Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2003, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2003, Qupperneq 24
24 Helcjctrblctö JOV LAUGARDAGUR 24. MAÍ 2003 Matur ogvín Karrí Karríer einkermandi fyrir indverska og aðra austurlenska matarqerð af ýmsu tagi. Það er búið til úr margs konar krgddblöndum sem íIndlandi ganga undir nafninu garam masala. Blöndurnar geta verið ólíkar og bragðið er misjafnlega sterkt þvíhvert hérað hefursinn háttinn á. Þar eru blöndurnar búnar til heima eða á markaðinum og er krgddið þá nýmalað. Túrmerik er það krydd sem gefur blönd- unni gula litinn sem oftast er yfirqnæfandi. Einnig eru yfirleitt íhenni kar- dimommur, kanill, saffran, sinnep, pipar, chilipipar, kummin, kóríander, engifer, fennika og basilíka. Fleiri tegundir má nefna en oftast er það magn chilipiparsins sem ræður þvíhversu bragðsterk blandan er. Vesturlandabúar lærðu að meta karrírétti á sfðustu öld og kynntust kryddblöndunum, bæði íduftformi og mauki. Þegar karríer notað f heita rétti er gott að setja það f feiti á undan öðru hráefni og hita það f henni en gæta verður þess að láta það ekki brenna. Kryddið leikur stórt hlutverk í kræsingunum 100 q kræklinaur - hjá Veróníku S.K. Palaniandy 100 q smokkfiskur 100 a sushi-krabbi (Þrjár síðastnefndu tegundirnar kveðst Veróníka hafa keypt saman í poka.) 3 msk. hreint smiör (qhee) til að steikia upp úr 1 kaffírlauf 5 sítrónulauf Hún Veróníka S.K. Palaniandy er einn þeirra erlendu matárgerðarmanna sem ætla að sjá um veiting- ar á hátíð hafsins um næstu helgi á hafnarbakk- anum í Reykjavík. Þar verður islenskt sjávarfang í öndvegi, framreitt með ýmsum hætti. Veróníka er frá Singapore og gerð aust- urlenskra rétta leikur í höndum hennar. Að því komust blaðamaður og ljós- myndari DV þegar falast var eftir uppskrift og myndefni frá henni. Hún breiddi batikdúk á borð og töfraði fram bragðgóðan mat úr sjáv- arfangi, karrii og kókosmauki. Veronika seg- ir kryddið að sjálfsögðu leika stórt hlutverk í henn- ar matargerð og það blandar hún sjálf, aðallega úr ferskum jurtum, þó eru turmerik og saffran í duft- formi. Hún kveðst hafa vanist því í sínu heimalandi að blanda karríið sjálf og nú orðið sé það hægt á ís- landi líka, enda hafi ýmsar verslanir, svo sem Nings, Kryddkofinn og Austurlenska búðin allar tegundir til sölu sem hugurinn gimist. Það hafi verið með nokk- uð öðrum hætti þegar hún flutti hingað til lands fyr- ir 16 árum. Veróníka segist nota lax þegar hún vilji hafa mik- ið við og lýsir því er hún veiddi sjálf stærðar lax í 1 kanilstöna nokkur stvkki sítrónuaras 1 aeneaal (líkist enaiferrót) 5 neaulnaalar --------------- nokkur fersk pandanlauf 1 chili. rauður 2 chili arænir 5 aeirar hvítlaukur 4 skalotlaukar 1 lime dl kókoskrem úr pk. 1 tsk. turmerik 1 tsk. saffran 1 peli riómi fyrrasumar, fyllti hann með blöndu svipaðri og hér er lýst og heilgrillaði. „íslenskur lax er besti fiskur í heimi,“ segir hún brosandi. Hér kemur svo uppskrift- in sem hún lætur okkur í té, ætluð fyrir tvo: Siávarréttur með saffran oo kókos 1 sneið bverskorinn lax 100 a skötuselur 100 a stórar rækiur 100 a hörpudiskur Hluti smjörsins er settur á pönnu og hálf teskeið af hvoru, turmerik og saffran, sett fyrst í. Síðan er lax- inn steiktur báðum megin og öðru sjávarfangi bætt á pönnuna þegar laxinn hefur fengið dálitið forskot. Laukurinn, chiliið, laufin, sítrónugrasið, rótin og negulnaglarnir steytt í mortéli. Sjávarfangið tekið af pönnunni og kryddblandan steikt á henni um stund. Síðan er fiskurinn settur á hana aftur og kókoskrem- inu bætt út í, ásamt kanilstöng sem er soðin með. Rjómanum bætt út í og allt látið malla um stund. Limeávöxturinn skorinn í sneiðar. Smá safa bætt út í réttinn allra síðast og sneiðarnar notaðar til skrauts. Borðað með soðnum hrísgrjónum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.