Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2003, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2003, Page 18
Hg lc) ci rb lct c) 33 V LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2003 I 8 þá verða skapandi slys“ Tónlistarmaðurinn Jóhann Jóhannsson samdi tónlist við Enqlabörn Hávars Sigurjónssonar og var talað um að sú tónlist væri einhversú feg- ursta sem hegrst hefði ííslensku leikhúsi. Um næstu helgi verða haldnir tónleikar íBorgarleik- húsinu þarsem tónlistin úr Englabörnum verður í fyrsta sinn leikin opinberlega af strenqjakvar- tettinum Eþos, Matthíasi Hemstock og Jóhanni sjálfum. I viðtali við Helqarblað DVseqir Jóhann frá tónlistarlequm uppruna sínum og landvinn- inqum Enqlabarna erlendis. Jóhann lét fyrst að sér kveða þegar hann var í hljómsveitinni Daisy Hill Puppy Farm en er kannski betur þekktur fyrir að vera í hljómsveitunum Ham, Lhooq og Apparat Orgel kvartett. Hann gerði tónlist- ina við kvikmyndirnar íslenski draumurinn og Mað- ur eins og ég. Jóhann hefur samið tónlist fyrir leik- hús, til dæmis fyrir Vitleysingana og Viktoríu og Ge- org eftir Ólaf Hauk Símonarson og Kryddlegin hjörtu eftir Lauru Esquivel. Jóhann samdi einnig tónlist í Englabörn eftir Hávar Sigurjónsson sem Hafnaríjarð- arleikhúsið setti upp í leikstjórn Hilmars Jónssonar. Tónlist sýningarinnar var á síðasta ári gefin út af hinu breska útgáfufyrirtækinu Touch. Jóhann er einnig, ásamt Hilmari Jenssyni og Krist- ínu Björk Kristjánsdóttur, ábyrgur fyrir Tilraunaeld- húsinu eða Kitchen Motors sem staðið hefur fremst í framsækinni tónsköpun á íslandi síðustu árin. Ég hitti Jóhann á kaffihúsi í miðbæ Reykjavíkur og yfir- heyrði hann um tónlistina og sálarlífið. Vil ekki þurfa að gera hvað sem er Segðu mér aöeins frá fyrstu kynnum þínum af tón- list. Ertu úr tónlistarfjölskyldu? „Það er mikill tónlistaráhugi í fjölskyldunni og pabbi minn er áhugatónlistarmaður. Tónlist var hald- ið að mér frá því ég var lítill en samt held ég að áhug- inn hafi að mestu leyti kviknað innra með mér. Það var síðan frekar seint sem ég viðurkenndi að mig langaði að gera tónlistina að atvinnu. Mér var gefið færi á því að fara í tónlistarskóla þeg- ar ég var lítill og ég lærði á píanó og básúnu. Ég var ekki lengi í tónlistarskóla. Lagði allt tónlistarnám á hilluna og fór í Háskóla íslands þar sem ég tók nokkra kúrsa í bókmenntafræði, ensku og frönsku og var ekkert sérstaklega músíklega þenkjandi þótt ég sinnti alltaf tónlistinni eitthvað. Það kom ýmislegt til greina sem karríer, á tímabili fannst mér til dæmis eitthvað heillandi við að verða listfræðingur. Ég hef alltaf þurft að hafa tónlistarlegt umhverfi í kringum mig, fékk mér ungur fjögurra rása stúdíó, síðan átta og byggði þannig hægt og hægt upp aðstööu - ómeðvitaö. Ég fór fljótlega að lesa mér sjálfur til um tónlist og varð mér úti um þekkingu sjálfur. Það var ekki fyrr en fyrir um sex árum sem ég gerði alvöru úr því að verða atvinnutónlistarmaður. Þá spilaði ég í hljómsveitinni Lhooq sem fékk samn- ing og gaf okkur tækifæri til að gera tónlistina að fullu starfi. Mig hafði aldrei langað til að verða at- vinnutónlistarmaður bara til að vera atvinnutónlist- armaður. Ég vildi gera eigin tónlist og ef einhver var tilbúinn að borga mér fyrir þaö þá væri það frábært. Ég vil ekki þurfa að gera hvað sem er til þess að lifa sem tónlistarmaður.“ Áltveðin þróun til inínímalisma Manstu eftir fyrsta laginu sem þú samdir? „Ég byrjaði að semja frekar ungur. Fyrsta hljóm- sveitin mín hét Daisy Hill Puppy Farm. Við gáfum út plötu þegar ég var átján ára og hún var með hraðri fjögurra hljóma pönk-tónlist. Ári síðar gáfum við út aðra plötu og þar voru þrír hljómar og á síöustu plöt- unni, sem aldrei kom út, voru þeir orðnir tveir. Þetta var því mjög ákveðin þróun í lagasmíðum." Var sú þróun meðvituð? „Já, bæði og. Ég hef alltaf haft áhuga á því að vinna mjög vel úr hugmyndum og konsentrera þær niður í sína hreinustu mynd. Hugmyndin sjálf þarf ekki að vera einföld heldur verður hún að vera borin fram á einfaldan hátt.“ Fannst þér stórt skref að byrja að kalla þig tónlist- armann? „Nei. Ég hafði starfað lengi við tónlist með hinum og þessum og þess vegna var það í sjálfu sér ekki erfitt fyrir mig að finna sjálfstraust í það. Ég hef alltaf verið mjög óhræddur við að láta vaða og gera mistök og læra af þeim. Allt sem maður kemur nálægt nýtist manni seinna. Það var hins vegar mun stærra skref að gefa út plötu í eigin nafni. Ef þú hefðir talað við mig fyrir íjórum árum síðan hefði ég ekki verið með nein áform um að gera slíkt. Þegar tónlistin við Englabörn fæddist þá varð augljóst að sú tónlist yrði á fyrstu plötunni minni. Þá tónlist gat ég ekki gefið út í einhverjum feluleik. Mér finnst samstarf viö aðra listamenn annars mjög mikilvægt og það verður áreiðanlega alltaf stór þáttur í mínu starfi." Leitandi maður Maður sér á ferli þínum (Daisy Hill Puppy Farm, Ham, Lhooq, Apparat, Englabörn, Tilraunaeldhúsið) að þarna fer leitandi maður. „Öll reynsla er mikilvæg. Ég varð til dæmis fyrir miklum áhrifum þegar ég vann í Bóksölu stúdenta. Ég er viss um að það umhverfi, að vera innan um bækur og svona mikið magn upplýsinga, hefur haft mikil áhrif á mig. Leitandi? Já, að mörgu leyti held ég að leitinni sé lokið. Ég er búinn að þrengja sviðið og er kominn með ákveðinn fókus sem ég hafði ekki fyrir fimm árum. í Daisy Hill var ég söngvari og sá eini sem samdi tónlist þannig að ég var aðalsprautan. Eftir þá reynslu fannst mér eitthvað vanta og ég ákvað að ég þyrfti að sanka að mér eins mikilli reynslu og áhrif- um og ég gæti. Þá tók við átta ára tímabil sem ég vann með ólíku fólki og einbeitti mér að því að leita samhliða því sem ég vann úr reynslunni. Þessi leit kemur kannski vel fram í þeirri tónlist sem ég fæst við núna. Tónlistin á Apparat-diskinum er að mestu leyti samin árið 1999 og jafnvel fyrr. Hugmyndir sem koma fyrir í Engla- börnum eru líka mjög gamlar. Sú plata sem ég gef út næst mun einnig innihalda hugmyndir sem eru bún- ar að gerjast mjög lengi." Upprunalegi neistinn Hvernig vinnuröu? Leitar tónlistin á þig úr um- hverfinu eða annarri tónlist? Hvaðan færðu innblást- ur? „Ég nýti tvenns konar innblástur. Annars vegar form-innblástur og hins vegar frum-innblástur. Það er erfitt að gera sér grein fyrir því hvaðan upprunalegi neistinn kemur. Ég hef þróað meö mér leiðir til að komast í ástand þar sem eitthvað gerist; þar sem ég sleppi stjórninni og leyfi tónlistinni að koma án þess að vera með allt of mikla vitsmunalega starfsemi í gangi. Yfirleitt finnst mér gott að vinna undir pressu. Það er eins og eitthvað gerist þegar maður hugsar ekki alltof mikið. Þá verða skapandi slys. Oftar en ekki eru slysin afleiðingin af því þegar farið er óvenjulegar leiðir. Form-innblásturinn er mun flóknari. Þar koma saman áhrif úr mörgum áttum: frá bíómyndum, tón- list og bókum, svo eitthvað sé nefnt. Þar verður líka til skapandi samruni hluta sem við fyrstu sýn passa ekki saman. Mér finnst mjög skemmtilegt og ögrandi að láta harðar andstæður mætast þannig að úr verði skapandi heild. Það er í sjálfu sér auðvelt að setja hjól undir appelsínu en það er erfiðara að láta hana virka þannig að úr verði skapandi og áhugaverð heild.“ Er ekki hugmyndafræði Tilraunaeldhússins á þess- um nótum? „Jú, og einnig Englabörn og Apparat. í öllu þessu mætast andstæður þótt Tilraunaeldhúsið gangi lengst í þessa átt. Samruni andstæðna er aðferð sem ég nota mikið þegar ég sem tónlist." Óvæntir bólfélagar Af hverju og hvernig varð Tilraunaeldhúsið til? „Tilraunaeldhúsið varð til árið 1999 þegar ég, Hilm- ar Jensson og Kristín Björk Kristjánsdóttir settumst niður og ræddum um hvað okkur þætti vanta. Það var mikið af áhugaverðu listafólki sem vann að svip- uðum hlutum í ólíkum geirum. Okkur langaði til að 'jsmmssmmsisis „Það eru erfiðar tilfinningar í þessari tónlis1 En auðvitað er þaö eitthvað sem maður vefð Leikarar eru sérstaklega þjálfaðir til að nýto ingar sem efnivið í sköpun sína og skilja þ®: Tónlistarmenn eru ekki jafn þjálfaðir í þyí o verið viðkvæmari. En maður verður að áleiB vinnubrögð ef maður ætlar að vinna við tónl finningar sem efnivið og skilja við þær án þ£ veikur." DV-myndi þetta fólk mættist og byggi eitthvað til úr því sem það ætti sameiginlegt. Þannig varð fyrsta sería Tilrauna- eldhússins til sem fór fram í kjallara Thomsen og var gefin út á plötunni Nart Nibbles. í þessari dagskrá mættust til dæmis múm og Músíkvatur, noise-lista- menn og djassarar og strengjakvartett og trommari. Árið 2000 stóð Tilraunaeldhúsið fyrir Óvæntum bólfé-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.