Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2003, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2003, Blaðsíða 39
LAUGARDAGUR 5. APRfL 2003 /7 g / c) a rb la ö DV 43 Kristín á að sumu leyti svipaða fortíð og reynslu að baki og Þorleifur sonur hennar. Hún lenti sjálf í slysi þegar hún var sex ára oj> missti sjón á öðru auganu. Lýtin af því ollu einelti í skóla og margvíslegu mótlæti. Bergljót Sigvaldadóttir, móðir Kristínar, með Björnýju. Bergljót hefur fengið sinn skamint af áföllum, ekki síst í kringum dauðsfall ungs drcngs á heimili hennar. og sprungu síðan og Bergljót segir að það hafi verið eins og barnið væri að leysast upp fyrir augunum á þeim. „Þetta var ólýsanlegt, eins og í hryllingsmynd." Sex ára morfínfíkill ineð fráhvarfseinkenni Fljótlega var sérfræðingur sóttur á annað sjúkra- hús og hann tók sýni sem fimm dögum eftir að Þor- leifur veiktist leiddu í ljós að um ofnæmi fyrir panód- íl eða paracetamóli væri að ræða. í kjölfarið fylgdi svo langvinn og erfið eftirmeðferð, sjúkraþjálfun og lýtaaðgerðir. „Læknarnir sögöu okkur fyrstu dagana að það væri kraftaverk að hann skyldi lifa og í fjórar vikur var okkur sagt að reikna ekki með því að hann lifði þetta af.“ - Þetta voru ekki einu eftirköstin því Þorleifur hafði verið með morfín í æð mjög lengi og líkaminn er fljótur að verða háður því. „Það var ekkert dregið smám saman úr skammtin- um og ég held að óhugnanlegasta sjón sem ég hef á ævinni séð sé sex ára morfmfíkill með fráhvarfsein- kenni og það var Þorleifur. Þau urðu svo slæm að hann fárveiktist aftur.“ Mæðgurnar eru sammála um aö eineltið sem Þor- leifur hefur orðið fyrir eftir að heim var komið sé hreinlega eins og salt í sárin. „Ég veit ekki hvenær ég hryn saman andlega því ég hef byrgt þetta allt svo inni,“ segir Bergljót amma hans. „En þegar ég horfi á drenginn í dag get ég ekki ann- að en kallað hann lifandi kraftaverk og meðan hann herst svona hart fyrir sjálfan sig getum við ekki ann- að en barist líka.“ Íslands-Tyrkir Þær segja að eineltið í skólanum í Hanstholm sé ekkert einsdæmi þegar íslendingar eiga í hlut. „Sumir hérna kalla okkur Íslands-Tyrki og fleira í þeim- dúr. Þetta er það sem bömin fá að heyra í skól- Þorleifur eins og liaun leit út áður en hann veiktist. anum og það eru Danimir sem eru verstir í þessu. Þeir líta niður á íslendingana. Eineltið er ekki aðeins í skólanum því Þorleifur hefur mætt strákum héma á leikvellinum, utan skólatíma, sem ætluðu að beija hann og sögðu að það væri vegna þess hvað hann væri ljótur.“ Þær mæðgur segja að þótt íslendingasamfélagið í Hanstholm og nágrenni sé fjölmennt sé ekki mikill samgangur milli íslendinga. Þeir búa t.d. allt í kring- um Kristínu. Það er ekkert íslendingafélag starfandi á svæðinu en næsta félag er í Álaborg í 150 kílómetra fjarlægð. Dó í höndunum á mér Kristín er mjög náin móður sinni sem býr í Mors og fóstrar Þorleif virka daga en hann er um helgar hjá móður sinni. Það kemur svo í ljós að það er ákveðin saga á bak við það að Bergljót fluttist frá Hanstholm. Það gerðust voveiflegir atburðir á heim- ili hennar í Hanstholm vorið 1995 þegar þau hjónin höfðu búið eitt ár í Hanstholm. „Bergþór sonur okkar var þá sex ára og það voru nýflutt hjón heiman frá íslandi í nágrennið. Þau áttu son sem hét Filippus og var jafnaldri Bergþórs og þeir léku sér mjög mikið saman,“ segir Bergljót sem á aug- sýnilega erfltt með að rifja þennan tíma upp. „Það var óskaplega hlýtt og gott þetta vor. Það var komið ffam á páska og hitinn var í kringum 25 eða 30 stig. Ég fór út í búð fyrir hádegi og þegar ég kom heim aftur var maðurinn minn að vinna í garðinum og ná- granninn að hjálpa honum. Strákamir Bergþór og Fil- ippus voru að leika sér á lóðunum. Ég man að ná- granninn bauð upp á bjór og mér fannst það heldur snemmt því klukkan var bara ellefu en lét til leiðast. Svo eftir hádegið eru þeir að tala um að losna við gras af ákveðnum hluta af lóðinni og þá sagði ná- granninn manninum mínum ffá graseitri sem væri alveg kjörið að nota og hann fór og náði í hæfilegan skammt sem hann blandaði með vatni og setti í gos- flösku. Það næsta sem gerist er að þeir strákamir standa inni á gólfi hjá mér þar sem ég er að brjóta saman þvott og segja mér að Filippus hafi drukkið úr flösk- unni með graseitrinu. Hann kastaði upp á gólfið fyr- ir framan mig og síðan hneig hann niður og bamið dó þama fyrir augunum á mér.“ Hringt var á sjúkrabíl í snatri og lífgunartilraunir reyndar en allt kom fyrir ekki. Filippus var dáinn og Bergljót og Kristín segja að fjölskyldan nái sér aldrei alveg eftir þennan voðaatburð. „Það versta var að íslendingamir héma, og þar með taldir foreldrar bamsins, töldu að við hjónin bænnn að einhveiju leyti ábyrgö á dauða Filippusar. Mér fannst þetta óbærilegt og það varð til þess að við Þorleifur við dauðans dyr á sjúkrahúsinu. fluttum til Mors því okkur fannst okkur ekki vera vært þarna. Það hefur alltaf verið eitthvað undarlegt við þetta að mínu mati. Læknamir segja að skammturinn sem bamið drakk hefði ekki átt að deyða það og þremur mánuðum eftir andlát hans gerði lögreglan húsleit hjá okkur og var að leita að öðmm hættulegum efn- um sem þeir fundu auðvitað ekki.“ Barist við kerfíð Mæðgumar em sammála um að áfollin þjappi fjöl- skyldunni betur saman en baráttan vegna veikinda Þorleifs hefur reynst Kristinu afar erfið. Hún segir lítinn stuðning að fá frá samfélaginu og það hafi orð- ið til þess að með aðstoð dansks lögfræðings sé verið að reyna að fá viðurkennda örorku hans og ef til vill fá ranga lyfjagjöf viðurkennda sem læknamistök. Málið hefur þegar farið fyrir fyrsta dómstig sem felst í sérstakri rannsóknarnefnd. Hún hafnaði málaleitan Kristínar og taldi hana ekki eiga rétt á bótum en hún ætlar að halda áfram að berjast. En hvaða stuðning fær hún frá samfélaginu? „Ég bý í þessari íbúö og fæ bætur með bömunum. Faðir Þorleifs hefur ekki stutt mig neitt vegna veik- inda hans þótt aðstæður hans heima á íslandi myndu alveg leyfa það. Ég verð að eiga bíl til að aka honum milli Hanstholm og Mors þótt ég hafi engin efni á því. Ég vildi gjarnan fá bætur svo hann gæti fengið stuðn- ing í skólanum og meiri sjúkraþjálfun en það er ekk- ert hlustað á mig.“ ísland er ekkert fyrir okkur Annar bamsfaðir Kristínar er danskur og býr í Thisted og hann tekur ísabellu dóttur þeirra til sín þótt aðstæður hans séu erfiðar þar sem hann býr í einu herbergi hjá foreldrum sínum. Faðir tveggja yngstu bamanna, sem bæði fæddust eftir að Þorleif- ur veiktist, er hins vegar búsettur á íslandi og Krist- ín er ómyrk í máli þegar hún er spurð hvort hann geti lagt þeim eitthvert lið. „Við vildum gjarnan búa saman en ég hef bara ekki efni á því. Ef hann flytti hingað myndi ég missa íbúðina og húsaleigubætumar og þetta væri allt svo erfítt. Hann vill að viö flytjumst til íslands en ég próf- aði að vera heima í sex mánuði fyrir tveimur árum og það var svo erfitt að fá íbúð að ég gafst upp á að bíða. Mér var sagt að ég væri númer 200 á listanum eftir félagslegri íbúð. Ég held að ísland sé ekkert fyr- ir okkur.“ Berst fvrir son niinn Kristín hefur ekki unniö úti alllengi en hún hætti að vinna í fiskinum í Hansthblm þegar hún fékk tennisolnboga og varð óvinnufær í þess háttar vinnu. Hún hefur sótt námskeið í listmunagerð og sýnir okk- ur stolt styttur sem hún hefur mótað og málað. En líf hennar er barátta sem hún sér ekki fyrir endann á. „Þetta hefur verið óskapléga erflður tími og mér hefur stundum legið við að gefast upp. En ég verð að beijast áfram fyrir bömin mín og fyrir son minn sem læknarnir sködduðu fyrir lífstíð. Ég mun aldrei hætta að beijast fyrir hann.“ Sólin er aö setjast þegar við ökum frá Hanstholm og það era fáir á ferli á götunum. Það er kominn danskur kvöldmatartími þótt eflaust sé töluð íslenska bak við margar dyr í þessu friðsæla úthverfi. Það seinasta sem við sjáum er níu ára öróttur drengur með dökk sólgleraugu sem er aleinn að leika sér með fótbolta úti í garði bak við múrsteinshús í kvöldsól- inni. -PÁÁ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.