Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2003, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 16.JÚLÍ2003
Útlönd
Heimurinn í hnotskurn
Umsjón: Erlingur Kristensson og Kristinn Jón Arnarson
Netfang: erlingur@dv.is/kja@dv.is
Stmi: 550 5828
Hætta á þurrki
VEÐURFAR: Stjórnvöld á Italíu
vara við því að neyðarástand
gæti verið yfirvofandi vegna
þurrka í landinu.Talsverður
vatnsskortur er nú í landinu
norðanverðu og ekkert lát virð-
ist vera á sumarhitanum þar í
landi.
Regnmagn í Feneyjum síðustu
sex mánuði hefur verið 40%
undir því sem gerist í meðalári
á Ítalíu
og Áin Pó hefur aldrei verið
jafn vatnslítil, yfirborð hennar
er næstum átta metrum undir
eðlilegum mörkum.
Ef ekki rignir innan tveggja
vikna gæti þurft að grípa til ör-
þrifaráða á borð við að tak-
marka vatnsnotkun í landbún-
aði og ýmiss konar öðrum iðn-
aði.
Flóð á Indlandi
HAMFARIR: Mikil flóð eru nú á
Indlandi og hafa að minnsta
kosti 52 látist af völdum þeirra.
Þar að auki hafa hamfarirnar
gert næstum fjórar milljónir
manna heimilislausar. Á mynd-
inni hér til hliðar gengur mað-
ur frá líki 13 ára pilts sem varð
flóðinu að bráð.
FJÖLMIÐLAFÁR: Danskir fjölmiðlamenn ráfa um fyrir utan réttinn í Ringsted þar sem morðingi MiuTeglgaard Sprotte varyfirheyrður ígærmorgun en fjölmiðlamenn fengu ekki að vera viðstaddir af ótta við að það myndi hindra yfir-
heyrsiurnaryfir manninum. Hann játaði þar að hafa myrt stúlkuna og síðan svívirt lik hennar föstudaginn 27. júní síðastliðinn. Svo gróf hann lík hennar í jörðu en það fannst 30. júní. Málið hefur vakið mikla athygli og óhug í Dan-
mörku og víðar. Morðinginn fannst meðal annars eftir ábendingar almennings og einnig eftir að foreldrar hans höfðu veitt upplýsingar sem leiddu til þess að húsleit var gerð og maðurinn handtekinn.
DNA-rannsókn sannar sekt morðingjans, Steffens Kristensens, 22 ára:
Skalf af ekkasogum þegar
hann játaði morðið á Miu
( gær játaði 22 ára maður að
hafa drepið dönsku telpuna
Miu Teglgaard Sprotte og síðan
svívirt lík hennar. Hann hafði
verið handtekinn á mánudag
vegna morðsins og játaði síðan
fyrir rétti í Ringsted í gærmorg-
un. DNA-rannsókn staðfesti síð-
an sekt hans.
Maðurinn, sem danska blaðið
BT sagði í gær að héti Steffen
Kristensen, var færður grátandi
fyrir réttinn í gærmorgun og
sögðu viðstaddir að hann hefði
skolflð af ekkasogum ailan tímann
yfir lestri dómarans. Þurfti dómar-
inn mörgum sinnum að biðja
hann um að fjarlægja vasaklút
sem hann grét í svo sæist í andlit
hans og hægt væri að skilja svör
hans við spurningum réttarins.
Hann var síðan dæmdur í fjög-
urra vikna gæsluvarðhaid og gert
að sæta geðrannsókn.
Gult hjól veitti vísbendingar
Fyrir rétti kom í ljós að lögreglan
hafði komist á spor morðingjans
vegna þess að margir höfðu séð
mann hjóla um á gulu hjóli nálægt
þeim stað sem Mia hvarf á þann
27. júní síðastliðinn. Maðurinn
sem játaði í gær á einmitt gult hjól.
Jafnframt hafði hann þvegið föt
sín kvöldið sem Mia hvarf en for-
eldrum hans þótti það mjög
óvenjulegt. Þær upplýsingar
leiddu síðan til þess að tekin var
blóðprufa af manninum á mánu-
daginn jafnframt því sem húsleit
var gerð heima hjá foreldrum
hans. Við yfirheyrslur mannsins í
gær kom í ljós að lögreglan hafði
fundið smokk með sæði í sem
Jafnframt hafði hann
þvegið fötsín kvöldið
sem Mia hvarfen for-
eldrum hans þótti það
mjög óvenjulegt.
svaraði til sæðis sem fundist hafði
á líki stúlkunnar. Síðar í gær fékk
lögreglan niðurstöður úr DNA-
greiningu á blóði úr manninum
sem staðfesti að hann hafði kom-
ist í snertingu við stúlkuna.
1 vistarverum mannsins fundust
stúlkuundirföt og klámmynd sem
stúlkuandlit hafði verið límt á.
Jafnframt hafði lögreglan á brott
með sér tölvu mannsins en enn er
ekki komið í ljós hvort hún hafði
einhverjar vísbendingar að
geyma.
Maðurinn var þegar í stað hand-
tekinn eftir húsleitina á mánudag.
Lýsti hann þá yfir sakleysi sínu. Á
þriðjudagsmorgun játaði hann
hins vegar á sig morðið eins og
fýrr segir.
Nýkominn af
meðferðarheimili
Steffen Kristensen hafði áður
komið við sögu lögreglunnar í
Ringsted fyrir innbrot og aðra
smáglæpi og sögðu nágrannar
hans að þeir hefðu lengið vitað að
hann væri svartur sauður í mann-
lífi Benlose. Hann hafði nýverið
snúið aftur til foreldrahúsa eftir að
hafa verið sendur burt til að taka
þátt í meðferðarverkefni í hálft ár í
tilraun til að gera hann að nýtum
þjóðfélagsþegn.
Því miður fyrir Miu Teglgaard