Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2003, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 16.JÚÚ2003 SKOÐUN 19
Snögg umskipti í lífí annars auðugasta manns Kína og eins efnaðasta furmkvöðuls veraldar:
Orkídeukóngurinn
í 18 ára fangelsi
Hollenska þorpið
Fyrirtæki hans átti gróðurhús í
átta héruðum þegar það var
skráð í kauphöllinni í Hong Kong
2001 oghét þáEuro-Asia. Þávoru
fjárfestar um allan heim gráðugir
í að leggja fé í nýstofnuð fyrirtæki
íKfna.
Þeir tóku hins vegar lítið eftir
því að „orkídeukóngurinri', sem
svo var kallaður, lagði einnig fé í
STÓRSVINDLARI: Jang Bin fæddist í Kína en flúði til Hollands í námsmannauppreisninni 1989 og varð ríkisborgari þar. Hann flutti afturtil Kfna og
svindlaði þar og mútaði og að síðustu gerðist hann goskarl hjá Kim Jong-il í Norður-Kóreu. Þá var yfirvöldunum í Rauða-Kína nóg boðið.
HEIMSLJÓS
Oddur Ólafsson
oddur§dv.is
Á síðasta ári var Jang Bin á
lista Forbes yfir ríkustu menn
heimsbyggðarinnar og var
hann þá talinn annar auðug-
asti maður Kína og 30. í röð
ríkustu og efnilegustu frum-
kvöðla í veröldinni. Nú situr
hann í fangelsi og mun dúsa
þar næstu 18 árin, dæmdur
fyrir fjársvik og mútur.
Yang Bin fæddist 1963 í
Nanjong, höfuðborg Jiangsu-
héraðs. Hann er af fátæku for-
eldri, varð snemma munaðarlaus
og ólst upp hjá ömmu sinni sem
einnig var snauð. Strákur var
duglegur og námfús og fékk leyfi
til framhaldsnáms erlendis.
Hann kom til Hollands í lok ní-
unda áratugarins og var meðal
þeirra sem studdu námsmanna-
uppreisnina 1989 sem endaði
með fjöldamorðunum á Torgi
hins himneska friðar 4. júní 1989.
Upplýsingar um efna-
haginn voru meira og
minna falsaðar og lítið
að marka það sem
kauphöllin hélt að
fjárfestum um fyr-
irtækið og framtíðar-
horfur þess.
Hann komst til Hollands og var
tekið vel á móti honum sem flótta-
manni sem sloppið hafði frá of-
sóknunum á hendur námsmönn-
um í heimalandinu. Hann hélt
áfram námi og fékk fljótlega hol-
lenskan ríkisborgararétt. Þegar
hann sneri aftur til Kína 1994 tók
Jang Bin upp vinsamleg samskiptí
við kommúnistastjómina. Það
auðveldaði honum að koma á fót
garðyrkjustöðvum þar sem rækt-
aðar vom orkídeur, en Kínverjar
vom þá farnir að efnast og læra að
meta lúxuslíf og meðfylgjandi
peningaeyðslu.
annað fyrirtæki og voru það væg-
ast sagt áhættusamar fjárfestingar.
Hann keypti land í Shenyang-hér-
aði fyrir stórfé og hóf uppbyggingu
íbúðahverfis og skemmtigarðs
sem áttí að heita Hollenska þorp-
ið. í héraði þar sem miJcið atvinnu-
leysi var viðvarandi kostaði dags-
aðgangur að þorpinu vikulaun
meðaltekjufólks. Þetta átti að
greiða fyrir þann munað sem hann
gat leyft sér, að spásséra innan um
hollensk hús með fram brúuðum
síkjum og glápa á hollenskar vind-
myllur og túlípanaakra.
Forbes áætlaði um þetta leyti
að auður Yang Bins væri um 900
milljónir dollara og hollenski
skemmtigarðurinn var metinn á
annað eins.
Byggt á sandi
Brátt kom hins vegar í ljós að fyr-
irtækið Euro-Asia Agricultural
Holdings var byggt á sandi. Upp-
lýsingar um efnahaginn voru
meira og minna falsaðar og lítíð að
marka það sem kauphöllin hélt að
fjárfestum um fyrirtækið, framtíð-
arhorfur þess og næstauðugasta
manns Kína.
í apríl 2002 var orðrómurinn
um hrun fjármálaveldisins orðinn
svo sterkur að minniháttar hlut-
hafar í fyrirtækinu og lánardrottn-
ar kröfðust þess að Jang Bin yrði
vikið úr forstjórastóli.
Stjórnvöld í Kína fóru líka að at-
huga skattframtöl og hvernig fyr-
irtækið komst yfir land sem ætlað
var til ræktunar og búvörufram-
leiðslu.
Til Norður-Kóreu
Um það leyti breyttust þjóðsög-
urnar um athafnamanninn og
frumkvöðulinn skyndilega. í lok
september sl. var hann kominn til
höfuðborgar Norður-Kóreu,
Pyongyang, og var þar orðinn
æðsti stjórnandi efnahagslegs frí-
svæðis. Hann var kominn í náðar-
faðm norður-kóreska einræðis-
herrans Kim Jong-il og greiddi fyr-
ir það með noklcrum gróðurhús-
um.
Kínverska stjórnin fylgdist vel
með Yang Bin og athöfnum hans
og var lítíð hrifin af samningi hans
við einræðisherrann í Pyongyang.
Þegar hann kom frá Norður-Kóreu
síðla árs var hann handtekinn. í
nóvemberlok var hann ákærður
fyrir svik, samningsrof, mútutíl-
raunir og ólöglegt eignarhald á bú-
jörðum.
Nú hefur dómur verið upp
kveðinn og 18 ára fangelsisvist
bíður undrabarnsins sem studdi
námsmannauppreisnina á sín-
um tíma og varð flóttamaður og
síðar einn umsvifamesti athafna-
maður í Kína.
Hvað segir Ingibjörg?
„Ég get því ekki orða bundist
yfir frammistöðu flokksforyst-
unnar í þessu hermáli. Allt í einu
þykir fráleitt að hafna risavopn-
um og erlendri herstöð á friðar-
tímum. Það vekur líka athygli að
Ingibjörg Sólrún hefur látið lítið
Efyrir sér fara í þessu máli og for-
vitnilegt væri að heyra hennar
£
!D Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
afstöðu. Allavega hefur fram-
ganga forystunnar orðið til þess
að margir kjósendur Samfylking-
arinnar hafa orðið fyrir gífurleg-
um vonbrigðum og framganga
hennar (þessu máli er flokknum
ekki til sóma."
Dagbjört Hákonardóttir
á Pólitlk.is
Leiðbeini sumarfólki
„Enda þótt stundum sé frem-
ur rólegt yfir starfi fyrirtækja um
hásumarið, þá er mikilvægt að
stjórnendur sinni þessu fólkl vel
og láti ekki annað afleysingafólk
um að leiðbeina því. Ýmis störf
sem vanir starfsmenn inna af
hendi fumlaust geta reynst flók-
in fýrir óvana. Því miður getur
þetta leitt til slysa og/eða eigna-
tjóns sem stjórnendur verða að
bera ábyrgð á ef hægt er að
rekja orsökina til ófullnægjandi
kennslu, stjórnunar eða eftirlits.
Stjórnendur eru því hvattir til að
slaka ekki á varðandi afleysinga-
fólkið heldur miklu fremur nota
tækifærið til að fara með því yfir
verkferla og eiga þá jafnvel
möguleika á að átta sig á þörf
fyrir úrbætur eða hagkvæmari
starfshætti."
Fréttabréf Samtaka verslunar
og þjónustu, www.svth.is
Rugl
„Hvers konar rugl er það eig-
inlega að kvelja fisk á stöng í
kannski klukkutfma - og sleppa
honum svo hálfdauðum? Hvar er
nú allt náttúruverndarliðið og
grænfriðungarnir með alla „um-
hverfisverndina"?Týndir? Lax
þarf ekki nema litlar skemmdir á
hreistri - þá er hann dauður eftir
nokkra daga. Þetta er þekkt f lax-
eldi... Kötturlnn minn yrði
orðlaus - ef hann vissi þetta."
Kristinn Pétursson i grein i
Morgunblaðinu, Að sleppa
veiddum laxi.