Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2003, Síða 33
LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2003
Helqctrhlað 33 V
33
Graeme Souness,
þjálfari Blackburn:
Duff er til
sölu fyrir
rétt verð
Framkvæmdastjóri Blacburn
Rovers, Graeme Souness, hefur
viðurkennt að vængmaðurinn
Damien Duíf sé falur ef félagið
fái rétta upphæð fyrir leikmann-
inn. Þessi 23 ára gamli írski
landsliðsmaður hefur lengi ver-
ið undir smásjá stóru liðanna í
Englandi og þar ber hæst að
nefna Manchester United og
Liverpool.
„í þessum töluðu orðum höf-
um við ekki fengið neitt tiiboð
enn í Duff og ég ítreka að við
viljum ekki fá nein tilboð í
hann, það er svo einfalt," segir
Souness. „En ef einhver kæmi
og byði einhverja fáránlega upp-
hæð í leikmanninn er ekki hægt
annað en að horfa raunsætt á
hlutina. Ef hann vildi síðan fara
til þess liðs þá væri erfitt að
stöðva hann,“ bætti Souness við.
-vig
Rooney
þarf hvíld
David Moyes, framkvæmda-
stjóri Everton, hefur beðið Sven
Göran Erikson, þjálfara enska
landsliðsins, að velja hinn unga
Wayne Rooney ekki í landsliðið
fyrir vináttuleikinn gegn S-Afr-
íku 22. maí. Rooney var talinn
besti maður vallarins í sigri
Englands á Tyrklandi á miö-
vikudaginn en Moys segir að
ekki megi ofreyna piltinn unga.
„Hver er tilgangur okkar með
að passa upp á Rooney ef hann
er að ferðast um allan heiminn
með landsliðinu?" segir Moyes,
sem sjálfur kýs að hafa Rooney
ekki sem fastamann í liði sínu
og lætur hann oftar en ekki sitja
á bekknum aðra hverja helgi.
„Ég hef talað við Sven Göran
Eriksson nokkrum sinnum um
hann og ég er viss um áð hann
skilur að hann þarf að vemda
hann, rétt eins og við hjá Ev-
erton gerum,“ segir Moyes.
Á meðan hefur Eriksson sjálf-
ur beðið ensku þjóðina um að
setja Rooney ekki undir mikla
pressu svo að hann brenni
einfaldlega ekki út sem leikmað-
ur. „Það sem ég vil segja er sára-
einfalt. Einn stór leikur í lands-
liðinu gerir feril leikmanns ekki
stórkostlegan. Hann verður að
standa sig í mörg skipti. Engu
að síður er ég mjög ánægður
með frapimistöðu hans gegn
Tyrkjum,“ segir Sven Göran
Eriksson. -vig
Völler gagnrýnir
leikaðferð Skota
Rudi Völler, þjálfari þýska lands-
liðsins i knattspyrnu, segist ekki hafa
verið ýkja hrifinn af skoska landslið-
inu þegar hann sá það tapa fyrir Lit-
háum, 0-1, á miðvikudaginn í und-
ankeppni EM. Skotar misstu þar af
gullnu tækifæri til að ná þriggja stiga
forystu í fimmta riðli og duttu þess í
stað í annað sæti riðilsins. Þjóð-
verjar, sem náðu aðeins jafntefli gegn
Litháum á heimavelli sl. laugardag,
ferðast til Skotlands í júní og mæta
Skotum. Ekki ber á öðru en að Völler
telji Skotana auðvelda bráð fyrir lið
sitt.
„Jafnteflið okkar gegn Litháum lít-
ur ekki jafn illa út núna og þaö gerði.
Skotar klúðruðu tækifærinu sem þeir
höfðu tO að nánast stinga okkur af.
Þeir virtust alveg vonlausir í leik sín-
um á köflum og það var eins og sum-
ir leikmenn vissu ekki hvað þeir ættu
að gera inn á vellinum," segir Völler
um lið Skota. „Fyrir mér snerist þetta
bara um að þruma boltanum fram
völlinn,“ segir Völler. -vig
Rudi Völler, þjálfari Þýska landsliðsins, hefur ekki mikið álit á skoska landsliðinu
i knattspyrnu.
Ef allar viðskiptaákvarðanir
væru svona auðveldar...
- ’.o
-
^JlpSt
| London 1
m i - '
| Kaupmannahöfn
\
lcelandair
mið. 09.04-fös. 11.04
lceland Express
mið. 09.04-fös. 11.04
100.070,-*
26.660,-*
lcelandair
mán. 07.04-mið. 09.04
lceland Express
mán. 07.04-mið. 09.04
111.340,-*
29,660,-
fwm
...
Staðan í ensku úrvalsdeildinni:
Arsenal 31 20 6 5 66-33 66
Man. Utd 31 19 7 5 51-27 64
Newcastle 31 19 4 8 54-35 61
Chelsea 31 15 9 7 57-31 54
Liverpool 31 14 10 7 47-31 52
Everton 31 14 8 9 39-36 50
Charlton 31 13 7 11 40-39 46
Blackbum 31 12 10 9 38-37 46
Southampt. 31 11 11 9 34-32 44
Tottenham 31 12 7 12 43-44 43
Middlesbr. 31 11 9 11 39-35 42
Man. City 31 12 5 14 40-49 41
Fulham 31 10 8 13 35-40 38
Aston Villa 31 10 6 15 33-37 36
Birmingh. 31 9 8 14 28-42 35
Leeds 31 10 4 17 38-45 34
Bolton 31 7 11 13 34-47 32
West Ham 31 7 9 15 34-53 30
West Brom 31 5 6 20 21-47 21
Sunderland 31 4 7 20 19-50 19
ÍBÍ£0Wl
Ef þú þarft aö fara í viðskiptaferð tjl London eða Kaupmannahafnar á þessum tilteknu dögum
þá þjóðasttveirkostir*.Verðmunurinn ersláandi. lceland Express: Engin sunnudagaregla, enginn
bókunarfyrirvari, flug alla daga, engin hámarksdvöi og engin lágmarksdvöl. Auðvelt og
ódýrt er að breyta bókun.
g
1» -8 1.1
* Upplýsingar fengnar úr bókunarvélum lcelandair
og lceland Express á Netinu 04.04.2003 kl. 15:55
Hjá lceland Express starfar samhentur hópurfólks sem hefur víðtæka reynslu l
ferðaheiminum. Þú hefur beint samband við þjónustufulltrúa sem gengur frá öllum
bókunum, einnig á hótelum og bílaleigubílum. Vidskiptaferdir@lcelandExpress.is
Söluskrifstofa Suðurlandsbraut 24, opið 9-17 virka daga Sími 5 500 600 www.lcelandExpress.is
■