Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2003, Page 30
30
/ 7 e / c) ct rb l ct c) H>V LAUGA.RDAGUR 5. APRÍL 2003
Bush óvinsælli en Saddam
George W. Bush er óvinsælasti erlendi þjóðarleiðtoginn að mati íslendinga og helmingi óvinsælli en Saddam
Hussein. Hann nýtur þó stuðnings heima fyrir en vinsældir hans þar fóru úr 58% í 71% við upphaf stríðsins í
írak. Hann er án efa umdeildasti þjóðhöfðinginn hjá íslendingum en 19,5% þótti hann vinsælastur. Breski for-
sætisráðherrann virðist þó vera vinsæll hér á landi, 28,5% þeirra sem tóku afstöðu nefndu hann sem vinsælasta
þjóðarleiðtogann. Hann nvtur stuðnings heima fyrir þó að andstæðingar hans þar, bæði meðal almennings og
þingmanna, séu heldur fleiri en andstæðingar Bush í Bandaríkjunuin.
George W. Bush Bandaríkjaforseti er að
mati Islendinga óuinsælasti erlendi þjóð-
arleiðtoginn. Þetta er niðurstaðan úr
könnun DV frá 2. apríl en næstur íkjörinu
varð Saddam Hussein, forseti íraks. Bush
er eftir sem áður umdeildasti þjóðarleið-
toginn en Jacgues Chirac Frakklandsfor-
seti varsá uinsælasti.
Nú þegar ljóst er að Íraksstríðið mun dragast
eitthvað á langinn heyrast sífellt meiri óánægju-
raddir um stríðsrekstur Bandaríkjamanna og
Breta viö.botn Persaflóa. Niðurstaða könnunar-
innar er í samræmi viö það en á sama tíma nýt-
ur Bush sífellt meiri vinsælda í heimalandi
sínu.
Spurt var: Á hvaða erlendum þjóðarleiðtoga
hefur þú mest/minnst álit um þessar mundir?
Úrtakið var 600 manns, jafnt skipt milli kynja og
hlutfallslega jafnt milli höfuðborgarsvæðisins og
landsbyggðarinnar.
Bush og Blair fá 48%
Þegar afstaða íslendinga til vinsælustu þjóðar-
leiðtoganna var könnuð reyndist hvergi tekin
jafn afgerandi forysta, Jacques Chirac Frakk-
landsforseti fékk 34,6% atkvæði þeirra sem tóku
afstöðu og á eftir honum komu Tony Blair, for-
sætisráðherra Bretlands með 28,5% og Banda-
ríkjaforseti með 19,5%. Það má þó líta á það
þannig að þar sem þeir eru tveir í forsvari fyrir
stríðinu í írak séu samanlagðar vinsældir þeirra
48% en Chirac og Gerhard Schröder, kanslari
Þýskalands, helstu andstæðingar stríðsins á
Vesturlöndunum, falla í kramið hjá tæplega 42%
þjóðarinnar en 7,3% þeirra
sem tóku afstöðu nefndu
Schröder sem vinsælasta
þj óðarleiðtogann.
Saddam Hussein er efst-
ur þeirra sem voru nefndir
á nafn sjaldnar en 10 sinn-
um, en alls voru 15 þjóðar-
leiðtogar nefndir, þeirra á
meðal Ólafur Ragnar
Grímsson. Ekki nema 41%
þátttakenda treysti sér til
að taka afstöðu um vin-
sælasta þjóðarleiðtogann.
Bein tengsl við stríðið
Annað var upp á ten-
ingnum þegar kom að óvin-
sælasta þjóðarleiðtoganum
en alls tóku 82,2% afstöðu.
Þar hlaut George W. Bush
afgerandi flest atkvæði,
eða 62,1% þeirra sem tóku afstöðu. Sjálfur
Saddam Hussein var varla hálfur maður á við
Bush, með 32,7% óvinsældaatkvæðanna. Fáir
nefndu Chirac á nafn, eða 3,4% og enn færri
Tony Blair. Alls voru 10 þjóðarleiðtogar nefndir
í óvinsældakönnuninni.
Það er greinilegt að stríðið í írak hefur mikil
áhrif á skoðanir íslendinga á erlendum þjóðar-
leiðtogum enda eitt umdeildasta alþjóðlega póli-
tíska efni sem komið hefur fram lengi. Það hlýt-