Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2003, Page 33
LAUGARDAGUR 2 4. MAÍ 2003
H G / c) a rb / cj c) I>V
37
Matartíminn
er kominn
Þaö er komið nýtt tímarit á markaðinn sem
heitir Matartíminn - besti tími dagsins! Áætlað
er að blaðið komi út mánaðarlega og í fyrsta
tölublaðinu eru grillréttir settir á oddinn. Það er
útgáfufyrirtækið Skerpla sem gefur tímaritið út
en Skerpla hefur fengist við ýmiss konar útgáfu-
starfsemi og er allþekkt fyrir útgáfu tengda sjáv-
arútvegi og ferðamennsku. Tímaritið er boðið á
óvenjulega lágu verði, eða aðeins 299 krónur ein-
takið, og verður til sölu í öllum verslunum Hag-
kaupa.
Það er Helga Ólafsdóttir sem annast ritstjórn
blaðsins. Helga er þaulvanur blaðamaður af DV,
Visir.is og Fréttablaðinu en hefur einnig nokkra
reynslu af matargerð. Helga sagði í samtali við
DV að stefna blaðsins væri að leggja áherslu á
aðgengilegar uppskriftir úr góðu hráefni og að
fanga stemninguna í kringum matartímann. Mat-
argerð snerist að miklu leyti um að njóta matar-
ins í góðum félagsskap og að gefa sér til þess góð-
an tíma.
í fyrsta tölublaðinu er rætt við eigendur versl-
unarinnar Kokku yfir salati, rölt um götur Kaup-
mannahafnar í leit að veitingastöðum og kaffi-
húsum, litið til söngkonunnar Diddúar í fiski-
súpu, skyggnst í eldhúsið hjá Ananda Marga en
stærsti þátturinn í blaðinu fjallar um grillmat.
Ágústa Johnson sýnir lesendum léttar uppskrift-
ir og Bergljót Þorsteinsdóttir gefur uppskriftir að
„mömmumat“. Ása Jelena Petterson kaffibar-
þjónn segir nokkur leyndarmál og Arnar Bjarna-
son fjallar um vínþrúgur en Sæmundur Krist-
jánsson á Næstu grösum kennir lesendum að
matreiða rauðrófu. Síðast en ekki síst er kíkt í
bjórsmökkun með Bjórvinafélagi Veðurstofunn-
ar.
„Mér finnst að við þurfum endilega að gefa
Helga Ólafsdóttir, matgæðingur og blaðamaður, ritstýrir Matartímanum, nýju tímariti um mat og drykk.
DV-mynd GVA
okkur meiri tíma til að njóta matar og matar-
gerðar,“ sagði Helga þegar DV ræddi við hana
um heimspeki matargerðar yfir sterkum kaffi-
bolla á Konditori Copenhagen.
„Við reynum að hafa efni blaðsins aðgengilegt og
þannig má segja að þarna sé verið að fjalla um mat
og vín á mannamáli, án þess að slaka á í kröfum
um fallegt útlit, svo sem í ljósmyndun og hönnun,"
segir Helga sem vill að fólk temji sér að flýta sér
hægt; að njóta matar, vináttunnar og fjölskyldunn-
ar í kringum matartímann.
„Við erum oft að flýta okkur svo mikið að við
gleymum að njóta þess að slaka á. Brjótum upp
hversdagsleikann, komum hvert öðru á óvart og
gefum okkur tíma til þess. Matur er okkur öllum
lífsnauðsyn en viðhorfið til matar og matargerðar
skiptir meginmáli um það hvort og hvernig við
njótum hans.“ PÁÁ
AFRAM VALUR!
Valur mætir ÍBV á laugardaginn kl. 14- í fyrsta heimaleik
sumarsins að Hlíðarenda. Útvarp Valur verður með
beina útsendingu á fm 94,3 (Útvarp Saga) frá kl. 13,
gamlir Valsrefir fara á kostum við grillið og frábær
Valsstemning verður allsráðandi. Mætum öll og
hvetjum okkar menn. Áfram Valur!
Nýbakaðir Reykjavíkur- og deildarbikar-
meistarar Vals mæta KR í Frostaskjóli kl. 17.
Áfram Valur!