Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2003, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2003, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 11.JÚNÍ2003 Nágrannavarsla kom í veg fyrir innbrot Tekinn með fíkniefni Athugull nágranni í Breiðholtinu kom í veg fyrir að ungur piltur kæmist undan með þýfi úr húsi sem hann braust inn í á hádegi í gær. Nágranninn sá piltinn fara inn í húsið og fannst það grun- samlegt þar sem hann kannað- ist ekki við hann. Hann hringdi í húseigandann sem var nýfarinn til vinnu sinnar og spurði hvort hann hefði átt von á einhverj- um. Þegar Ijóst var að svo væri ekki var hringt í lögregluna. Pilt- urinn var enn í húsinu þegar lögreglan kom á staðinn og hljóp út þegar hann varð henn- ar var. Á hlaupunum missti hann tösku með þýfinu en lögreglan elti hann uppi og handtók hann. I töskunni voru skartgripir,tölvu- leikir og peningar sem hann hafði tekið úr íbúðinni en engar skemmdir voru á íbúðinni. Málið er nú í rannsókn hjá lögreglunni í Reykjavík. Að sögn nágrannans var það til- viljun að hann skyldi hafa séð piltinn þar sem hann var á leið út þegar hann varð hans var. Hann sagðist þekkja húseigand- ann vel og vissi því að þessi pilt- ur ætti ekki að vera þarna. Hann sagði að pilturinn hefði gengið rakleitt inn í húsið skömmu eftir að húseigandinn hefði yfirgefið það og svo virtist sem hann hefði beðið eftir að húsið yrði mannlaust. Lögreglan sagði að nágranninn hefði brugðist hár- rétt við í stöðunni þar sem hann hefði tilkynnt lögreglunni strax um grunsamlegar mannaferðir og látið lögregluna um að góma innbrotsþjófinn. Lögreglan á ísafirði handtók karlmann á fertugsaldri klukk- an sex í gær en maðurinn var þá nýkominn með áætlunar- flugi frá Reykjavík til (safjarðar. Maðurinn hefur komið við sögu lögreglunnar vegna fíkni- efnamisferlis og vöknuðu grunsemdir um að hann væri með fíkniefni í fórum sínum. Við handtökuna fann lögreglan tæplega 76 grömm af kanna- bisefnum og tæp 4 grömm af amfetamíni hjá manninum. Hann er enn þá í haldi lögregl- unnar á (safirði, en rannsókn á fíkniefnamisferli mannsins stendur nú yfir. ■ Barnaklámsmaðurinn sagður kurteis Var starfsmaður Tollstjóra og útvarpsmaður í mörg ár Vann hjá Fínum miðli og í sumarbúðum KFUM Maðurinn, sem lögreglan í Reykjavík handtók í síðustu viku fyrir að hafa í fórum sín- um þúsundir mynda af barnaklámi og öðru klám- fengnu myndefni, var hand- tekinn í vinnu sinni hjá Toll- stjóranum í Reykjavík. Þar hafði maðurinn starfað í 19 ár og sagði strax upp vinnu sinni hjá Tollstjóra þegar upp komst um athæfi hans. Maðurinn er 37 ára Reykvíkingur og hefur verið búsettur í neðra Breiðholti. Fyrir um 15 árum var hann rek- inn úr starfi hjá KFUM sem er með sumarbúðir fyrir unga drengi. Ekki hefur verið getið um að hann hafí þar sýnt tilburði um áreitni, en uppsögnin er sögð hafa verið vegna þess að hann þótti lélegur starfs- maður. Samkvæmt heimildum DV mun hann þó hafa ráðið sig ári seinna í öðrum sumarbúðum sam- takanna. Þá hefur hann einnig sungið í kirkjukór og hefur sótt um að komast í þekktan karlakór. Flann hefur áður mi^st vinnuna vegna áráttu sinnar að sanka að sér klámefni í vinnunni. Það var þegar hann vann á útvarpstöðvum Fíns miðils, þ.e. Aðalstöðinni, Gullinu, Matthildi og Steríó. Var hann m.a. með þátt um Bob Murrey og naut töluverðra vinsælda. Kvartanir komu þá frá hlustendum þar sem manninum var borið á brýn að hafa tælt drengi í útsendingum. Þá varð hann líka uppvís að því að sanka að sér barnaklámi og var honum þá sagt upp. Málinu var þó ekki vísað til lögreglu. Vinnufélagi mannsins á Fínum miðli segir að hann hafi sóst eftir að passa börn vinkvenna sinna. Hafi mönnum þá ekki staðið á sama. Þrátt fyrir þetta var maður- inn endurráðinn um tíma hjá Fín- um miðli þegar nýir eigendur komu að fyrirtækinu. Vinsæll útvarpsmaður „Hann hefur verið viðloðandi út- varpsmennsku alla tíð. Það var svo- lítið skrýtið að þó menn væru að finna vafasama hluti í tölvunum hjá honum í gegnum tíðina, þá er eins og aldrei hafi verið tekið al- mennilega á því,“ sagði fyrrverandi vinnufélagi hans hjá Fínum miðli. „Þetta er góðlegur, lág- vaxinn og feitlaginn gaur og maður sem lík- legur væri til að vera ráðinn sem trúður í barnaafmæli." „Þetta er góðlegur, lágvaxinn og feitlaginn gaur og maður sem líkleg- ur væri til að vera ráðinn sem trúður í barnaafmæli. Hann var kurteis og virtist hinn mesti öðlingur. Manni brá þó þegar fólk fór að hringja utan úr bæ og spyrja hvort maður vissi með hvers konar skrímsli maður ynni með.“ Þessi vinnufélagi hans segir að ýmsir virð- ist hafa vitað af þessu og lenti mað- urinn m.a. í því að vera „barinn í buff' eins og hann orðaði það. Þá var ráðist á bílinn hans og hann skemmdur. hkr@dv.is SAGÐI UPP HJÁ TOLLSTJÓRA: Maðurinn sem lögreglan handtók vegna barnaklámsmálsins sagði upp störfum sínum hjá Tollstjóraembættinu í Reykjavík þegar upp um hann komst. r i 1 ^ i 1 1 || 1 ^ jS j' •* jjíf* % <' »?'* Reuters vitnarí ónafngreindan bandarískan embættismann: íhuga að fara með flug- vélarnar frá Keflavík HLUTVERKINU HUGSANLEGA LOKIÐ: F-15 orrustuþotur komu fyrst til Keflavíkur árið 1985.Á árunum 1962-1991 flugu liðsmenn varnarliðsins í veg fyrir rúmlega 3.000 sovéskar herflugvélar umhverfis landið - fleiri en allar aðrar flugsveitir banda- ríska flughersins samanlagt - en það gerist sárasjaldan núorðið. Fréttastofa Reuters hafði í morgun eftir ónafngreindum bandarískum embættis- manni að stjórnvöld íhugi að fara með allar fjórar F-15 orr- ustuþoturnar frá Keflavík. í frétt Reuters segir að Banda- ríkjastjórn vilji fara með vélarnar burt þar sem langtum minni ógn stafi af Rússlandi en Sovétríkjunum sálugu. Fullyrt er í fréttinni og haft eftir ónafngreindum bandarískum embættismanni að George Bush hafi í bréfi sínu til Davíðs Oddsson- ar í síðustu viku minnst á orrustu- þoturnar án þess þó að segja ber- um orðum að Bandaríkjamenn vildu flytja þær annað. Þá hefur Reuters eftir sendiráðu- nauti hjá Atlantshafsbandalaginu að Bandaríkjamenn hefðu allt eins getað horfið með þoturnar frá Keflavík fyrir áratug; aðeins póli- tfskar ástæður hefðu komið í veg fyrir það enda væri ísland orðið nánast þýðingarlaust í hernaðar- legu tilliti, eða „strategically on the edge of nowhere", eins og segir orðrétt í fréttinni. Halldór Ásgrímsson hefur sem kunnugt er sagt að í bréfi Bush til Davíðs Oddssonar felist að Banda- ríkjamenn vilji fara nýjar leiðir í varnarsamstarfi þjóðanna og málið sé „alvarlegt". Hins vegar sagði Halldór einnig að ekkert í bréfinu benti til að Bandaríkjamenn væru ósammála því mati íslenskra stjórnvalda að loftvarnir væru nauðsynlegar íslandi: „Það kemur ekkert fram í bréfi forsetans sem bendir til að þeir séu á öðru máli.“ Svarbréf Davíðs Oddssonar til George Bush Bandaríkjaforseta verður afhent í Hvíta húsinu í Was- hington í dag. olafur@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.