Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2003, Blaðsíða 2
2
FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2003
Fréttir DV
Ólafur Ragnar Grímsson um hlutverk forseta viö stjórnarmyndun:
Getur haft irikilv»gu
hlutverid að gegna
Þótt forseti íslands sé í meginatrið-
um ópólitískt embætti hefur forset-
inn hlutverki að gegna við stjómar-
myndun sem getur við vissar aðstæö-
ur haft mikilvægar afleiðingar fyrir
samningsstöðu stjómmálaflokka í
stjómarmyndunarviðræðum. Þetta
kemur fram í ritinu „The Icelandic
Multilevel Coalition System“ eftir
Ólaf Ragnar Grímsson, sem gefið var
út af Félagsvísindadeild H.í. árið
1977.
í ritinu segir Ólafur Ragnar að for-
setinn hafi venjulega ákveðið svig-
rúm til þess að ákveða sjálfur hverj-
um hann feli umboð til stjómar-
myndunar að loknum kosningum,
hafi á annað borð ekki þegar verið
gert samkomulag um samstarf sem
úrslit kosninganna gera kleift að efna
til. Forsetinn hittir þá forystumenn
stjómmálaflokkanna hvem fyrir sig,
segir í ritinu, og felur í kjölfarið ein-
um þeirra umboð til stjómarmynd-
unar á grundvelli þess hvemig hann
metur stöðu þeirra og afstöðu.
Hlutverk forsetans er því misjafn-
lega mikið; allt frá þvi að staöfesta
formlega samkomulag sem forystu-
menn flokkanna hafa þegar gert, til
þess að fela einum þeirra forystu í
samningum og hafa þannig talsverð
áhrif á næstu skref samningaferlisins
(e. „to a large extent conditioning the
next stages in the bargaining
process “)
Fimm t ^SilSSS^
megin-
reglur
Ólafur
Ragnar bend-
ir í ritinu á að
fimm megin-
reglur megi
greina í ákvörð-
unum forseta
fram til þessa
tíma (1977). 1)
Annaðhvort sé for-
manni stærsta
flokksins falið um-
boðið; 2) eða for-
manni stærsta stjórn-
arandstöðuflokksins, sé það annað-
hvort Sjálfstæðisflokkur eða Fram-
sóknarflokkur; 3) og valið á milli
Sjálfstæðisflokks og Framsóknar-
.
flokks ráðist þá gjaman af því
hvort rök hnígi að því að telja ann-
an hvom þeirra sigurvegara kosn-
iiiganna: 4» Aiþýðuflókknum sé aín
Kemur tll kasta forset-
ans?
Sumir telja hættu á
stjómarkreppu eftir
kosningarnar á morgun
ef ríkisstjórnin fellur.
Þá gæti komiö til
kasta forsetans aö
taka mikiivæga ákvörö-
un um hver eigi aö freista þess
aö mynda nýja stjórn.
stjóm; 5) og Alþýðubandalaginu sé
aldrei falið umboðið, líklega aðal-
lega vegna andstöðu flokksins við
aöild íslands að NATO.
í Stjómskipun íslands eftir Ólaf
Jóhannesson segir að forsetinn
ráði því sjálfur hverjum hann feli
að gera tilraun til stjómarmyndun-
ar fái enginn flokkur hreinan
meirihluta þingmanna. Það þurfi
hvorki að vera formaður stærsta
flokksins né þess flokks sem mest
hafi unnið á í kosningunum, held-
ur fremur sá sem forsetinn teldi
líklegastan til þess að takast að
mynda meirihlutastjóm.
í Morgunblaðinu í gær vom rifj-
uð upp ummæli Ólafs Ragnars
Grímssonar á fundi um stöðu for-
setaembættisins haustið 1995, þar
sem hann sagði að vegna þess stöð-
ugleika sem ríkti í stjómmálum og
þeirrar aðferðafræði sem forystu-
menn flokkanna virtust hafa tfl-
einkað sér við stjómarmyndun
væri óliklegt að þær aðstæður
sköpuðust að forsetinn hefði afger-
andi áhrif á stjómarmyndun.
Haldi ríkisstjórnin velli þarf for-
sætisráðherra ekki að biðjast
lausnar og hefur því í raun forystu
um endumýjað samstarf eða mynd-
un nýs meirihluta. -ÓTG
Dæmdup fyrir
kynferðisbrot
Hæstiréttur staðfesti í gær 18
mánaða fangelsisdóm Héraðsdóms
Reykjaness, þar af 15 mánuði skil-
orðsbundna, yfir 27 ára gömlum
mann vegna kynferðisbrota gegn
hálfsystur hans og tveimur öðrum
stúlkum sem tengdust honum fjöl-
skylduböndum. Brotin voru framin
á árunum 1992 til 1996 en þá voru
stúlkumar á aldrinum 5 til 14 ára.
Maðurinn neitaði sök en framburö-
ur stúlknanna þótti trúverðugur.
í niðurstöðu héraðsdóms sem
staðfestur var af Hæstarétti sagði að
brot mannsins hefðu verið alvarleg
og þau hefðu náð yfir nokkum tíma
og verið framin á heimili stúlkn-
anna þar sem maðurinn var heimil-
isvinur.
Taldi dómurinn ljóst af gögnum
málsins að umræddir atburðir hefðu
verið stúlkunum þungbærir. í dóm-
inum sagði svo að á hirm bóginn
yrði ekki framhjá því litið að mað-
urinn hefði verið á aldrinum 15 -18
ára þegar hann framdi brotin og því
bæri að lækka refsingu með tilliti til
þess. Sagði einnig að hann væri nú í
sambúð með konu og ætti með
henni nýfætt bam.
Auk fangelsisrefsingarinnar var
honum gert að greiða stúlkunum
tæpa eina og hálfa milljón í miska-
bætur. -EKÁ
VERÐUR ÓLAFUR
RÁÐHERRA - AFTUR?
Borgln snyrt fyrir kjördaginn
Sprettan er meö besta móti hjá grasbændum Reykjavíkur þetta voriö. Nokkurra daga hret taföi ekki grasvöxt svo heit-
iö gæti. í gær mátti sjá þessa ungu Ijósku renna yfir grasrinda austurborgarinnar á þessari líka fiottu sláttuvél. Borgin
er snyrt fyrir kjördaginn oggrænn litur færist yfír borgina sem aldrei fyrr.
Stuttar fréttir
Islandsbanki í Lúxemborg
íslandsbanki
mun opna útibú 11
Lúxemborg á næstu
vikum en stefnt hef-
ur verið að því að
opna útibú í þar um
nokkurt skeið.
Starfsemi þessi
mun að sögn Bjama '
Ármannssonar, forstjóra íslands-
banka, krefjast 8-10 stöðugilda og
vera hrein viðbót við íslandsbank-
ann.
13 verk eftir Nínu
Bjami Sigurðsson, sem rekur
Smiðjuna-Listhús, fékk nýveriö í
hendumar 13 áður óþekkt verk éftir
Nínu Tryggvadóttur til innrömmun-
Á
ar og umboðs. „Þetta era stórtíðindi
og merkilegur fundur, segir Bjami.
Fréttablaðið greindi frá.
Þyngsti kötturinn
Mikill um sig er heimilisköttur-
inn hjá Sverri Haraldssyni og Guð-
nýju Þorbergsdóttur sem búa í Hól-
um í Reykjadal. Kötturinn er um 12
kíló að þyngd og hefur ekki heyrst
um aðra ketti þyngri í Þingeyjar-
sveit. Kötturinn, sem heitir Bjöm,
er aö verða 12 ára. MBl. greindi frá.
Læknanemar til bjargar
Tíu læknanemar munu koma til
starfa við heilsugæslustöð Heil-
brigðisstofnunar Suðumesja í sum-
ar en vandræðaástand hefur ríkt
þar um skeið eins og kunnugt er af
wgm
liP
fréttum. Nú starfa þar sex læknar,
flestir í hlutastörfum.
Kynna sér fiskveiöistjórnun
Sendinefnd frá fulltrúadeild
bandaríska þingsins er væntanleg
til landsins í sumar til að kynna sér
auðlindastjómun, aðallega fiskveiði-
stjómun. Áður hefur komið auð-
lindanefnd Bandaríkjaþings í sama
tilgangi.
Vaölaheiöarvegur:
Missti stjórn á
mótorhjólinu
Kona á fertugsaldri missti stjórn
á mótorhjóli sínu á Vaðlaheiðar-
vegi um hádegisbil í gær. Konan
var á austurleið. Mótorhjólið hafn-
aði utan vegar. Að sögn lögreglu á
Akureyri eru orsakir slyssins óljós-
ar. Sjúkraliö var kvatt á staðinn og
var konan flutt meö sjúkrabíl á
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
tÚ rannsóknar en hún kvartaði
undan eymslum í öxlum. Ekki var
talið að meiðsl hennar væru alvar-
legs eðlis. -ÆD
Vestmannaeyjar:
TF-LÍF sótti bráð-
veikan sjúkling
Lögreglan í Vestmannaeyjum
hafði samband viö stjórnstöð
Landhelgisgæslunnar i gærmorg-
un og óskaði eftir aðstoð vegna
bráðveiks sjúklings en að mati
lækna var ekki fært að flytja
hann með sjúkraflugvél. TF-LÍF
fór í loftið um klukkan hálfellefu
og lenti í Vestmannaeyjum laust
eftir klukkan ellefu. Þyrlan lenti
síðan við flugskýli Landhelgis-
gæslunnar á Reykjavíkurflugvelli
þremur korterum síðar og var
sjúklingurinn fluttur þaðan með
neyðarbíl á Landspitala Háskóla-
sjúkrahús við Hringbraut. -EKÁ
Vagnstjóri valdur
að árekstri
Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðs-
dóms Reykjavíkur frá nóvember í
fyrra yfir bifreiðarstjóra sem var
sakfelldur fyrir hegningar- og um-
ferðarlagabrot með því að hafa ekið
strætisvagni gegn rauðu ljósi með
þeim afleiðingum að harður árekst-
ur varð við fólksbifreið við gatna-
mótin við Gullinbrú og Höfðabakka.
Farþegi í fólksbifreiðinni hlaut al-
varleg líkamsmeiðsl við áreksturinn
og ökumaður hennar nokkra
áverka. Var vagnstjóranum gert að
greiða 80 þúsund króna sekt í ríkis-
sjóð en sæta ella fangelsi í 26 daga.
Dómurinn taldi að áreksturinn
yrði að mestu rakinn til gáleysis-
legrar háttsemi vagnstjórans en
hins vegar var ekki getið að um
mjög vítaverðan akstur hefði verið
að ræða og því var hann sýknaður
af kröfu um sviptingu ökuréttar.
Maöurinn hafði tvívegis gengist
undir sátt fyrir umferðarlagabrot og
auk sektarrefsingar var hann
dæmdur til greiðslu alls sakarkostn-
aðar, þar með talin 50 þúsund króna
málsvamalauna skipaðs verjanda
sin -EKÁ
helgarblad
Svik við sönginn
í Helgarblaði DV
á morgun er viðtal
við Kristján Jó-
hannsson ópera-
söngvara sem er
kominn heim til
Akureyrar til að
syngja Requiem
Verdis. Kristján tal-
ar um svik stjómmálamanna við
söngfólk landsins, umsókn sína um
ítalskt ríkisfang og margt fleira eins
og honum einum er lagið.
í blaðinu er einnig fjallað um far-
aldur bráðrar lungnabólgu í sögu-
legu samhengi miðað við pestir
fyrri alda.