Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2003, Page 4
Fréttir
LAUGARDAGUR 24. MAÍ 2003
TTl'^Cr
Fjópða ráðuneyti Davíðs
Oddssonar hefur tekið við
Á fundi ríkisráös á Bessastöð-
um í gær féllst forseti íslands á til-
lögu forsætisráðherra um að veita
þriðja ráðuneyti hans lausn frá
störfum. Þá féllst forseti íslands á
tillögu Davíðs Oddssonar um skip-
an fjórða ráðuneytis hans. Ur
fyrri ríkisstjóm fara Páll Péturs-
son félagsmálaráðherra, og við
tekur Árni Magnússon sem verð-
ur með sama ráðuneyti, og einnig
Sólveig Pétursdóttir dómsmála-
ráðherra, og við tekur Björn
Bjarnason.
Fráfarandi ríkisstjórn kom til
fundar um hádegið og snæddi há-
degisverð á Bessastöðum ásamt
mökum. Klukkan 13.30 hófst svo
fundur viðtakandi ríkisstjórnar,
en skömmu áður yfirgáfu Páll og
Sólveig Bessastaði en ‘Björn og
Árni mættu á staðinn. Um hálf-
tíma síðar tíndust svo ráðherrar
burtu einn og einn í bíl, en þær
stöllur Valgerður Sverrisdóttir,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og
Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð-
herra héldu saman frá Bessastöð-
um í ráðherrabíl umhverfisráðu-
neytisins. -GG
DV-MYNDIR GVA
Samkomulag innsiglaö
Davíö Oddsson forsætisráðherra og Halldór Ásgrímsson, veröandi forsætisráðherra, takast í hendur eftir
ríkisráösfundinn á Bessastööum í gærdag.
Missir ekki móöinn
Páll Pétursson ætlar aö leita nýrrar
vinnu. Hann er hér meö konu sinni,
Sigrúnu Magnúsdóttur.
Páll Pétursson:
Bölvað að
missa vinnuna
Páll Pétursson, fyrrverandi fé-
lagsmálaráðherra, sat síðasta ríkis-
ráðsfund sinn á Bessastöðum í gær.
Áður en hann hvarf á braut frá
Bessastöðum sagði hann að honum
væri söknuður í hjarta, nú þegar
stjómmálaafskiptum væri lokið eft-
ir langa setu á Alþingi.
„Auðvitað er það bölvað að
missa vinnuna en ég fer bara í það
að leita mér að nýrri vinnu. Ég er
enn á besta aldri og óþarfi að setj-
ast í helgan stein. Mér líst ágætlega
á eftirmann minn, Áma Magnús-
son. Þetta er vænn piltur og líkleg-
ur til þess að láta taka eftir sér í
ráðuneytinu," sagði Páll á tröppum
Bessastaða. -GG
Björn Bjarnason:
Eg fer oft
mínar leiðir
Bjöm Bjamason tók við starfi
dóms- og kirkjumálaráðherra á ríkis-
ráðsfúndinum. Hann sagði að það
væri viss áskorun að taka við þessu
ráðuneyti. Sólveig Pétursdóttir hefði
unnið að umbótum á ýmsum sviðum
auk þess sem sjálfstæðismenn hefðu
lengi haft þetta ráðuneyti, svo ekki
komi hann að tómum kofanum.
- Stundum er sagt að nýir vendir
sópi best. Verður það svo í dóms-
málaráðuneytinu?
„Stefnan er auðvitað mótuð í
stjómarsáttmálanum en við fram-
kvæmd á lögum geta menn beitt ýms-
um aðferðum. Ég fer oft mínar leiðir
í svona málum og mun vafalaust
gera á þessu sviði eins og endranær."
- Situr þú áfram í borgarstjóm?
„Já. Ekkert sem knýr mig til þess
að segja af mér sem borgarfulltrúi."
Hanna Birna Kristjánsdóttir vildi í
gær ekkert tjá sig um hver ætti að
taka við sem oddviti borgarstjórnar-
flokksins, enda hefði framhaldið ekk-
ert verið rætt. Ólafur F. Magnússon
segist telja að R-listinn muni gliöna
fari svo að Vilhjálmur Vilhjálmsson
taki við hlutverki Bjöms, vegna
tengsla Vilhjálms og Alfreðs Þor-
steinssonar. -GG/ÓTG
Lyklaskiptl í dómsmálaráöuneytinu
Björn Bjarnason er hér aö taka viö lyklunum aö dóms- og
kirkjumálaráöuneytinu úr hendi Sólveigar Pétursdóttur. Björn segist gjarnan
fara eigin leiöir
Bjartar og kátar framsóknarmaddömur
Þær Valgeröur Sverrisdóttir, iönaöar- og viöskiptaráöherra, og Siv
Friðleifsdóttir umhverfisráöherra uröu samferöa í bæinn eftir ríkisráösfundinn
á Bessastööum.
Sólveig Pétursdóttir lét í gær af
embætti dóms- og kirkjumálaráð-
herra, verður á næsta þingi 1.
varaforseti þingsins en tekur síð-
an árið 2005 við embætti forseta
Alþingis. Hún segir að það sé
vissulega söknuður að yfirgefa
þetta ráðuneyti, það hafi verið
dýrmætt að gegna stöðu dóms- og
kirkjumálaráðherra síðustu fjög-
ur ár og ánægjulegt að fá tæki-
færi til þess. Þar séu margir og
merkilegir málaflokkar sem
snerta almenning í landinu og
hún segist vona að hún hafi kom-
ið þar fram ýmsum úrbótum,
ekki síst hvað varðar réttarstöðu
og réttaröryggi. Hún segir að
þrátt fyrir allt séu tvær konur í
ríkisstjórn, hún verði forseti Al-
þingis og tvær konur verði ráð-
herrar innan tíðar úr röðum sjálf-
stæðismanna. Hlutur kvenna í
forystusveit sjálfstæðismanna sé
því að aukast.
„í þessu ráðuneyti koma flest
mál á málaskrá af öllum ráðuneyt-
um. Ég hef átt mjög ánægjulegt
samstarf við lögregluna í landinu
sem hefur náð miklum árangri og
ég vil einnig nefna baráttuna gegn
fíkniefnum. Það var stofnuð ný
björgunarmiðstöð í Skógarhlíð-
inni í Reykjavík þar sem er verið
að bæta og efla alla þætti sem
snerta öryggis- og björgunarmál. í
umferðaröryggismálum náðist
einnig merkur áfangi er sameinuð
voru Umferðarráð og Skráningar-
stofan. Það hefur í minni ráð-
herratíð verið efld refsivernd fyrir
börn gegn kynferðisbrotum og
mansali sem og hertar refsingar
gegn barnaklámi. Mörg mál sem
mér hafa verið hugleikin hafa náð
fram að ganga en ég treysti mín-
um eftirmanni, Birni Bjarnasyni,
vel til þess að taka þar vel á mál-
um.“ -GG
_>
LUJDÍJ
Verðfrá
MiinlerGufd
fimmum
5., 12. og 19. jum. Skattar tnmfaldir
SúperHopp til Salou
5., 12. og 19.júní
TERRA sJu/
NOVA Jrsái
- 25 ÁRA OG TRAUSTSINS VERO
39.900kr.
miðað við 4 í fbúð í vlku (mögul. að framlengja)
Verð frá 49.900 foT. m.v. 2-3 í íbúð í viku.
Stangarhyl 3 • 110 Beykjavik • Simi: 591 9000
info@tiirranova.is • Akureyrí Simi: 406 1600
Sólveig Pétursdóttir, veröandi forseti Alþingis:
Söknuðui* við að
yflpgela ráðuneytið