Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2003, Page 53

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2003, Page 53
LAUGARDAGUR 24. MAÍ 2003 / / e l c) a rb la c) I>V 57 Ari Jóhann Sigurðsson háskólanemi og tenór, verður 40 ára á mor|un Ari Jóhann Sigurðsson, fyrrv. bóndi og hreppstjóri, nú nemi við Háskólann á Akureyri og Tónlistarskól- ann á Akureyri, til heimilis að Þórunnarstræti 134, Akureyri, verður fertugur á morgun. Starfsferill Ari fæddist á Sauðárkróki og ólst upp í foreldrahús- um i Holtsmúla í Skagafirði. Hann lauk almennu grunnskólaprófi frá Varmahlíðarskóla í Skagafirði, stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki 1985 og stundaði nám við Háskóla ís- lands 1985-86. Ari hóf söngnám við Tónlistarskóla Skagafjarðar og lauk síðan framhaldsstigsprófi í söng frá Tónlistar- skólanum á Akureyri vorið 2003. Þá hóf hann nám á grunnskólabraut kennaradeildar HA haustið 2002. Ari stundaði almenn sveitastörf á uppvaxtarárum sínum og á námsárunum var hann þungavinnuvél- stjóri hjá ýmsum verktökum. Hann var bóndi í Ár- múla í Staðarhreppi 1986-2000 og ritstjóri Fréttablaðs- ins Feykis á Sauðárkróki um árabil. Um tíma starfaði hann hjá Fiskiðju Skagfirðinga og hjá Sauðárkróks- bæ. Ari var hreppstjóri Staðarhrepps 1992-98 er hrepp- stjóraembættin voru lögð niður, var ráðgjafi hjá'Ung- lingaheimili ríkisins, síðar Barnaverndarstofu, 1993-99, starfaði hjá íbúðalánasjóði á Sauðárkróki þar til hann hætti búskap og flutti til Akureyrar vorið 2000, var þar húsaleigubótafulltrúi um tíma, siðar leiðbeinandi við Bröttuhlíðarskóla og loks Hlíðar- skóla til vors 2002. Auk þess hefur hann verið fanga- vörður við Ríkisfangelsið á Akureyri í sumarafleys- ingum. Ari var formaður FUS Víkings í Skagafirði 1982-84, sat í stjórn SUS 1983-85, var gjaldkeri ungmennafé- lagsins Æskunnar í Skagafirði 1979-98, gjaldkeri Leikfélags Skagafjarðar 1982-91, gjaldkeri Sauðfjár- ræktarfélags Staðarhrepps 1982-86 og ritari þess 1998-99, formaður Hrossaræktarfélags Staðarhrepps 1996-99, formaður kjörstjórnar Staðarhrepps 1993-99, endurskoðandi ársreikninga Hrossaræktarsambands Skagfirðinga og Veiðifélags Sæmundarár og Mikla- vatns 1996-2000, í stjóm fjallskilanefndar Staðar- hrepps 1998-99, trúnaðarmaður starfsmanna á með- ferðarheimilunum í Skagafirði og íbúðalánasjóðs á Sauðárkróki 1993-2000, sat i trúnaðarmannaráði SFR 1993-2000 og í launamálaráði 1998, var trúnaðarmað- ur starfsmanna Bröttuhlíðar- og Hlíðarskóla 2000-2002, tók virkan þátt í félagslífi Fjölbrautaskól- ans á Sauðárkróki á námsárum sínum þar, tók þátt í uppfærslum Leikfélag Skagfirðing á Uppreisninni á ísafirði og Kjartanskvöldi, var einn af stofnendum Kórs Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki og hefur auk þess sungið með Karlakórnum Heimi, Skagfirsku Söngsveitinni og Kirkjukór Glaumbæjar- og Reyni- staðarkirkna. Ari hefur víða komið fram sem skemmtikraftur i gegnum tíðina á árshátíðum og þorrablótum og flutt skemmtidagskrá bæði í óbundnu og bundnu máli. Hann hefur komið fram sem einsöngvari á fjölmörg- um tónleikum á vegum tónlistarskólanna í Skagafirði og á Akureyri. Auk þess sem hann kom fram með Leikhúskórnum á Akureyri og söng m.a. eitt af aðal- hlutverkunum (hlutverk Barinkays) í Sígaunabarón- Bjarki Laxdal verkstjóri í Reykjavík Bjarki Laxdal verkstjóri, Grettisgötu 13b, Reykjavík, verður fimmtugur á morgun. Starfsferill Bjarki ólst upp í Reykjavík hjá Þorgerði Jónsdótt- ur, f. 1901, d. 1999, Þórði Þórðarsyni, f. 1888, d. 1963, og syni þeirra, Sigurjóni Steinari Þórðarsyni, f. 1927. Bjarki hóf ungur störf hjá verktakafyrirtækinu ístaki, fyrst sem vélamaður en síðar sem jarðvinnu- verkstjóri. Einnig hefur hann starfað fyrir ístak Pihl og Son við mannvirkjagerð víða erlendis. Fjölskylda Sambýliskona Bjarka er Hanna Laufey Elísdóttir, f. 2.5. 1957, klæðskeri. Foreldrar hennar eru Elís Kjaran Friðfinnsson, ýtustjóri á Þingeyri, og Karítas Jónsdótt- ir, húsmóðir þar. Dóttir Bjarka og Hönnu er Karítas Bjarkadóttir, f. 18.8. 1994. Börn Bjarka úr fyrri samböndum eru Helga Björk, f. 11.12. 1970, en sonur hennar er Jökull Bjarki Jóns- son, f. 21.7. 1994; Viktoría Júlía, f. 19.7. 1975, í sambúð með Guðmundi Friðriki Stefánssyni, en böm hennar eru Alexandra Ósk Magnúsdóttir, f. 29.8. 1992, og Natalía Lif Guðmundsdóttir, f. 3.7. 2000; Dagný Stein- inum eftir Johann Strauss vorið 2001. Ari skráði og útbjó til prentunar niðjatal Saurbæj- arættar í Skagafirði sem út kom 1998. Fjölskylda Ari Jóhann kvæntist 12.2. 1987 Sigrúnu Benedikts- dóttur, f. 8.5. 1964 á Akureyri. Hún er dóttir hjónanna Benedikts Kristjánssonar, f. 7.4. 1922, d. 30.9. 1976, vél- stjóra, og Sigrúnar Aðalsteinsdóttur, f. 29.7. 1930, frá Vaðbrekku á Jökuldal, fyrrv. húsverði við íþróttahús Glerárskóla. Sigrún stundar nú nám við HA. Börn Ara og Sigrúnar eru Atli Víðir, f. 7.8. 1989; Að- alsteinn Orri, f. 6.12. 1991; Agnes Bára, f. 1.3. 1993. Systkin Ara eru Ingibjörg Sigurðardóttir, f. 18.10. 1954, bóndi í Holtsmúla i Skagafirði, gift Ragnari Ey- fjörð Ámasyni, f. 19.9. 1951, bónda í Holtsmúla, og eiga þau þrjá syni og þrjú barnabörn; Hallfríður Jó- hanna Sigurðardóttir, f. 23.4. 1957, starfsmaður í mötuneyti á Sjúkrahúsinu á Sauðárkróki en fyrrv. maður Hallfríðar er Kristján Runólfsson, f. 5.7. 1956, og eiga þau þrjá syni og tvö barnabörn; EUert Sig- urðsson, f. 1.5. 1959, bílstjóri hjá Mónu ehf., kvæntur Annabellu Jósefsdóttur, f. 3.4. 1959, sölukonu hjá Kassagerðinni hf. Foreldrar Ara; Sigurður Ellertsson, f. 13.7. 1919, d. 15.1. 1981, búfræðingur og bóndi í Holtsmúla í Skaga- firði, og Gunnur Pálsdóttir, f. 4.1. 1930, húsfreyja. Móðir Sigurðar var Ingibjörg Sveinsdóttir, oddvita á Hóli í Sæmundarhlíð Jónssonar, hreppstjóra Jóns- sonar, húsmanns á Bessastöðum Jónssonar, Oddsson- ar hreppstjóra. Móðir Ingibjargar var Hallfríður Sig- urðardóttir frá Sjávarborg, af ætt Borgar-Bjarna Bjarnasonar. Móðir Sveins á Hóli var Sigríður Magn- úsdóttir, hreppstjóra á Halldórsstöðum í Laxárdal Ás- mundssonar. Jón Jónsson, bóndi og hreppstjóri á Hóli, er forfaðir Hólsættar og er einnig faðir Árna Hafstaðs í Vík, ættföður Hafstaðsættar. Guðmundur bróðir Ingibjargar frá Hóli er faðir þeirra bræðra Sveins hestamanns á Sauðárkróki og Stefáns, fyrrv. þingmanns. Gunnur er dóttir Páls, b. og ættfræðings á Stóru- Völlum Jónssonar, Guðmundssonar, ríka á Keldum Brynjólfssonar, b. á Vestri-Kirkjubæ Stefánssonar, b. í Árbæ Bjarnasonar, ættfóður Víkingslækjarættar Halldórssonar. Móðir Gunnar var Sigríður, dóttir Guðjóns Þor- bergssonar og Sigríðar Þorsteinsdóttur. Ari Jóhann verður með burtfarartónleika frá Tón- listarskólanum á Akureyri á afmælisdaginn. Tónleik- arnir verða haldnir í Laugarborg í Eyjafjarðarsveit og Höfuðstafir - Út er komin ljóðabókin Með luktum augum eftir Jónínu Hallgrímsdóttur frá Hrafnabjörgum í Jök- ulsárhlíð. Efni hennar er að mestum hluta kvæði en þó fljóta með einstaka lausavísur. Ég tek dæmi af vísu sem kallast Þytur vorsins: Ég vaknaði einn morgun í vetur sem leið við vorþyt á glugganum mínum. Ég sá strax aó úti sólskinið beið, já, sumarið var á noróurleið með voldugum' vængtökum sínum. Silja Aðalsteinsdóttir skrifar aðfararorð og birtir þar vísu sem Jónína orti sextán ára: Rœðir málin rðlega, raupar munni finum, hœlir ofur hóflega heimskupörum sínum. Og svo að öðru. Grímur Ebenezersson (f. 1892, d. 1912) kvað eftir að hafa leitað læknis sem þótti dýr- seldur og orðmargur: Orðum dælir doktorinn, dropum hœlir sínum; stígur ræl meó reikninginn rétt á hœlum mínum. Ætt Sigurður var sonur Ellerts Símonar, b. í Holtsmúla Jóhannssonar, b. í Saurbæ Jóhannssonar. Móðir Jó- hanns í Saurbæ var Ingibjörg Kristjánsdóttir frá Hug- ljótsstöðum á Höfðaströnd, afkomandi Jóns prinna Jónssonar, og af Stórubrekkuætt í Fljótum. Jóhanna Steinunn, systir Ellerts Símonar, er langaamma Ei- ríks Haukssonar söngvara í Noregi og Jóns Páls Sig- marssonar heitins, kraftlyftingamanns. unn, f. 1.8. 1977, í sambúð með Arn- ari Hrafnssyni; Mekkín, f. 5.1. 1992. Börn Hönnu úr fyrri sambúð, stjúp- börn Bjarka, eru: íris Ósk Sighvats- dóttir, f. 4.8. 1977, í sambúð með Guð- bjarti Flosasyni; Elmar Ingi Sighvatsson, f. 8.5. 1980. Hálfsystkin Bjarka, sammæöra, eru Björn Kristjáns- son, f. 1956, búsettur í Reykjavík; Mikael Hreiðarsson, f. 1960, búsettur í Reykjavík; Tony Ann Korposak Sud- ar, f. 1961, búsett í Orlando, Florida; Michelle Pulgar- on Sudar, f. 1963, búsett í Orlando, Florida; Patricia Sudar, f. 1964, búsett í Orlando, Florida. Hálfbróðir Bjarka, samfeðra, er Vic Vicers, f. 1950, búsettur i Palm Springs í Kaliforníu. Foreldrar Bjarka: Vic Vicers, d. 1981, og Þorgerður Ólafla Laxdal Karlsdóttir Sudar, f. 30.6. 1932, búsett í Orlando, Florida. Bjarki tekur á móti gestum að Laugavegi 22, 2.hæð, laugardagskvöldið 24.5. nk. kl. 20.30. Grímur var eitt sinn á ferð i illviðri en í þeirri ferð frétti hann af trúlofun konu sem Lára hét. Hann kvað: Þó aó Kári klóri mér kunna sár þau gróa, en ef Lára lofuð er lœt ég tárin flóa. Jón S. Bergmann (f. 1874, d. 1927) var snjall hag- yrðingur. Eftir hann eru þessar vísur: Auður, dramb og falleg föt fyrst af öllu þérist, og menn sem hafa mör og kjöt meira en almennt gerist. Inn á leirinn barst vísa eftir einhvern Jón Jónsson sem gerði ekki nánar grein fyrir sér. Efnistök minna dálítið á Jón Ingvar Jónsson án þess að hér verði fullyrt neitt um það: Össur, þú ert illa ger, afglöp þín svo stór og mörg, bráóum, vinur, veröur þér varpaófyrir Ingibjörg. Beittu í laumi kjafti og kló, - kœrleika til vara. Þá ertu efni í Oddfellow eða frímúrara. Ég var ekki viss um hvort ég ætti að birta þessa vísu. Össur hefur ekkert gert mér. Vísan er bara svo fjári góð. Ef hann skyldi lesa þetta bendi ég honum sérstaklega á lokavísuna sem er eftir óþekktan höfund: Vió yrkjum svona allavega upp á grín. Taktu þaö ekki alvarlega elskan mín. Umsjón Ragnar Ingi Aðalsteinsson ria@ismennt.is V

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.