Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2003, Qupperneq 12
12
Helgarblað
LAUGARDAGUR 24. MAÍ 2003
Hvar eru ógnarvopnin?
- hver laug að leyniþjónustum og af hverju eru allar þeirra upplýsingar ekki marktækar?
Hergögn á flóamarkaði
Á götumörkuðum í írak eru haldnar útsölur á byssum og skotfærum sem greinilega er stolið úr vopnageymslum hers
og lögreglu. Það er dæmi um mikia ringulreið og lögleysu sem veður uppi í hernumdu landi.
Mótstaöan minni en ætlaö var
Aðatástæða árásarinnar á írak var að koma Saddam frá völdum til að hann
gæti ekki notað gereyðingarvopn sín á óvinina. En innrásarherjunum var
aldrei svarað með slíkum vopnum og engin hafa fundist þrátt fyrir mikla leit.
Saddam Hussein finnst hvergi, ekki
synir hans né milljarðar dollara sem
þeir eru sagðir hafa komið undan. Bin
Laden kemur fram í sjónvarpi annað
slagið með sinn boðskap þótt leyni-
þjónustur heimsins viti ekki hvar
hann er eða hvort hann er lífs eða lið-
inn. Sprengd voru heilu fjöllin í
Afganistan með ofurbombum til að út-
rýma leiðtoganum en allt kom fyrir
ekki. Innrásin í írak var gerð til aö
koma í veg fyrir að illmennin þar
beittu gereyðingarvopnum sem þeir
ættu miklar birgðir af. En hvorki hef-
ur fundist tangur né tetur af slíkum
vopnum eftir allt bramboltið og
stöðuga leit tæknivæddra sérfræð-
inga.
Hins vegar er stórfenglegur flóa-
markaður í borgum hemumda lands-
ins á hefðbundnum vopnum, svo sem
hríðskotabyssum af finustu gerðum,
skammbyssum og alls kyns skotvörp-
um. Þar er allt á úsöluverði enda víst
að kaupmennirnir hafi fengið vöruna
fyrir lítið, því þama munu vera birgð-
ir hers og lögreglu fyrrum einræðis-
herra landsins. Þarna gera áhuga-
menn um manndrápsvopn góð kaup
end fylgja birgðir skotfæra með.
Hópur sérfræðinga á vegum Banda-
ríkjahers hefur stjómað leitinni að
ólöglegum birgðum gjöreyðingar-
vopna sem sagt var að Saddam hefði
ráðið yfir. Ekkert hefur fundist og fer
þeim stöðum fækkandi sem vænlegast
þykir að leita á og er sagt að farið sé
að fækka í leitarsveitunum þar sem
allar vopnabirgðimar séu annaðhvort
svo vel faldar að ógjömingur sé að
finna þær eða að ógnin af gjöreyðing-
arvopnum Saddams hafi ávallt verið
orðum aukin.
Leiðtogar leitarflokkanna, líffræð-
ingar, efhafræðingar, sérfræðingar í
meðferð kjamorkuvopna, tölvufræð-
ingar og dulmálssnillingar og sér-
sveitir úr hemum fylgdu innrásarlið-
inu fast eftir og væntu þess að þeir
mundu fljótlega finna vopnabúrin
sem Colin Powell utanríkisráðherra
lýsti í Öryggisráðinu í febrúar sl. þeg-
ar hann var að biðja um grænt ljós til
að ráðast á írak. Þar fullyrti hann að
Saddam ætti hundruð tonna af efna-
og sýklavopnum og bæði skammdræg-
ar og langdrægar eldflaugar til að
skjóta þeim og að einnig væru sann-
anir fyrir að áætlanir lægju fyrir um
smíði kjamorkuvopna.
Hver platar hvem?
Samtarfshópur sérfræðinganna
mun brátt hægja á ferðinni og verður
jafnvel leystur upp þar sem árangur
af starfi hans er ekki annar en sá að
Saddam hafði ekki yfir þeim vopnum
að ráða sem hann var sakaður um.
Hershöfðinginn, sem hafði yfirumsjón
með leitinni, segir nú að herinn hafi
tekið alvarlega aðvaranir leyniþjón-
ustunnar um aö írakar ættu magn
gereyðingarvopna og myndu beita
þeim gegn innrásarhernum. Því voru
hermennimir viðbúnir eitur- og
sýklaárásum og voru íklæddir bún-
ingum sem áttu að verja þá fyrir slík-
um ófógnuði. En hafi íraski herinn
ætlað að nota lík vopn hefði hann
þurft að eiga eitthvað af þeim. Þeim
var þó aldrei beitt og ekkert hefur
fundist af gereyðingarvopnum eða
eldflaugum til að skjóta þeim. Hers-
höfðinginn tók fram að vænta mætti
margra bóka um málið; hvað "hefði
farið úrskeiðis og hvers vegna leyni-
þjónustur gáfu svo villandi upplýsing-
ar. Með því gefur hann í skyn að ein-
hverjir hafi beitt blekkingum til að
réttlæta árás ofurveldisins á Irak. En
hver plataði hvern verður kannski
upplýst í einhverjum þeirra ritverka í
framtíðinni.
Haft er eftir öðrum hershöfðingja
að herinn hafi búist við að frnna eit-
ur- og sýklahlaðninga við byssu-
hreiðrin og hafi það verið ástæðan
fyrir því að farið var með valdi inn í
landið. En nú sé sá ótti liðin tíð.
Vopnaleitarmenn höfðu ábendingar
frá Washington um þá staði þar sem
ólöglegu gereyðingarvopnin voru
geymd. En þegar komið var að meint-
um vopnabúrum var búið að brenna
þar og ræna en engin merki fundust
um að þar hefðu verið geymd eitur-
eða sýklavopn og í öðrum tOvikum
voru ábendingamar rangar.
Núna eru sérfræðingamir famir að
rannsaka betur þau gögn sem leyni-
þjónustur færðu þeim og reyna að
komast að því hvernig þau urðu tO og
hverjir gáfu upplýsingarnar um
vopnabirgðimar sem áttu að ógna
óvinum Saddams en hvergi finnast.
Ekki þar, en hvar?
í byrjun innrásarinnar hafði yfir-
herstjórnin lista yfir 19 vopnageymsl-
ur sem álitið var að birgðir óleyfi-
legra vopna væru í. Engin slik vopn
hafa fundist í þeim þótt gaumgæfilega
hafi verið leitað. Á öðrum lista, sem
rannsóknarmenn fengu í hendur,
voru tOgreind 68 dæmi um vopnabúr
sem vel gætu haft eitur- og efhavopn
að geyma. Lokið er við að rannsáka
nær 50 þeirra nákvæmlega en engin
ólögleg vopn eða eldflaugar tO að
skjóta þeim hafa fundist tO þessa.
Ekki er öO nótt úti enn og 1. maí sl.
lýsti Bush forseti yfir sigri og tO-
kynnti að hafin væri leit að fóldum
efna- og sýklavopnum og vísbending-
ar væru um hundruð staða sem yrðu
rannsakaðir.
Aðstoðarvamarmálaráðherra sá
sem fer með málefni leyniþjónustu
hersins tOkynnti nýlega að aðeins
væri lokið við að rannsaka' 70 af um
600 líklegum geymslustöðum ólög-
legra vopna sem herinn hafði upplýs-
ingar um áður én stríðsaðgerðir
hófust.
Foringi úrvalssveita, sem fara um,
lætur hafa eftir sér að það sé næsta
óþarft að leita ólöglegra vopna á þeim
stöðum sem upplýsingar eru gefnar
um að þau sé að finna. Við vitum að
þar eru þau ekki. Nær væri að þefa
þau uppi á stöðum þar sem enginn
hefur vísað á þau.
Leitarflokkar hafa finkembt rann-
sóknarstofur, hergagnaverksmiðjur,
neðanjarðarbyrgi og spíraverksmiðj-
ur, bakarí, lyfjaverksmiðjur og skjala-
geymslur og grafið niður í jörðina þar
sem einhverjir hafa vísað á liklega
Ef engin eitur- og sýkla-
vopn finnast verður að
gefa nýjar og haldgóðar
skýringar á nauðsyn þess
að hernema írak. En ekki
er öll nótt úti enn og
Bush forseti er þess full-
viss að þau sé að finna á
hundruðum felustaða.
Tæknivœddar sérfrœð-
ingasveitir finna þó eng-
in merki um ólögleg vopn
né eldflaugar til að flytja
þau á áfangastaði.
geymslustaði. Flestar koma ábending-
arnar frá leyniþjónustum og eru
merktar sem trúnaðarmál.
Bush forseti hefur á orði að koma á
fót fjölmenhari leitarsveitum, en þær
sem tO þessa hafa starfað eru aö gef-
ast upp því þær eru orðnar uppi-
skroppa með verkefhi.
Sérstakur hópur kjarnorkufræð-
inga, sem leitað hafa atómvopna eða
efna tO að búa þau tO, er nú á heim-
leið. Þriðjungur þeirra sem í hópnum
voru er þegar kominn heim og helm-
ingur þeirra sem eftir eru í írak mun
fara þaðan bráðlega.
Þeir sem harðast gagnrýna árang-
ursleysið við að fmna bönnuð vopn og
þá villutrú að nauðsynlegt hafi verið
að hernema landið og afvopna heri
Saddams útOoka ekki að enn kunni
eitur- og efnavopn að koma í leitimar
og jafnvel efni tO atómbombugerðar.
En hvar þau leynast og hvernig stend-
ur á að enginn getur vísað á neitt af
þeim hundruðum tonna af eiturefnum
sem sögð eru vera í vopnabúrum er
hulin ráðgáta.
Vopnabúr og hergögn herja fyrri
stjómar eru fundin. En miklu er búið
að stela úr þeim og ganga minni hátt-
ar vopn kaupum og sölum, sem fyrr
segir. Hitt er með ólíkindum ef hægt
er að smygla langdrægum eldflaugum
út úr herstöðvum eða mOli land-
svæða, eða geislavirkum efnum í stór-
um stO og hundruðum tonna af hættu-
legum veiram og eiturefnum sem ekki
þarf nema nokkur grömm af tO að
verða fjölda manns að aldurtOa.
Séu þær upplýsingar réttar sem
æðstu menn Bandaríkjanna halda
staðfastlega fram aðfi réttlæti einar
mestu árásir hersögunnar og hemám
lands og þjóðar á viðkvæmu hættu-
svæði, að Saddam og her hans hafi
búið yfir gífurlega öflugum og ólögleg-
um ógnarvopnum, þá má spyrja nú
hvort hættan hafi minnkað.
Hafi þeir Bush og PoweO réttar
upplýsingar um vopnabirgðirnar
hljóta þær að finnast, vonandi ónotað-
ar. En séu þær ekki tO hljóta þen- að
gefa nýjar og haldgóðar skýringar á
hemámi landsins á mOli fljótanna,
þar sem kennt er í skólabókum að
menningin eigi upptök sín.
(Heimild m.a. sótt í
The Washington Post)
Erlendar fréttir vikunn
Mannskæður jarðskjálfti
Gífurlegur jarð-
skjálfti í norðan-
verðu Alsír á mið-
vikudag varð rúm-
lega eitt þúsund
manns að bana og
oUi mikOli eyði-
leggingu á mann-
virkjum við Mið-
jarðarhafsströnd landsins. Tugir
þúsunda Alsírbúa hafa hafst við ut-
andyra síðan skjálftinn, sem mæld-
ist 6,7 stig á Richter, reið yfir höf-
uðborgina Algeirsborg og nágrenni.
MikOl íjöldi manna slasaðist og
höfðu sjúkrahús ekki undan við að
sinna þeim.
Norðmenn í skotlínunni
Það varð uppi fótur og fit í Nor-
egi í vikunni þegar hægri hönd
hryðjuverkaforingjans Osama bin
Ladens skoraði á múslíma að ráð-
ast gegn vestrænum skotmörkum,
þar á meðal norskum sendiráðum
og fyrirtækjum í löndum múslíma.
Bondevik forsætisráðherra sagði að
hótanimar væru teknar alvarlega
og voru Norðmenn hvattir tO að
hafa allan vara á. Fréttaskýrendur
töldu í fyrstu að al-Qaeda menn
hefðu ruglast í landafræðinni og
hefðu ætlað að hafa Danmörku á
nýjasta lista sínum yfir skotmörk,
þar sem Danir voru dyggir stuðn-
ingsmenn stríðsins í Irak. Nú er
talið að ástæðuna megi rekja tO
múslímaklerks sem norsk yfirvöld
ætla að sækja tO saka.
Bush fékk meirihluta í SÞ
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti gaf nægOega eftir I Öryggisráði
SÞ tO þess að það
samþykkti mótat-
kvæðalaust ályktun
hans um endurreisn-
arstarfið í írak og af-
nám refsiaðgerða SÞ
frá 1990. Frakkar og
aðrir andstæðingar
ik höfðu krafist þess
að breytingar yrðu gerðar á upp-
haflegu drögunum og var orðið við
því. Ályktunin veitir Bandaríkja-
mönnum og Bretum víðtæk völd
við endurreisnarstarfið og þeir
munu ráða hvemig tekjum af olíu-
sölu íraka verður varið tO upp-
byggingarinnar.
Ráðist á uppreisnarmenn
Stjómarherinn í
Indónesíu hóf stór-
sókn gegn uppsreisn-
ar- og aðskilnaðar-
sinnum í Aceh-héraði
í norðvesturhluta
landsins í vikubyrj-
im. Fyrirhugaðar
friðarviðræður deOenda í Japan fóru
út um þúfur þegar fuOtrúar upp-
reisnarmanna á leið á fundinn voru
hnepptir í varðhald. Aðgerðimar í
Aceh eru hinar mestu sem
Indónesíuher hefur ráðist í frá þvi
hann réðst inn í Austur-Tímor fyrir
tæpum þrjátíu árum. Indónesískur
herforingi viðurkenndi um miðja
viku að uppreisnarmennirnir yrðu
ekki jafnauðveld bráð og íraksher
reyndist Bandaríkjamönnum og Bret-
um í stríðinu gegn Saddam Hussein.
Sigur fyrir Thule-menn
Fyrmm starfsmenn í bandarísku
herstöðinni í Thule á Grænlandi
unnu merkan áfangasigur í baráttu
sinni við dönsk stjómvöld þegar Evr-
ópusambandiö ákvað að rannsaka
mál þeirra. Starfsmennirnir sem um
ræðir hreinsuðu brak bandarískrar
herflugvélar sem fórst við Thule 1968
með kjamorkuvopn um borð. Dönsk
yfirvöld hafa aldrei vOjað rannsaka
hvers vegna krabbamein og fleiri al-
varlegir sjúkdómar eru algengari hjá
þessum mönnum en öðrum.
Sharon styöur Vegvísi
Ariel Sharon, forsætisráðherra
ísraels, hefur lýst yfir stuðningi sín-
um við svokaOaðan Vegvísi að friði
fyrir botni Miðjarðarhafs, með sem-
ingi þó. Það þýðir að ísraelar faOast
ekki á alla liði friöaráætlunarinnar
sem Bush Bandaríkjaforseti hefur
lagt mOda áherslu á að nái fram að
ganga.