Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2003, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2003, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR s. APRÍL 2003 // e IQ cí rb / cj ö H>V lögum þar sem meira var farið út fyrir tónlistina og ólíkir listamenn leiddir saman." Þú hefur unnið við leikhús og kvikmyndir. Verður til sérstök orka við slíkt samstarf? Verður eins konar kjarnasamruni? „Það er kannski ekki vitlaus líking. í vinnunni við leikhús og kvikmyndir er maður alltaf hluti af stærra verki. Það sem gerir leikhúsið og kvikmyndina áhuga- verða fyrir mig er vinna með frásögn og dramatík. Ég held að mín tónlist sé náttúrulega dramatísk og falli einhverra hluta vegna mjög vel að þessum miðlum. Umhverfl þessara miðla er líka mjög gefandi fyrir tón- listarmanninn. í leikhúsinu er samruni ólíkra list- forma. Það er spennandi að vera einn hluti af stærra verki og að útkoman sé algjörlega háð því að samstarf- ið virki.“ Erfiðar tilfinningar nýttar Tónlist Englabarna er óskaplega falleg. Hvernig líð- ur þér þegar þú hlustar á hana? Hefur hún einhver áhrif á þig? „Já, hún hefur það. Ég þekki líka fólk sem getur ekki hlustað á hana og það er sérstaklega fólk sem er ná- komið mér. Það eru erfiðar tilfinningar í þessari tón- list, mjög erfiðar. En auðvitað er það eitthvað sem maður verður að túlka. Leikarar eru sérstaklega þjálfaðir til að nýta erfiðar tilfinningar sem efnivið í sköpun sína og skilja þær eftir í vinnunni. Tónlistar- menn eru ekki jafn þjálfaðir í því og geta þess vegna verið viðkvæmari. En maður verður að tileinka sér ákveðin vinnubrögð ef maður ætlar að vinna við tón- list; nýta sér tilfinningar sem efnivið og skilja við þær án þess að verða geðveikur. Tónlistin hlýtur að koma einhvers staðar frá. Og maður verður að „díla“ við það sem er á bak við hana. Ég veit ekki af hverju tónlist Englabarna hefur þessi áhrif á fólk. En það hlýtur að vera jákvætt að geta haft áhrif á fólk, sérstaklega ef hægt er að ná í gegn á hæg- látan hátt. Mér finnst mjög fallegt og jákvætt hvernig Englabörn hafa smogið inn án nokkurra láta og auglýs- ingamennsku. Þau hafa öðlast eigið líf upp á eigin spýt- ur og sér ekki fyrir endann á útbreiðslu þeirra.“ Krókaleiðir bamanna Hvernig kom til að Touch-útgáfan gaf út Englabörn? „Hafnarfjarðarleikhúsið gaf tónlistina út fyrst á CD- R diskum. Tólftónamenn hvöttu mig til að gera meira og eru i raun aðalhvatamennirnir á bak við þá ákvörð- un mína að senda Englabörn til Touch. Ég hef haft miklar mætur á Touch-útgáfunni og vissi að Englabörn féllu vel að útgáfustefnu þeirra. Þeir slógu til án þess að hugsa sig mikið um.“ Hvernig hefur gengið að selja úti? „Þokkalega, menn eru sáttir. Touch er samt ekki kompaní sem selur í bílförmum. Þeir hafa ekki mikið fjármagn í auglýsingar og trúa frekar á að góðir hlutir vaxi af sjálfum sér. Platan hefur smogið furðulega víða og ótrúlegasta fólk hefur sent mér póst. Kvikmynda- framleiðendur í Bandaríkjunum hafa til dæmis falast eftir því að nota tónlistina í kvikmyndir. Englabörn er víst uppáhaldsplata Chris Blackwells sem stofnaði Is- land-útgáfuna og uppgötvaði Tom Waits og Bob Marley. Hún rataði til hans eftir krókaleiðum. Dómarnir um plötuna hafa verið á þá leiö að fólki finnst það vera að uppgötva eitthvað sem er ættað úr fjarskanum." Öfgar klassíkur og popps í leikhústónlist er spilað mikið á tilfinningar og tón- listin úr Englabörnum er sorgleg og átakanleg. „Tónlistin úr Englabörnum er ekki bara sorgleg; hún er ekki melódramatísk. Það er mjög auðvelt að fara út í „pathos", semja í moll og gera tónlist angur- væra. Það er mikiö til af þannig tónlist. Kannski er ákveðin tvíhyggja gegnumgangandi í Englabörnum. Gamli latneski textinn í Odi et Amo er um mörkin milli ástar og haturs og sársaukann sem felst í því að sveiflast á milli þessara öfga. Þessar andstæður endur- speglast svo í því hvemig hörð og mekanísk tölvurödd- in mætir ómþýðum strengjunum í laginu. Annars var ég ekki að hugsa um þetta meðvitað þegar ég var að semja, þótt þessi hugsun hafi eflaust alltaf legið ein- hvers staðar djúpt á bak við og sprettur síðan fram löngu seinna þegar maöur fer að analýsera. Það sem gerir poppplötur stundum leiðinlegar er þetta stífa form: lagið má ekki vera meira en fimm mínútur og þegar það er búið þá er það búið. Það sem er spennandi við formið sem ég nýti í Englabörnum er að þar get ég komið með hugmyndir og kynnt þær aft- ur og aftur og þannig þróað þær með því að varpa upp nýrri mynd þeirra.“ En hvað er það í poppinu sem kemur í veg fyrir að tónlistarmaður sem hefur dottið niður á frábæra meló- díu geti notað hana aftur og geri tilraunir með hana? „Það er ótrúlegt hvað fólk er fast í þessu formi. Og klassíkin föst í hinum öfgunum. Englabörn eru ein- hvers staðar þarna á milli: hvorki klassík né popp. Mér flnnst mjög spennandi að vinna á þessum mörkum. Það liggur til dæmis ekki í augum uppi í hvaða rekka í plötubúðinni þessi plata eigi að vera. Reyndar getur það líka verið hættulegt því þá vita gagnrýnendur ekk- ert hvaö þeir eiga að gera við þetta.“ Með hugann á mörgum stöðum Þú sagðir áðan að fókusinn hefði þrengst. Svo lítum við á það sem þú vinnur að núna: Apparat, leikhústón- listin, kvikmyndatóhlistin og Tilraunaeldhúsið. Þetta virkar ekki mjög fókuserað! „Mér finnst þetta allt samtvinnast fullkomlega. Englabörnin verða flutt á Tilraunaeldhúskvöldum í út- löndum, meðal annars í Belgíu í haust og Apparatið varð til í Tilraunaeldhúsinu. Þetta er því alveg nógu fókuserað fyrir mig. Ég vil vera með hugann á mörg- um stöðum. Ég skil ekki alveg hvernig fólk getur ein- beitt sér að einni hljómsveit í mjög langan tíma.“ Kannski tölum við saman eftir fimm ár og þá verður allt breytt? „Já, kannski." -sm
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.