Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2003, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2003, Side 12
12 Helgarblað LAUGARDAGUR 24. MAÍ 2003 Hvar eru ógnarvopnin? - hver laug að leyniþjónustum og af hverju eru allar þeirra upplýsingar ekki marktækar? Hergögn á flóamarkaði Á götumörkuðum í írak eru haldnar útsölur á byssum og skotfærum sem greinilega er stolið úr vopnageymslum hers og lögreglu. Það er dæmi um mikia ringulreið og lögleysu sem veður uppi í hernumdu landi. Mótstaöan minni en ætlaö var Aðatástæða árásarinnar á írak var að koma Saddam frá völdum til að hann gæti ekki notað gereyðingarvopn sín á óvinina. En innrásarherjunum var aldrei svarað með slíkum vopnum og engin hafa fundist þrátt fyrir mikla leit. Saddam Hussein finnst hvergi, ekki synir hans né milljarðar dollara sem þeir eru sagðir hafa komið undan. Bin Laden kemur fram í sjónvarpi annað slagið með sinn boðskap þótt leyni- þjónustur heimsins viti ekki hvar hann er eða hvort hann er lífs eða lið- inn. Sprengd voru heilu fjöllin í Afganistan með ofurbombum til að út- rýma leiðtoganum en allt kom fyrir ekki. Innrásin í írak var gerð til aö koma í veg fyrir að illmennin þar beittu gereyðingarvopnum sem þeir ættu miklar birgðir af. En hvorki hef- ur fundist tangur né tetur af slíkum vopnum eftir allt bramboltið og stöðuga leit tæknivæddra sérfræð- inga. Hins vegar er stórfenglegur flóa- markaður í borgum hemumda lands- ins á hefðbundnum vopnum, svo sem hríðskotabyssum af finustu gerðum, skammbyssum og alls kyns skotvörp- um. Þar er allt á úsöluverði enda víst að kaupmennirnir hafi fengið vöruna fyrir lítið, því þama munu vera birgð- ir hers og lögreglu fyrrum einræðis- herra landsins. Þarna gera áhuga- menn um manndrápsvopn góð kaup end fylgja birgðir skotfæra með. Hópur sérfræðinga á vegum Banda- ríkjahers hefur stjómað leitinni að ólöglegum birgðum gjöreyðingar- vopna sem sagt var að Saddam hefði ráðið yfir. Ekkert hefur fundist og fer þeim stöðum fækkandi sem vænlegast þykir að leita á og er sagt að farið sé að fækka í leitarsveitunum þar sem allar vopnabirgðimar séu annaðhvort svo vel faldar að ógjömingur sé að finna þær eða að ógnin af gjöreyðing- arvopnum Saddams hafi ávallt verið orðum aukin. Leiðtogar leitarflokkanna, líffræð- ingar, efhafræðingar, sérfræðingar í meðferð kjamorkuvopna, tölvufræð- ingar og dulmálssnillingar og sér- sveitir úr hemum fylgdu innrásarlið- inu fast eftir og væntu þess að þeir mundu fljótlega finna vopnabúrin sem Colin Powell utanríkisráðherra lýsti í Öryggisráðinu í febrúar sl. þeg- ar hann var að biðja um grænt ljós til að ráðast á írak. Þar fullyrti hann að Saddam ætti hundruð tonna af efna- og sýklavopnum og bæði skammdræg- ar og langdrægar eldflaugar til að skjóta þeim og að einnig væru sann- anir fyrir að áætlanir lægju fyrir um smíði kjamorkuvopna. Hver platar hvem? Samtarfshópur sérfræðinganna mun brátt hægja á ferðinni og verður jafnvel leystur upp þar sem árangur af starfi hans er ekki annar en sá að Saddam hafði ekki yfir þeim vopnum að ráða sem hann var sakaður um. Hershöfðinginn, sem hafði yfirumsjón með leitinni, segir nú að herinn hafi tekið alvarlega aðvaranir leyniþjón- ustunnar um aö írakar ættu magn gereyðingarvopna og myndu beita þeim gegn innrásarhernum. Því voru hermennimir viðbúnir eitur- og sýklaárásum og voru íklæddir bún- ingum sem áttu að verja þá fyrir slík- um ófógnuði. En hafi íraski herinn ætlað að nota lík vopn hefði hann þurft að eiga eitthvað af þeim. Þeim var þó aldrei beitt og ekkert hefur fundist af gereyðingarvopnum eða eldflaugum til að skjóta þeim. Hers- höfðinginn tók fram að vænta mætti margra bóka um málið; hvað "hefði farið úrskeiðis og hvers vegna leyni- þjónustur gáfu svo villandi upplýsing- ar. Með því gefur hann í skyn að ein- hverjir hafi beitt blekkingum til að réttlæta árás ofurveldisins á Irak. En hver plataði hvern verður kannski upplýst í einhverjum þeirra ritverka í framtíðinni. Haft er eftir öðrum hershöfðingja að herinn hafi búist við að frnna eit- ur- og sýklahlaðninga við byssu- hreiðrin og hafi það verið ástæðan fyrir því að farið var með valdi inn í landið. En nú sé sá ótti liðin tíð. Vopnaleitarmenn höfðu ábendingar frá Washington um þá staði þar sem ólöglegu gereyðingarvopnin voru geymd. En þegar komið var að meint- um vopnabúrum var búið að brenna þar og ræna en engin merki fundust um að þar hefðu verið geymd eitur- eða sýklavopn og í öðrum tOvikum voru ábendingamar rangar. Núna eru sérfræðingamir famir að rannsaka betur þau gögn sem leyni- þjónustur færðu þeim og reyna að komast að því hvernig þau urðu tO og hverjir gáfu upplýsingarnar um vopnabirgðimar sem áttu að ógna óvinum Saddams en hvergi finnast. Ekki þar, en hvar? í byrjun innrásarinnar hafði yfir- herstjórnin lista yfir 19 vopnageymsl- ur sem álitið var að birgðir óleyfi- legra vopna væru í. Engin slik vopn hafa fundist í þeim þótt gaumgæfilega hafi verið leitað. Á öðrum lista, sem rannsóknarmenn fengu í hendur, voru tOgreind 68 dæmi um vopnabúr sem vel gætu haft eitur- og efhavopn að geyma. Lokið er við að rannsáka nær 50 þeirra nákvæmlega en engin ólögleg vopn eða eldflaugar tO að skjóta þeim hafa fundist tO þessa. Ekki er öO nótt úti enn og 1. maí sl. lýsti Bush forseti yfir sigri og tO- kynnti að hafin væri leit að fóldum efna- og sýklavopnum og vísbending- ar væru um hundruð staða sem yrðu rannsakaðir. Aðstoðarvamarmálaráðherra sá sem fer með málefni leyniþjónustu hersins tOkynnti nýlega að aðeins væri lokið við að rannsaka' 70 af um 600 líklegum geymslustöðum ólög- legra vopna sem herinn hafði upplýs- ingar um áður én stríðsaðgerðir hófust. Foringi úrvalssveita, sem fara um, lætur hafa eftir sér að það sé næsta óþarft að leita ólöglegra vopna á þeim stöðum sem upplýsingar eru gefnar um að þau sé að finna. Við vitum að þar eru þau ekki. Nær væri að þefa þau uppi á stöðum þar sem enginn hefur vísað á þau. Leitarflokkar hafa finkembt rann- sóknarstofur, hergagnaverksmiðjur, neðanjarðarbyrgi og spíraverksmiðj- ur, bakarí, lyfjaverksmiðjur og skjala- geymslur og grafið niður í jörðina þar sem einhverjir hafa vísað á liklega Ef engin eitur- og sýkla- vopn finnast verður að gefa nýjar og haldgóðar skýringar á nauðsyn þess að hernema írak. En ekki er öll nótt úti enn og Bush forseti er þess full- viss að þau sé að finna á hundruðum felustaða. Tæknivœddar sérfrœð- ingasveitir finna þó eng- in merki um ólögleg vopn né eldflaugar til að flytja þau á áfangastaði. geymslustaði. Flestar koma ábending- arnar frá leyniþjónustum og eru merktar sem trúnaðarmál. Bush forseti hefur á orði að koma á fót fjölmenhari leitarsveitum, en þær sem tO þessa hafa starfað eru aö gef- ast upp því þær eru orðnar uppi- skroppa með verkefhi. Sérstakur hópur kjarnorkufræð- inga, sem leitað hafa atómvopna eða efna tO að búa þau tO, er nú á heim- leið. Þriðjungur þeirra sem í hópnum voru er þegar kominn heim og helm- ingur þeirra sem eftir eru í írak mun fara þaðan bráðlega. Þeir sem harðast gagnrýna árang- ursleysið við að fmna bönnuð vopn og þá villutrú að nauðsynlegt hafi verið að hernema landið og afvopna heri Saddams útOoka ekki að enn kunni eitur- og efnavopn að koma í leitimar og jafnvel efni tO atómbombugerðar. En hvar þau leynast og hvernig stend- ur á að enginn getur vísað á neitt af þeim hundruðum tonna af eiturefnum sem sögð eru vera í vopnabúrum er hulin ráðgáta. Vopnabúr og hergögn herja fyrri stjómar eru fundin. En miklu er búið að stela úr þeim og ganga minni hátt- ar vopn kaupum og sölum, sem fyrr segir. Hitt er með ólíkindum ef hægt er að smygla langdrægum eldflaugum út úr herstöðvum eða mOli land- svæða, eða geislavirkum efnum í stór- um stO og hundruðum tonna af hættu- legum veiram og eiturefnum sem ekki þarf nema nokkur grömm af tO að verða fjölda manns að aldurtOa. Séu þær upplýsingar réttar sem æðstu menn Bandaríkjanna halda staðfastlega fram aðfi réttlæti einar mestu árásir hersögunnar og hemám lands og þjóðar á viðkvæmu hættu- svæði, að Saddam og her hans hafi búið yfir gífurlega öflugum og ólögleg- um ógnarvopnum, þá má spyrja nú hvort hættan hafi minnkað. Hafi þeir Bush og PoweO réttar upplýsingar um vopnabirgðirnar hljóta þær að finnast, vonandi ónotað- ar. En séu þær ekki tO hljóta þen- að gefa nýjar og haldgóðar skýringar á hemámi landsins á mOli fljótanna, þar sem kennt er í skólabókum að menningin eigi upptök sín. (Heimild m.a. sótt í The Washington Post) Erlendar fréttir vikunn Mannskæður jarðskjálfti Gífurlegur jarð- skjálfti í norðan- verðu Alsír á mið- vikudag varð rúm- lega eitt þúsund manns að bana og oUi mikOli eyði- leggingu á mann- virkjum við Mið- jarðarhafsströnd landsins. Tugir þúsunda Alsírbúa hafa hafst við ut- andyra síðan skjálftinn, sem mæld- ist 6,7 stig á Richter, reið yfir höf- uðborgina Algeirsborg og nágrenni. MikOl íjöldi manna slasaðist og höfðu sjúkrahús ekki undan við að sinna þeim. Norðmenn í skotlínunni Það varð uppi fótur og fit í Nor- egi í vikunni þegar hægri hönd hryðjuverkaforingjans Osama bin Ladens skoraði á múslíma að ráð- ast gegn vestrænum skotmörkum, þar á meðal norskum sendiráðum og fyrirtækjum í löndum múslíma. Bondevik forsætisráðherra sagði að hótanimar væru teknar alvarlega og voru Norðmenn hvattir tO að hafa allan vara á. Fréttaskýrendur töldu í fyrstu að al-Qaeda menn hefðu ruglast í landafræðinni og hefðu ætlað að hafa Danmörku á nýjasta lista sínum yfir skotmörk, þar sem Danir voru dyggir stuðn- ingsmenn stríðsins í Irak. Nú er talið að ástæðuna megi rekja tO múslímaklerks sem norsk yfirvöld ætla að sækja tO saka. Bush fékk meirihluta í SÞ George W. Bush Bandaríkjafor- seti gaf nægOega eftir I Öryggisráði SÞ tO þess að það samþykkti mótat- kvæðalaust ályktun hans um endurreisn- arstarfið í írak og af- nám refsiaðgerða SÞ frá 1990. Frakkar og aðrir andstæðingar ik höfðu krafist þess að breytingar yrðu gerðar á upp- haflegu drögunum og var orðið við því. Ályktunin veitir Bandaríkja- mönnum og Bretum víðtæk völd við endurreisnarstarfið og þeir munu ráða hvemig tekjum af olíu- sölu íraka verður varið tO upp- byggingarinnar. Ráðist á uppreisnarmenn Stjómarherinn í Indónesíu hóf stór- sókn gegn uppsreisn- ar- og aðskilnaðar- sinnum í Aceh-héraði í norðvesturhluta landsins í vikubyrj- im. Fyrirhugaðar friðarviðræður deOenda í Japan fóru út um þúfur þegar fuOtrúar upp- reisnarmanna á leið á fundinn voru hnepptir í varðhald. Aðgerðimar í Aceh eru hinar mestu sem Indónesíuher hefur ráðist í frá þvi hann réðst inn í Austur-Tímor fyrir tæpum þrjátíu árum. Indónesískur herforingi viðurkenndi um miðja viku að uppreisnarmennirnir yrðu ekki jafnauðveld bráð og íraksher reyndist Bandaríkjamönnum og Bret- um í stríðinu gegn Saddam Hussein. Sigur fyrir Thule-menn Fyrmm starfsmenn í bandarísku herstöðinni í Thule á Grænlandi unnu merkan áfangasigur í baráttu sinni við dönsk stjómvöld þegar Evr- ópusambandiö ákvað að rannsaka mál þeirra. Starfsmennirnir sem um ræðir hreinsuðu brak bandarískrar herflugvélar sem fórst við Thule 1968 með kjamorkuvopn um borð. Dönsk yfirvöld hafa aldrei vOjað rannsaka hvers vegna krabbamein og fleiri al- varlegir sjúkdómar eru algengari hjá þessum mönnum en öðrum. Sharon styöur Vegvísi Ariel Sharon, forsætisráðherra ísraels, hefur lýst yfir stuðningi sín- um við svokaOaðan Vegvísi að friði fyrir botni Miðjarðarhafs, með sem- ingi þó. Það þýðir að ísraelar faOast ekki á alla liði friöaráætlunarinnar sem Bush Bandaríkjaforseti hefur lagt mOda áherslu á að nái fram að ganga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.