Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2003, Blaðsíða 12
12
LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2003
Helgarblað_________________________________________________________________________________________________DV
llla gengur að ráða niður
lögum SARS-flensunnar
Alþjóða heilbrigðisstofnunin,
WHO, sendi um miðja vikuna út al-
heimstilkynningu þar sem mælst
var til þess að allir ferðamenn frest-
uðu tímabundið ferðum sínum til
Hong Hong og Guangdong-héraðs i
Kína nema brýna ástæðu bæri til
ferða þangað.
Ástæðan er illskeyttur flensufar-
aldur sem þykir svipa til venju-
legrar kvefílensu eða lungnabólgu
og hlotið hefur nafnið SARS eða
heilkenni alvarlegrar bráðrar
lungnabólgu, HABL, á íslensku.
Þess er getið í tilkynningunni að
þessi tilmæli gætu síðar beinst að
öðrum svæðum í heiminum en
alvarleg tilfelli hefðu einnig komið
upp í Taívan, Peking og Shanxi í
Kína, Hanoi í Víetnam, Singapúr,
Tailandi og Toronto í Kanada.
Þetta eru þeir staðir þar sem flest-
ir hafa sýkst en í gær hafði verið
tilkynnt um 1190 tilfelli í Kína og
þar af 46 dauðsfóll, 734 (17) í Hong
Kong, 734 (17) í Singapúr, 98 (4) í
Víetnam, 59 (4) í Kanada og 7 (2) í
Taílandi (dauðsföll í sviga).
Annars staðar hafa dauðsfóll ekki
verið rakin til flensunnar en þó
tilkynnt um fjölda tilfella í öðrum
löndum, sem eru: Bandaríkin (85),
Taivan (14), Þýskaland (5), Ástralía
(1), Frakkland (3), Ítalía (3), Bret-
land (3), Sviss (2) Rúmenía (1), Belg-
ía (1), írland (1) og Brasilía (1).
(Tölurnar eru samkvœmt skýrslu
WHO frá þvi klukkan 17.00 á
fimmtudag.)
Þetta er í fyrsta skipti sem Al-
þjóða heilbrigðisstofnunin, WHO,
gefur út svo alvarlega ferðavið-
vörum vegna faraldurs frá stofnun
hennar árið 1948. Áður hafði stofn-
unin um miðjan síðasta mánuð var-
að flugfélög og ferðamenn við, án
þess þó að leggja til að ferðalög yrðu
takmörkuð. Þar var einkennum
flensunnar lýst sem háum hita, yfir
38 gráðum, auk þurrs hósta, tíðs
andardráttar eða andnauðar.
Veiktist á miðri leiö
Alþjóða heilbrigðisstofnuninni
var fyrst tilkynnt um faraldur í
Guangdong í Kína um miðjan febr-
úar sem lýst var sem óvenjulegri
lungnabólgu en það var ekki fyrr en
í lok mánaðarins sem verulegur ótti
vaknaði um alvarleika hans eftir
að bandarískur kaupsýslumaður,
sem ferðaðist frá Hong Kong til
Hanoi, hafði veikst alvarlega.
Maðurinn veiktist í flugi á miðri
leið til Hanoi og var strax við kom-
una þangað lagður inn á sjúkrahús
í borginni. Þaðan var hann fljótlega
sendur aftur til Hong Kong þar sem
hann lést á sjúkrahúsi en í kjölfarið
veiktust nokkrir starfsmenn við-
komandi sjúkrahúsa, bæði í Hong
Kong og Hanoi.
Eins og áður segir eru einkenni
SARS-flensunnar sögð lík venju-
legum flensueinkennum eða lungna-
bólgu með tilheyrandi háum hita og
þurrum hósta auk tíðs andardráttar
eða andnauðar. Þá hefur einnig
borið á höfuðverk, vöðva- og bein-
verkjum, lítilli matarlyst, þreytu,
útbrotum og niðurgangi.
Rakin til dýra
Talið er að uppruna flensunnar
og veirunnar, sem veldur henni, sé
aö leita í áður nefndu Guangdong-
héraði í Kína. Fréttir frá Hong Kong
herma að heilbrigðisyfirvöld í hér-
aðinu hafi þegar rakið uppruna
smitsins til dýra en kokkar og kjúk-
lingasölumenn voru þeir fyrstu
sem veiktust í nóvember sl.
Annars er lítið vitað um
vírusinn. Vísindamenn segja að um
nýtt afbrigði af Korona-stofni sé að
ræða og er það nú rannsakað af fær-
ustu vísindamönnum í þremur
heimsálfum. Árangurinn hefur látið
á sér standa og hefur enn ekkert lyf
fundist sem vinnur á flensunni. Það
sem hefur virkað best er veirulyfið
Ribavirin en þó með takmörkuðum
árangri og aðeins ef það er tekið inn
snemma á smitferlinu.
Ónafngreindur smitsjúkdómasér-
fræðingur, sem starfar við sjúkra-
hús í Hong Kong, sagði í viðtali við
Reuters-fréttastofuna fyrr í vikunni
að þegar hefði verið gerð tilraun
með að sprauta mótefni úr sjúk-
lingi, sem þegar hafði náð sér, í ann-
an sem var langt leiddur og hefði
það skilað góðum árangri.
Smitast með andrúmsloftinu
Um smitleiðina er heldur ekki
vitað með vissu en líklegast að
vírusinn berist milli manna við
nána snertingu eða í loftinu þar
sem flestir, sem hafa smitast, eru
annað hvort starfsfólk sjúkrahúsa,
sem annast hefur þá sjúku, eða fjöl-
skyldumeðlimir sem hafa umgeng-
ist þá í sjúkralegunni.
Flestir sérfræðingar hallast þó að
því að smitið berist út í andrúms-
loftið þegar þeir sjúku hnerri eða
hósti eða þá með öðrum líkamsvess-
um og blóði.
Þá liggur fyrir að þeir sem hafa
veikst utan Asíu hafa annað hvort
verið að koma frá helstu smitsvæð-
unum eða umgengist einhverja sem
hafa nýlega ferðast þangað.
Vírus af flensustofni
Bandariskir sérfræðingar sem
rannsakað hafa sjúklinga á undan-
fömum vikum hafa komist að þeirri
niðurstöðu að vírusinn, sem valdi
flensunni, sé af áðurnefndum
Korona-stofni en hann er þekktur
sem helsta orsök kvefpesta. Um sé að
ræða nýtt stökkbreytt afbrigði sem
ofnæmiskerfi mannsins ráöi ekki við
að brjóta niður.
Hugsanlegt sé þó að það sé aðeins
hluti af skýringunni þó að umræddur
vírus hafi fundist í mörgum sýnum
sem tekin hafa verið úr sjúklingum
og þess vegna mögulegt að önnur
óþekkt veira valdi sjúkdómnum.
Veirusérfræðingar í Hong Kong
hafa útilokað að veiran sé af venju-
legum A- og B-inflúensustofnum eða
hinum skæða H5Nl-stofni, sem olli
hænsnainflúensu á svæðinu árið 1997
og dró sex manns til dauða. Sú pest
gaus aftur upp í upphafi ársins og
kostaði eitt mannslíf í febrúar sl.
Þá telja sérfræðingar WHO að ekk-
ert bendi til þess að um vísvitandi
hryðjuverk sé að ræða eins og marg-
ir hafa óttast, minnugur miltis-
brandssmitanna eftir hryðju-
verkaárásirnar í Bandaríkjunum í
hittifyrra.
Dánartíðni er 3-5%
í flestum tilfellum koma einkenni
SARS-flensunnar fram innan viku-
tíma, ofast þremur til fimm dögum
eftir smit, og gengur hún yfirleitt
yfir á fimm dögum.
Áhersla er þó lögö á að halda
sjúklingum í einangrum í allt að tíu
daga til þess að spoma við frekari
útbreiðslu flensunnar.
Misjafnt er hversu flensan leggst
þungt á fólk en undantekningarlítið
fylgir henni slæm lungnabólga sem
getur reynst banvæn, dánartíðni
vegna flensunnar er á bilinu tvö til
fimm prósent.
Heilbrigðisyfirvöld um víða ver-
öld vinna nú hörðum höndum að
því að reyna að koma í veg fyrir
frekari útbreiðslu flensunnar i sam-
vinnu við WHO og hafa yfirvöld í
Bandaríkjunum til dæmis ráðlagt
sendiráðsfólki sínu í Kína, sem ekki
er ómissandi, að snúa heim.
Meðal vísindamanna eru deildar
meiningar um möguleikana á því að
koma i veg fyrir frekari útbreiðslu
flensunnar og sagði Julie
Gerberding, yfirmaður Sóttvarna-
stofnunar Bandaríkjanna, í sjón-
varpsviðtali í fyrradag að hún
óttaðist að úr þessu yrði ekki hægt
að koma í veg fyrir meiri háttar
faraldur í heiminum þar sem
vísindamönnum hefði ekki enn
tekist að skilgreina vírusinn eða
finna réttu lækninguna við honum.
Allur er varlnn góður
Starfsmenn heilbrigöisyfirvalda í Hong Konggæta hér aðkeyrslunnar aö einu
sjúkrahúsa borgarinnar en þar kom upp fjöldasmit fyrr í vikunni.
Fórnarlamb í öndunarvél
Fjöldi fórnarlamba SARS-flensunnar þar aö fá hjálp viö öndun en
undartekningarlítiö fylgir henni siæm lungnabólga.
msmm
flfpam sótt að Bagdad
Bandarískar
hersveitir héldu
áfram sókn sinni
að írösku höfuð-
borginni Bagdad í
vikunni og á
fostudagsmorgun
náðu þær alþjóða-
flugvelli borgar-
innar á sitt vald.
Herfræðingar
voru ekki seinir á sér að lýsa því
yfir að mikilvægum áfanga í stríð-
inu og viðleitni bandamanna við
að koma Saddam Hussein frá völd-
um hefði þar með verið náð. Ekk-
ert lát var á loftárásunum á
Bagdad og harðir bardagar geisuðu
sunnar í landinu, við borgimar
Nassiriya og Najaf.
Lungnapest breiðist út
Banvæna lungnabólguafbrigðið,
sem kom upp í Asíu fyrir nokkru,
heldur áfram að breiðast út og
dauðsfollum af völdum sjúkdóms-
ins hefur farið fjölgandi. Á níunda
tug manna er nú látinn af völdum
sjúkdómsins en nærri því hálft
þriðja þúsund hefur smitast. Al-
þjóðleg heilbrigðisyfirvöld hafa
varað fólk við að ferðast til Hong
Kong og annarra svæða í Asíu þar
sem sjúkdómstilfellin eru hvað
flest. Yfirmaður sjúkdómavama-
stofnunar Bandaríkjanna sagðist
óttast að ekki yrði komið í veg fyr-
ir faraldur í öllum heimsálfum.
Powell stóð í ströngu
Colin Powell, ut-
anríkisráðherra
Bandaríkjanna,
var á ferð og flugi
í vikunni, fór með-
al annars til
Brussel þar sem
hann sat fundi
með kollegum sín-
um hjá ESB og
NATO um striðið í írak og eftirleik
þess. Evrópsku ráðherrarnir lögðu
nær allir áherslu á að Sameinuðu
þjóðirnar gegndu lykilhlutverki að
stríðinu loknu en sá bandaríski gat
litlu lofað um að komið yrði til
móts við þær óskir. Þá sagði hátt-
settur starfsmaður SÞ að banda-
rískir ráðamenn myndu fyrr eða
síðar koma hlaupandi í fang SÞ og
bjóða samtökunum samstarf þegar
í ljós kæmi hversu fjárfrek og flók-
in endurreisn íraks yrði.
flgreiningur vestan hats
Ráðamenn í
Bandaríkjunum
eru ekki á einu
máli um stjóm
íraks og uppbygg-
inguna að stríðinu
loknu. Embættis-
menn í landvarna-
ráðuneytinu, með
Donald Rumsfeld
ráðherra í broddi fylkingar, vilja
helst vera einráðir um stjóm Iraks
fyrsta kastið eftir strið. Embættis-
menn Colins Powells í utanríkis-
ráðuneytinu vilja aftur á móti að
þáttur bandaríska hersins verði
ekki jafnsýnilegur og Rumsfeld og
hans menn vilja. Rumsfeld þrætti
þá fyrir það í vikunni að ágrein-
ingur hefði verið milli hans og
helstu skipuleggjenda stríðsins í
írak. Rumsfeld er sakaður um að
hafa viljað skera hermannafjöldann
við nögl.
Ofbeldl á Gaza og víðar
ísraelskar her-
sveitir drápu
flölda Palestinu-
manna í aðgerð-
um sinum á
Gaza og Vestur-
bakkanum í vik-
unni, þar á með-
al fjórtán ára
gamlan ungling.
Palestínskur
til skarar skríða
í ísraelsku borginni Netanya um
siðustu helgi og særði nokkra tugi
manna þegar hann sprengdi sjálfan
sig í tætlur á kaffihúsi. Hann
sprengdi sig nærri ísraelskum her-
mönnum sem biðu eftir að fá borð.
sjáifsmorðsliði lét