Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2003, Síða 23
MIÐVIKUDAGUR 16.JÚLÍ2003 TILVERA 23
Gospel fyrir alla
GOSPELMÓT: Mikill áhugi erá
gospeltónlist og marga langar
að taka þátt í að flytja þessa
mögnuðu tónlist. Nú gefst tæki-
færi til þess því dagana 25.-27.
júlí verður gospelmót að Kirkju-
lækjarkoti í Fljótshlíð. Kennari er
Óskar Einarsson sem hefur verið
leiðandi ígospeltónlistá íslandi
síðustu ár. Hann stjórnaði upp-
töku á þremur síðustu diskum
Páls Rósinkrans og hefur ferðast
um landið og haldið gospelnám-
skeið með kirkjukórum og öðru
áhugafólki. Raddþjálfari á mót-
inu í Kirkjulækjarkoti er Þóra
Gréta Þórisdóttir og Hrönn
Svansdóttir er þeim til aðstoðar.
Upplýsingar og skráning er á
www.hljomar.is og á skrifstofu
Fíladelfíu, s. 5354700.
GRASALÆKNIRINN: „Þótt blóðbergste sé bragðgott borgar sig ekki að drekka það í óhófi
því það er sýrumyndandi," segir Ásthildur Einarsdóttir. DV-myndir Gun
Grand Cherokee Limited, árg. 1995
Einn meö öllu til sölu. Ekinn 115 þús/km, dökkgrænn sanseraöur,
grátt leöur og rafmagnsstillt sæti, Útvarp/CD, rafmagnsloftnet, innri
hitastillir, litaö gler, topplúga, 2-föld, Ijós og dimmer 1 snyrtispeglum,
sílsarör, cruise control, speglar rafdr., þjófavörn, dráttarkúla.
Verð kr. 1.450.000. Tilboð.
Upplýsingar I slma 896 1494 eöa 565 2354.
t
Elskulegur maðurinn minn, faðir okkar og afi,
Jonas Þór Guðmundsson
stýrimaður,
Austurbrún 6, Reykjavík,
sem lést laugardaginn 5. júlí í Búlgaríu,
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju
fimmtudaginn 17. júlí kl. 13.30.
Þórhalla Helga Þórhallsdóttir,
Lárus Þórarinn Blöndal,
Óskar Gunnar Hansson,
Gísli Sæmundsson,
Bergljót Birna Blöndal,
Auöur S. Jónasdóttir,
Jónas Þór Jónasson,
Guörún Sæmundsdóttir,
Margrét Guömundsdóttir,
Marta Bíbí
Guömundsdóttir,
Helga Guömundsdóttir,
Rannveig Guðmundsdóttir,
Gunnbjörn Guðmundsson,
Hjördís Ström,
Jóhann Jónsson,
Victor Manúel Santhos,
Klara Lind Jónsdóttir,
og barnabörn
ónæmiskerfið og góð fyrir maga
og ristil, auk sem það væri hreins-
andi fyrir lifur. Þó skyldi nota njól-
ann í hófi því hann innihéldi tölu-
vert af sýrum. Elftingin er góð te-
jurt, að sögn Ásthildar. Hana má
líka nota í salöt og steikja í smjöri.
Hún styrkir bein og hefur góð
áhrif á blöðruhálskirtil karla. Þá
hefúr fífillinn marga kosti. Hann
er bjúglosandi, bólgueyðandi,
góður við harðlífi, græðandi og
hreinsar bæði húð og lifur. Blöðin
eru beisk og því er gott að láta þau
standa í vatni um stund áður en
þau eru notuð í salat.
Blóðbergið bragðgott
Margar fleiri tegundir komu við
sögu og sumar þeirra fundust í
hrauninu. Baldursbráin er róandi
og styrkir ónæmiskerfíð. Hún er
góð út í grillolíur og til að mar-
inera kjöt og fisk. Birkið er bólgu-
eyðandi og gott við gigt - tilvalið
sem krydd á kjötið. Kerfill er
hóstastiilandi og örvar melting-
una. Að sjálfsögðu var minnst á
fjallagrösin því grasaferðir fyrr á
árum voru nær eingöngu bundnar
ijallagrasatínslu. Þá var lagst út og
farið á „grasafjall" til að sækja sér
næringu til vetrarins. Ásthildur lét
uppskrift að fjallagrasamjólk fylgja
skrifuðum fróðleiksmolum til við-
staddra.
Allir þekkja blóðbergið og flestir
sem spurðir voru í ferðinni kváð-
ust hafa prófað að brugga sér te af
því. Ásthildur tók fólki þó vara fyr-
ir að nota blóðbergste í óhófi, þótt
bragðgott væri, því það væri sýru-
myndandi. „Svo er það þannig að
sumt sem einum hentar, það
hentar ekki öllum. Til dæmis
mega ófrískar konur ekki borða
hvönn og heldur ekki þeir sem
þjást af sykursýki. Sama máli
gegnir um kerfil,“ sagði hún, og
heilræðin í lokin voru þessi: „Jurt-
irnar eru okkur bæði til gagns og
ánægju. Við skulum njóta þeirra
og nýta með gætni og af kunn-
áttu.“ gun@dv.is
VATNSHINDRUN: Þegar kylfingar koma að vellinum í Úthlíð í Biskupstungum blasir við ný
og glæsileg vatnshindrun sem Björn Sigurðsson bóndi og vaskir menn hans hafa útbúið.
„Golfvöllurinn hér hefur tekið stakkaskiptum á síðustu tveimur árum. Þessi tjörn og glaesi-
legt umhverfi hennar setur sterkan svip á völlinn sem er mjög vel við haldið," sagði Þórð-
ur Kr. Sigurðsson (lengst til hægri) við DV. Á myndinni eru einnig Björn Sigurðsson, sem
mundar kylfuna, og Hrafnhildur Guðbjartsdóttir, eiginkona Þórðar. DV-mynd Óttar
Greiðsluáskorun
Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna gjalda að gera
skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar:
Gjöldin eru: Staðgreiðsla og tryggingagjald sem fallið hafa í eindaga til og með 15. júlí 2003,
virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 5. júlí 2003 og önnur gjaldfallin álögð
gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með 15. júlí 2003 á staðgreiðslu, trygg-
ingagjaldi og virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, áfengisgjaldi, launaskatti, bifreiðagjaldi,
úrvinnslugjaldi, slysatryggingagjaldi ökumanna, föstu árgjaldi þungaskatts, þungaskatti skv.
ökumælum, viðbótar- og aukaálagningu söluskatts vegna fyrri tímabila, skemmtanaskatti og
miðagjaldi, virðisaukaskatti af skemmtunum, tryggingagjaldi af skipshöfnum ásamt skráningar-
gjöldum, búnaðargjaldi, iðgjaldi í Lífeyrissjóð bænda, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af inn-
lendri framleiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, aðflutningsgjöldum og útflutn-
ingsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, verðbótum á ógreiddan tekjuskatt og verðbótum á ógreitt
útsvar, fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjaldi, fisksjúkdómagjaldi, jarðarafgjaldi og
álögðum opinberum gjöldum sem eru:
tekjuskattur, útsvar, aðstöðugjald, sérstakur tekjuskattur manna, eignarskattur, sér-
stakur eignarskattur, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, tryggingagjald, iðn-
lánasjóðs- og iðnaðarmálagjald, þróunarsjóðsgjald, kirkjugarðsgjald, markaðsgjald,
gjald í framkvæmdasjóð aldraðra og skattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæði, of-
greiddar barnabætur, ofgreiddur barnabótaauki og ofgreiddar vaxtabætur.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðv-
um gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði sem af innheimtu skuldarinnar kann að
leiða, á kostnað gjaldenda.
Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyr-
ir gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 11.500 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingar-
gjald er 1.200 kr. og stimpilgjald 1,5% af heildarskuldinni, auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum.
Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað.
Þá mega þeir gjaldendur sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald, af-
dreginn fjármagnstekjuskatt og virðisaukaskatt búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð
án frekari fyrirvara. Loks mega þeir gjaldendur er skulda bifreiðagjöld og þungaskatt eiga von
á að skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara. Fyrrgreindur 15
daga frestur frá dagsetningu áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum.
Reykjavík, 16. júlí 2003.
Sýslumaðurinn á Blönduósi
Sýslumaðurinn á Akureyri
Sýslumaðurinn á Húsavík
Sýslumaðurinn á Olafsfirði
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði
Sýslumaðurinn á Eskifirði
Sýslumaðurinn á Höfn
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum
Sýslumaðurinn á Selfossi
Sýslumaðurinn í Vík
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli
Gjaldheimta Vestf jarða
Gjaldheimta Austurlands
Gjaldheimtan í Vestmannaeyjum
Tollstjórinn í Reykjavík
Sýslumaðurinn í Kópavogi
Sýslumaðurinn í Hafnarnrði
Sýslumaðurinn í Keflavík
Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli
Sýslumaðurinn á Akranesi
Sýslumaðurinn í Borgarnesi
Sýslumaðurinn í Stykkishólmi
Sýslumaðurinn í Buðardal
Sýslumaðurinn á Isafirði
Sýslumaðurinn í Bolungarvík
Sýslumaðurinn á Patreksfirði
Sýslumaðurinn á Hólmavík
Sýslumaðurinn á Siglufirði
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki