Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2003, Blaðsíða 40
-4^
HelQarblað J3V LAUOARDACUR 5. APRÍL 2003
Spt! giicltf 'i '\ e KKi .
Irj4m. f.itt bc' i lu rpn
;lð:{ apr ilgahh gra tinn
:itti BBt oft þar s {ir ijali
:i(i ' lic^ai; (H>a npp
nJ;i
Þama plataði ég þig
Fyrsti apríl er löqgiltur hrekkjadagur og er
ngliðinn. Það er þvíekki úr vegi að rifja
upp nokkur frægustu aprílgöbb allra tfma
sem hafa náð athggli margra.
Það er gamall siöur að láta fólk hlaupa apríl. Sú
venja hefur loðað við að til þess að gabbið sé fullgilt
þurfi viðkomandi að hlaupa yfir þrjá þröskulda ella sé
gabbið ekki gilt. Lengi vel voru það einkum einstak-
lingar sem skemmtu sér við að draga hver annan á
asnaeyrunum þennan eina dag á árinum sem það var
leyfilegt en síðustu áratugi hafa fjölmiðlar tekið forystu
á þessu sviði og flest frægustu aprílgöbb ailra tíma
tengjast blöðum eða útvarpi. Frægasta aprílgabb á ís-
landi er líklega árið 1957 þegar útvarpið sagði frá sigl-
ingu loftpúðaskipsins Vanadísar upp eftir Ölfusá og átti
sú sigling að marka tímamót i samgöngum á íslandi.
Upptaka frá siglingunni heppnaðist svo vel að bændur
austur í sveitum töldu sig þekkja gelt einstakra hunda
á bæjum sem siglt var framhjá.
Maður bítur hund
Sá sem þetta ritar átti einu sinn þátt í að skrifa frétt
fyrsta apríl í blað vestur á ísafiröi þar sem skýrt frá frá
þeim stórtíðindum að maður hefði bitið hund í Tanga-
götu. Það byggði á þeim gamla blaðamennskubrandara
að það teldist ekki frétt þótt hundur biti mann en stór-
frétt ef maður biti hund. Þótt bitvargurinn væri nafn-
greindur í fréttinni og öllum aðstæðum lýst fjálglega
var ekki að sjá annað en að bæjarbúar tækju þessu
heldur fálega og tryöu því almennt að téður samborg-
ari þeirra hefði í raun verið handtekinn fyrir að bíta
hund. Fyrsti apríl var á þriðudaginn í vikunni sem leið
og einhver brögð voru að þvi að fjölmiðlar reyndu að
gabba lesendur sína. DV birti viðtal við eiganda eró-
tískrar nuddstofu sem ætlaði að hafa opið almenningi í
tilefni dagsins og Fréttablaðið boðaði stórfellda útsölu
á stríðsgóssi sem hafði villst til íslands. Þótt fáeinir
dagar séu síöan þessi alþjóðlega hátíð hrekkjalóma var
er ekki úr vegi að rifja upp nokkur best heppnuðu apr-
ílgöbb síöustu aldar að mati sérfræðinga sem hafa dreg-
ið saman fróðleik um þessi efhi á netinu.
Spaghettítrén
1. apríl 1957 fjallaði fréttaþátturinn Panorama á BBC
um gott árferði í spaghettíræktun. Sagt var að vegna
hagstæðrar veðráttu og útrýmingar hinnar illræmdu
spaghettíranabjöllu stefndi allt í metuppskeru hjá spag-
hettíbændum. Með þessu voru sýndar myndir af sviss-
neskum bændum að draga spaghettílengjur úr trjám
sínum. Gríðarlega margir létu gabbast og fjölmargir
höfðu samband við BBC og vildu fá leiðbeiningar um
hvemig rækta skyldi spaghettítré. BBC svaraði því til
að rétt væri að setja dálítinn stubb af spaghettí í dós af
tómatsósu og sjá svo til.
San Seriffe
1. apríl 1977 birti dagblaðið Guardian afskaplega
freistandi greinaflokk á sjö síðum um sumar-
leyfisparadísina San Seriffe en sá litli eyjaklasi í Ind-
landshafi var sagður eiga 10 ára afmæli. Landslagi og
menningu íbúanna var lýst í löngu máli en stærstu
eyjarnar hétu Upper Caisse og Lower Caisse. Höfuð-
borgin hét Bodoni og helsti leiðtoginn var General
Pica. Fjölmargir hringdu inn og vildu vita meira en
öll heiti og hugtök um eyjarnar eru teknar úr letur-
fræði og prentslangri ýmiss konar.
Undramaður í höfn
1. apríl 1985 sagði Sports Illustrated frá hinum frá-
bæra nýja kastara sem hafnaboltaliðið New York
Mets hafði fengið í sínar raðir. Sá bar nafnið Sidd
Finch og gat kastað með ótrúlegri nákvæmni þótt
boltinn frá honum flygi með 168 mílna hraða sem er
næstum helmingi hraðar en áður hafði þekkst. Finch
hafði aldrei æft hafnabolta en lært að kasta hjá meist-
aranum Lama Milaraspa í munkaklaustri í Tíbet.
Ekki var að sökum að spyrja að margir aðdáenda
New York Mets létu gabbast.
Taco Liberty Bell
1. apríl 1996 skýrði Taco Bell skyndibitafyrirtækið
frá því að það hefði fest kaup á Liberty Bell eða frels-
isbjöllunni sem Bandaríkjamenn hafa í miklum met-
um og er geymd í sérstökum garði i Philadelphia.
Taco Bell sagði að hér eftir yrði klukka þessi kölluð
Taco Liberty Bell. Mikil reiði braust út meðal þjóð-
hollra Ameríkana en ritari í Hvíta húsinu bætti
skemmtilega við grínið þegar hann var spurður út í
málið og sagði að Lincoln-minnismerkið hefði einnig
verið selt stórum bílaframleiðanda og héti eftir þetta
Ford Lincoln Mercury minnismerkið.
Nixon kemur aftur
1. apríl 1992 var það kynnt í útvarpsþættinum Talk
of the Nation að Richard Nixon, fyrrum forseti
Bandaríkjanna, ætlaði að gefa kost á sér á ný í næstu
forsetakosningum. Leikið var sérstakt slagorð hans
sem var eitthvað á þá leið að hann heföi aldrei gert
neitt rangt og ætlaði nú að gera það aftur. Fokreiðir
og hneykslaðir hlustendur hringdu inn í hópum uns
gabbið var upplýst en þáttagerðarmenn höfðu fengiö
slynga eftirhermu í lið með sér.
Ný dýrategund
1. apríl 1985 sagði tímaritiö Discover frá nýrri dýra-
tegund sem fundist hefði á Suðurskautslandinu. Þetta
voru kallaðir heithausar og lýst svo að þeir hefðu
þykkar beinplötur á hausnum sem gætu orðið sjóð-
andi heitar. Þennan búnað notuðu heithausarnir til
þess að bora upp í gegnum isinn á miklum hraða og
klófesta þannig mörgæsir sem voru aðalfæða þeirra.
Því var jafnvel haldið fram að heithausarnir hefðu
þannig tortímt nokkrum heimskautafórum sem þeir
Richard Branson er þekktur milljónamæringur.
plötuútgefandi og loftbelgsflugmaður. Hann ætlaöi
að gera mikið grín frrsta apríl en endaði á því að
vera talinn geimvera.
hefðu talið vera mörgæsir.
Það segir sína sögu um hrekkleysi og traust les-
enda Discover að fleiri lesendur skrifuðu blaðinu
vegna þessarar greinar en nokkurrar annarrar sem
blaðið hefur birt.
Geiniverumar lenda
31. mars 1989 horfðu þúsundir Breta, sem á ferð
voru á hraðbraut rétt utan við London, á glóandi
fljúgandi disk koma hægt inn til lendingar rétt við
brautina. Diskurinn lenti loks á akri nokkrum og
nærstaddir íbúar hringdu þegar á lögregluna og
sögðu að geimverur hefðu lent og kröfðust verndar.
Lögreglan kom á staðinn og sjálfboðaliði úr hópi
þeirra nálgaðist diskinn dularfulla með reidda kylfu.
Diskurinn opnaöist og út steig smávaxin mannvera í
silfurlitum búningi og þá lagði lögreglumaðurinn á
flótta í gagnstæða átt á harðaspretti. Þetta reyndist
vera fljúgandi diskur í eigu auðkýfingsins Richards
Bransons sem hafði látið smíða hann úr loftbelg.
Hann ætlaði að lenda diskinum í Hyde Park 1. apríl
en þetta var æfingaflug sem fór lítillega úrskeiðis.
Breytt pí
1. apríl 1998 tilkynnti tímaritið New Mexikans for
Science and Reason grein þar sem það var staðhæft
að fylkisþing Alabama hefði ákveðið að breyta gildi pí