Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2003, Blaðsíða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2003, Blaðsíða 42
Jl 46 DV HCLGARBLAD LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ2003 ^fc aettarmót - garðveislur - afmæli - brúðkaupsveislur - útisamkomur - skemmtanir - tónleikar - sýningar - kynningar o.fl. o.fl. o.fl. ...og ýmsir fylgihlutir I Ekki treysta á veðrið þegar skipuleggja á eftirminnilegan viðburð. Tryggið ykkur og leigið stórt tjald á staðinn - það marg borgar sig. Tjöld af öllum stærðum frá 50-400 m2. I Leigjum einnig borð og stóla í tjöldin. Jaðdaleega tkðta ...mcð skitum i heimavelli WWW.skatar.is ^550 9800 - fax 550 980l - bis@skatar.is, UTBOÐ F.h. Fasteignastofu Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í gerð lóðar við leikskóla að Bakkastöðum 77 í Staðahverfi. Helstu verkþættir eru jarðvegsskipti fyrir nýju leikskólahúsi, gerð bílastæða, nýlögn á hellum og kantsteini, gróðursetning, þöku- lagning, uppsetning á leiktækjum og girðingum. Enn fremur lagn- ing frárennslis- og snjóbræðslulagna og lýsing lóðarinnar. Helstu magntölur: Malarfylling: 760 m3 Hellulögn: 300 m2 Þökulögn: 650 m2 Malbik: 450 m2 Steyptur veggur: 25 Im Gróðurbeð: 150 m2 Netrimlagirðing: 125 Im Verklok: 26. september 2003. Útboðsgögn fást á skrifstofu okkarfrá og með kl. 13.00,18. júní 2003, gegn 5.000 kr. skilatryggingu. Opnun tilboða: 1. júlí 2003 kl. 10.00, á sama stað. FAS80/3 INNKA UPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Frfkirkjuvegi 3 - 101 Reykjavfk - Sfmi S70 5800 Fax 662 2616 - Netfang isrörhus.rvk.i* F.h. Orkuveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboði í verkið: „Vatnsgeymir T4,1. áfangi". Um er að ræða jarðvinnu og byggingu sökkla vegna eins vatnsgeymis ásamt lokahúsi og yfirfallsmannvirki, sem Orkuveitan hyggst reisa á Reynisvatnsheiði. Orkuveitan áætlar að reisa þar þrjá vatnsgeyma, sem hver um sig eru um 38 x 60 m að grunnfleti og er þetta verk 1. áfangi í byggingu þess fyrsta. Fyrir framan þennan geymi verður reist lokahús sem er um 13 x 26 m að grunnfleti. Verkið nær til þess að grafa og fleyga fyrir vatnsgeymi, lokahúsi, yfirfallsmannvirki og lögnum, leggja og þjappa fyllingu undir sökkla og plötur og steypa upp sökkla, hluta af veggjum og tvær botnplötur lokahússins. Verkið nær einnig til stálsmíði á hluta af yfirfallslögnum sem steyptur verður inn með sökklunum. 3.000 m3 5.600 m3 5.200 m3 470 m2 17.700 kg 185 m3 1.500 kg Frárennslis- og drenlagnir 120 m Útboðsgögn fást á skrifstofu Innkaupastofnunar Reykjavíkur, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, frá og með 16. júní 2003, kl. 13,00 gegn 10.000 kr. skilatryggingu. Opnun tilboða: 30. júní 2003 kl. 10.00 á skrifstofu Innkaupastofnunar. OR041/03 Helstu magntölur: Gröftur í laus jarðlög Sprenging/fleygun Fyllingar Steypumót Bendistál Steypa C30/37 Stálsmíði (ryðfrítt) Skák Umsjón: Sævar Bjarnason Tvö hundruö börn á barnaskákmóti Stemningin var frábær á Broadway á hvítasunnudag þegar hátt í tvö hundruð böm mættu til leiks á Barnaskákmót Nb.is. Keppt var í fjór- um flokkum og í mótslok krýndi Frið- rik Ólafsson, fyrsti stórmeistari fs- lendinga, fjóra Nb.is-meistara: Júlíu Guðmundsdóttur, Helga Brynjars- son, önnu Maríu Hrafnsdóttur og Mikael Luis Gunnlaugsson. „Takk fyrir frábært mót,‘‘ sagði Friðrik um veisluna miklu þar sem boðið var upp á landsþekktar stjömur á borð við Jóhönnu Guðrúnu, Hreim Örn og Jakob Frímann, en líka upp á ljúf- fengar veitingar, ótal vegleg verðlaun og vinninga í happdrætti - og meira að segja eldgleypa! Taflmennskan hófst klukkan 13 og var teflt í flokkum stelpna og stráka í 1.-3. bekk og 4.-6. bekk. Júlía sigraði með fullu húsi! Júlía Guðmundsdóttir úr Rima- skóla kom, sá og sigraði í flokki stúlkna í 4. til 6. bekk. Hún hefur sannarlega tekið stórstígum framför- um í vetur, enda varð hún íslands- meistari með stúlknasveit Rimaskóla og sigraði á hinu sterka vormóti Hróksins og Fjölnis. Anna María Hrafnsdóttir úr Breið- holtsskóla varð Nb.is-meistari í flokki stúlkna í 1. til 3. bekk. Yngri stúlkurn- ar kepptu í hópi með þeim eldri og þess vegna er vinningshlutfall Önnu Maríu mjög glæsilegt. Hún hlaut íjóra og hálfan vinning og næstar komu Dagrún Björk Sigurðardóttir úr Lágafellsskóla og Elísabet Ragnars- dóttir úr Rimaskóla með fjóra vinn- inga. Helgi Brynjarsson sigraði eftir æsispennandi baráttu f flokki stráka í 4. til 6. bekk. Helgi, sem er í Hlíðar- húsaskóla og varð í 2.-3. sæti á Landsmótinu í skólaskák, sigraði í tveimur fyrstu umferðunum og gerði jafntefli í þriðju umferð við Ingvar Ásbjömsson, skólaskákmeistara Hróksins. Helgi sigraði í fjórðu um- ferð og þeirri flmmtu mætti hann Svanberg Má Pálssyni, íslandsmeist- ara í skólaskák, sem er einn efnileg- asti skákmaður landsins. Jafntefli varð niðurstaðan eftir harða baráttu og í lokaumferðinni mættust Helgi og Hjörvar Steinn Grétarsson, skák- meistari Rimaskóla. Helgi sigraði í íjórðu umferð og í þeirri flmmtu mætti hann Svanberg Má Pálssyni, Islandsmeistara í skólaskák, sem er einn efnilegasti skákmaður landsins. Jafntefli varð niðurstaðan eftir harða baráttu og í lokaumferðinni mættust Helgi og Hjörvar Steinn Grétarsson, skákmeistari Rimaskóla. Hjörvar Steinn fór á kostum í fyrstu fimm umferðunum og var með fullt hús. Það var því að duga eða drepast fýrir Helga, og hann sýndi mikinn styrk með því að sigra í æsispennandi úr- slitaskák í lokaumferðinni. Þar með höfðu Helgi og Hjörvar báðir hlotið 5 vinninga - en þeir voru ekki einir á toppnum! Vilhjálmur Pálmason úr Laugar- nesskóla og Geir Guðbrandsson úr Hvaleyrarskóla sigruðu báðir í loka- umferðinni og hrepptu 5 vinninga. Það voru þvf fjórir knáir skákmenn efstir og grípa varð til stigaútreikn- ings. Þar varð Helgi Brynjarsson efst- ur Mikael Luis Gunnlaugsson úr Melaskóla vann það frækilega afrek, rétt eins og Júlía Guðmundsdóttir, að sigra f öllum skákunum sex. Mikael var hinn öruggi sigurvegari í flokki stráka í 1. til 3. bekk og er enn eitt skákefnið sem kemur úr skólanum hans Arngríms Gunnhallssonar, sem hefur byggt upp gríðarlega öflugt skáklíf í Melaskóla. Of lítið er gert að því að birta skák- ir með ungum skákmönnum í dag- blöðunum, þær eru venjulegast birt- ar á öðrum vettvangi, tímaritinu Skák eða skákfréttablöðum. Ég ætla að bregða aðeins út af venjunni. Hvftt: Helgi Brynjarson Svart: Hjörvar Steinn Grétarsson Sikileyjarvöm. Nb.is mótið. Reykjavík 08.06. 2003 1. e4 c5 2. b3 Rc6 3. Bb2 d6 4. f4 Rf6 Ungir piltar draga enn lærdóm af spekingunum. Ingvar Þór Jóhannes- son, einn af forvígismönnum Hróks- ins, teflir oft svona og það er því eðli- legt að Helgi fylgi í fótspor hans. 5. BxfB exfB 6. Rf3 Bg4 Staðan er u.þ.b. jöfn en eftir 6. f5 væri svartur með að- eins betra tafl. 7. Be2 Be7 8. Rc3 Db6 9. h3 BxB?! Betra er 9. Be6, núna er frumkvæðið í höndum hvíts. 10. BxÖ 0-0 11. Rd5 Dd8 12.0-0 Rb4 Það er skiljanlegt að hvítur vilji gefa svörtum annað tvípeð og e.t.v. veit Helgi að þegar mislitir biskupar em á borðinu þá stendur sá betur sem hefur fmmkvæðið. En 13. Re3 er einnig góður leikur sem heldur öllum möguleikum opnum og hvítur má vel við stöðu sína una. 13. Rxb4 cxb4 14. d4 Db6 15. Kh2 Dc7 16. Khl a5 17. Hcl Báðir keppendur hafa teflt vel en nú kemur ónákvæmur leikur. Betra var 17. - d5 en ekki leika hróknum á c8 vegna þess að b7-reiturinn verður viðkvæmur fyrir e5 framrásinni. Peð- ið á f4 er óvaldað! 17. - Hfc8 18. Dd3 Dc3 19. Dxc3 Hxc3 20. e5! fxe5 21. dxe5 dxe5 22. Bxb7 Hér kemur reynsluleysi beggja (?) vel í Ijós. Best er 22. Hd8 og svartur hefurágætajafnteflismöguleika. Eftir 23. fxe5 kemur Bg5 og c2 peðið fellur. Og staðan er jöfn. 22. - Hb8 23. Bd5 Hc7?? Nauðsynlegt var að vera „kald- ur“ og leika 23. exf4 24. Hxf4 Bf6 og svartur hefur ágætis möguleika á jafntefli. Nú beinir hvítur spjótum sínum að f7 reitnum. 24. foe5 Bg5 25. Hcel Hd8 26. Bc4 He7 27. Hf5 Bh4 28. Hefl HÍ8 Ekki er svarta staðan falleg núna og Helgi gerir út um skákina með næsta leik. En Hjörvar Steinn: „Það verður enginn óbarinn hrókur alls fagnaðar" eins og við gömlu skákmennimir segjum stundum! Haldið áfram strákar, vel teflt hjá báðum. 29. e6 f6 30. Hxa5 Kh8 31. Hb5 Bg3 32. Hxb4 h6 33. Hf3 Bd6 34. Hb6 Hd8 Og nú kemur lokaatlagan, hvítur er með gjörunnið tafl. 35. Hd3 Bc7 36. Hxd8+ Bxd8 37. Hb8 He8 38. a4 Kh7 39. a5 f5 40. a6 f4 41. a7 f3 42. gxf3 HfiB 43. a8D Be7 44. HxfB BxfB Og hvítur vann ör- ugglega. 1-0 Evrópumót einstaklinga Ingvar Ásmundsson (2327) vann sinn annan sigur í röð á Evrópumóti einstaklinga er hann lagði spænska stórmeistarann Pablo San Segundo (2515) í 12. umferð. Hannes Hlífar Stefánsson (2565) og Helgi Ólafsson töpuðu báðir fyrir rússneskum stór- meisturum, Hannes fyrir Evgeny Alekseev (2607) og Helgi fyrir Alexei Iljushin (2556). Það var súrt í broti því ljóst er að enginn íslensku kepp- endanna nær því að verða meðal þeirra 39 sem komast áfram í næstu heimsmeistarakeppni. Þrettánda og síðasta umferð fór fram í gær, föstudag. Efstur eftir 12 umferðir er georíski stórmeistarinn Zurab Azmaiparas- hvili (2678) með 9 vinninga. I 2.-3. sæti eru rússneski stórmeistarinn Vladitnir Malakhov (2672) og þýski stórmeistarinn Alexander Graf (2630) með 8 1/2 vinning. Hvítt: Hannes H. Stefiánsson (2565) Svart: Vadim Zvjaginsev (2664) Sikileyjarvörn. Istanbúl (11), 11.06. 2003 1. e4 c5 2. RB e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rc6 5. Rc3 d6 6. Be3 Rf6 7. Be2 Be7 8. f4 0-0 9. Dd2 e5 10. RB b6? Kannski greip svartur í vitlaust peð hér (?!) því þetta er ansi hægfara leikur. 10. - a6 er eðlilegri en svartur vill komast úr (?) fræðunum sem fyrst. Annar möguleik er hér 10. Rg4 með flóknu tafli. 11.0-0-0 Bb7 12. g4 Hannes finnur á sér að andstæð- ingurinn er eitthvað illa stemmdur og lætur vaða. Eðlilegast virðist 12. Rxg4 13. Hhgl Rxe3 14. Dxe3 og erfitt er að sanna ágæti peðsfórnarinnar?! En það reynir ekki á það. 12. - exf4 13. Bxf4 Re5 14. g5 Rfd7 15. h4 Hc8 16. Rd4 Rc5 Hvítur hefur greinilega náð öflugu frumkvæði hér, peð svarts á drottningarvæng ættu að vera lögð af stað í sóknina! 17. De3 Dc7 18. Rcb5 Dd7 Svartur er kominn í bullandi vandræði, þeir tefla ekki alltaf vel þessir ofurstórmeistarar, enda mannlegir og þreytast jafnvel eða eitthvað enn verra! 19. Bxe5! dxe5 20. Rf5 De6 -■X m a#8 ii iiii 3§ w thm A & m H & a a Já, þetta var auðvelt, en skákmað- ur teflir eins vel og andstæðingurinn leyfir honum. Eftir næsta leik er minnst skiptamunur og peð af en Rússinn ákveður að sökJcva skútunni strax. Takk fyrir. 21. Bg4 Bxe4 22. Rh6+ gxh6 23. Bxe6 fee6 24. gxh6 Kh8 Með drottningu minna er ekki neinn tilgangur að beijast! 25. Hhfl Bf5 26. Rd6 Bxd6 27. Hxd6 Re4 28. Hxe6 1-0
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.