Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2003, Side 53
LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2003
H&lgarblað !DV
57
Bernharð Wilkinson kom til íslands 1975 til að spila á flautu með Sin-
fóníuhljómsveit íslands. Hann segist enn vera að reyna að læra málið.
DV-mynd Sigurður Jökull
Við púlt Tsjajkovskí
Söngsveitin Fílharmónía er
um hálfrar aldar gömul menn-
ingarstofnun í íslensku tónlist-
arlífi og hefur flutt Messías
áður eins og mörg önnur fleiri
stórvirki tónbókmenntanna
sem sveitin hefur fært Islend-
ingum og stundum í fyrsta sinn.
Fílharmónía hefur borið hróður
íslenskra söngvara vítt um
heimsbyggðina og er þess
skemmst að minnast þegar
sveitin steig á svið í St. Péturs-
borg í Rússlandi síðastliðið
haust og flutti Sálumessu Moz-
arts með Fílharmóníusveit St.
Pétursborgar sem er í fremstu
röð hljómsveita í heiminum.
Það var sannarlega eftirminni-
legur atburður og getur sá sem
þetta ritar borið því vitni að þá
var gaman að vera íslendingur í
tónleikasalnum þar sem Bern-
hard stóð við púlt Tsjaikovskís
og stjórnaði hljómsveitinni.
„Þetta var ógleymanleg
reynsla. Við fengum þetta tæki-
færi með mjög skömmum fyrir-
vara og nutum aðstoðar
Selkórsins og æfðum gríðarlega
mikið og miklu lengur en við
erum að jafnaði vön. Þetta var
mjög erfitt en enginn sem tók
þátt í því gleymir því nokkru
sinni. Þetta var eins og að koma
til Mekku tónlistarinnar."
í réttri röð
Bernharður hefur stjórnað
Fílharmóníunni í sex ár minnir
hann og þótt hann hafi reynslu
af stjórn kóra og kórsöng og
hafi stjórnað sönghópnum
Hljómeyki árum saman þá er
Hljómeyki kammerkór en Fíl-
harmónían er í fullri stærð og
fyrsti fullvaxni kórinn sem
hann tekur að sér að stjórna.
Þegar hann er spurður um
framtíðaráform glottir hann og
segir að það sé ýmislegt á döf-
inni en það sé ekki.tímabært að
hlaupa með það í blöðin fyrr en
búið sé að ræða við stjórn
söngsveitarinnar.
„Það verður að gera allt í
réttri röð.“
Bernharður er breskur að
uppruna og alinn upp við tón-
list en faðir hans stjómaði með-
al annars útvarpskór BBC og
Benni ólst upp í drengjakór og
síðan í kór föður síns. Hann
lærði að spila á flautu í tónlist-
arskóla í Manchester og svo
einn daginn var hringt frá ís-
landi og kennari hans spurður
hvort hann ætti ekki sæmilega
góðan flautuleikara handa Sin-
fóníuhljómsveit íslands. Benni
sló til og kom til íslands 1975.
Þótt samræður okkar fari fram
á íslensku segist hann alls ekki
vera búinn að læra málið til
hlítar á þeim tæplega 30 árum
sem eru liðin síðan en bætir við
að þetta sé allt að koma.
Langar til að stjóma meira
Bernharður hefur fengist
talsvert við að stjórna Sinfóníu-
hljómsveit íslands ásamt því að
vera flautuleikari í sveitinni og
1999 lagði hann endanlega frá
sér flautuna og var ráðinn að-
stoðarstjórnandi Sinfóníu-
hljómsveitarinnar og gegndi
því starfi þar til um síðustu
áramót þegar staða aðstoðar-
stjórnanda var lögð niður.
Það fólst margt í starfi að-
stoðarstjórnanda, allt frá því að
sitja í verkefnavalsnefnd, hlýða
á inntökupróf, foræfa hljóm-
sveitina fyrir aðalstjórnand-
ann, annast skólatónleika, fara
með hljómsveitina út á land og
mjög margt fleira.
„Ég hef einnig stjórnað
hljómsveit Tónlistarskólans og
aðstoðaði á sínum tíma Paul
Zhukovsky talsvert þegar hann
var með Sinfóníuhljómsveit
æskunnar. Þetta ásamt því að ^
stjórna Sinfóníuhljómsveit ís-
lands er allt reynsla sem maður
býr að og það sem mig fýsir
talsvert að gera er að reyna
frekar fyrir mér sem hljóm-
sveitarstjóri.
Það er gríðarlega hörð sam-
keppni á því sviði um allan
heim en það á við um allar list-
greinar og ég verð að henda
mér í slaginn. Það verður svo
að koma í ljós hvernig það
gengur." -PÁÁ
m'
,
,
verður haldið laugardaginn
5. apríl kl. 13.30
í húsnæði Vöku hf. að Eldshöfða 6.
Svæðið opnar kl. 10.30.
Þar verða meðal annars eftirfarandi
bflar og tæki boðin upp:
VW Transporter ‘00
VW Polo ‘00
VW Golf ‘00
Peugeot 306 ‘99
Ford Focus ‘99
Subaru Legacy ‘98
Hyundai Accent ‘98
Daihatsu Sirion ‘98
Nissan Vanette ‘98
Toyota Avensis ‘98
Ford Mondeo ‘97
MMC Pajero ‘96
SérBCað um
Magasíní w. apríí
marítús f yíjyír
82 þús. eíntök
Meðaí efnís:
Hvað kostár að byggja sér góðan
bústað?
Hvað spyr sumarhúsafólk helst um?
* Sagan á bak við sumarhúsið
« Viðtal
* Útþensla byggðanna
* Umfjöllun um gróður og
trjáklippingar
og margt annað fróðlegt og skemmtilegt
efni.
Umsjón með efni í blaðið hefur
Vilmundur Hansen kip@dv.is
Skilafrestur auglýsinga ertil 8. apríl.
Við erum tilbúin að aðstoða ykkur:
Inga, b.s. 550 5734, inga@dv.is
Katrín, b.s. 550 5733, kata@dv.is
Ransý, b.s. 550 5725, ransy@dv.is
Teitur, b.s. 550 5728, teitura@dv.is
«