Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2003, Page 42
4-e
Helcfctrblað I>V LAUGARD AGU R 24. MAf 2003
*
i
.Jfc
»
•>
9
»
Geisladiskinn HÆTTUM AÐ REYKJA er einnig hægt aö fá í Þjónustunnöstöö
UMFÍ, Felismúla 26,108 Reykjavík, s. 568 2929. Diskurinn kostar 1.000 kr.
HeUdarverömæti vinninga í hvatningarátaki UMFÍ er kr. 750.000.
Nöfn vinningshafa verða birt í DV á reyklausum degi 31. maí.
TIM1
m
VERÐLAUN
FYRIR BESTA
FLUTNINGINN:
Nú fer fram skemxntileg keppni
þar sem börn og imglingar geta
sungið eða spilað lög af geisla-
disknum- HÆTTUM AÐ
RETKJA. Hver og einn getúr
flutt lögin og textana eftir eigin
höfði. Öll lögin á geisladisknum
eru einnig í karoke útfærslu.
Sendu upptöku á kasettu eða
geislsdisk til Þjónustumiðstöðvar
UMFÍ, Fellsmúla 26, 108 Reykja-
vík fyrir 25. maí.
Úrslit verða kynnt á reyklausum
degi 31. maí.
ITíu hljóðverstímar með upp-
tökumanni í hijóöveri Geim-
steins (kr. 60.000) og Karaoke-
DVD spilari og karaoke diskur aö
eigin vali (kr. 24.000) frá Radióbæ.
i o fií‘
Vinningshafa gefst jafnframt tæki-
færi tii að syngja eitt lag inn á
geislaplötu sem kemur út í sumar.
U Ensk-ísl/ísl-ensk orðabók fyrir tölvu
il (kr. 8.000) og þrír geisladiskar; Búdrýg-
indi, Ensími og Bent & 7Berg frá Eddu útgáfu.
SFjórir geisladiskar; Búdrýgindi, Ensimi,
Bent & 7Berg frá Eddu útgáfu og í svörtum
fötum frá Skífunni.
A Fjórir geisladiskar; Búdrýgindi, Ensími,
% Bent & 7Berg frá Eddu útgáfu og í svörtum
fötum fráSkífunni.
ÍFjórir geisladiskar; Búdrýgindi, Ensími,
Bent & 7Berg frá Eddu útgáfu og í svörtum
fötum frá Skífunni.
© Tvoir geisladiskar; Bent & 7Berg frá Eddu
útgáfu og f Svörtum fötum frá Skífunni.
Tveir geisladiskar; Bent & 7Berg frá Eddu
útgáfu og í Svörtum fötum frá Skífunni.
Geisiadiskur; í svörtum fötum frá
Skífunni.
ÍFimm hljóðverstímar með upptökumanni í Hijóð-
smiðjunni (kr. 30.000) og Mark geislaspilari
(kr. 10.000) frá Tóbaksvarnanefhd.
aÞrír stúdíótímar (kr. 15.000) í Eyranu til söngs og
hijóðblöndunar yfir undirspil. Ensk-ísl/ísl-ensk
orðabók fyrir tölvu (kr. 8.000) og þrír geisladiskar;
Búdrýgindi, Ensimi og Bent & 7Berg frá Eddu útgáfu.
REYKLAUS
REIKNINGUR
Leg-göu inn á Reyklausan
reikning- til að fa geislaplötuna
HÆTTUM AÐ REYKJA!
Leggðu kr. 1000 inn á Reyklausan reikning í banka
eða sparisjóði og þú færð eintak sent um hæl:
SPK nr. 5513 - SPH nr. 6943 - SPV nr. 11047
SPRON nr. 7306 - SPK nr. 408428
íslandsbanki (aðalbanki) nr. 160379
Landsbanki (aðalbanki) nr. 283408
Búnaðarbanki (aöalbanki) nr. 120552
Mundu að láta nafn þitt og heimUisfang koma skýrt
fram þegar þú leggur inn á Reyklausan reikning.
(ð BflDlðBÆB
E d d a ámtla 11 • Sinl SS31133
HÆTTUM
AÐ REYKJA
HVATNINGAR
ÁTAK UMFÍ
Skákþátturinn_________
Umsjón
Sævar Bjamason
Kasparov enn bestur
Þessa siðustu viku hefur veriö
heldur betur fjörugt í skákheimin-
um og margt verið á döfinni. Gary
Kasparov vann „skákóskarinn" í
fimmta skiptið á síðustu átta árum.
Annars varð röð 15 efstu þannig: 1.
Gary Kasparov; 2. Peter Leko; 3.
Vishy Anand; 4. Ruslan Ponom-
ariov; 5. Vladimir Kramnik; 6. Ev-
geni Bareev; 7. Veselin Topalov; 8.
Judit Polgar; 9. Anatólí Karpov; 10.
Alexander Grischuk; 11. Alexei
Shirov; 12. Vassilí Ivanchuk; 13.
Tejmur Radjabov; 14. Michael Ad-
ams; 15. Boris Gelfand. Eins og sjá
má er Judit Polgar með efstu
mönnum - við skákmenn gerum
ekki sama kynjamun og golfarar.
Annika Sörenstam fær aö heyra
mörg mótmælin en skákmenn
sætta sig við að ef andstæðingur-
inn vinnur þá er hann a.m.k. jafn
góð(ur). Það voru skákblaðamenn
sem völdu þennan lista þótt við, ís-
lenskir skákskrifendur, hvað ég
best veit hefðum ekki verið með.
Það vekur athygli að FIDE-
heimsmeistarinn lendir í sætinu
fyrir ofan Kramnik. Ponomariov
hefur þó staðið sig að einhverju
leyti betur en Kramnik á árinu en
hann hefur verið í „sumarfríi" síð-
an hann vann Kasparov um árið -
svo sem ekki nema von- með fullar
hendur fjár. En það eru ekki allir
sem hafa þessa afstöðu sem betur
fer, t.d. Kasparov. Mörgum snilld-
arverkum myndi heimurinn missa
af ef snillingarnir færu í frí þegar
þeir eignuðust þokkalegt magn af
aurum.
Minningarmót
Minningarmótinu um Capa-
blanca lauk með eftirtektarverð-
um sigri Julio Granda Zuniga.
Þessi liðlega þrítugi skákmaður
var á leiðinni i fremstu röð fyrir
nokkrum árum en hætti tafl-
mennsku eftir að elsta Polgar-
systirin, Zsusa (Susan eins og hún
heitir víst núna, enda á hún barn
og buru með Bandaríkjamanni),
hryggbraut hann. Perúmaðurinn
er greinilega kominn yfir það og
teflir að vanda mjög frumlega,
enda er hann þekktur fyrir að
rannsaka byrjanir lítið en leggur
því meiri áherslu á miðtaflið og
endataflið. Lokastaða efstu manna
í Havana: 1. Julio E. Granda
Zuniga (2628) 8 v. 2. Lazaro Bruzon
(2610) 7,5 v. 3.-5. Ivan Morovic
Fernandez (2551), Lenier Dom-
inguez (2603) og Vyacheslav
Ikonnikov (2546) 6,5 v. Þarna voru
að venju margir sterkustu skák-
mennirnir. í Ungverjalandi lauk
meistaramóti landsins og Zoltan
Almasi (2676) vann örugglega en
næstu menn voru 2. Robert Ruck
(2569) 5,5 v. 3. Lajos Portisch (2583)
5,5 v. 4. Gyula Sax (2511) 5 v. Það
er alltaf eitthvað að gerast í skák-
inni og nú, þegar skákmenn fá
sumarfrí, er haldið í víking í bæði
austur og vestur að venju.
Hart barist í Sarajevo
1 Sarajevo er barist hart á ská-
borðunum, sem betur fer. Ivan
Sokolov, sem er nú á fullu við það
að brjóta 2700 stiga múrinn, líkt
og barnið frá Azerbaídsjan sem
fæddist árið 1987, eða þegar Jó-
hann vann Kortsnoj í einvígi og
Teimour hinn ungi er þar með
kominn í hóp helstu íslandsvina,
án nokkurs vafa. En Ivan hefur
verið hér oft og það er gaman að
sjá hvernig hann vinnur úr stöðu-
yfirburðum sínum.
Hvítt: Ivan Sokolov (2677)
SVart: Teimour Radjabov (2644)
Kóngs-indversk vörn.
Sarajevo (5), 22.05. 2003
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4.
e4 d6 5.
Bd3 0-0
Þessi upp-
stilling er
vinsæl hjá
þeim Helga
Ólafssyni
og Ivan.
Líklega hef-
ur Ivan lært
þetta af
Helga sem
vann hann Garv Kasparov
2-0 á síðasta Vann „skákóskarinn“
ári! 6. Rge2 fimmta árið í röð.
c5 7. d5 e6 8. 0-0 exd5 9. exd5
Rg4 10. f4 He8 11. h3 Rh6 Hér
var 11. - Re3 annar kostur en eftir
12. Bxe3 Hxe3 13. Dd2 nær hvítur
meira rými. 12. Bd2 Rf5 13. Db3
Ra6 14. Hael Hb8 15. a3 Rc7
Menn stiila upp liði sínu fyrir
átökin. Þetta verður flókið og
erfitt fyrir báða aðila. 16. a4 Bd7
17. Re4 Ra6 18. Kh2 Rb4 19. Bbl
Dh4 20. Bc3 Re3
Eitt aðalsmerki góðra stórmeist-
ara er að þeir kunna að einfalda
taflið sér í hag. Hér er skiptamun
fómað um stundarsakir í einföld-
unarmarkmiði. 21. Bxg7 Rxfl+
22. HxH
Vogun vinnur og vogun tapar.
Hér kom vel til greina að hirða
skiptamuninn með 22. Kxg7 23.
Dc3 f6 24. R2g3 (24. g3 gengur ekki
vegna 24. Dxh3+; getur verið að
þeim hafi yfirsést þetta?). Hvítur
hefur skemmtileg færi, svarta
drottningin stendur illa og peðið á
d6 fellur einnig. Unglingurinn
reynir að einfalda og jafna taflið.
22. - Hxe4 23. Bxe4 Kxg7 24.
Dc3+ Df6 25. f5! Dxc3 26. Rxc3
He8 27. f6+! Kf8
Peðið á fB er sem fleygur í stöðu
svarts. En málið er þó ekki einfalt.
Og þó - það er veikt peð á d6 sem
hægt er að ráðast á. Ivan tekst
með sínum sérstaka stil að ná
frumkvæðinu algjörlega. 28. Bbl
b6 29. a5! Þessi er nauðsynlegur
til að peðið á d6 falli með árangri.
bxa5 30. Re4 a4 31. Rxd6 He2
Verst að við brotthvarf d6-peðsins
skapast annar veikleiki á c5! 32.
Re4 Ra6 33. Hf2 Hel 34. Bc2 He3
35. Hd2 a3 36. bxa3 Hxa3 37.
He2 Ha2
Það er greinilega innrás yfirvof-
andi á e7 og þá lætur allt undan!
38. Rd6 1-0
Hjálpannát
Svona til gamans þá er hægt að
njóta skákarinnar á margan hátt.
Hér er staða þar sem hvítur leikur
sig í hjálparmát - eina skilyrðið er
að svartur sé með upphafsstöðu
sina þegar hann mátar! Þetta er
víst heimsmetið - reynið sjálf að
finna aðrar leiðir.
1. d4 Rf6 2. Kd2 Rg8 3. Kc3
Rf6 4. Kb4 Rg8 5. Ka5 Rf6 6. a4
Rg8 7. b4
Og nú kemur auðvitað 7. c6+ og
mát!
Landsmótið í skólaskák
Dagur Arngrímsson sigraði í
eldri flokki landsmótsins í skóla-
skák sem fram fór í Vestmanna-
eyjum um síðustu helgi. Dagur og
Guðmundur Kjartansson urðu
efstir og jafnir með 10,5 vinninga
11 skákum, en Dagur hafði betur
eftir einvígi og bráðabana 2-1. í
yngri flokki varð Svanberg Már
Pálsson skólaskákmeistari. Svan-
berg er aðeins 10 ára og einn sá
yngsti sem þessum áfanga hefur
náð. Hann er fyrsti Hafnfirðingur-
inn og jafnframt fyrsti félagsmað-
ur Taflfélags Garðabæjar sem nær
þessum áfanga.
Lokastaðan í yngri flokki:
1. Svanberg Már Pálsson, Hvaleyrar-
skóla, Hafnarfirði, 10 v.
2. Hjörvar Steinn Grétarsson, Rima-
skóla, Reykjavík, 8,5 v. (41 stig)
3. Helgi Brynjarsson, Hlíðaskóla,
Reykjavík, 8,5 v. (35,5 stig)
4. -5. Hjörtur HaUdórsson, Salaskóla,
Kópavogi, og Gylfi Davíðsson, Breiða-
gerðisskóla, Reykjavík, 7 v.
6. Ingvar Ásbjörnsson, Rimaskóla,
Reykjavík, 6,5 v.
Lokastaðan í eldri flokki:
1.-2. Dagur Arngrímsson, Haga-
skóla, Reykjavík, og Guðmundur Kjart-
ansson, Árbæjarskóla, Reykjavík, 10,5
v. Dagur vann i bráðabana 2-1.
3. Hjörtur Ingvi Jóhannsson,
Ölduselsskóla, Reykjavík, 8,5 v.
4. Ágúst Bragi Björnsson, Brekku-
skóla, Akureyri, 8 v.
5. -6. Atli Freyr Kristjánsson, Hjalla-
skóla, Kópavogi, og Hilmar Þorsteins-
son, Hagaskóla, Reykjavík, 6 v.
Skákstjóri var Haraldur Baldursson
landsmótsstjóri. Mótshaldið var haldið
í samvinnu Skákskólans og heima-
manna. Þarna eru skákmenn framtíð-
arinnar á ferðinni.