð var áhersla á var að mennta ráðgjafa okkar og vera í stöðugri endurskoðun. Hópur vistmanna hef- ur í kjölfarið yngst mjög og nú er talsverð ásókn af ungu fólki sem vill komast í langtimameðferð hér. Þetta er hópur sem er á aldrinum 18-25 ára. Þrír til fjórir vistmenn em síðan mun eldri og em hinum yngri gott fordæmi eða víti til vam- aðar. Þannig má segja að heimilið sé nú loksins komið á þann starfsgrundvöll sem því var ætlað í upphafi,“ segir Lovísa. Hvað kostar meðferð? Á síðasta ári kostaði rekstur Krýsuvíkur 48 til 50 milljón- ir og þeir fjármunir komu úr ýmsum áttum. 26 milljónir komu frá Alþingi. Vistmenn greiða 45 þúsund krónur á mán- uði sem felagsþjónustustofnanir sveitarfélaganna standa í flestum tilvikum straum af. „Við eigum síðan afskaplega dyggan hóp stuðningsmanna, víðs vegar um land, sem gefur okkur rúmlega sex milljónir á ári með mánaðarlegum framlögum. Þetta er tryggur hópur sem við sjáum samt aldrei og getum aldrei sagt takk við en framlög hans hafa tvisvar sinnum bjargað okkur frá gjald- þroti. Þetta em hinir eiginlegu félagar Krýsuvíkursamtak- anna,“ segir Lovísa, „og ekki má gleyma Lionsklúbbum, Soroptimistum og ýmsum félagasamtökum sem hafa stutt okkur í áraraðir." - Það kann að hljóma eins og úr kvikmyndinni um Stellu í orlofi að Krýsuvík flytur inn fikla til meðferðar frá Svíþjóð en Lovísa segist frekar líta á það sem útflutning þekkingar en innflutning vandamála. „Þetta er eingöngu gert af fjárhagsástæðum en við erum með samning við Stokkhólmsborg og hér hafa að jafnaði ver- ið 4-5 Svíar. Sfðan fengum við aukafjárveitingu daginn fyrir gamlárs- dag frá hinu opinbera gegn því að helga átta pláss hjá okkur ungum fiklum sérstaklega og síðan var fast framlag okkar hækkað um 12 miiljónir. Þetta teljum við að sé viðurkenning á því að við séum að gera góða hluti,“ segir Lovisa með rétt- mætu stolti. í framhaldi af þessu verður bætt við ráðgjafa og vistmönn- um fjölgað eftir því sem svigrúm leyfir." - En er meðferðin í Krýsuvík frábmgðin því sem boðið er upp á annars staðar? „Við byggjum okkar starf jöfhum höndum á 12 spora kerfi AA samtakanna og NA sem em Narcotics Anonymus. Hér fer fram persónuleg meðferð sniðin að þörfúm, bakgrunni og neyslu hvers og eins. Það er búið til sérstakt plan fyrir hvem og einn. Flestir sem hingað koma hafa farið í margar með-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.