Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2003, Side 33

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2003, Side 33
LAUGARDAGUR 2 4. MAÍ 2003 H G / c) a rb / cj c) I>V 37 Matartíminn er kominn Þaö er komið nýtt tímarit á markaðinn sem heitir Matartíminn - besti tími dagsins! Áætlað er að blaðið komi út mánaðarlega og í fyrsta tölublaðinu eru grillréttir settir á oddinn. Það er útgáfufyrirtækið Skerpla sem gefur tímaritið út en Skerpla hefur fengist við ýmiss konar útgáfu- starfsemi og er allþekkt fyrir útgáfu tengda sjáv- arútvegi og ferðamennsku. Tímaritið er boðið á óvenjulega lágu verði, eða aðeins 299 krónur ein- takið, og verður til sölu í öllum verslunum Hag- kaupa. Það er Helga Ólafsdóttir sem annast ritstjórn blaðsins. Helga er þaulvanur blaðamaður af DV, Visir.is og Fréttablaðinu en hefur einnig nokkra reynslu af matargerð. Helga sagði í samtali við DV að stefna blaðsins væri að leggja áherslu á aðgengilegar uppskriftir úr góðu hráefni og að fanga stemninguna í kringum matartímann. Mat- argerð snerist að miklu leyti um að njóta matar- ins í góðum félagsskap og að gefa sér til þess góð- an tíma. í fyrsta tölublaðinu er rætt við eigendur versl- unarinnar Kokku yfir salati, rölt um götur Kaup- mannahafnar í leit að veitingastöðum og kaffi- húsum, litið til söngkonunnar Diddúar í fiski- súpu, skyggnst í eldhúsið hjá Ananda Marga en stærsti þátturinn í blaðinu fjallar um grillmat. Ágústa Johnson sýnir lesendum léttar uppskrift- ir og Bergljót Þorsteinsdóttir gefur uppskriftir að „mömmumat“. Ása Jelena Petterson kaffibar- þjónn segir nokkur leyndarmál og Arnar Bjarna- son fjallar um vínþrúgur en Sæmundur Krist- jánsson á Næstu grösum kennir lesendum að matreiða rauðrófu. Síðast en ekki síst er kíkt í bjórsmökkun með Bjórvinafélagi Veðurstofunn- ar. „Mér finnst að við þurfum endilega að gefa Helga Ólafsdóttir, matgæðingur og blaðamaður, ritstýrir Matartímanum, nýju tímariti um mat og drykk. DV-mynd GVA okkur meiri tíma til að njóta matar og matar- gerðar,“ sagði Helga þegar DV ræddi við hana um heimspeki matargerðar yfir sterkum kaffi- bolla á Konditori Copenhagen. „Við reynum að hafa efni blaðsins aðgengilegt og þannig má segja að þarna sé verið að fjalla um mat og vín á mannamáli, án þess að slaka á í kröfum um fallegt útlit, svo sem í ljósmyndun og hönnun," segir Helga sem vill að fólk temji sér að flýta sér hægt; að njóta matar, vináttunnar og fjölskyldunn- ar í kringum matartímann. „Við erum oft að flýta okkur svo mikið að við gleymum að njóta þess að slaka á. Brjótum upp hversdagsleikann, komum hvert öðru á óvart og gefum okkur tíma til þess. Matur er okkur öllum lífsnauðsyn en viðhorfið til matar og matargerðar skiptir meginmáli um það hvort og hvernig við njótum hans.“ PÁÁ AFRAM VALUR! Valur mætir ÍBV á laugardaginn kl. 14- í fyrsta heimaleik sumarsins að Hlíðarenda. Útvarp Valur verður með beina útsendingu á fm 94,3 (Útvarp Saga) frá kl. 13, gamlir Valsrefir fara á kostum við grillið og frábær Valsstemning verður allsráðandi. Mætum öll og hvetjum okkar menn. Áfram Valur! Nýbakaðir Reykjavíkur- og deildarbikar- meistarar Vals mæta KR í Frostaskjóli kl. 17. Áfram Valur!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.