Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2003, Blaðsíða 33
MIÐVIKUDAGUR 11.JÚNÍ2003 TILVERA 33
Menn og hestar
GLUGGASÝNING: Bjarni Þór,
myndlistarmaður frá Akranesi,
er listamaður mánaðarins í
Gallerí List í Reykjavík.Verk
hans eru til sýnis í gluggum
gallerísinsfrá 2.—16. júní. Hann
sýnir 12 olíuverk sem unnin
eru á þessu ári. Þetta eru
fígúratlfar mannamyndir og
hestamyndir málaðar í björt-
um og llflegum litum.
Tjá hreyfingar fílsins
DANSNÁMSKEIÐ: Haldin verða
tvö námskeið fýrir börn í nú-
tímadansi.söng og leikrænni
tjáningu í Norræna húsinu á
næstunni. Þar verður m. a. reynt
að tjá hreyfingar fílsins og dag-
inn eftir koma börnin fram á
stóru norrænu fílasýningunni.
Fyrra námskeiðið, fýrir 7-9 ára, er
föstudaginn 13.júní, hið síðara
erfyrir 10-12 ára þann 19.júní.
Trúarleg tónlist
GOSPEL: Gospelkór Reykjavík-
ur heldurtónleika í Fíladelfíu,
Hátúni 2,annað kvöld, 12. júní,
kl. 20.Tuttugu og fimm manns
syngja í kórnum undir stjórn
Óskars Einarssonar.Einnig
kemur fram átta manna hljóm-
sveit og margir einsöngvarar,
m.a. Guðrún Gunnarsdóttir og
Páll Rósinkranz.Allurágóði
rennur til ABC hjálparstarfs.
Samtímalistin í Safni
Listaverkasafn þeirra Péturs Ara-
sonar og Rögnu Róbertsdóttur,
sem heitir einfaldlega Safn, var
opnað almenningi um helgina. Þar
getur að líta verk eftir íslenska og
erlenda samtímalistamenn og
bregður íyrir ýmsum stefnum sem
voru áberandi á síðustu áratugum
tuttugustu aldarinnar. Safn er sam-
starfsverkefni Reykjavíkurborgar
og Péturs Arasonar, ásamt Rögnu
Róbertsdóttur. Markmið þess er
meðal annars fræðsla sem fara
mun fram á ýmsan hátt.
gun@dv.is
GESTIR: Stefán, íris L(na, Marta og Sesselja mættu á opnun.
SAFNVERÐIR: Eigendurnir Ragna Róbertsdóttir og Pétur Ara-
son,ásamt starfsmanni safnsins, Markúsi Þór Andréssyni.Verk-
ið fýrir framan þau er eftir Magnús Pálsson sem nú býr f
London. DV-myndirTobias
T
GRJÓT: Verk eftir breska listamanninn
Richard Long.
JAG-leikari fannst
látinn heima
Ástralski
sjónvarpsleik-
arinn Trevor
Goddard, sem
aðdáendur
JAG-syrpunnar
þekkja mæta-
vel, fannst lát-
inn á heimili
sínu í
Hollywood á
sunnudag.
Það var unnusta leikarans sem
kom að honum látnum f rúminu.
Lögreglan segir að hann hafi tekið
inn of stóran skammt af lyfjum.
Skrifelsi af ýmsu tagi fannst í
íbúðinni en ekki er talið að um
sjálfsmorðsbréf sé að ræða.
„Þar er ekki að finna neitt sem
bendir til að Trevor Goddard hafi
ætlað að taka eigið líf,“ sagði tals-
maður lögreglunnar.
Goddard var atvinnuboxari áður
en hann sneri sér að leiklistinni.
Hann varð íyrst þekktur vestra fyrir
að koma fram í sjónvarpsauglýs-
ingum.
Goddard var 37 ára og lætur eftir
sig tvö börn frá fyrra hjónabandi.
Jodie langartil aðfara
til Hollywood
Breska ofur-
sætan langa og
mjóa, Jodie Kidd,
hefur mikinn
áhuga á að öðlast
frægð og frama
vestur í
Hollywood þar
sem glaumurinn
og gleðin er við
völd öll kvöld.
„Þeir eru margir sem hafa sagt við
mig að ég ætti að reyna fyrir mér
sem leikkona," segir Jodie í viðtali
við breska blaðið Sunday Mirror.
„Ég hef fengið tilboð um að leika í
kynningarmyndum sem fyrirsæta
en ég hef alltaf hafnað því. Ég vil fá
almennilegt hlutverk ef ég á að leika
í mynd,“ segir blessuð fyrirsætan
sem hefúr mælt sér mót við kvik-
myndamógúla í von um að eitthvað
spennandi og skemmtilegt gerist.
HAFMAÐUR R(S ÚR SJÓ: Þessa skemmtilegu Ijósmynd tók Ijósmyndari DV þegar hann var á ferð um Seltjarnarnesið. Þegar hann
leit út að Gróttuvitanum sá hann mann rísa úr hafinu. Maðurinn var á sundi og tyllti sér smástund á skerið áður en hann lagðist
til sunds aftur. Ekki var sérlega heitt þennan dag og sjórinn langt (frá að vera jafn heitur og við Miðjarðarhafið. Hraustmennið lét
það ekki á sig fá og synti hraustlega til baka. DV-myndSiguröur Jökuii
Haldið upp á þrítugsafmæli Fellaskóla:
Heiður þeim sem hafa
kenntfrá upphafi
Veðrið lék við starfsfólk, nemend-
ur og gesti Fellaskóla þegar haldið
var upp á 30 ára afmæli skólans ný-
lega. Éftir afmælissöng og hljóð-
færaleik kennara voru þær Margrét
Jónsdóttir, Ólöf Sigurðardóttir,
Sesselja Gísladóttir og Valgerður Ei-
ríksdóttir heiðraðar sérstaklega en
þær hafa allar kennt við skólann frá
stofnun hans. Þá færði nýkjörinn
formaður Foreldrafélags Fellaskóla,
Magnús Óskarsson, skólanum tvö
gasgrill að gjöf ffá félaginu og Sel-
ect. Orkuveita Reykjavíkur gaf skól-
anum þrjá vatnsbrunna sem nú er
verið að koma fyrir á þremur stöð-
um inni í skólanum. Þorsteinn
Hjartarson skólastjóri lcynnti nýtt
ÚTITÓNLEIKAR: Skólahljómsveit Fella-
skóla tróð upp en hana skipa þeir Sverr-
ir Örn Sverrisson, Þórður Almar Björns-
son, Baldur Kristjánsson, Finnur Krist-
jánsson og Þórhallur Atlason.
blað sem gefið var út í tilefni afmæl-
isins og Hólmfríður G. Guðjóns-
dóttir aðstoðarskólastjóri kynnti til-
lögur í samkeppni sem efnt var tU
meðal nemenda, foreldra og starfs-
manna um nafn á nýja landnema-
spildu Fellaskóla í Hvammsmörk
við Hvammsvík. Alls bárust tilnefn-
ingar frá 50 aðUum, en 34 mismun-
andi nöfn. Vinningshafar voru
Bjartur Hafþórsson, 2.IH, og móðir
hans Helga Björk Þórisdóttir fyrir
nafnið „Fellalundur".
Eftir setningarathöfnina var farið
í skrúðgöngu um Fellahverfi með
Lúðrasveit Árbæjar- og Breiðholts í
broddi fylkingar sem LUja Valdi-
marsdóttir stjórnaði. Þá var farið í
leiki við skólann og loks fengu allir
gott að borða. gun@dv.is
Suzuki Baieno GLX, 4 d., bsk.
Skr. 8/99, ek. 38 þús.
Verð kr. 990 þús.
Suzuki Jimny JLX, bsk.
Skr. 6/00, ek. 32 þús.
Verð kr. 1180 þús.
M-Benz A-140, bsk.
Skr. 7/01, ek. 35 þús.
Verð kr. 1490 þús.
Honda HRV, bsk.
Skr. 2/02, ek. 31 þús.
Verð kr. 1690 þús.
Subaru Forester 2,0 AX, sjsk.
Skr. 3/98, ek. 89 þús.
Verð kr. 1180 þús.
Honda Civic Lsi, sjsk.
Skr. 2/97, ek. 110 þús.
Verð kr. 640 þús.
Opel Astra GL statlon, sjsk.
Skr. 4/98, ek. 99 þús.
Verð kr. 680 þús.
Sjáðu fleiri á suzukibilar.is
$ SUZUKI
---■////■------------
SUZUKI BÍLAR HF.
Skeifunni 17, sími 568-5100