Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2003, Blaðsíða 53
LAUGARDAGUR 24. MAÍ 2003
/ / e l c) a rb la c) I>V
57
Ari Jóhann Sigurðsson
háskólanemi og tenór, verður 40 ára á mor|un
Ari Jóhann Sigurðsson, fyrrv. bóndi og hreppstjóri,
nú nemi við Háskólann á Akureyri og Tónlistarskól-
ann á Akureyri, til heimilis að Þórunnarstræti 134,
Akureyri, verður fertugur á morgun.
Starfsferill
Ari fæddist á Sauðárkróki og ólst upp í foreldrahús-
um i Holtsmúla í Skagafirði. Hann lauk almennu
grunnskólaprófi frá Varmahlíðarskóla í Skagafirði,
stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra
á Sauðárkróki 1985 og stundaði nám við Háskóla ís-
lands 1985-86.
Ari hóf söngnám við Tónlistarskóla Skagafjarðar
og lauk síðan framhaldsstigsprófi í söng frá Tónlistar-
skólanum á Akureyri vorið 2003. Þá hóf hann nám á
grunnskólabraut kennaradeildar HA haustið 2002.
Ari stundaði almenn sveitastörf á uppvaxtarárum
sínum og á námsárunum var hann þungavinnuvél-
stjóri hjá ýmsum verktökum. Hann var bóndi í Ár-
múla í Staðarhreppi 1986-2000 og ritstjóri Fréttablaðs-
ins Feykis á Sauðárkróki um árabil. Um tíma starfaði
hann hjá Fiskiðju Skagfirðinga og hjá Sauðárkróks-
bæ.
Ari var hreppstjóri Staðarhrepps 1992-98 er hrepp-
stjóraembættin voru lögð niður, var ráðgjafi hjá'Ung-
lingaheimili ríkisins, síðar Barnaverndarstofu,
1993-99, starfaði hjá íbúðalánasjóði á Sauðárkróki þar
til hann hætti búskap og flutti til Akureyrar vorið
2000, var þar húsaleigubótafulltrúi um tíma, siðar
leiðbeinandi við Bröttuhlíðarskóla og loks Hlíðar-
skóla til vors 2002. Auk þess hefur hann verið fanga-
vörður við Ríkisfangelsið á Akureyri í sumarafleys-
ingum.
Ari var formaður FUS Víkings í Skagafirði 1982-84,
sat í stjórn SUS 1983-85, var gjaldkeri ungmennafé-
lagsins Æskunnar í Skagafirði 1979-98, gjaldkeri
Leikfélags Skagafjarðar 1982-91, gjaldkeri Sauðfjár-
ræktarfélags Staðarhrepps 1982-86 og ritari þess
1998-99, formaður Hrossaræktarfélags Staðarhrepps
1996-99, formaður kjörstjórnar Staðarhrepps 1993-99,
endurskoðandi ársreikninga Hrossaræktarsambands
Skagfirðinga og Veiðifélags Sæmundarár og Mikla-
vatns 1996-2000, í stjóm fjallskilanefndar Staðar-
hrepps 1998-99, trúnaðarmaður starfsmanna á með-
ferðarheimilunum í Skagafirði og íbúðalánasjóðs á
Sauðárkróki 1993-2000, sat i trúnaðarmannaráði SFR
1993-2000 og í launamálaráði 1998, var trúnaðarmað-
ur starfsmanna Bröttuhlíðar- og Hlíðarskóla
2000-2002, tók virkan þátt í félagslífi Fjölbrautaskól-
ans á Sauðárkróki á námsárum sínum þar, tók þátt í
uppfærslum Leikfélag Skagfirðing á Uppreisninni á
ísafirði og Kjartanskvöldi, var einn af stofnendum
Kórs Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki og hefur auk
þess sungið með Karlakórnum Heimi, Skagfirsku
Söngsveitinni og Kirkjukór Glaumbæjar- og Reyni-
staðarkirkna.
Ari hefur víða komið fram sem skemmtikraftur i
gegnum tíðina á árshátíðum og þorrablótum og flutt
skemmtidagskrá bæði í óbundnu og bundnu máli.
Hann hefur komið fram sem einsöngvari á fjölmörg-
um tónleikum á vegum tónlistarskólanna í Skagafirði
og á Akureyri. Auk þess sem hann kom fram með
Leikhúskórnum á Akureyri og söng m.a. eitt af aðal-
hlutverkunum (hlutverk Barinkays) í Sígaunabarón-
Bjarki Laxdal
verkstjóri í Reykjavík
Bjarki Laxdal verkstjóri, Grettisgötu 13b, Reykjavík,
verður fimmtugur á morgun.
Starfsferill
Bjarki ólst upp í Reykjavík hjá Þorgerði Jónsdótt-
ur, f. 1901, d. 1999, Þórði Þórðarsyni, f. 1888, d. 1963, og
syni þeirra, Sigurjóni Steinari Þórðarsyni, f. 1927.
Bjarki hóf ungur störf hjá verktakafyrirtækinu
ístaki, fyrst sem vélamaður en síðar sem jarðvinnu-
verkstjóri. Einnig hefur hann starfað fyrir ístak Pihl
og Son við mannvirkjagerð víða erlendis.
Fjölskylda
Sambýliskona Bjarka er Hanna Laufey Elísdóttir, f.
2.5. 1957, klæðskeri. Foreldrar hennar eru Elís Kjaran
Friðfinnsson, ýtustjóri á Þingeyri, og Karítas Jónsdótt-
ir, húsmóðir þar.
Dóttir Bjarka og Hönnu er Karítas Bjarkadóttir, f.
18.8. 1994.
Börn Bjarka úr fyrri samböndum eru Helga Björk,
f. 11.12. 1970, en sonur hennar er Jökull Bjarki Jóns-
son, f. 21.7. 1994; Viktoría Júlía, f. 19.7. 1975, í sambúð
með Guðmundi Friðriki Stefánssyni, en böm hennar
eru Alexandra Ósk Magnúsdóttir, f. 29.8. 1992, og
Natalía Lif Guðmundsdóttir, f. 3.7. 2000; Dagný Stein-
inum eftir Johann Strauss vorið 2001.
Ari skráði og útbjó til prentunar niðjatal Saurbæj-
arættar í Skagafirði sem út kom 1998.
Fjölskylda
Ari Jóhann kvæntist 12.2. 1987 Sigrúnu Benedikts-
dóttur, f. 8.5. 1964 á Akureyri. Hún er dóttir hjónanna
Benedikts Kristjánssonar, f. 7.4. 1922, d. 30.9. 1976, vél-
stjóra, og Sigrúnar Aðalsteinsdóttur, f. 29.7. 1930, frá
Vaðbrekku á Jökuldal, fyrrv. húsverði við íþróttahús
Glerárskóla. Sigrún stundar nú nám við HA.
Börn Ara og Sigrúnar eru Atli Víðir, f. 7.8. 1989; Að-
alsteinn Orri, f. 6.12. 1991; Agnes Bára, f. 1.3. 1993.
Systkin Ara eru Ingibjörg Sigurðardóttir, f. 18.10.
1954, bóndi í Holtsmúla i Skagafirði, gift Ragnari Ey-
fjörð Ámasyni, f. 19.9. 1951, bónda í Holtsmúla, og
eiga þau þrjá syni og þrjú barnabörn; Hallfríður Jó-
hanna Sigurðardóttir, f. 23.4. 1957, starfsmaður í
mötuneyti á Sjúkrahúsinu á Sauðárkróki en fyrrv.
maður Hallfríðar er Kristján Runólfsson, f. 5.7. 1956,
og eiga þau þrjá syni og tvö barnabörn; EUert Sig-
urðsson, f. 1.5. 1959, bílstjóri hjá Mónu ehf., kvæntur
Annabellu Jósefsdóttur, f. 3.4. 1959, sölukonu hjá
Kassagerðinni hf.
Foreldrar Ara; Sigurður Ellertsson, f. 13.7. 1919, d.
15.1. 1981, búfræðingur og bóndi í Holtsmúla í Skaga-
firði, og Gunnur Pálsdóttir, f. 4.1. 1930, húsfreyja.
Móðir Sigurðar var Ingibjörg Sveinsdóttir, oddvita
á Hóli í Sæmundarhlíð Jónssonar, hreppstjóra Jóns-
sonar, húsmanns á Bessastöðum Jónssonar, Oddsson-
ar hreppstjóra. Móðir Ingibjargar var Hallfríður Sig-
urðardóttir frá Sjávarborg, af ætt Borgar-Bjarna
Bjarnasonar. Móðir Sveins á Hóli var Sigríður Magn-
úsdóttir, hreppstjóra á Halldórsstöðum í Laxárdal Ás-
mundssonar. Jón Jónsson, bóndi og hreppstjóri á
Hóli, er forfaðir Hólsættar og er einnig faðir Árna
Hafstaðs í Vík, ættföður Hafstaðsættar. Guðmundur
bróðir Ingibjargar frá Hóli er faðir þeirra bræðra
Sveins hestamanns á Sauðárkróki og Stefáns, fyrrv.
þingmanns.
Gunnur er dóttir Páls, b. og ættfræðings á Stóru-
Völlum Jónssonar, Guðmundssonar, ríka á Keldum
Brynjólfssonar, b. á Vestri-Kirkjubæ Stefánssonar, b.
í Árbæ Bjarnasonar, ættfóður Víkingslækjarættar
Halldórssonar.
Móðir Gunnar var Sigríður, dóttir Guðjóns Þor-
bergssonar og Sigríðar Þorsteinsdóttur.
Ari Jóhann verður með burtfarartónleika frá Tón-
listarskólanum á Akureyri á afmælisdaginn. Tónleik-
arnir verða haldnir í Laugarborg í Eyjafjarðarsveit og
Höfuðstafir -
Út er komin ljóðabókin Með luktum augum eftir
Jónínu Hallgrímsdóttur frá Hrafnabjörgum í Jök-
ulsárhlíð. Efni hennar er að mestum hluta kvæði en
þó fljóta með einstaka lausavísur. Ég tek dæmi af
vísu sem kallast Þytur vorsins:
Ég vaknaði einn morgun í vetur sem leið
við vorþyt á glugganum mínum.
Ég sá strax aó úti sólskinið beið,
já, sumarið var á noróurleið
með voldugum' vængtökum sínum.
Silja Aðalsteinsdóttir skrifar aðfararorð og birtir
þar vísu sem Jónína orti sextán ára:
Rœðir málin rðlega,
raupar munni finum,
hœlir ofur hóflega
heimskupörum sínum.
Og svo að öðru. Grímur Ebenezersson (f. 1892, d.
1912) kvað eftir að hafa leitað læknis sem þótti dýr-
seldur og orðmargur:
Orðum dælir doktorinn,
dropum hœlir sínum;
stígur ræl meó reikninginn
rétt á hœlum mínum.
Ætt
Sigurður var sonur Ellerts Símonar, b. í Holtsmúla
Jóhannssonar, b. í Saurbæ Jóhannssonar. Móðir Jó-
hanns í Saurbæ var Ingibjörg Kristjánsdóttir frá Hug-
ljótsstöðum á Höfðaströnd, afkomandi Jóns prinna
Jónssonar, og af Stórubrekkuætt í Fljótum. Jóhanna
Steinunn, systir Ellerts Símonar, er langaamma Ei-
ríks Haukssonar söngvara í Noregi og Jóns Páls Sig-
marssonar heitins, kraftlyftingamanns.
unn, f. 1.8. 1977, í
sambúð með Arn-
ari Hrafnssyni;
Mekkín, f. 5.1.
1992.
Börn Hönnu úr
fyrri sambúð, stjúp-
börn Bjarka, eru:
íris Ósk Sighvats-
dóttir, f. 4.8. 1977, í
sambúð með Guð-
bjarti Flosasyni; Elmar Ingi Sighvatsson, f. 8.5. 1980.
Hálfsystkin Bjarka, sammæöra, eru Björn Kristjáns-
son, f. 1956, búsettur í Reykjavík; Mikael Hreiðarsson,
f. 1960, búsettur í Reykjavík; Tony Ann Korposak Sud-
ar, f. 1961, búsett í Orlando, Florida; Michelle Pulgar-
on Sudar, f. 1963, búsett í Orlando, Florida; Patricia
Sudar, f. 1964, búsett í Orlando, Florida.
Hálfbróðir Bjarka, samfeðra, er Vic Vicers, f. 1950,
búsettur i Palm Springs í Kaliforníu.
Foreldrar Bjarka: Vic Vicers, d. 1981, og Þorgerður
Ólafla Laxdal Karlsdóttir Sudar, f. 30.6. 1932, búsett í
Orlando, Florida.
Bjarki tekur á móti gestum að Laugavegi 22, 2.hæð,
laugardagskvöldið 24.5. nk. kl. 20.30.
Grímur var eitt sinn á ferð i illviðri en í þeirri
ferð frétti hann af trúlofun konu sem Lára hét.
Hann kvað:
Þó aó Kári klóri mér
kunna sár þau gróa,
en ef Lára lofuð er
lœt ég tárin flóa.
Jón S. Bergmann (f. 1874, d. 1927) var snjall hag-
yrðingur. Eftir hann eru þessar vísur:
Auður, dramb og falleg föt
fyrst af öllu þérist,
og menn sem hafa mör og kjöt
meira en almennt gerist.
Inn á leirinn barst vísa eftir einhvern Jón
Jónsson sem gerði ekki nánar grein fyrir sér.
Efnistök minna dálítið á Jón Ingvar Jónsson
án þess að hér verði fullyrt neitt um það:
Össur, þú ert illa ger,
afglöp þín svo stór og mörg,
bráóum, vinur, veröur þér
varpaófyrir Ingibjörg.
Beittu í laumi kjafti og kló,
- kœrleika til vara.
Þá ertu efni í Oddfellow
eða frímúrara.
Ég var ekki viss um hvort ég ætti að birta þessa
vísu. Össur hefur ekkert gert mér. Vísan er bara
svo fjári góð. Ef hann skyldi lesa þetta bendi ég
honum sérstaklega á lokavísuna sem er eftir
óþekktan höfund:
Vió yrkjum svona allavega
upp á grín.
Taktu þaö ekki alvarlega
elskan mín.
Umsjón
Ragnar Ingi
Aðalsteinsson
ria@ismennt.is
V