Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2003, Qupperneq 16
16
LAUGARDAGUR 24. MAÍ 2003
JOV
Helgarblað
Georgiana og Díana, frænkur sem brutu gegn ýmsum boöum þjóöféiagsins og liföu hneykslanlegu lífi,
aö áliti margra samtíðarmanna þeirra. Ævisögur þessara sjálfstæðu kvenna hafa vaklð nokkra athygli.
Sjálfstæðar frænkur
Síðustu árin hefur mikil gróska veriö i breskri ævisagna-
ritun þar sem rýnt er í líf kvenna á liönum öldum. Am-
anda Foreman hefur hlotið mikiö lof fyrir ævisögu sína
um Georgiönu hertogaynju og Carola Hicks hefur einnig
fengiö góða dóma fyrir bók sína um frænku Georgiönu,
laföi Díönu Beauclerk.
Bók Amöndu Foreman kom út árið 1998 og
fékk Whitbread-verðlaunin það sama ár sem
besta breska ævisagan. Amanda var þá einung-
is þrítug, doktor í breskri 18. aldar sögu og er
bókin hennar fyrsta. Viðfangsefnið er ekki af
verri endanum, Georgiana Spencer, formóðir
Díönu prinsessu af Wales. Georgiana var á
sinni tíð tískudrottning aðalsins, mikið sam-
kvæmisljón, vinkona hinnar ógæfusömu
frönsku drottningar Marie Antoinette og hafði
þó nokkur ítök í Whig-flokknum, sem var for-
veri Frjálslynda flokksins þar í landi. Einkalíf
hennar var með miklum ósköpum, eins og lýst
er í bókinni.
Um Georgiönu var sagt aö þegar hún birtist
væru allra augu á henni og þegar hún væri
ekki viðstödd væru allir að tala um hana. Hún
fæddist á ættaróðali Spencer-anna, Althorp,
árið 1757, dóttir auðugra foreldra. Sautján ára
giftist hún hinum tuttugu og fimm ára hertoga
af Devonshire, sem hún þekkti sáralítið. Strax
eftir giftingu komst Georgiana að því að mað-
ur hennar hafði engan áhuga á henni, enda
hafði hann nýlega eignast bam með ástkonu
sinni. Einhver sagði að það væri sérkennilegt
að eini maðurinn á Englandi sem ekki væri
ástfanginn af Georginu væri eiginmaður henn-
ar. Eitt sinn kom Georgiana að manni sínum
þar sem hann var að drekka te í borðstofunni
ásamt fjölskylduvinum. Hún gekk til hans og
settist í kjöltu hans. Orðalaust hratt hann
henni burt og gekk út úr herberginu.
Mótaði tískuna
Georgiana einbeitti sér að samkvæmislífmu
og mótaði tísku aðalskvenna. Á þessum tíma
var það siður kvenna að greiða hárið hátt upp
en Georgiana gekk lengra, fékk sér háar hár-
kollur, tæplega eins metra, og skreytti með
blómum, gerviávötxum og fleira. Það tók tvær
hárgreiðslukonur nokkrar klukkustundir að
koma kollunum og skreytingunum fyrir en það
kom ekki í veg fyrir að aðalskonur þessa tíma
færu að dæmi Georgiönu. Konur sem báru
þessar kollur gátu einungis gengið mjög hægt
og þegar þær ferðuðust í vögnum gátu þær,
vegna höfuðhæðarinnar, ekki setið í sætum
heldur urðu að sitja á gólflnu.
Áhugavert þríeyki
Georgiana var forfallinn spilafíkill og kom
sér hvað eftir annað í slæmar spilaskuldir.
Hún var taugabiluð og svelti sig en gafst síðan
upp og át þar til hún kastaði upp. Þessar
slæmu matarvenjur settu mark sitt á heilsu
hennar. Hún eignaðist þrjú börn með manni
sínum eftir að hafa hvað eftir annað misst fóst-
ur. Sérkennileg staða kom upp í hjónabandi
hennar því eiginmaðurinn hafði gert bestu vin-
konu hennar, Bess, að ástkonu sinni. Þríeykið
bjó árum saman undir sama þaki og samband-
iö hefur heillað nútíma sagnfræðinga því á síð-
ustu tuttugu árum hafa að minnsta kosti þrjár
bækur verið skrifaðar um það. Georgiana átti
elskhuga utan hjónabands og þegar hún varð
bamshafandi eftir elskhuga sinn setti eigin-
maðurinn henni þá kosti að annaðhvort afneit-
aði hún elskhuga sínum og setti barn þeirra í
fóstur eða hann myndi skilja viö hana og hún
sæi börnin sín þrjú aldrei aftur. Georgiana
valdi þann kost að slíta sambandinu við elsk-
huga sinn og koma dóttur þeirra í fóstur.
Georgiana varð fyrst kvenna á Bretlandi til
að taka þátt í kosningabaráttu. Hún var eld-
heitur stuðningsmaður Whig-anna, fór út á göt-
ur og talaði við kjósendur og sýndi lifandi
áhuga á lífi þeirra og skoðunum. En aðferðir
hennar við atkvæðaveiðar voru of nútímlegar
fyrir 18. aldar þjóðfélagið og vöktu harða gagn-
rýni og mótmæli og eftir það var Georgiönu
meinað að beita sér í frekari kosningabaráttu.
Georgiana lést árið 1806.
Listræn aðalskona
Lafði Diana Spencer, alnafna Díönu
prinsessu, var frænka Georgiönu og nokkuð
eldri en hún. Carola Hicks hefur skrifað ævi-
sögu hennar sem kom út árið 2001. Díana fædd-
ist árið 1735, elsta dóttir hertogans af Marl-
borough. Hún giftist rúmlega tvítug Boling-
broke greifa. Hún fæddi honum tvo syni og
dóttur sem lést fimm mánaða. Hjónaband
Díönu var ekki hamingjusamt og hún varð ást-
fangin af Topham Beauclerk, aðalsmanni sem
var fjórum árum yngri en hún. Hún varð
barnshafandi eftir hann og fæddi dóttur þeirra.
Eftir það var hjónaskilnaður óumflýjanlegur
en þeir voru ekki algengir á þessum tíma. Hún
giftist Topham og fæddi aðra dóttur tólf mán-
uðum eftir brúðkaupið og síðan son.
Vinahópur þeirra hjóna samanstóð af lista-
mönnum og Díana var sjálf afar listræn, teikn-
aði og málaði og hannaði skreytingar á bolla og
skálar og alls kyns listmuni. Hún fékkst einnig
við myndskreytingar á bókum. Meðal verka
hennar var mynd af hinni ungu frænku henn-
ar, Georgiönu, hertogaynju af Devonshire.
Gerðar voru eftirprentanir af myndinni sem
aðallinn keypti grimmt. Einn besti vinur
Díönu var gagnrýnandinn Horace Walpole og
það var ekki síst hann sem sá um að koma
verkum hennar á framfæri og bar lof á þau á
prenti.
Díana hafði fómað miklu þegar hún yfirgaf
eiginmann sinn til að giftast Topham. Sam-
band þeirra varð þó með tímanum jafn slæmt
og fyrra hjónaband hennar. Topham lést rúm-
lega fertugur að aldri eftir erfið veikindi sem
höfðu lamað andlega heilsu hans.
Ástir hálfsystkina
Líf Díönu hafði verið markað af hneykslis-
málum en versta áfallið var þegar elsti sonur
hennar, George, sem var kvæntur og þriggja
barna faðir, varð ástfanginn af Mary hálfsyst-
ur sinni sem fæddi honum tvo syni með mik-
illi leynd. Þegar Mary varð bamshafandi í
þriðja sinn ákváðu elskendurnir að strjúka.
Mary skrifaði móður sinni og sagði henni alla
söguna og jafnframt að ekkert þýddi að hefja
leit að þeim George því þau hefðu breytt nöfn-
um sínum og ætluðu að eyða ævinni erlendis.
Hálfsystkinin eignuðust saman tvo syni til við-
bótar en samband þeirra átti ekki framtíð fyr-
ir sér og George yfirgaf Mary til að strjúka með
enn annarri konu. Mary sneri loks aftur til
móður sinnar, án sona sinna. Tveir kimna að
hafa látist og haldið er að George hafi tekið
aðra tvo að sér þegar hann flutti með nýrri ást-
konu til Bandaríkjanna. Mary giftist Þjóðverja,
flutti með honum til Þýskalands og skildi dótt-
ur þeirra eftir hjá Díönu. Díana lést árið 1808
eftir kvalafull veikindi.
Bókalisti IVIáls & Menningar
Allar bækur
1. Lost in lceland. Siqurqeir Siqurjónsson___
2. Ferðakort MM._____________________________
3. Synir duftsins. Arnaldur Indriðason_______
4. Ég lifi. Martin Gray______________________
5. Kortabók MM.______________________________
6. Island í aldanna rás - pakki. Illuqi Jökulsson
7. Snúður og Snaelda. Pierre Probst__________
8. Learning lcelandic. Auður Einarsdóttir____
9. Ferðakort 2003. Landmælinqar
10. Reisubók Guðríðar Simonardóttur.
Steinunn Jóhannesdóttir
Skáldverlc:
1. Synir duftsins. Arnaldur Indriðason
2. Reisubók Guðriðar Símonardóttur.
Steinunn Jóhannesdóttir___________________
3. Rokkað í Vittula. Mikael Niemi_________
4. Mýrin. Arnaldur Indriðason
5. Napóleonsskjölin. Arnaldur Indriðason
6. Fyrstur til að deyja. James Patterson
7. Grafarþðgn. Arnaldur Indriðason________
8. Óvinafagnaður. Einar Kárason
9. Hvar sem ég verð. Inqibjórq Haraldsdóttir
10. Dauðarósir. Arnaldur Indriðason
Hrifnæmur lesandi
Hreinn Hreinsson segir frá uppáhaldsbókum sínum.
„Ég á mér margar uppáhalds-
bækur enda er ég frekar hrif-
næmur og nýt þess sem ég er að
lesa á hverjum tíma. í því ljósi
hlýt ég að byrja á þeirri bók sem
ég var að klára en hún heitir Life
of Pi og er eftir Yann Martel sem
mér skilst að sé að koma í heim-
sókn hingað til lands í haust.
Bókin fjallar um strák sem elst
upp í dýragarði á Indlandi og
lendir í því að veröa skipreika í
björgunarbáti með tígrisdýri, hý-
enu og fótbrotnum sebrahesti.
Þar á undan las ég Gæludýrin
eftir Braga Ólafsson sem mér
fannst ansi skemmtileg.
Ég var líka að klára bókina About a Boy eft-
ir Nick Hornby sem er ágæt lýsing á póst-
módemísku tilgangsleysi piparsveins í London
um það leyti sem Kurt Kobain var að syngja
sitt síðasta. Get heldur ekki stillt mig um að
nefna Rokkað í Vittula eftir Mikael Niemi, sem
er víst líka að koma í haust, en sú bók er frá-
bær lýsing á karlmönnum við norðurheim-
skaut - ég veit líka hvað Vittu þýðir og finnst
undarlegt að ekki skuli hafa ver-
ið gerð tilraun til að íslenska
nafnið betur.
Mér finnst voða erfitt að til-
nefna einhverja „all time“ uppá-
haldsbók og veit ekki hvaða
mælikvarða ég ætti að nota. Ef
ég rifja upp hvaða bók ég hef les-
ið oftast þá eru það smásagna-
bækur Þórarins Eldjárns enda
get ég rakið söguþráð margra
þeirra aftur á bak og áfram.
Beloved eftir Toni Morrison
hafði mikil áhrif á mig, ég var
raunar mörg ár að klára hana
því mér fannst svo erfitt að lesa
hana. Get heldur ekki stillt mig um að nefna
Eyju Múmínpabba eftir Tove Jansson, sem er
einhver besta lýsing á hinum týnda nútíma-
manni sem ég hef lesið, en sögur Tove Jansson
voru einmitt teknar fyrir í bókmenntaklúbbn-
um Æskunni sem ég er svo lánsamur aö vera í.
Er í hálfgerðum vandræðum núna af því ég
er ekki enn þá búinn að finna næstu bók til að
byrja á en það fer örugglega vel og eru allar
hugmyndir vel þegnar."
Dúndrandi
klassík
Kantaraborgarsögur
eftir Geoffrey Chaucer
Þetta fræga 14.
aldar rit Chaucers
er gríðarlega
skemmtilegt af-
lestrar, fullt af æv-
intýralegri •
spennu og gáska-
fullum húmor.
Dúndrandi
klassík í þýðingu Erlings E. Hall-
dórssonar. Hópur fólks er í píla-
grímsferð og styttir sér stimdir
með því að keppa um hver geti
sagt bestu söguna. Fjölbreyttar
sögur við allra hæfi - meira að
segja klámhundarnir geta ekki
kvartað undan því að bókmennta-
þörf þeirra sé ekki sinnt.
Aukin tortryggni í
veröldinni stafar aðallega
afþví að fólk hefiir fengið
œ fleiri tœkifœri til að
kynnast.
Noel Coward
Bókalisti Eymundssonai
ALLAR BÆKUR
1. Synir duftsins. Arnaldur Ind-
riðason
2. Reisubók Guðríðar Símonar-
dóttur. Steinunn Jóhannesdóttir
3. Ljósbrot.
Símon Jón Jóhannsson tók saman
4. Ég lifi. Martin Gray - Max
Gallo skráði
5. Mýrin. Arnaldur Indriðason
6. fsland (aldanna rás - pakki.
Illuqijökulsson
7. Leggðu rækt við sjálfan þig.
Anna Valdimarsdóttir
8. Napóleonsskjölin.
Arnaldur Indriðason
9. Ég er hann Diego.
Dieqo Maradona
10. Töfrar 1-2-3.
Thomas W. Phelan
SKÁLDVERK
1. Synir duftsins.
Arnaldur Indriðason
2. Reisubók Guðríðar Símonar-
dóttur. Steinunn Jóhannesdóttir
3. Mýrin. Arnaldur Indriðason
4. Napóleonsskjölin. Arnaldur
Indriðason
5. Hvar sem ég verð. Inqibjörq Haraldsdóttir
6. Fyrstur til að deyja. James Patterson
7. Steinn Steinarr - Lióðasafn.
8. Rokkað í Vittula. Michael Niemi
9. Ljóðasafn Tómasar Guð-
mundssonar
10. Grafarþögn. Arnaldur Indriða-
son
BARNABÆKUR
1. Herra Fyndinn. Roqer Harqreaves
2. Herra Sterkur. Roqer Harqreaves
3. Herra Kjaftaskur.
Roqer Harqreaves
4. Úti að leika - qaldramyndabók.
5. Geitungurinn 1. Árni Árnason og
Halldór Baldursson
Bókalisti Eymundssonar 14. - 20. maí.
Metsölulisti Bókabúöa Máls og menningar 15. maí - 21. maí