Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2003, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2003, Blaðsíða 2
2 FRtTTIR MIÐVIKUDAGUR 11.JÚNÍ2003 DV Bingó Tveir hafa þegar tilkynnt bingó á B- röðina og er þeim leik því lokið. Nú leikum við I-röðina og hér til hliðar birtist þriðja talan í þeim leik. Spilað á verður á bingóspjald DV í allt sumar og veglegir ferða- vinningar í boði. Samhliða því að einstakar raðir eru spilaðar er allt spjaldið spilað. Ferð með Iceland Express er í boði fyrir bingó á I-röðina en vikuferð til Portúgals með Terra Nova Sól í boði fyrir allt spjaldið. Braust inn í skip Héraðsdómur Vestfjarða hefur dæmt 25 ára mann í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnað. Maður- inn játaði fyrir dómi að hafa brotist inn í fiskiskipið Þorlák ÍS-15 á síðasta ári þar sem það lá við festar í Bolungarvíkur- höfn og stolið þaðan úr vist- arverum skipverja fimm út- varpstækjum með geislaspil- urum af gerðinni Alpine. Mað- urinn hefur áður hlotið refs- ingu en árið 1997 var hann dæmur í 15 mánaða skilorðs- bundið fangelsi fyrir líkams- árás. Honum var einnig gert að greiða 80 þúsund krónur í skaðaþætur og allan sakar- kostnaðinn, þar með talda 35 þúsund króna þóknun verj- anda síns. Hvalreki Björgvin Hreinsson og synir hans Björgvin og Eiríkur fengu sex tonna hnúfubak í netið rétt utan viðTangarrif í gær. Feðgarnir voru á sex tonna Sómabát og hvalurinn því svipaður að þyngd og bátur- inn. Að sögn Björgvins mæld- ist hvalurinn rétt tæpir níu metra á lengd. DV-mynd Bjarki Björgúlfsson Samanburður á afbrotum í Reykjavík og öðrum borgum: EFNI BLAÐSINS Herstöðin kostar sitt - innlendar fréttir bls. 4 Davíð skrifar Bush - innlendar fréttir bls. 6 Skammur skóli lögreglumanna - úttekt og viðtöl bls. 8-9 Hafa bjargað ríflega 300 mannslífum - úttekt bls. 10-11 Bráðalungnabólgan og efnahagur heimsins - heimsljós bls. 12-13 Troðningur á Mars - erlendar fréttir bls. 14 og 15 Goðsagnasmiðir - menning bls. 16-17 Rólegt í Laxá í Kjós - DV-sport bls. 39 Kveisa í landsliðínu - DV-sport bak Útgáfufélag: Útgáfufélagiö DV ehf. Framkvæmdastjóri: Örn Valdimarsson Adalritstjóri: Óli Björn KSrason Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson Aöstoöarritstjóri: Jónas Haraldsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiðsla, áskrift: Skaftahliö 24,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5749 Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyrl: Hafnarstræti 94, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot: Útgáfufélagiö DV ehf. Plötugerö og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aösent efni blaösins ! stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiöir ekki viðmælendum fyrir viðtöl viö þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Tiltölulega öruggt að búa í Reykjavík VASKIR MENN A VETTVANGI: Víkingasveitin þarf sjaldan að bera vopn sín á almannafæri enda er tíðni líkamsmeiðinga og stórglæpa í lægri kantinum hér á landi miðað við margar borgir (nágrannalöndum. Borgarfræðasetur hefur tekið saman skýrslu um saman- burð á tíðni tilkynntra af- brota í Reykjavík og í öðrum borgum á Vesturlöndum. Nið- urstöður skýrslunnar sýna m.a. að tíðni líkamsmeiðinga í Reykjavík er heldur í lægri kantinum miðað við hinar borgirnar á meðan tilkynnt umferðarlagabrot eru mun fleiri í Reykjavík en annars staðar á Norðurlöndum. í skýrslunni var borin saman tíðni tilkynntra afbrota á einu ári á tímabilinu 1996-2001 en með til- kynntum afbrotum er átt við þau öll þau afbrot sem lögreglan veit um. Rannsóknir hafa þó sýnt að að- eins um helmingur afbrota sé til- kynntur til lögreglunnar. Saman- burður var gerður við sjö borgir á Norðurlöndum og yfir sjötíu bresk- ar og bandarískar borgir sem höfðu flestar svipaðan ibúafjölda og Reykjavík. Niðurstöður saman- tektarinnar sýna að ekki er mikil fylgni á milli íbúafjölda og tíðni lögbrota. Samkvæmt niðurstöðum skýrsl- unnar er tíðni tilkynntra brota í Reykjavík almennt í meðaltali eða lág miðað við aðrar Norðurlanda- borgir en þó vekur athygli að til- kynnt umferðarlagabrot í Reykjavík eru mun fleiri en annars staðar á Norðurlöndunum. Þá er tíðni til- kynntra kynferðisbrota í Reykjavík heldur há miðað við samanbornar Norðurlandaborgir og í hærri kant- inum miðað við enskar borgir. Hins vegar er nauðgunartíðni í Reykjavík lág miðað við samanbornar banda- rískar borgir. Ekki er hægt að ráða af skýrslunni hvers vegna tíðni kyn- ferðisbrota er svo há í Reykjavík sem raun ber vitni, hvort það sé vegna þess að fleiri kynferðisbrot séu þar framin eða vegna þess að fleiri slík brot séu tilkynnt til lög- reglunnar. Tíðni tilkynntra líkams- meiðinga í Reykjavík er ílægri kantinum miðað við samanbornar ensk- ar borgir, undir meðal- lagi miðað við banda- rískar borgir og í með- allagi miðað við Norð- urlandaborgir. Tíðni ffkniefnabrota í Reykjavík er frekar lág miðað við aðrar borgir og mun lægri en í flestum Norður- landaborgunum. Fíkniefnabrot eru hins vegar yfirleitt ekki tilkynnt til lögreglunnar og því var miðað við þau fíkniefnabrot sem lögreglan vissi um. Þá er tíðni tilkynntra lík- amsmeiðinga í Reykjavík undir eða í meðallagi samanborið við hinar borgirnar. Ekki er mikið tilkynnt um rán og manndráp í Reykjavík miðað við samanbornar borgir en þó eru fleiri manndráp tilkynnt á hverja 100 þúsund íbúa í Reykjavík en í Ála- borg, Róm, Kaupmannahöfn, Lissabon og í Vínarborg. Tíðni til- kynntra þjófnaða í Reykjavík er í meðallagi, sem og tíðni innbrota. Tíðni tilkynntra lfkamsmeiðinga, kynferðisbrota og fíkniefnabrota í Reykjavík hækkaði umtalsvert á tímabilinu 1989-2000 á meðan tíðni tilkynntra manndrápa hélst nokkuð svipuð á því tímabili. í skýrslunni er þó vakin athygli á því að mikil umræða um einstaka afbrotaflokka geti aukið kraftinn í baráttunni gegn þeim á margan hátt, innan lögreglunnar og í sam- félaginu í heild. Þetta geti síðan leitt til þess að aukning verði á til- kynningum þó svo að ekki sé um raunverulega aukningu á brotum að ræða. Þannig geti t.d. aukið lög- reglueftirlit með umferðinni end- urspeglast beint í hærri tíðni um- ferðarlagabrota. Niðurstöður samantektarinnar sýna að ekki sé mikil fylgni á milli íbúafjölda og tíðni lögbrota. Margir telja að afbrot séu algengari í stærri borgum, ekki síst alvarleg brot eins og manndráp og ofbeldisfull rán en staðreyndin virðist hins vegar vera önnur. Alvarleg afbrot eru hlutfalls- lega svipuð að umfangi í minni borgum og í þeim stærri og í sum- um tilvikum eru þau jafnvel al- gengari í fámennari borgum. Þetta þýðir að Reykvíkingar geta ekki gef- ið sér að hlutfallsleg tíðni afbrota sé minni í Reykjavík vegna smæðar hennar. Samanlögð tíðni líkamsmeiðinga, kynferðisbrota, manndrápa, þjófnaða, nytjastulda og fíkniefnabrota Tilkynnt kynferðisbrot á hverja 100.000 ibúa Umferðarlagabrot á hverja 100.000 íbúa Meðaltal Stokkhólmur Reykjavlk Gautaborg Ósló Kaupmannahöfn Álaborg Helsinki Tampere 120 100 60 90 120 150 Reykjavlk Helsinki Tampere Álaborg Ósló Gautaborg rma 6.185 5.000 10.000 15.000 20.000 25.000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.