Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2003, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2003, Blaðsíða 35
MIÐVIKUDAGUR 11.JÚNÍ2003 35 KvikitiyiiiHrlom' SWW VALERIA GOLiNO . ,★★★> j Kvikmynciijji ★ ★★ ★ ★ ★ O H.T.RÍS 2 Sýnd kl. 6,8 og 10. B.i. 12 ára. Sýnd kl. 6,8 og 10. B.i. 12 ára. uilHÍn Hovv 10] QSE ■iUVHO Days Sýnd kl. 5.45,8 og 10.15. B.i. 12ára. Sýnd kl.6,8og 10.B.Í. 12ára NÓI ALBINÓI: Sýnd kl. 6. KRINGLAN ALFABAKKI Martin Síoc Martín ★★★ kvlkmyndlr.com kvlkmyndlr.com. k Það borgar B s<9að ■ kynnast > w fólki vel & áðurenþú ferðá blint Hrstefnumót a Netinu. j Það borgar sig að kynnast ■ fólki vel áður en þú > ferð á blint | stefnumót á Netinu. 1 down T tne "iouse UlíLJ-dJÍijiJJJ JOHNNY ENGLISH Sýnd kl.4og 6. Þessi frábæra grínmynd er frá fram leiðandanum Jerry Bruckheimer sem hefur gert smellina Armageddon, Pearl Harbor, The Rock og Conair Queen Latifah fer á kostum og Steve Martin slær i gegn í sinni stærstu gamanmynd frá upphafi! HOWTOLOOSEAGUY IN10DAYS: Sýnd kl.8 og 10.10. SKÓGARLÍF: THE MATRIX RELOADED: ÍLÚkUsVlP kl. 5.30,8 og 10.30. SAMBHÞ KRINGLAN tS 588 0800 ÁLFABAKKI tS 587 8900 tFJÖLMIÐLAVAKTIN Finnur Vilhjálmsson skrifar um fjölmiðla Ráðalausi ráðherrann Á mánudagskvöldið hringdi ég heim til ónefnds ráðherra til að leita eftir skoðun hans og/eða viðbrögð- um við ákveðnu umdeildu máli sem kom upp um helgina. Erindið var að bera upp við hann tvær spumingar sem valoiað höfðu í samtali mínu við framkvæmdastjóra fyrirtækis sem fyrmefnt mál snerti. Annars vegar taldi framkvæmdastjórinn til- tekin lög, sem reyndi á í málinu, úr- elt og hins vegar að þau mismun- uðu samkeppnisaðilum, hvort tveggja með nokkmm rétti að mínu mati. Ráðherrann tilkynnti mér afar stuttur í spuna að hann vildi ekkert segja um málið, lögin væm tiltölu- lega nýsett og í gildi og Alþingi og fleiri þyrftu að fjalla um málið ef breyta ætti lögunum. „Þú hefur ekk- ert eftir mér um þetta,“ sagði hann og flýtti sér svo mikið að ljúka sam- talinu að hann nánast skellti á mig. Viðbrögð ráðherrans komu mér mjög á óvart. Ekki var verið að biðja hann um ítarlega útfærða og þaul- hugsaða stefnu í málinu. Hann var aðeins inntur eftir skoðun sínum sem æðsti yfirmaður þessara mála- flokka í stjórnsýslunni, á umdeild- um mikilvægum gmndvallaratrið- um sem borgari hafði gagnrýnt. Ég tel ekki ósanngjarnt að fara fram á það af ráðherra að hann tjái sig um slfk mál út frá pólitískri sannfæringu sinni. Því hann getur haft forgöngu um breytingar ef hann vill. Ég vona að ég hafl í þetta sinn bara hitt illa á ráðherrann, því ekki hefði ég fyrir fram búist við svona svömm eða viðmóti frá þess- um tiltekna ráðherra. STJÖRNUGJÖF DV ★ ★★★ Nói albínói ★★★Á Respiro ★★★ Identity ★ ★★ Narc ★ ★★ X-Men 2 ★★★ City By the Sea ★ ★★ Confidence ★★i Johnny English ★ ★★ Matrix Reloaded ★ ★ Bringing Down the House ★ ★ View From theTop ★ ★ Darkness Falls ★ ★ A Man Apart ★i How to Lose a Guy in 10 Days ★i Old School ★ Harríson Ford í gamansamri löggumynd: Tekur gamanið alvarlega HAMINGJUSÖM: Harrison Ford og hans heitelskaða.Calista Flockhart.eru að undirbúa brúðkaup, að þv( er fréttir herma. Harrison Ford er að sögn þeirra sem til hans þekkja mislyndur mað- ur. Það er aldrei að vita í hvernig skapi hann er að morgni dags þegar tökur em að hefjast. Ef sú tilkynn- ing berst að hann sé í góðu skapi í dag em allir ánægðir. Ef svo er ekki þá em meðleikarar hans og aðrir á varðbergi. Ekki það að Ford verði erfiður. Það er hann víst sjaldan heldur ef hann er ekki í „góðu skapi“ þá blandar hann lítið geði við aðra. Blaðamaður heimsótti hann við tökur á nýjustu kvikmynd hans, Hollywood Homicide, þar sem Ford leikur lögreglumann sem fer í dul- argervi sem fasteignasali. Myndin er öll á gamansömum nótum og er mótleikari hans Joss Hartnett. „Ég kann mun betur við gamanmynd eins og þessa heldur en þær róman- tísku gamanmyndir sem ég venju- lega leik í. Þar er ég oftast maðurinn sem ekkert er gaman að,“ segir Harrison Ford. „Nú fæ ég tækifæri til að vera sá sem hlegið er að“. Ford hefur þó ekki breytt þeirri venju sinni að eiga lítil samskipti við mótleikara sína þótt Hartnett og hann þurfi að ná saman í gaman- mynd: „Þessar tvær persónur eru engir vinir. Þær vinna saman og hafa engan skilning hvor á annarri. Ég tel það skila sér betur í myndinni að við höldum okkur hvort frá öðru og ég reyni ekki að breyta því.“ Josh Hartnett samþykkir að Ford sé fálátur þegar komi að persónu- legum samskiptum. „Við höfum átt okkar rispur í gamni og alvöru. Hann hefur frekar þurran húmor og getur verið hæðinn.“ Annars ætti Harrison Ford að vera oftast í góðu skapi þessa dag- ana. Hann er í farsælu sambandi með Calistu Flockhart og er sagður á leið í hjónband. Hann fékk nýlega verðlaun frá samtökum áhættuleik- ara og svo steig hann fæti í steypu á Hollywood Boulevard innan um aðrar stórstjörnur. Leikstjóri Hollywood Homicide, Ron Sheldon, segir Harrison Ford vera „stóran hund“ sem sé þó alltaf tilbúinn að vera góður: „Harrison Ford er mjög sérstakur. Hann er nánast eins og vestraleikari sem er uppi á röngum tíma. Það er þó alltaf þessi glampi í augum hans sem seg- ir okkur að þarna á bak við sé mað- urinn sem er öðruvísi þegar hann slakar á yfir vindli og drykk.“ Nú liggur það Ijóst fyrir að ný Indiana Jones kvikmynd verður gerð og Ford staðfestir það. Það er búið að ljúka undirbúningsferlinu. Við munum hefja tökur sumarið 2004 og er ég spenntur fyrir þessu verkefni." Stöð 2 kl. 13.00 og 23.30 - Með tónlist í hjarta Kennslukona með stórt hjarta Wes Craven tók sér smáhvíld á milli „öskur“-mynda sinna númer tvö og þrjú og leikstýrði Music of the Heart, sem er eins langt frá hryll- ingsmyndum hans og hægt er; hug- ljúft drama um kennslukonu sem kennir fátækum bömum á fiðlu. Og með henni sýnir Craven að honum er fleira tU lista lagt en að gera spennandi hryllingsmyndir sem fá hárin til að rísa á höfði manns. Það er oft sagt að raunveruleikinn sé ótrúlegri en skáldskapurinn og má með nokkmm, sanni segja að Music of the Heart falli undir þenn- an flokk. í myndinni fylgjumst við með Robertu sem situr eftir með sárt ennið þegar eiginmaðurinn hverfur á braut með vinkonu þeirra. Hún þarf að endurmeta líf sitt og ala upp tvo syni sem eiginmaðurinn skildi eftir í hennar umsjá. Áður fyrr hafði Roberta verið efnilegur fiðluleikari sem ekki sá drauma sína rætast. FIÐLUKENNARINN: Meryl Streep I hlutverki fiölukennarans Robertu ásamt nemanda s(n- um. Hún tekur því á sig rögg og sækir um fiðlukennarastöðu við skóla í Harlem-hverfinu í New York. Eins og í ævintýrinu hefúr enginn trú á starfi hennar fyrr en árangurinn kemur í ljós. í einkalífinu er Roberta ekki jafn staðföst og f kennslunni. Hún á erfitt með að skilja af hverju eiginmaður- inn yfirgaf hana og nýr vinur í lífi hennar reynist ekki eins traustur og hún hafði vonað. Tíu ámm síðar er hún búin að festa sig í sessi þegar skellurinn kemur. Fjárveiting fæst ekki til áframhaldandi fiðlukennslu og henni er sagt upp. En eins og í sönnum ævintýmm, hvort sem þau em raunveruleg eða skáldskapur, er hjálpin handan við næsta horn ... hkarl@dv.is Stelling dagsLns Betrl sæti www.öwfifceem

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.