Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2003, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2003, Blaðsíða 40
€ FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR 550 55 55 Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem birtist, eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku 1 ÍW- greiðast 7.000 kr. Fullrar nafnleyndar er gætt. MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNl2003 Kjallarar - Lesendabréf Lesendur geta hringt allan sólarhringinn í síma 550 5035, sent tölvupóst á netfangið gra@dv.is eða sent bréf til Lesendasíða DV, Skaftahlíð 24,105 Reykjavík. Lesendur eru hvattir til að senda mynd af sér til birtingar með bréfunum á sama póstfang. Kveisa herjar á liðið ‘ Ekki hægt að tilkynna byrjunarliðið sem mætir Litháum í dag fyrr en um hádegið Ásgeiri Sigurvinssyni lands- liðsþjálfara og Loga Ólafs- syni, aðstoðarmanni hans, gæti verið vandi á höndum þegar íslenska landsliðið í knattspyrnu mætir Litháen í 5. riðli undankeppni Evrópu- móts landsliða í knattspyrnu sem hefst klukkan 17 að ís- lenskum tíma í dag. Magakveisa stakk sér niður inn- an hópsins fyrir ferðina og fleiri ♦ veiktust þegar komið var út til Kaunas. Að sögn Loga Ólafssonar aðstoðarlandsliðsþjálfara voru þeir Arni Gautur Arason, Helgi Sigurðs- son og Jóhannes Karl Guðjónsson slappir í gær en þeir félagar luku þó æfingu liðsins. Ivar Ingimarsson og Lárus Orri Sigurðsson veiktust áður en haldið var utan en hafa náð sér góðum. „Það er deginum ljósara að menn eru að koma með þessa magakveisu að heiman. Hún gerir undirbúning- 'Ti inn erfiðari en ella og við vitum ekki „Við verðum að vona að ástand leikmanna horfí til betri vegar enda gríð- arlega mikilvægur leikur fram undan" hver verður næstur. Þess vegna höf- um við ákveðið að velja byrjunarlið- ið ekki fyrr en um hádegið í dag. Við verðum að sjá hvernig inenn vakna í fyrramálið (í dag) og þá í framhald- inu getum við farið að stilla upp liðinu. Við verðum að vona að ástand t leikmanna horfi til betri vegar enda gríðarlega mikilvægur leikur fram undan," sagði Logi Ólafsson, að- stoðarþjálfari íslenska landsliðsins í knattspyrnu, í samtali við DV eftír æfingu liðsins í gærkvöld. Leikurinn hefur mikla þýðingu upp á framhaldið í riðlinum en úrslit [ i Mjm HF w SIGRI FAGNAÐ:íslendingarfagna hér sigri á Færeyingum um síðustu helgi.Guðni Bergsson, fremstur á mynd, leikur sinn 80. landsleik gegn Litháum í kvöld og jafn- framt sinn síðasta landsleik. Bein lýsing frá leiknum gegn Litháum á dv.is Grafík, liðsuppstilling og uppfærð lýsing á mínútu fresti. leikja um liðna helgi hleyptu mikilli spennu í riðilinn. Islendingar unnu þá Færeyinga og Þjóðverjar og Skot- ar skildu jafnir í Glasgow. Sigur opnaði möguleika Sigur á Litháum myndi opna fyrir alla möguleika íslenska liðsins. Á hitt ber að líta að íslendingar eiga mjög erfiðan leik fyrir höndum enda hafa Litháar sterku liði á að skipa og ber staða þeirra í riðlinum glöggt vitni um það. „Þessi leikur og hagstæð úrslit gæti fyrir marga hluta sakir orðið vendipunktur í riðlinum. Ef sigur vinnst í leiknum verður hann eflaust lengi í minnum hafður. Það em tveir leikmenn að ná merkum áföngum í þessum leik. Rúnar Kristínsson er að leika sinn 100. landsleik og Guðni Bergsson að leika kveðjuleik og um „Það er deginum Ijós- ara að menn eru að koma með þessa maga- kveisu að heiman." leið sinn 80. leik,“ sagði Logi og bætti við að Guðni ætti við meiðsli að stríða í nára og baki en vonaðist eftir að hann yrði klár í slaginn. jks.sport@dv.is Leikur íslands og Litháen, sem fer fram í Kaunas klukkan 17.00 í dag, verður í beinni á dv.is. Sú nýbreytni var tekin upp í leik íslands og Færeyja að lýsa leiknum beint á Netinu með grafík, liðsuppstillingu og mín- útu fyrir mínútu lýsingu. Mælt- ist lýsingin mjög vel fyrir hjá notendum dv.is og þess vegna munum við endurtaka leikinn. Allar helstu upplýsingar koma á Netið á rauntfma og uppfærist lýsingin sjálfkrafa á mínútu fresti. Við hvetjum alla sem áhuga hafa á að fylgjast með leiknum að fara á www.dv.is og smella á kynningarborða sem þar er. Veðrið á morgun Skýjað og lítils háttar rigning suðaustan- og austanlands. Annars bjartviðri en likur á síðdegisskúrum. Sums staðar þokubakkar austan tit og á annesjum norðanlands. Hiti 6 tíll 7 stig, hlýjast vestan til á landinu. Sólarlag Sólarupprás I kvöld á morgun Rvík 23.54 Rvík 03.01 Ak. 24.30 Ak.01.54 Síðdegisflóð Árdegisflóð Rvík 15.56 Rvik 04.12 Ak. 20.29 Ak. 08.45 Veðriðídag Veðrið kl. 6 i morgun Akureyri léttskýjað 8 Reykjavík þokumóða 10 Bolungarvík léttskýjað 10 Egilsstaðir skýjað 7 Stórhöfði skýjað 9 Kaupmannah. skýjað 17 Osló skúr 12 Stokkhólmur 12 Þórshöfn súld 9 London skýjað 15 Barcelona mistur 21 New York skýjað 22 París skýjað 17 Winnipeg heiðskírt 10 SÁstaríwetjandi og kynörvandi nuddolía. ^hrity^^rbs 100% náttúruleg SÉRFRÆÐINGAR í FLUGUVEIÐI CORTLAND SPORTVÖRUGERÐIN SKIPHOLT 5 5628383 Sm áauglýsingar 550 5000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.