Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2003, Síða 47
LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2003
/ / < > l c) a rb l a c) 3Z>V
5 I
V
„Það ríkir upplausnárástand á götunuin. Háskólarnir eru fullir af stúdentum sein eru með mótmæli og óeirðir. Konimúnistar vilja eyðileggja Iandið okkar. Rússland
ógnar okkur með mætti sínuin og Ríkið er í hættu. Já, hættu sem steðjar að okkur innan frá og utan. Við þurfum lög og reglur. An þess getur þjóðin ekki lifað af.“ Úr
ræðu Adolfs Hitlers frá árinu 1932. ■*v_
„Kommúnistarnir vilja
eyðileggja landið okkar!“
Áróður setti mark sitt á síðustu öld. Lýð-
ræði á Vesturlöndum i/arð til þess að stjórn-
i/öld þurftu að beita öðrum aðferðum i/ið að
koma málum sínum fram heldur en tíðkast
hafði t tíð kóngá og keisara sem gátu
stjórnað að eigin geðþótta og þurftu ekki
að hugsa um að þeir gætu misst fglgi í
næstu kosningum. Það var frekar að þeir
misstu höfuðið. Geðþótti valdhafa var enn
til staðar en nú varð að réttlæta hann á ein-
hvern hátt. Svarið við nýjum kröfum var að
ráða áróðursmeistara til að koma réttum
skilaboðum á framfæri.
Ræðustúfurinn hér að framan er gott dæmi
um vel mótaðan áróður í ræðu. Þar birtist ógn-
in sem steðjar að (kommúnistar vilja eyðileggja
landið okkar) og hvað er til ráða (Við þurfum lög
og reglur). Þetta eru grundvallarreglur hræðslu-
áróðurs og við sjáum þetta stundum í auglýsing-
um. Gott dæmi eru auglýsingar sem hafa nokk-
uð lengi verið sýndar í sjónvarpi og eru frá Tó-
baksvarnarnefnd. í þeim sést venjuleg mann-
eskja sem dregur að sér reyk úr sígarettu. Síðan
er sýnt hvernig reykurinn sogast niður í lík-
amann og við sjáum ýmist ósæð reykingamanns
eða heila þar sem afleiðingar reykinga eru sjá-
anlegar. Lausnin er svo að reykja ekki. Til að
aðstoða fólk við að bregðast við ógninni er bent
á símanúmer þar sem hægt er að fá leiðbeining-
ar við að hætta reykingum.
„Verstu nasistar og kommúnistar“
Þótt myndmál skipti miklu máli í áróðri eru
orðin líkast til sterkasta vopnið í áróðursstríði.
Hægt er að flokka áróður orðanna í þrennt: að
kalla aðra ljótum nöfnum; að tala um sjálfan sig
með fögrum orðum og beita skrauthvörfum.
í máli okkar er alltaf að finna orð sem hafa
neikvæða merkingu eða hafa á einhvern hátt
öðlast neikvæða tengingu. Þessi neikvæðni er
oft tímabundin, þ.e. að ekki er víst að orð sem
þótti tiltölulega jákvætt fyrir tíu árum sé það
enn í dag.
Dæmi um orð sem þykja neikvæð eru: fasisti,
nasisti, kommúnisti, svín, róni, hommi, kven-
hatari og svo mætti lengi telja. Þetta eru hins
vegar ekki orð sem notuð eru á opinberum vett-
vangi þar sem líklegt er að slík orð snúist gegn
þeim er þau mælir. Notkun orðsins nasisti er af-
skaplega viðkvæm. Skemmst er að minnast orða
Sigurbjörns Einarssonar biskups eftir Kristnihá-
tíð á Þingvöllum. Þar sagði biskup: „Sumt af því
sem hefur verið birt á opinberum vettvangi
minnir á það allra versta sem verstu nasistar og
kommúnistar höfðu fram að færa á sínum tíma.
Þetta endurspeglar andkristin viðhorf þeirra
sem um ræðir.“ Þessi orð komu mjög illa við
marga og var biskup meðal annars kærður til
siðanefndar presta.
Vamar- eða stríðsmálaráðuneyti
Jákvæð orð eru notuð til að hefja á stall eigin
málstað og til að skapa stolt og virðingu þeirra
sem heyra eða lesa ræður og rit. Dæmi um já-
kvæð orð nú á tímum eru: framfarir, lýðræði,
hugsjónir, menntun, gróska, samúð, sjálfstæði,
ást og svo mætti áfram telja. Það eru ákveðnar
dyggðir sem þarf að minna á. Sá sem talar mik-
iö um þessar dyggðir litast af orðunum og verð-
ur betri - eða kannski skárri.
Oft skapast neikvæðni í kringum einstök orð.
Þá er stundum reynt að skipta á gömlum og nei-
kvæðum orðum og nýjum. Stundum er í því
sambandi talað um skrauthvörf. Dæmi um
skrauthvörf er þegar bandarísk stjórnvöld
breyttu nafni stríðsmálaráðuneytis síns í síðari
heimsstyrjöldinni. Eftir breytinguna var nafn 1~
ráðuneytisins varnarmálaráðuneytið. Ekkert
annað hafði breyst en þjóðin var ekki lengur í
stríði heldur að verja hendur sínar. Annað
dæmi sem tengist hernaði er að í tíö Reagans
var skipt um nafn á MX-flugskeyti Bandaríkja-
manna og því gefið nafnið The Peacekeeper eða
Friðarvörður.
Ágætt íslenskt dæmi um nafnbreytingu af
þessu tagi er þegar nafni Félagsmálastofnunar
Reykjavíkur var breytt í Félagsþjónustuna:
sama stofnun - annaö nafn. Einnig má nefna
Tölvunefnd. Nafn nefndarinnar er vélrænt og
tengist hugmyndinni um Stóra bróður í hugum
margra. Ný stofnun fékk heitið Persónuvernd.
Einn af ykkur
Ákveðin áróðurstækni felst í því að látast vera ^
hluti af ákveðnum hópi. Þannig hafa frambjóð-
endur til forseta í Bandaríkjunum lengi reynt að
telja fólki trú um að þeir séu „einn af fólkinu".
Flestir hafa þeir þó verið milljónamæringar með
góða ímyndarsmiði. Clinton lét mynda sig á
McDonald’s, Bush gamli hataði spergilkál og
elskaði að veiða fisk. Ronald Reagan var mynd-
aður við viðarhögg og Carter kynnti sig sem lít-
illátan hnetubónda frá Georgíu. Þeir voru
„venjulegir Bandaríkjamenn".
Tilfinningamar ríkja
Því fleiri raddir sem samfélagið eignast því
erfiðara verður að nota áróður þar sem hann v
þarf að ná til margra og skírskota til hluta sem
eru öllum sameiginlegir. Auglýsingafólkið hefur
fyrir löngu áttað sig á því að áróður þess verður
að stóla á sammannlega reynslu, á tilfinningar.
Þar leika ástin og hatrið aðalhlutverkið - eins og
ástin á Ríkinu og hatrið á gyðingum forðum.
-sm
Frægasta og jafnframt ógeðfelldasta áróðurs-
verk síðustu aldar er uppgangur Adolfs Hitlers
og nasismans í Þýskalandi. Með hjálp áróðurs-
meistarans Göbbels tókst að skapa aðstæður og
orðræðu sem hreif fólk á band nasismans þrátt
fyrir ógnina og ógeðið sem undir lá. Nasistar
notuðu óttann til að afla sér fylgis eins og sést í
eftirfarandi tilvitnun í orð Adolfs Hitlers árið
1932:
„Það ríkir upplausnarástand á götunum. Há-
skólarnir eru fullir af stúdentum sem eru með
mótmæli og óeirðir. Kommúnistar vilja eyði-
leggja landið okkar. Rússland ógnar okkur með
mætti sínum og Ríkið er í hættu. Já, hættu sem
steðjar að okkur innan frá og utan. Við þurfum
lög og reglur. Án þess getur þjóðin ékki lifað af.“
„Ógnin sem steðjar að okkur“
Notkun útvarps og kvikmynda var mjög þró-
uð. Allt myndmál: herbúningar, fánar, umbún-
aður um ræðuhöld, gæsagangur hermannanna;
allt er þetta til að skapa ímynd þess að skapa þá
tilfinningu að agi og harka hersins og stjórn-
valda muni bjarga ríkinu frá glötun.