Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2003, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2003, Síða 4
Fréttir LAUGARDAGUR 24. MAÍ 2003 TTl'^Cr Fjópða ráðuneyti Davíðs Oddssonar hefur tekið við Á fundi ríkisráös á Bessastöð- um í gær féllst forseti íslands á til- lögu forsætisráðherra um að veita þriðja ráðuneyti hans lausn frá störfum. Þá féllst forseti íslands á tillögu Davíðs Oddssonar um skip- an fjórða ráðuneytis hans. Ur fyrri ríkisstjóm fara Páll Péturs- son félagsmálaráðherra, og við tekur Árni Magnússon sem verð- ur með sama ráðuneyti, og einnig Sólveig Pétursdóttir dómsmála- ráðherra, og við tekur Björn Bjarnason. Fráfarandi ríkisstjórn kom til fundar um hádegið og snæddi há- degisverð á Bessastöðum ásamt mökum. Klukkan 13.30 hófst svo fundur viðtakandi ríkisstjórnar, en skömmu áður yfirgáfu Páll og Sólveig Bessastaði en ‘Björn og Árni mættu á staðinn. Um hálf- tíma síðar tíndust svo ráðherrar burtu einn og einn í bíl, en þær stöllur Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð- herra héldu saman frá Bessastöð- um í ráðherrabíl umhverfisráðu- neytisins. -GG DV-MYNDIR GVA Samkomulag innsiglaö Davíö Oddsson forsætisráðherra og Halldór Ásgrímsson, veröandi forsætisráðherra, takast í hendur eftir ríkisráösfundinn á Bessastööum í gærdag. Missir ekki móöinn Páll Pétursson ætlar aö leita nýrrar vinnu. Hann er hér meö konu sinni, Sigrúnu Magnúsdóttur. Páll Pétursson: Bölvað að missa vinnuna Páll Pétursson, fyrrverandi fé- lagsmálaráðherra, sat síðasta ríkis- ráðsfund sinn á Bessastöðum í gær. Áður en hann hvarf á braut frá Bessastöðum sagði hann að honum væri söknuður í hjarta, nú þegar stjómmálaafskiptum væri lokið eft- ir langa setu á Alþingi. „Auðvitað er það bölvað að missa vinnuna en ég fer bara í það að leita mér að nýrri vinnu. Ég er enn á besta aldri og óþarfi að setj- ast í helgan stein. Mér líst ágætlega á eftirmann minn, Áma Magnús- son. Þetta er vænn piltur og líkleg- ur til þess að láta taka eftir sér í ráðuneytinu," sagði Páll á tröppum Bessastaða. -GG Björn Bjarnason: Eg fer oft mínar leiðir Bjöm Bjamason tók við starfi dóms- og kirkjumálaráðherra á ríkis- ráðsfúndinum. Hann sagði að það væri viss áskorun að taka við þessu ráðuneyti. Sólveig Pétursdóttir hefði unnið að umbótum á ýmsum sviðum auk þess sem sjálfstæðismenn hefðu lengi haft þetta ráðuneyti, svo ekki komi hann að tómum kofanum. - Stundum er sagt að nýir vendir sópi best. Verður það svo í dóms- málaráðuneytinu? „Stefnan er auðvitað mótuð í stjómarsáttmálanum en við fram- kvæmd á lögum geta menn beitt ýms- um aðferðum. Ég fer oft mínar leiðir í svona málum og mun vafalaust gera á þessu sviði eins og endranær." - Situr þú áfram í borgarstjóm? „Já. Ekkert sem knýr mig til þess að segja af mér sem borgarfulltrúi." Hanna Birna Kristjánsdóttir vildi í gær ekkert tjá sig um hver ætti að taka við sem oddviti borgarstjórnar- flokksins, enda hefði framhaldið ekk- ert verið rætt. Ólafur F. Magnússon segist telja að R-listinn muni gliöna fari svo að Vilhjálmur Vilhjálmsson taki við hlutverki Bjöms, vegna tengsla Vilhjálms og Alfreðs Þor- steinssonar. -GG/ÓTG Lyklaskiptl í dómsmálaráöuneytinu Björn Bjarnason er hér aö taka viö lyklunum aö dóms- og kirkjumálaráöuneytinu úr hendi Sólveigar Pétursdóttur. Björn segist gjarnan fara eigin leiöir Bjartar og kátar framsóknarmaddömur Þær Valgeröur Sverrisdóttir, iönaöar- og viöskiptaráöherra, og Siv Friðleifsdóttir umhverfisráöherra uröu samferöa í bæinn eftir ríkisráösfundinn á Bessastööum. Sólveig Pétursdóttir lét í gær af embætti dóms- og kirkjumálaráð- herra, verður á næsta þingi 1. varaforseti þingsins en tekur síð- an árið 2005 við embætti forseta Alþingis. Hún segir að það sé vissulega söknuður að yfirgefa þetta ráðuneyti, það hafi verið dýrmætt að gegna stöðu dóms- og kirkjumálaráðherra síðustu fjög- ur ár og ánægjulegt að fá tæki- færi til þess. Þar séu margir og merkilegir málaflokkar sem snerta almenning í landinu og hún segist vona að hún hafi kom- ið þar fram ýmsum úrbótum, ekki síst hvað varðar réttarstöðu og réttaröryggi. Hún segir að þrátt fyrir allt séu tvær konur í ríkisstjórn, hún verði forseti Al- þingis og tvær konur verði ráð- herrar innan tíðar úr röðum sjálf- stæðismanna. Hlutur kvenna í forystusveit sjálfstæðismanna sé því að aukast. „í þessu ráðuneyti koma flest mál á málaskrá af öllum ráðuneyt- um. Ég hef átt mjög ánægjulegt samstarf við lögregluna í landinu sem hefur náð miklum árangri og ég vil einnig nefna baráttuna gegn fíkniefnum. Það var stofnuð ný björgunarmiðstöð í Skógarhlíð- inni í Reykjavík þar sem er verið að bæta og efla alla þætti sem snerta öryggis- og björgunarmál. í umferðaröryggismálum náðist einnig merkur áfangi er sameinuð voru Umferðarráð og Skráningar- stofan. Það hefur í minni ráð- herratíð verið efld refsivernd fyrir börn gegn kynferðisbrotum og mansali sem og hertar refsingar gegn barnaklámi. Mörg mál sem mér hafa verið hugleikin hafa náð fram að ganga en ég treysti mín- um eftirmanni, Birni Bjarnasyni, vel til þess að taka þar vel á mál- um.“ -GG _> LUJDÍJ Verðfrá MiinlerGufd fimmum 5., 12. og 19. jum. Skattar tnmfaldir SúperHopp til Salou 5., 12. og 19.júní TERRA sJu/ NOVA Jrsái - 25 ÁRA OG TRAUSTSINS VERO 39.900kr. miðað við 4 í fbúð í vlku (mögul. að framlengja) Verð frá 49.900 foT. m.v. 2-3 í íbúð í viku. Stangarhyl 3 • 110 Beykjavik • Simi: 591 9000 info@tiirranova.is • Akureyrí Simi: 406 1600 Sólveig Pétursdóttir, veröandi forseti Alþingis: Söknuðui* við að yflpgela ráðuneytið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.