Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2003, Blaðsíða 15
I-
MIÐVIKUDAGUR 11.JÚNÍ2003 FRÉTTIR 15
Mikill áhugi á Hillary
BÓKSALA: Bók Hillary Clinton,
fyrrum forsetafrúar Bandaríkj-
anna, seldist í 200.000 eintök-
um á fyrsta degi. Forsvars-
menn útgefanda bókarinnar,
Simon & Schuster, voru svo
ánægðir með viðtökurnar á
mánudaginn að þegar voru
pöntuð 300.000 eintök í viðbót
við þær 1.000.000 bækur sem
voru prentaðar í fyrsta upplagi.
Þar á bæ vonast menn til að
bókin verði sú söluhæsta á ár-
inu í flokki bóka sem ekki telj-
ast skáldsögur. Allt virðist
einmitt stefna í það, því bókin
hefur selst á svipuðum hraða
og vinsælustu skáldsögur. Sér-
fræðingar benda á að bók Hill-
ary sé miklu vinsælli en endur-
minningar Reagans fyrrum for-
seta og Nancy, konu hans.
Þurfa ekki að trúa á Guð
DANMÖRK: Helmingur Dana
sem tóku þátt í skoðanakönn-
un sögðu að prestar þurfi ekki
að trúa á Guð heldur sé nóg
fyrir þá að trúa á náungakær-
leik. Þar með virðist sem annar
hver Dani standi með prestin-
um Thorkild Grosboll sem ný-
lega var vísað úr embætti fyrir
að gefa það út að hann tryði
ekki á Guð.
Grosboll á það á hættu að
verða alfarið rekinn úr starfi ef
hann dregur ekki yfirlýsingu
sína til baka. Skoðanir á þessu
máli eru mjög skiptar í Dan-
mörku.Á meðan margir kirkj-
unnar menn segja að trúin snú-
ist óumdeilanlega um að Guð
sé til segja aðrir að efi prestsins
sé einungis til marks um að
hann sé mannlegur.
FLUGSKEYTAÁRAS Á GAZA: Mikill mannfjöldi safnaðist saman við brunnið flak bif-
reiðar háttsetts leiðtoga harðlínusamtakanna Hamas sem (sraelar reyndu að drepa (
flugskeytaárás í gær. Leiðtoginn særðist lítillega í árásinni en tveir týndu lífi.
ísraelar gagnrýndir
fyrir morðtilraun
ísraelsk stjórnvöld hafa sætt
ámæli húsbænda í Hvíta hús-
inu fyrir tilraunina til að koma
háttsettum leiðtoga harðlínu-
samtakanna Hamas fyrir katt-
arnef í gærmorgun. Banda-
ríkjamenn telja að tilræðið
gæti orðið til að torvelda til-
raunir til að koma á friði fyrir
botni Miðjarðarhafs.
ísraelsk herþyrla gerði flugskeyta-
árás á bfl Abduls-Aziz al-Rantissis á
Gaza en honum tókst að forða sér á
síðustu stundu. Al-Rantissi særðist
lítillega í árásinni en tveir létust.
Liðsmenn Hamas hétu þegar í stað
að ná fram hefndum tyrir árásina.
Brottflutningur gæti stoppað
Ef Hamas-liðar gera alvöru úr
hótunum sínum kynni svo að fara
að ísraelar stöðvuðu brottflutning
ólöglegra landtökumanna af palest-
ínsku landi, eins og svokallaður
Vegvísir að friði kveður á um.
Bandarísk stjórnvöld hafa lagst á
deilendur að fallast á friðaráætlun-
ina sem nýtur stuðnings Sameinuðu
þjóðanna, Evrópusambandsins og
Rússlands.
George W. Bush Bandaríkjaforseti
hét því eftir árásina í gær að hvika
STAÐREYNDIR UM AL-RANTISSI
(sraelsher reyndi í gær að
myrða Abdel-Aziz al-Rantissi,
háttsettan leiðtoga Hamas.
Al-Rantissi, sem er 55 ára, fædd-
ist nærri því sem nú er bærinn
Ashkelon í (srael en flúði til Gaza
með fjölskyldu sinni i striðinu
sem leiddi til stofnunar (sraels-
rfkis 1948.
Al-Rantissi tók þátt í stofnun
skæruliðasamtakanna Hamas ár-
ið 1987.
Al-Rantissi er barnalæknir,
menntaður í Egyptalandi. Hann
hefur verið helsti talsmaður
Hamas og síðustu daga hefur
hann verið í sviðsljósinu eftir að
samtökin höfnuðu áskorunum
palestfnsku heimastjórnarinnar
um að láta af vopnaðri baráttu.
hvergi í tilraunum sínum til að
koma á friði. Hann sagði þó að árás-
in kynni að veikja stöðu Mah-
mouds Abbas, hófsams forsætisráð-
herra palestínsku heimastjórnar-
innar, sem vill að harðlínumenn láti
af sprengju- og skotárásum sínum í
ísrael.
Boðum komið áfram
„Ég hef áhyggjur af því að árásirn-
ar geri leiðtogum Palestínumanna
erfíðara fyrir um að berjast gegn
hryðjuverkamönnum. Ég tel heldur
ekki að árásin þjóni öryggishags-
munum ísraels," sagði Bush Banda-
ríkjaforseti.
Bush fyrirskipaði æðstu ráðgjöf-
um sínum að koma þessum boðum
tafarlaust til palestínskra og ísrael-
skra embættismanna og þrýsta á þá
að fara í einu og öllu eftir Vegvísin-
um. Þar segir að deilendur verði að
gera ákveðnar tilslakanir áður en að
stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínu-
manna komi árið 2005.
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
SÞ, sagði að árásin myndi flækja
tilraunir Abbas til að uppræta of-
beldisverk.
Óeirðir í Frakklandi
Allsherjarverkföll og mót-
mæli vegna breytinga á líf-
eyriskerfum í Frakklandi
leiddu til uppþota fyrir utan
franska þingið í gær. Útlit er
fyrir að ástandið verði betra í
dag en það gæti versnað aft-
urá morgun.
Samgöngur gengu nokkuð
greiðlega fyrir sig í morgun, þó
umferð í stærstu borgum Frakk-
Iands væri þung vegna verkfall-
anna vegna þess að hluti starfs-
manna almenningssamgöngufyr-
irtækja mætti ekki til vinnu í dag.
Þetta gæti þó einungis verið tíma-
bundið ástand þar sem fjögur stór
verkalýðsfélög hvöttu fólk til að
mótmæla aftur á morgun.
Mótmælin leiddu til uppþota í
gær fyrir utan franska þingið þegar
Jean-Pierre Raffarin forsætisráð-
herra kynnti frumvarpið um breyt-
ÓEIRÐIR: Lögreglan í Frakklandi þurfti
að berjast við mótmælendur fyrir utan
franska þingið f gær.
ingu á lífeyrissjóðskerfínu. Seinna
um kvöldið ruddust um það bil
350 mótmælendur inn í Óperuna
og trufluðu flutning á „Cosi Fan
Tutti" eftir Mozart.
Áður höfðu tugir þúsunda geng-
ið um götur Parísar og annarra
borga til að krefjast þess að hlust-
að yrði á kröfur verkalýðsfélaga
sem vilja ekki sætta sig við að
verkafólk þurfi að vinna fleiri ár af
ævi sinni til að eiga rétt á fullum
lífeyri.
Mótmælin leiddu til
uppþota í gær fyrir ut-
an franska þingið þeg-
ar Jean-Pierre Raffarin,
forsætisráðherra
kynnti frumvarpið um
breytingu á lífeyris-
sjóðskerfinu.
MENNTASKOLINN VIÐ SUND
Menntaskólinn við Sund
Málabraut:
Náttúrufræðibraut:
www.msund.is
Innritun nýnema stendur yfir í skólanum frá kl. 8-19, dagana 10. og 11. júní