Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2003, Qupperneq 34
34
He /C) ct rb lct c) H>"Vr LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2003
Halldór
„Stóri punkturinn í þessu öllu er hinsvegar sá að lífið
allt er leikrit og mörg eru þau hlutverkin sem við
þurfunt að glíma við. Það hef ég sjálfur gert og líklega
spjarað ntig best í því annars vegar að ná heilsu og
síðan föðurhlutverkinu sent mér ltefur þótt ákaflega
skemmtilegt. Ég trúi því að í þessu hvoru tveggja hafi
leiklistin lijálpað mér,“ segir Halldór nteðal annars
hér í viðtalin. DV-mynd Sig.Jökull
þá í heimabæ sínum, Kópavogi. Síðan kom alllangt hié í
alla þátttöku á þessu sviði, uns Halldór blandaði sér í
leikinn árið 2001. Þá var Leikfélag Mosfellssveitar í Bæj-
arleikhúsinu að að setja upp spunaverkið Tóny og Tínu.
Á síðasta ári voru verkefnin tvo; snemma á árinu hið sí-
gilda verk Fríða og dýriö og Beðið eftir go.com air var á
fjalirnar fært í fyrrahaust.
Það var síðan nú skömmu eftir áramót sem Mosfell-
ingar fóru að æfa hið fræga og verk Hobbitann eftir JRR
Tolkien. Þar valdist Halldór í hlutverk Þorins en fjöl-
margir leikarar aðrir koma að uppfærslunni. „Að glíma
við þetta verk er líklega það metnaðarfyllsta sem áhuga-
leikfélag getur glímt við. Og þetta gerum við auðvitað
ekki nema gott fólk með okkur sem kann sitt fag og get-
ur af mikilli reynslu miðlað,“ segir Halldór.
í þessu samband nefnir hann meðal annars Helgu Rún
Pálsdóttur búningahönnuð, ljósameistarann Alfreð
Sturlu Böðvarsson og svo leikstjórann, Þingeyinginn
Odd Bjama Þorkelsson.
Innsýn, reynsla og þroski
„Aliir þeir leikstjórar sem ég hef unnið með hafa
kennt mér mikið. Að öllum öðrum ólöstuðum þá hefur
mér fundist samvinnan með Oddi Bjarna lærdómsrík-
ust,“ segir Halldór. „Það er þessi jákvæða sýn hans á viö-
fangsefnin og hvatningin sem ég kann svo vel að meta.
Hvemig hann getur fyrir vikið verið sem driikraftur á
alla í kringum sig. Og þegar aUt er að farast í stressi þá
heldur hann samt alltaf haus og það er ekki öllum gef-
ið.“
Hann segir að jákvæð gagnrýni á leik sinn á sviðinu
geri sér skiljanlega ákaflega gott - enda sé öllum mikil-
vægt að fá hrósið þegar vel tekst til. „Stóri punkturinn í
þessu öllu er hins vegar sá að lífið allt er leikrit og mörg
eru þau hlutverkin sem við þurfum að glíma viö. Það hef
ég sjálfur gert og liklega spjarað mig best í því annars
vegar að ná heilsu og síðan föðurhlutverkinu sem mér
hefur þótt ákaflega skemmtilegt. Ég trúi því að í þessu
hvoru tveggja hafi leiklistin hjálpað mér. Gefið mér inn-
sýn, reynslu og þroska,“ segir Halldór, sem er faðir
tveggja dætra, þeirra Eydísar Þuríðar, níu ára, og Unn-
ar Aðalheiðar sem er árinu yngri.
Fjölskyldumaður gengur á fjöll
„Svo ég segi sjálfur frá þá er ég ákaflega mikill pabbi
í mér. Er alltaf með stelpumar aðra hverja helgi - frá
föstudegi og fram til þriðjudags og oftar á stundum. Sjálf-
um er ég alinn upp við sterk fjölskyldubönd og kem úr
hópi átta systkina. Fjölskylduumhverfið er því nokkuð
sem er mjög sterkt í mér,“ segir Halldór. Bætir við að
dæturnar tvær hafi smitast af leiklistaráhuga sínum og
sú eldri hafi aðeins tekið þátt í sýningunni á Fríðu og
dýrinu. Verið þar á sviðinu með pabba sínum.
Utan við leiklistina segist Halldór eiga fjölmörg
áhugamál. Af spenningi fylgist hann með ensku knatt-
spymunni - en íþróttir og útivera eru það sem helst
fanga hugann. „Ég hef gaman af því að fara i gönguferð-
ir og hef gengið á mörg fjöll í Mosfellsveitinni. Hef til
dæmis gengið á Helgafell, Úlfarsfell og Reykjaborgina - í
fyrrasumar fór ég í tvígang á Esjuna. Einnig finnst mér
mjög gaman að spila golf og er farinn að stunda það tals-
vert á sumri hverju. Maður kemst þetta allt og þetta er
nokkuð sem mér finnst gefa lífinu gildi. Fyrir sjálfs-
traustið hefur líka mikið að segja að spá ekki endalaust
í fortíðina, þótt hún og veikindin sem ég glímdi við séu
vissulega staðreynd. Mestu skiptir að lífa fyrir liðandi
stund og það sem er fram undan.“
í mörgum hlutverkum
I uppfærslu Leikfélags Mosfellsbæjar á Hobbitanum
stendur Halldór Halldórsson á sviðinu. Stendur sína
plikt íhlutverki Þorins. £g hef aðallega verið íhlut-
verki sjúklingsins um dagana en nú ersá kafli að
baki, segir Halldórsem varfyrsti íslenski hjarta- og
lungnaþeginn. Hérsegir hann frá sjálfum sér og líf-
inu, sem hann segir eitt stórt leikrit.
„í mörg ár hef ég haft gaman af því aö glíma við leik-
listina. Hef verið að herma eftir og koma fram við ýmis
tækifæri. Leikaradraumurinn hefur alltaf búið meö mér,
enda þótt ég hafi haft takmörkuö tækifæri til að láta
hann rætast. Mitt stærsta hlutverk hefur veriö hlut-
skipti sjúklingsins. En nú er sá kafli að baki og hægt að
snúa sér að öðru. Þaö hefur því veriö einkar gefandi fyr-
ir mig aö taka þátt í leiklistarstarfinu og nokkuö sem
mig langar aö halda áfram í,“ segir Halldór Halldórsson.
Fyrir fimmtán árum
Um þessar mundir eru liðin fimmtán ár síðan grædd
voru ný lungu og hjarta í Halldór úti í Lundúnum. Hann
er fyrsti íslendingurinn sem gekkst undir slíka aðgerö.
Árið 1998 var svo grætt nýra í Halldór úr bróður hans
..og síöan þá hefur allt gengið mjög vel á hjá mér. Ég
er kominn til góðrar heilsu. Mér finnst til aö mynda al-
veg ástæðulaust að líta lengur á mig sem einhvern sjúk-
ling,“ segir Halldór sem er starfsmaður á Reykjalundi.
Starfar þar sem aðstoðarmaður á þeirri deild þar sem
sinnt er hjarta- og lungnarannsóknum.
„Auövitað get ég í því starfi talsvert byggt á þeirri
sjúkdómareynslu sem ég hef,“ segir Halldór sem hefur
starfað á Reykjalundi síðan 1989. „Þaö er ríkt í mér að
vilja sækjast í öryggi og vil hafa sem flest í fóstum skorð-
um í kringum mig. Þess vegna hef ég haldið mig í þessu
starfi sem mér líkar vel við. Starfið er enda fjölbreytt og
býður upp á mikil samskipti við fólk.“
Metnaðarfullt og mikil reynsla
Áriö 1991 kom Halldór fyrst aö starfi áhugaleikfélags,
Karlinn í kexinu
Nýlega hefur verið tekin til sýninga í sjónvarpi aug-
lýsing frá Kexverksmiðjunni Fróni þar sem Halldór leik-
ur á móti Kjartan Bergmundssyni leikara. „Við vorum
fimmtán talsins fengin í prufu vegna þessarar auglýsing-
ar. Ég mætti í prufuna og vissi síöan ekkert meira fyrr
en var hringt í mig og sagt að ég hefði oröið fyrir valinu.
Vinnan við upptökumar var mjög skemmtileg og lær-
dómsríkt aö vinna með starfsmönnum Saga Film - og
ekki síður Kjartani, sem er mér margfaldlega reyndari
sem leikari. Hann gat því miðlað miklu til mín,“ segir
Halldór.
í tilverunni er það svo að allir eru misjafnlega af Guði
gerðir. Það sem liggur opið fyrir einum er öðmm sem
lokuö bók og kannski er það þessi margbreytileiki sem
gerir lífið skemmtilegt og litríkt.
„Ég hef aldrei getað leikið á hljóðfæri enda þótt ég
glaður vildi. Ég get get leikið og hermt eftir og langar að
rækta þá hæfileika með mér frekar. Hef glímt við þá
marga, eins og til dæmis Halldór Laxness, Halldór Blön-
dal, Steingrím Hermannsson og Gunnar Eyjólfsson. Og
aöeins reynt viö Guöna Ágústsson en er ekki sáttur við
útkomuna enn. En sjálfsagt kemur þetta með tímanum,“
segir Halldór Halldórsson að síöustu.
-sbs